Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Verið velkomin
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20% afsláttur
af öllum Guerlain vörum
á meðan kynningu
stendur
Guerlain sérfræðingur
verður á staðnum og veitir
persónulega ráðgjöf.
GUERLAIN KYNNING
í Snyrtivöruversluninni
Glæsibæ
26.–28. september
Hús sjávarklasans efnir til dags
þorsksins í þriðja sinn hinn 3. októ-
ber næstkomandi. Þá verður húsið
opnað öllum áhugasömum. Þar
mun fjöldi íslenskra fyrirtækja
kynna þær fjölmörgu afurðir sem
framleiddar eru úr þorskinum hér
á landi og þá tækni sem þróuð hef-
ur verið til að hámarka nýtingu og
gæði afurðanna.
Skipulögð dagskrá verður í hús-
inu frá 14-17 og munu gestir m.a. fá
tækifæri til að smakka fjölda ólíkra
matvæla og fæðubótarefna, kynn-
ast fyrirtækjum og frumkvöðlum í
ólíkum geirum, allt frá hátækniiðn-
aði til fatahönnunar.
Með deginum er ætlunin að
minna á mikilvægi þorsksins fyrir
Ísland fyrr og nú, sýna þá fjöl-
breyttu flóru afurða sem unnin er
úr þorskinum og hvað íslenskum
fyrirtækjum og rannsókna- og há-
skólasamfélaginu hefur tekist vel
til við að hámarka gæði, nýtingu og
afurðaverð þessarar auðlindar,
samkvæmt því sem fram kemur í
fréttatilkynningu.
Dagur þorsksins
haldinn í þriðja sinn
Þarftu að láta
gera við?
FINNA.is
Sveit Íslands sem teflir í opn-um flokki ólympíumótsins íBatumi í Georgíu vannöruggan sigur á sterkri
sveit Letta, 2½:1½, í 2. umferð sem
fram fór í gær. Jóhann Hjartarson
og Guðmundur Kjartansson unnu á
öðru og fjórða borði, Hannes Hlífar
Stefánsson gerði jafntefli á þriðja
borði en Héðinn Steingrímsson tap-
aði á 1. borði. Um tíma var útlit fyr-
ir stórsigur Íslands því að Héðinn
átti um tíma unnið tafl gegn Igor
Kovalenko og Hannes átti góða
vinningsmöguleika gegn Nikita
Neskovs.
Eftir sigurinn hefur íslenska
sveitin hlotið fjögur stig, eins og 40
aðrar sveitir. Sveitin vann auðveld-
an 4:0-sigur á reynslulitlum
Palestínumönnum í 1. umferð. Mót-
herjinn í dag er sterk sveit Ísraela,
en á 1. borði þar teflir Boris Gelf-
and, sem fyrir fimm árum háði ein-
vígi um heimsmeistaratitilinn við
Indverjann Anand.
Eftir 4:0-sigur yfir Samveldi Ba-
hamaeyja í 1. umferð tapaði
kvennalið Íslands fyrir Hollend-
ingum 1:3 í gær. Guðlaug Þorsteins-
dóttir vann Önnu Haast á 2. borði.
Lenka Ptacnikova, Nansý Davíðs-
dóttir og Jóhanna Björg Jóhanns-
dóttir töpuðu öðrum skákum
viðureignarinnar. Íslenska kvenna-
sveitin teflir í 3. umferð í dag við
IPCA, sem er alþjóðleg sveit hreyfi-
hamlaðra.
Sigur Guðmundar Kjartanssonar
á 4. borði í gær var snaggaralegur
en Lettinn sem beitti skoska leikn-
um kom ekki að tómum kofunum
hjá Guðmundi, sem svaraði óvenju-
legum drottningarleik með því að
fórna tveim peðum. Ekki vildi Lett-
inn þiggja peðin en lenti í miklum
erfiðleikum vegna stöðu drottningar
á e2. Hann taldi sig sloppinn fyrir
horn þegar 15. leikur svarts kom
honum í skilning um annað:
Ólympíumótið í Batumi 2028; 2.
umferð:
Toms Kantans – Guðmundur
Kjartansson
Skoskur leikur
1. e4 e5 2.Rf3 Rc6 3. d4 exd4
4.Rxd4 Rf6 5.Rxc6 bxc6 6. De2!?
Hér er oftast leikið 6. e5 De7 7.
De2 Rd5 8. c4, en þessi leikur hefur
sést í skákum Nakamura, Navara
og fleiri góðra manna.
6. … d5!?
Snarplega svarað og partur af
undirbúningsvinnu Guðmundar.
Eftir 7. exd5+ Be7 8. dxc6 0-0 er
svartur á undan í liðskipan, hótar
9. … He8 og þá stöðu vildi Lettinn
ekki tefla.
7. Bg5?! Be7 8.Rd2 0-0 9. 0-0-0
Hb8 10. f3 He8
Skynsamlega teflt. Svartur stillir
hrókum sínum upp á hálfopnum lín-
um og er þegar kominn með betra
tafl.
11.Rb3 h6 12. Be3 Bd6 13. Bxa7?
Þetta peðsrán á eftir að reynast
dýrkeypt. En það er ekki auðvelt að
finna haldgóða leiki.
13. … Ha8 14. Df2 dxe4 15. Kb1
Valdar a2-peðið og hyggst koma
biskupinum á a7 undan. En næsti
leikur Guðmundar kom Kantans í
opna skjöldu.
15. … c5!
Með hugmyndinni 16. Bxc5 Bxc5!
17. Hxd8 Bxf2 og riddarinn valdar
e8-hrókinn. Biskupinn á sér enga
undankomuleið!
16. Bb5 e3 17. De2 Hxa7 18.
Bxe8 Dxe8 19. Hhe1 Da4 20.Rc1
Be6 21. b3 Da5 22. c4
Ekki 22. Dxe3 Rd5! o.s.frv.
22. … Bf5+ 23.Rd3 Be5 24. a4
Dc3 25. Ka2
Kóngurinn leitar skjóls. Góður
leikur er nú 25. … Bd4 en Guð-
mundur gerir út um taflið á fljót-
virkari hátt.
25. … Hxa4+! 26. bxa4 Dxc4+
27. Ka3 Be6!
Hvítur er óverjandi mát og gafst
upp.
Skákir ólympíumótsins eru sýnd-
ar í beinni á ýmsum vefsvæðum og
hefjast umferðirnar kl. 11 að ís-
lenskum tíma. Benda má á
Chessbomb.com og Chess24.com.
Heimasíða mótsins er
http://batumi2018.fide.com/en.
Sigur á Lettum í 2. umferð
– teflt við Ísrael í dag
Skák
Helgi Ólafsson
Ljósmynd/Ingvar Þ. Jóhannesson
Lettar sigraðir Guðmundur Kjartansson við upphaf skákar sinnar í gær.