Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Stórsveit Reykjavíkur hefur nýtt starfsár með tónleikum í Silf- urbergi í Hörpu í kvöld kl. 20. Stjórnandi á tónleikunum og höf- undur tónlistar er kanadíska tón- skáldið Franky Rousseau sem hef- ur vakið mikla athygli og er á meðal fremstu höfunda stórsveita- tónlistar af yngri kynslóðinni í New York um þessar mundir, eins og segir í tilkynningu frá stórsveit- inni. Rousseau er meðal annars þekktur fyrir samstarf sitt við pí- anóstjörnuna Aaron Parks og eru tónleikarnir sagðir tækifæri til að heyra það nýjasta frá New York. Stórsveit Reykjavíkur var stofn- uð árið 1992 og hefur starfað með mörgum innlendum og erlendum stjórnendum, m.a. Maria Schnei- der, Frank Foster, Bob Mintzer og Bill Holman. Sveitin hefur frá upphafi reynt að hafa verkefnaval sitt fjölbreytt og hefur meðal ann- ars flutt ný verk eftir innlenda og erlenda höfunda og átt samstarf við tónlistarmenn úr poppi og rokki. Þá hefur hún gefið út nokkrar hljómplötur í eigin nafni auk þess að leika á plötum ann- arra tónlistarmanna og hljóm- sveita. Hressir Liðsmenn Stórsveitar Reykjavíkur í Hörpu þar sem tónleikarnir verða haldnir í kvöld. Hefja starfsárið með Rousseau Stjórnandinn Franky Rousseau. Drottningin á Júpíter erfyrsta skáldsaga JúlíuMargrétar Einarsdótturen hún hefur áður sent frá sér smásagnasafn og ljóðabók. Drottningin á Júpíter tekur lesand- ann með trompi og höfundur spilar með hann og kemur sífellt á óvart líkt og aðalpersónan, Nóra, leikur á samferðafólk sitt með sögum úr sárri fortíð og æv- intýralegri nútíð sem spennandi er að ráða í. Aðalpersónan Elenóra Margrét Lísudóttur segir sjálf frá, hún er listamaður og sögumaður frá blautu barnsbeini og knýr lífið áfram með óræðum sögum og ævintýrum. Hún málar myndir og semur ljóð sem hana dreymir um að séu ekki bara „geðveikishjal heldur alvöru póesía“, en losnar aldrei við nagandi efann um að skáldskapur hennar sé einskis virði. Hún elst upp með fárveikri og kröfuharðri móður, innilokuð í risíbúð með túbu- sjónvarpi og vínylspilara og stórir draumar, draugar og uppspuni eru í aðalhlutverki. Nóra stendur þannig til hliðar við hið venjulega borg- aralega líf frá upphafi og á fullorðins- árum takast á í henni óttinn við hversdagslegt líf og þráin eftir því. Nóra á einnig samastað á Ísafirði hjá ömmu sinni og afa sem hún yf- irgefur á unglingsárum, hún hefur afar sársaukafulla sambúð með Benedikt lækni sem hún lætur sig hljóðlega hverfa úr kvöld eitt án fyr- irvara, og ferðast síðar með vinum sínum í dularfullum og ofsafengnum sirkus sem hún á endanum yfirgefur líka. Þannig hverfa allar persónur sem hún myndar samband við úr lífi hennar – nema barþjónninn sem skenkir henni bjór og hlustar á sög- urnar sem hún spinnur upp, hann (sem reyndar er hún) yfirgefur hún ekki. Og eini raunverulegi samastað- ur Nóru er barinn Bravó, þar sem hún unir sér innan um „rónaketti“ og utangarðsfólk: „Barinn er eins og hjartað, lífið er blóðrásin, allir aðrir viðkomustaðir eru hluti af æðakerf- inu. En allt streymi liggur aftur á barinn.“ Þrátt fyrir að frásögnin sé öll lævi blandin nær Júlía Margrét með hár- fínum hætti að láta sögusvið og stemningu verða ljóslifandi í huga lesandans og skapa andrúmsloft sem sogar hann til sín, það er nánast eins og lesandinn sé á Bravó með Nóru. Einnig er sorgin í sambúð hennar og Benedikts ákaflega vel útfærð og næstum áþreifanleg og hið sama má segja um söknuðinn eftir móðurinni sem er fínlega samofin öllum senum bókarinnar. Drottningin á Júpíter býður upp á margskonar túlkanir enda marglaga skáldsaga með mörgum vísunum. Frásögnin er ekki línulaga heldur er flakkað fram og aftur í tíma og á milli sögusviða og reyndar er hvorki tími né sögusvið einhlítt. Eftir því sem líður á og lesandinn áttar sig á því að Nóra er ekki sannsögul, fer hann að efast um að raunsæislegu kaflarnir séu allir þar sem þeir eru séðir og á sama hátt fá óraunsæislegar og ólík- indalegar senur nýja og aðra merk- ingu: Hver er hvað? Renna margar persónur saman í eina eða birtist sama persónan í mörgum? Hvað ger- ist og hvað er skáldað upp á barnum? En hvað sem því líður þá er ill- mögulegt að efast um hjarta sög- unnar, Bravó, og sú spurning laumar sér inn að lokum hvort Nóra, sem átti svo stóra drauma, fari aldrei lengra en þangað. Barinn er eins og hjartað Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Marglaga Skáldsaga Júlíu er marglaga með mörgum vísunum. Skáldsaga Drottningin á Júpíter bbbbn eftir Júlíu Margréti Einarsdóttur. Deus, 2018. 