Morgunblaðið - 19.09.2018, Síða 29

Morgunblaðið - 19.09.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. SEPTEMBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hittir fólk sem virðist hugsa á sömu nótum og þú. Gerðu þér glaðan dag, þú átt það skilið eftir barning síðustu vikna. 20. apríl - 20. maí  Naut Nú þarf að hefja viðræður og komast að samkomulagi. Aðeins þannig kemstu áfram. Þú kennir í brjósti um góðan vin en láttu ekki á því bera. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of með þín málefni. Gerðu eitthvað óvenju- legt til að hrista upp í heilasellunum og bjóddu gömlum vinum að taka þátt í því. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Spurðu sjálfan þig af hverju þú þarft alltaf að vera að afreka eitthvað. Komdu fram við alla af virðingu og mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert eyðslukló í eðli þínu og þar sem eyðslusemin liggur í loftinu þarftu að fara sérstaklega varlega í dag. Lexía dags- ins er sú að sýna samúð og skilja sjónarmið hins aðilans. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Litlu, gætilegu skrefin sem þú tekur til þess að bæta starfsaðstöðuna leiða til stórfelldra breytinga. Hafðu ekki áhyggjur því málin leysast á farsælan hátt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gjafmildi þín gæti farið yfir mörkin í dag. Einhverra hluta vegna taka aðrir betur í hugmyndir þínar en áður. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ekki stinga höfðinu í sandinn varðandi ástvin. Útivera er allra meina bót. Ganga, hjólreiðar eða sundsprettur mun lyfta þér upp. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft að ganga úr skugga um að ekki sé verið að ganga á rétt þinn. Þú ert á leið í brúðkaup á næstunni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Dagurinn í dag er eins og púslu- spil; óskiljanlegur þar til búið er að raða nokkrum stykkjum saman. Glaðværð þín skapar tækifæri til daðurs og ástar- ævintýra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Oft ryðst fortíðin með óvæntum hætti inn í nútíðina og truflar það líf sem við höfum skipulagt. Sýndu öðrum skilning því fólk sér ekki hlutina með sömu augum og þú. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ástin nær fram bæði því besta og því versta í þér núna. Farðu vel með þig og nærðu þig vel. Settu þér það markmið að öðlast sálarró. Helgi R. Einarsson sendi mértvær limrur skemmtilegar, – „Orsök vandans“: Bjarnfreður bóndi á Seyru bjóst við af lífinu meiru. En það vildi’ enginn hann þennan vandláta mann, sem var bara kjaftur og eyru. Sú síðari heitir „Náttúruvá“: Jónas var konunum kær og kunni að umgangast þær. En er barnaði Öllu, Unni og Köllu. „Ykkur var, tautaði’ ann, nær.“ Vel er kveðið á Boðnarmiði, – Guðmundur Arnfinnsson yrkir: Hann Þengill úr Þingvallahreppi, sem þrásinnis kvaðst vera jeppi, var álitinn valla með öllum mjalla, hann var yfirlæknir á Kleppi. Helgi Ingólfsson er með á nót- unum: Sem jeppa við þekkjum öll Þengil, sem þóttist víst ætla á Hengil og ók upp til fjalla. Úr ferlegum halla hann flaug – og nú leikur hann engil. Hallmundur Kristinsson yrkir um það sem er efst á baugi: Í heilbrigðismálunum þörf er á því að þjóðin missi ekki trúna. Setja þarf hlutina samhengi í. Svandís er að því núna: Flötinn vil ég finna á að forðast erfðasyndina. Skal því reynt í skyndi ná að skoða heildarmyndina. Halldór Halldórsson er ekki sannfærður: Heildarmyndin er guggin og grá og gætir þar skugga á fleti. Svandís mun aldrei þar árangri ná, ef alltaf hún liggur í leti! Hallmundur Kristinsson yrkir eins og vera ber á tímum gangna og rétta: Orðsins bændur engu gleyma; upp þeir hefja raust: Ferskeytlurnar frá þeim streyma fyrirhafnarlaust. Og Halldór Guðlaugsson tekur undir: Margir þeirra ennþá eiga undir kodda sínum tár skapast þar af fagra, fleyga ferskeytlan í þúsund ár. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Jónasi, Þengli og Hengli „NÆST Á DAGSKRÁ: SJÖTTI ÞÁTTURINN Í ÞRIGGJA-PARTA SERÍUNNI OKKAR UM SKAMMTAFRÆÐI.“ „ÉG ÞARF EINS HÁA BRUNATRYGGINGU OG ÉG GET FENGIÐ FYRIR NÆSTA FÖSTUDAGSKVÖLD.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga frábæra foreldra sem styðja þig. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HEY, GRETTIR! GETTU HVAÐA DAGUR ER Í DAG? KLEINU- HRINGJA- DAGURINN! ÉG HÉLT HANN VÆRI Á HVERJUM DEGI HVAÐ ER VÍKINGA-SUSHI? KRYDDSÍLD! MOGGINN MOGGINN VÍKINGA- SUSHI VÍKINGA- SUSHI Víkverji getur ekki annað en dáðstað seiglunni í Paul McCartney, sem um helgina skaust á toppinn á bandaríska vinsældalistanum með nýrri plötu sinni, Egypt Station. 36 ár eru liðin frá því að gamli bítillinn komst fyrst á topp bandaríska Billboard-listans með sólóplötu. McCartney lagði sitt af mörkum við að kynna plötuna, kom fram í banda- rískum spjall- og skemmtiþáttum og hélt sérstaka tónleika, sem streymt var á netinu, í Grand Central Station í New York. Við gerð listans er stuðst við seldar plötur, niðurhal og streymi á netinu. Að þessu sinni réð sala á plötum úrslitum og mun það vera mjög fátítt nú orðið. x x x McCartney er orðinn 76 ára gam-all, en hann lætur sér fátt um aldurinn finnast og er í þann veginn að hefja tónleikaferð um heiminn til að kynna nýju plötuna. Rýnar hafa í skrifum um plötuna margir velt því fyrir sér hvers vegna McCartney haldi áfram að setja sig í eldlínuna og gefa út plötur. x x x Í viðtali við tímaritið New MusicalExpress er hann spurður hvers vegna hann sé enn að, hvað hann eigi eftir ósannað, hvers vegna að setja sig enn einu sinni í eldlínuna. „Það er þátturinn sem ég man aldrei eft- ir,“ svarar McCartney. „Setja sig í eldlínuna. Ég gleymi alltaf. Þetta er eins og konur sem eignast börn. Þær ganga í gegnum þennan hræðilega, hræðilega sársauka og síðan segja þær: „Eignumst annað, elskan.“ Það er eins og þær séu búnar að gleyma. Þetta er dálítið svipað hjá mér. Ég hef átt 17 sólóbörn og langar enn í annað. Mér finnst gaman að gera það sem ég hef alltaf gert. Ég hef gaman af vinnunni og gleymi að það verður til vara í lokin vegna þess að ég er of ákafur og á kafi í einhverju, að spila gítarriff, búa til fallegan lít- inn hljómagang á gítarinn. Ég verð svo upptekinn af þessu að ég gleymi að í leiðarlok verður próf.“ x x x Víkverji heyrir ekki betur en aðrétt einu sinni hafi McCartney staðist prófið. vikverji@mbl.is Víkverji Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig mun frelsast og hann mun ganga inn og út og finna haga. (Jóh: 10.9) Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is 2097/30 Króm / Brass verð199.000,- Svart takmörkuð útgáfa verð 265.000,- Hönnuður Gino Sarfatti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.