Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Veður víða um heim 25.9., kl. 18.00 Reykjavík 6 skúrir Bolungarvík 5 alskýjað Akureyri 7 skýjað Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 11 skúrir Ósló 13 heiðskírt Kaupmannahöfn 11 léttskýjað Stokkhólmur 11 heiðskírt Helsinki 10 léttskýjað Lúxemborg 14 heiðskírt Brussel 15 léttskýjað Dublin 15 léttskýjað Glasgow 13 rigning London 16 heiðskírt París 16 heiðskírt Amsterdam 15 léttskýjað Hamborg 13 skýjað Berlín 14 heiðskírt Vín 12 léttskýjað Moskva 8 rigning Algarve 27 heiðskírt Madríd 30 léttskýjað Barcelona 24 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 22 heiðskírt Aþena 19 skýjað Winnipeg 8 léttskýjað Montreal 10 rigning New York 18 rigning Chicago 23 skýjað Orlando 30 léttskýjað  26. september Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:23 19:16 ÍSAFJÖRÐUR 7:28 19:21 SIGLUFJÖRÐUR 7:11 19:04 DJÚPIVOGUR 6:53 18:46 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Vestlæg átt, 5-10 m/s, og bjartviðri suðaustan- og austanlands, annars skýjað og skúrir eða él. Hiti 2-8 stig. Á föstudag Hvöss suðvestanátt með rigningu, talsverð úrkoma syðra og vestra. Vestlæg átt, 3-10 m/s, en yfirleitt hægari austlæg eða breytileg átt um landið norðanvert. Víða bjartviðri austanlands, annars skúrir eða slydduél. Hiti 2 til 8 stig. Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Hindberjajógúrt Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt Heiðursborgarar Reykjavíkur, þau Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, Þorgerður Ingólfs- dóttir, tónlistarfrömuður og kór- stjóri, og Friðrik Ólafsson, fyrrver- andi skrifstofustjóri Alþingis, gengu í gær á fund Dags B. Egg- ertssonar borgarstjóra og Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, formanns borgarráðs, og afhentu þeim áskor- un um að látið verði þegar af áformum um nýbyggingu, sem fyr- irhugað er að rísi í Víkurgarði, hin- um forna kirkjugarði Reykvíkinga. Skipst var á skoðunum um málið en framkvæmdir í garðinum eru þeg- ar hafnar. Þar á að rísa hótel sem tengt verður gamla Landsímahús- inu við Thorvaldsensstræti. Með heiðursborgurunum í för til að styðja erindið voru nokkrir rót- grónir Reykvíkingar, margir þjóð- kunnir. Í dag kl. 9.30 munu frú Vigdís og Friðrik ennfremur eiga fund með Sigríði Á. Andersen dómsmála- ráðherra á Sölvhólsgötu 7. Þau munu kynna þá skoðun að fyrir- huguð nýbygging í hinum forna kirkjugarði samræmist ekki gild- andi lögum um kirkjugarða og byggingarleyfi borgaryfirvalda hafi því enga lagastoð. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vilja vernda Víkurgarð Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég fékk þessa skýrslu um það leyti sem starfsstjórnin tók til starfa. Í henni komu fram margar ágætar ábendingar um umhverfi og rekstur Samgöngustofu sem ég ætlaði að láta halda áfram vinnu með. Það náðist að koma einhverju af stað, eins og rafrænum skrán- ingum bíla en annað þurfti að kafa dýpra í,“ segir Jón Gunnarsson, al- þingismaður og fyrrverandi sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra. Morgunblaðið greindi í gær frá vinnu starfshóps sem Jón skipaði á ráðherratíð sinni til að greina verkefni Samgöngustofu. Starfs- hópurinn skilaði af sér áfanga- skýrslu í október árið 2017 þar sem kom meðal annars fram alvar- leg gagnrýni á innri starfsemi Samgöngustofu. Til að mynda voru samskipti Samgöngustofu og Isavia gagnrýnd auk þess sem at- hugasemdir voru gerðar við það hvernig tekið var á erfiðum starfs- mannamálum, svo fátt eitt sé nefnt. Ekki verður séð að nokkuð hafi verið gert í umræddum athuga- semdum á því ári sem liðið er frá því skýrslunni var skilað. „Í skýrsl- unni komu fram alvarlegar athuga- semdir sem full ástæða er til að bregðast við. Ráðherrann verður að svara því hver framvindan hefur orðið, ég hef engar upplýsingar fengið þar um,“ segir Jón Gunn- arsson og vísar þar til eftirmanns síns á ráðherrastóli, Sigurðar Inga Jóhannssonar. Morgunblaðið hefur ítrekað leit- að eftir viðbrögðum ráðherrans og úr ráðuneytinu í þessari viku. Að- stoðarkona Sigurðar Inga vísaði í gærmorgun á Ragnhildi Hjalta- dóttur, ráðuneytisstjóra í sam- göngu- og sveitarstjórnarráðuneyt- inu. Svar Ragnhildar, sem barst með tölvupósti, var svohljóðandi: „Ráðuneytið fór ítarlega yfir þær athugasemdir sem fram komu í skýrslunni. Segja má að niður- stöður hópsins séu tvíþættar. Ann- ars vegar snúa þær að almennum umbótum í starfsemi stofnunarinn- ar og hins vegar að daglegri stjórnun og yfirstjórn. Ráðuneytið hefur þegar brugðist við ýmsum umbótatillögum, til dæmis um forskráningu bifreiða og endurskoðun á lögum og reglum á sviði siglinga. Einnig var reglugerð um skoðun skipa breytt á þá leið að faggiltar skoðunarstofur eiga nú möguleika á að annast fleiri verk- efni en áður. Aðrar umbótatillögur eru ýmist í skoðun eða ekki er talin ástæða til að verða við þeim. Tillögur sem snúa að daglegri stjórnun og yf- irstjórn eru til athugunar eftir því sem við á.“  Tillögur um yfirstjórn til athugunar eftir því sem við á, segir ráðuneytisstjóri Jón Gunnarsson Ragnhildur Hjaltadóttir Fyrrverandi ráðherra furðar sig á afdrifum skýrslunnar Stéttarfélagið Framsýn á Húsavík krefst þess í komandi kjara- viðræðum við atvinnurekendur að lágmarkslaun verði 375.000 kr. á mánuði fyrir fullt starf. Samið verði um krónutöluhækkanir og nýja launatöflu og jafnframt krefst félag- ið þess m.a. að ráðist verði í skatt- kerfisbreytingar með fjölgun skatt- þrepa eða sérstakri hækkun á persónuafslætti þeirra sem eru á lágmarkslaunum. Framsýn hefur gengið frá kröfu- gerð sinni sem verður innlegg fé- lagsins í sameiginlega kröfugerð Starfsgreinasambandsins og komið henni á framfæri við samninga- nefnd Starfsgreinasambandsins, sem kemur saman í byrjun október til að móta endanlega kröfugerð sambandsins gagnvart Samtökum atvinnulífsins. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins. omfr@mbl.is Lágmarks- laun 375 þúsund  Kröfugerð Framsýnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.