Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 ICQC 2018-20 Svartlyng hefst með lögbroti.Meðan ljósin koma upp ogleikhópurinn leggur síðustuhönd á leikmyndina með nokkrum klósettpappírsrúllum hljómar Lofsöngur Sveinbjörns Sveinbjörnssonar í bannfærðri djassmeðferð Guðmundar Ingólfs- sonar úr kvikmyndinni Okkar á milli. Tónlist er mikið notuð í sýning- unni, oftast skemmtilega þó að sjaldnast sé jafn auðvelt og í upphaf- inu að tengja valið efnislega við er- indi sýningarinnar. Svo er sjálfstætt rannsóknarefni hvers vegna leik- stjórum sýninga með pólitískt er- indi, finnst svona brýnt að skjóta misvel útfærðum dansatriðum inn í verk sín nú um stundir. En yfir- drepsskapur og skinhelgi hinnar sjálfshátíðlegu yfirstéttar er við- fangsefni Guðmundar Brynjólfs- sonar, leikstjórans Bergs Þórs Ing- ólfssonar og samverkafólks þeirra, svo gönuhlaup Guðmundar Ingólfs- sonar við flygilinn slá réttan tón. Það ríkir umsátursástand í ráðu- neytinu. Ráðherrann, pólitískur armur Svartlyng-fjölskyldunnar sem á allt og má allt, á fullt í fangi með að fela og/eða endurskoða svartbók eina sem er víst full af leyndarmálum og upplýsingum sem munu koma honum, ríkisstjórninni, fjölskyldunni og Flokknum illa. Og er mögulega týnd. Kannski felst lausnin í að semja hvítbók í stað hennar, til viðbótar við hefðbundinn útúrsnúninga- og undanbragðadans við fjölmiðla. En það hefur sínar af- leiðingar að láta hollustu frekar en hæfileika stýra vali á aðstoðarfólki. Fyrir utan að í sýndarheimi eins og íslenskri pólitík er ekki alveg auð- velt að vita hvað er hvítt og hvað svart. Pólitískt ádeiluleikhús er vand- meðfarið verkfæri. Eitt er nú hvað leikhúsformið er þungt í vöfum og tímafrekt í framleiðslu, sem hentar ekki sérlega vel ef tala á beint inn í samtímann, skoða og skensa ráða- menn meðan skandalarnir eru enn í fersku minni. Annar vandi er sá að litlar líkur eru á að þeir sem ætlunin er að lesa pistilinn leggi á sig leik- húsferð með tilheyrandi fjárútlátum og fyrirhöfn. Stundum gleymist að skúrkarnir eru næstum örugglega fjarverandi og reiðigusur ganga yfir áhorfendur sem langar mest að sam- sinna öllu sem sagt er, en er stillt upp sem óvinum. Hinar öfgarnar eru líka dauði yfir áhugaverðri kvöld- stund. Þá ríkir yfirlætið eitt, engra spurninga er spurt enda allir sam- mála um svörin og fara sjálfs- ánægðir og umhugsunarlausir heim. Það er langt síðan ég sá leiksýn- ingu sneiða eins fimlega hjá þessum skerjum án þess að bleyta um of í eigin púðri og Svartlyng gerir. Þar kemur ýmislegt til. Bergur Þór er auðvitað einn okkar næmustu leikstjóra og Guðmundur ágætlega að sér í leikhúsi fáránleikans. Hvernig þar er sótt í innantóma og merkingarlausa síbylju þess sem við köllum tjáskipti, en er oftast ein- hverskonar valdaspil og feluleikur, ekki síst þegar valdamenn tala. Enda eru ræðuhöld og samræður persónanna í senn fráleitar og hroll- vekjandi kunnuglegar. Í sama skóla er hægt að læra að nota einfaldar líkingar og bernskt myndmál sem jaðrar við fimmaurabrandara á áhrifaríkan hátt. Þaðan kemur hug- myndin um hendurnar sem fólk er tilbúið að fórna frekar en að svíkja flokkinn, og þaðan koma glerkassar Evu Völu Guðjónsdóttur útlitshönn- uðar sem gefa sviðinu form og tákna gegnsæið, og klósettpappírinn sem þjónar fjölbreyttum tilgangi, m.a. sem forgengilegur pappír svart- og hvítbókar. Annað sem hjálpar er hvernig farsafléttan sem liggur undir bygg- ingu verksins er aldrei látin taka völdin. Fyrir vikið verður aldrei óþægilegt að það stendur greinilega ekki til að leiða hana til lykta á við- tekinn hátt, eða sækja beint í hana kómískt eldsneyti í feluleik og vand- ræðagang með hin ýmsu leyndarmál flokks og fjölskyldu. Slík nálgun hefði sett erindi sýningarinnar aftar í forgangsröðina og það er alveg ljóst að hér liggur fólki meira á hjarta en svo að það hefði verið ásættanlegt. Eftir hlé, þegar leiks- lok nálgast verður erfiðara að víkja sér undan kröfunni um lausn flétt- unnar. Þá slaknar eilítið á spennunni í sýningunni. Eins þegar tekin eru af öll tvímæli um að hið óræða hneyksli sem persónurnar hafa glímt við lengi vel er sömu ættar og máls- meðferðin á „ærumálinu“ sem sprengdi ríkisstjórn Bjarna