Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.09.2018, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 SKÝRSLAN UM BANKAHRUNIÐ Ein meginniðurstaða skýrslu þeirrar, sem ég samdi um bankahrunið íslenska á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir fjár- málaráðuneytið, er að beiting hryðjuverkalaganna bresku gegn Landsbankanum, Seðla- bankanum og Fjármálaeftirlit- inu í miðju bankahruninu hafi verið í senn ruddaleg og óþörf. Þegar ég segi óþörf á ég við samkvæmt yfirlýstum tilgangi Bretastjórnar sjálfrar í því skyni að koma í veg fyrir ólöglega fjár- magnsflutninga frá Bretlandi til Íslands. Kraftaverk að ekki varð neyðarástand Það er eflaust öllum Íslendingum í fersku minni að breska fjármálaráðuneytið gaf út tilskipun að morgni miðvikudagsins 8. októ- ber 2008 en samkvæmt henni voru allar eignir Landsbankans í Bretlandi frystar með skírskotun til hryðjuverkalaga frá 2001. Náði tilskipunin líka til Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins, en það hafði daginn áð- ur tekið í sínar hendur rekstur Landsbank- ans. Voru Landsbankinn, Seðlabankinn og Fjármálaeftirlitið sett á sérstakan lista á heimasíðu breska fjármálaráðuneytisins um ríki og samtök, sem sættu viðurlögum sam- kvæmt hryðjuverkalögunum, og voru þar á meðal skæruliðasamtökin Al-Kaída og talíb- anar og skálkaríkin Norður-Kórea, Íran og Súdan. Eftir skamma hríð voru nöfn Seðla- bankans og Fjármálaeftirlitsins fjarlægð af listanum en Landsbankinn var þar áfram um skeið en færður 22. október á sérstakan lista neðar á sömu síðu eftir mótmæli ís- lensku ríkisstjórnarinnar. Beiting hryðjuverkalaganna hafði tafar- laus áhrif. Fjármagnsflutningar og vöru- sendingar til Íslands stöðvuðust nær alveg enda sagði Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, í sjónvarpsviðtölum fimmtudaginn 9. október, daginn eftir útgáfu tilskipunar- innar, að ríkisstjórnin væri að „frysta eigur íslenskra fyrirtækja í Bretlandi alls staðar, þar sem það væri hægt“. Töldu margir frystinguna því ná til fleiri íslenskra aðila en Landsbankans. Erlend fyrirtæki, sem höfðu selt Íslendingum nauðsynjar áratugum sam- an, heimtuðu nú skyndilega fyrirfram- greiðslur, og lánum var sagt upp. Olli þetta íslenskum fyrirtækjum verulegum búsifjum. Það var kraftaverk að neyðarástand mynd- aðist ekki í landinu, til dæmis skortur á mat- vælum og lyfjum, og var það ekki síst að þakka starfsfólki Seðlabankans og Reikni- stofu bankanna og sjálfboðaliðum úr hinum föllnu bönkum sem unnu sólarhringum sam- an sleitulaust að því að tryggja greiðslu- miðlun við útlönd og hefur þeim ekki verið þakkað sem skyldi. Seðlabankinn gekk í ábyrgð fyrir greiðslukort Íslendinga um all- an heim og naut hann aðstoðar fjármála- fyrirtækisins JP Morgan í að koma aftur af stað fjármagnsflutningum. Fyrri tilskipunin hefði nægt Bresk stjórnvöld höfðu dagana 7. og 8. október lokað breskum dótturfélögum ís- lensku bankanna, Heritable Bank og Kaup- thing Singer & Friedlander, KSF, og höfðu öll ráð þeirra í hendi sér enda lutu þau breskum lögum. En lagalega var útibú Landsbankans í Lundúnum á forræði slita- stjórnar bankans uppi á Íslandi, ekki Breta. Það var íslenskt fyrirtæki, ekki breskt eins og Heritable og KSF. Þess vegna kváðust bresk stjórnvöld verða að gefa út tilskip- unina 8. október. En þegar að er gáð var hún óþörf því að fimm dögum áður, 3. októ- ber 2008, hafði Fjármálaeftirlitið breska gef- ið út tilskipun til útibús Landsbankans í Lundúnum, þar sem honum var bannað að flytja fé úr landi nema með skriflegu sam- þykki Fjármálaeftirlitsins og þriggja daga fyrirvara. Þessi tilskipun hefði nægt til að koma í veg fyrir alla ólöglega fjármagns- flutninga úr landi. Seinni tilskipunin og beit- ing hryðjuverkalaganna var því óþörf. Þetta sést líka á öðru. Í Þýskalandi voru aðstæður Kaupþings sambærilegar og