240 bls. HILDIGUNNUR ÞRÁINSDÓTTIR BÆKUR Ronja Ræningjadóttir (None) Sun 30/9 kl. 13:00 6. s Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 30/9 kl. 16:00 7. s Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 7/10 kl. 13:00 8. s Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 7/10 kl. 16:00 9. s Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 14/10 kl. 13:00 10. s Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 14/10 kl. 16:00 11. s Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Sun 30/12 kl. 16:00 27. s Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Fly Me To The Moon (Kassinn) Fös 28/9 kl. 19:30 Frums Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Sun 30/9 kl. 19:30 2. s Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 6/10 kl. 19:30 3. s Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Lau 3/11 kl. 19:30 13. s Sun 7/10 kl. 19:30 4. s Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Fös 12/10 kl. 19:30 5. s Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Ég heiti Guðrún (Kúlan) Fös 5/10 kl. 19:30 Frums Lau 13/10 kl. 17:00 Auka Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Lau 6/10 kl. 17:00 Auka Lau 13/10 kl. 19:30 5. s Lau 20/10 kl. 17:00 Sun 7/10 kl. 17:00 2. s Sun 14/10 kl. 19:30 6. s Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Mið 10/10 kl. 19:30 3. s Þri 16/10 kl. 19:30 Auka Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Fim 11/10 kl. 19:30 4. s Mið 17/10 kl. 19:30 7. s Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 27/9 kl. 19:30 12. s Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Slá í gegn (Stóra sviðið) Lau 29/9 kl. 19:30 40. s Fös 5/10 kl. 19:30 41. s Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Samþykki (Stóra sviðið) Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Lau 10/11 kl. 19:30 5. s Lau 24/11 kl. 19:30 8. s Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6. s Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu. Insomnia (Kassinn) Fös 9/11 kl. 19:30 Frums Fös 16/11 kl. 19:30 3. s Fös 23/11 kl. 19:30 5. s Lau 10/11 kl. 19:30 2. s Lau 17/11 kl. 19:30 4. s Brandarinn sem aldrei deyr Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið) Lau 6/10 kl. 13:00 Lau 13/10 kl. 13:00 Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 6/10 kl. 15:00 Lau 13/10 kl. 15:00 Lau 20/10 kl. 15:00 Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 28/9 kl. 22:00 Daður og dónó Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 3/10 kl. 20:00 Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 10/10 kl. 20:00 Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00 Mið 17/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Lau 29/9 kl. 20:00 59. s Fim 11/10 kl. 20:00 61. s Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 5/10 kl. 20:00 60. s Fös 12/10 kl. 20:00 62. s Fös 2/11 kl. 20:00 aukas. Besta partýið hættir aldrei! Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fim 27/9 kl. 20:00 6. s Lau 6/10 kl. 20:00 9. s Lau 13/10 kl. 20:00 12. s Fös 28/9 kl. 20:00 7. s Sun 7/10 kl. 20:00 10. s Fös 26/10 kl. 20:00 aukas. Lau 29/9 kl. 20:00 8. s Fös 12/10 kl. 20:00 11. s Gleðileikur um depurð. Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið) Fim 27/9 kl. 20:00 4. s Sun 30/9 kl. 20:00 aukas. Sun 7/10 kl. 20:00 9. s Fös 28/9 kl. 20:00 5. s Fös 5/10 kl. 20:00 7. s Mið 10/10 kl. 20:00 aukas. Lau 29/9 kl. 20:00 6. s Lau 6/10 kl. 20:00 8. s Fim 11/10 kl. 20:00 10. s Athugið, sýningum lýkur 3. nóvember. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Elly (Stóra sviðið) Mið 26/9 kl. 20:00 148. s Fim 4/10 kl. 20:00 152. s Sun 14/10 kl. 20:00 156. s Fim 27/9 kl. 20:00 149. s Lau 6/10 kl. 20:00 153. s Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Fös 28/9 kl. 20:00 151. s Sun 7/10 kl. 20:00 154. s Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Sun 30/9 kl. 20:00 150. s Lau 13/10 kl. 20:00 155. s Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Stjarna er fædd. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.