Bene- diktssonar 2017. Frá sjónarhóli fag- urfræði leikritunar hefði verið betra að halda þó þeirri óræðni sem ríkir fram að því allt til enda, en sennilega var nokkrum hláturgusum fórnandi fyrir hina óþægilegu og spennu- þrungnu þögn sem breiðist yfir sal- inn þegar þetta blasir loksins við án tvímæla. Ráðherrann og ráðstýran eru fólk sem rétt nær að halda framhliðinni í skorðum meðan allt leikur á reiði- skjálfi hið innra og Sveinn Ólafur Gunnarsson og Sólveig Guðmunds- dóttir eru bæði vel þjálfuð í týpum af því taginu. Það er alltaf stutt í árás- argirni ráðherrans hjá Sveini Ólafi, og nefna má tvö glæsileg atriði þeg- ar fer að halla undan fæti í síðari hluta sýningarinnar. Fyrst þegar hann skrúfar frá kynþokkanum og heillar fréttakonu upp úr skónum og frá vitinu, og svo aftur síðar þegar hann afvegaleiðir sömu fréttakonu í beinni útsendingu með því að játa grátklökkur á sig heppilega yfirsjón til að moka yfir alvarlegri ásakanir. Í báðum þessum atriðum fær hann verðugan mótleik frá Valgerði Rún- arsdóttur. Ræða ráðstýru Sólveigar um dætur sínar snemma í verkinu var annað frábært augnablik sem og samskipti hennar við fatlaða glugga- þvottamanninn sem hún á erfitt með að trúa að geti verið Íslendingur. Þór Tulinius skapar þar dásamlegan kall. Benedikt Karl Gröndal er kostulegur sem tækifærissinnað fórnarlamb aðstæðna og harmur hans yfir að vera fluttur yfir í um- hverfisráðuneytið verður í minnum hafður. Þá er ótalin Ragnheiður Eyja Ólafsdóttir sem hnýtir enda- hnút sýningarinnar á táknrænan hátt og minnir á að þrátt fyrir allan galgopaskapinn og fyndnina er dauðans alvara á bak við Svartlyng. Rammpólitískt og hraðsoðið ádeilu- verk sem virkar. Já ráðherra Ljósmynd/Leifur Wilberg Ádeiluverk „Rammpólitískt og hraðsoðið ádeiluverk sem virkar,“ segir í rýni um Svartlyng. Tjarnarbíó Svartlyng bbbbn Eftir Guðmund Brynjólfsson. Leikstjóri og hljóðmynd: Bergur Þór Ingólfsson. Leikmynd, búningar og gervi: Eva Vala Guðjónsdóttir. Lýsing: Magnús Arnar Sigurðsson og Hafliði Emil Barðason. Sviðshreyfingar: Valgerður Rúnars- dóttir. Leikarar: Sveinn Ólafur Gunnars- son, Sólveig Guðmundsdóttir, Benedikt Karl Gröndal, Valgerður Rúnarsdóttir og Ragnheiður Eyja Ólafsdóttir. GRAL frumsýndi í Tjarnarbíói föstudaginn 21. september 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Jean-Claude Arnault var á lokadegi réttarhaldanna yfir honum í Stokk- hólmi sl. mánudag hnepptur í gæslu- varðhald að kröfu ríkissaksóknara. Honum er gert að sæta gæslu- varðhaldi fram yfir dómsupp- kvaðningu sem verður mánudaginn 1. október. Arnault er kvæntur Katarinu Frostenson sem í vor vék sæti úr Sænsku akademíunni eftir 26 ára starf í kjölfar harðvítugra deilna innan SA um það hvernig taka skyldi á ásökunum þess efnis að Arnault hefði áratugum saman beitt konur kynferðislegu ofbeldi. „Það er miklar líkur á því að hann muni yfirgefa landið og af þeim sök- um fór ég fram á gæsluvarðhaldið,“ sagði Christina Voigt ríkissaksókn- ari við sænska fjölmiðla á mánudag og benti á að Arnault ætti yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi yrði hann fundinn sekur um að hafa nauðgað sömu konunni í tvígang 2011 líkt og hann var ákærður fyrir. „Ég reikna fastlega með sakfell- ingu í ljósi þess að dómstóllinn féllst á gæsluvarðhaldskröfuna,“ segir Elisabeth Massi Fritz, lögmaður konunnar. „Honum er mjög brugðið og við erum vonsviknir,“ segir Björn Hurtig, lögmaður Arnault sem neit- ar allri sök. Að sögn Hurtig hyggst hann kæra gæsluvarðhaldsúrskurð- inn og áfrýja væntanlegum dómi. „Það er mjög óvanalegt að ákæru- valdið fari fram á gæsluvarðhald í miðjum réttarhöldum vegna svona brota,“ segir lögspekingurinn Ingela Hessius við SVT. „Það bendir til þess að ákæruvaldið reikni fast- lega með að hann verði sakfelldur,“ segir Hessius og bendir á að Arnault sé það efnaður að hann gæti hæg- lega farið huldu höfði erlendis til að komast hjá fangavist. Í fréttinni er bent á að Arnault sé franskur ríkis- borgari og því verulegar líkur á að hann myndi flýja til Frakklands. silja@mbl.is Arnault hnepptur í gæsluvarðhald  Dómur kveðinn upp 1. október AFP Ósáttur Jean-Claude Arnault.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.