Landsbankans í Bretlandi. Þar safnaði Kaupþing innstæðum á Edge-reikninga í útibúum eins og Landsbankinn gerði á Ice- save-reikninga í Bretlandi, ekki dóttur- félögum. Útibú Kaupþings í Þýskalandi voru því íslensk fyrirtæki og undir eftirliti ís- lenskra aðila og hinn íslenski Tryggingar- sjóður innstæðueigenda bar ábyrgð á innstæðutryggingum. En þýsk stjórnvöld gripu ekki til neinna sambærilegra aðgerða og bresk. Slitastjórn Kaupþings fékk lán til að greiða út inn- stæðueigendum og lánið var von bráðar endurgreitt með sölu eigna. Þetta hefði auðvitað verið hægt að gera í Bretlandi líka. Einnig má benda á að hollensk stjórnvöld beittu ekki neinum hryðjuverkalögum gegn Íslend- ingum. King lávarður: Bretum til minnkunar Þótt Ísland hefði ekki einu sinni á að skipa neinum her, setti Bretastjórn íslensk- ar stofnanir og fyrirtæki á sama lista og hryðjuverkasamtökin Al-Kaída og talíbana. Stjórnin tók ekkert tillit til þess heldur að Íslendingar höfðu lengi verið vinaþjóð og bandamaður. Í seinni heimsstyrjöld hafði Ís- land verið ómetanlegt Bretum sem her- bækistöð og matvælabúr og í kalda stríðinu var hið „ósökkvandi flugvélamóðurskip“ úti á Dumbshafi mikilvægur hlekkur í varnar- keðju vestrænna þjóða. Ekki ætti heldur að gleyma því að hátt í hundrað þúsund manns störfuðu árið 2008 í breskum fyrirtækjum í eigu íslenskra fyrirtækja og fjárfesta. Ég tók vegna skýrslu minnar fyrir fjár- málaráðuneytið viðtal 14. ágúst 2017 við Mervyn King lávarð, fyrrverandi seðla- bankastjóra Breta, á heimili hans í Suður- Englandi. Hann sagði mér að sér fyndist framkoma Breta við litla grannþjóð hafa verið þeim til minnkunar og hefði hann ekki legið á þeirri skoðun í einkasamtölum. Hvað olli þessari fólsku? Í skýrslu minni varpa ég fram fjórum tilgátum. Hin fyrsta kom fram í breskum blöðum þegar við beit- ingu hryðjuverkalaganna og eftir harkaleg orð Gordons Browns og breska fjár- málaráðherrans, Alistairs Darlings, í garð Íslendinga. Hún var að þessir stjórn- málamenn væru að verða sér úti um áhættu- laust „Falklandseyjastríð“ með því að ráðast á Íslendinga. Þeir væru að sýna kjósendum sínum að þeir stæðu vörð um breska hags- muni, væru ákveðnir og röggsamir og þyldu engin undanbrögð. Ísland væri svo lítið að það væri tilvalið fórnarlamb. Menn geta ímyndað sér hvort Bretastjórn hefði sett bandaríska seðlabankann á lista um hryðju- verkasamtök í viðleitni við að stöðva hugs- anlega ólöglega fjármagnsflutninga frá Bret- landi til Bandaríkjanna. Tvær flugur í einu höggi Aðra tilgátuna hef ég frá Mark Sismey- Durrant, sem var bankastjóri Heritable Bank, en ég tók viðtal við hann á skrifstofu hans í Lundúnum 28. nóvember 2014. Hann benti á að þeir Brown og Darling kynntu mjög viðamikla björgunaráætlun um breska banka sama dag og þeir beittu hryðjuverka- lögunum gegn Íslendingum. Skattgreiðendur líta það að vonum óhýru auga þegar stjórn- málamenn bjarga bankamönnum. Hvaða réttlæti er í því? spyr fólk, að bankamenn- irnir hirði gróðann, þegar vel gengur, en sendi okkur reikninginn þegar illa gengur? Með aðgerðunum gegn íslensku bönkunum kunna þeir Brown og Darling að hafa verið að leiða athyglina frá því að þeir voru að nota almannafé til aðstoðar risastórum og óvinsælum breskum bönkum. Þriðju tilgátunni varpa ég hér fram. Hún er að þeir Brown og Darling, sem báðir eru Skotar, hafi horft til ríkra stjórnmálahags- muna sinna í Skotlandi. Þjóðernissinnar þar í landi ógnuðu valdastöðu Verkamanna- flokksins og töluðu foringjar þeirra um „vel- sældarbogann“, sem lægi frá Írlandi um Ís- land til Noregs en þar ætti sjálfstætt Skotland heima. Hinn 6. nóvember var til dæmis aukakosning í Glenrothes, sem löngum hafði verið öruggt kjördæmi Verka- mannaflokksins. Í júlí höfðu þjóðernissinnar unnið annað fyrrverandi öruggt kjördæmi Verkamannaflokksins, Austur-Glasgow. Nú var eitt aðalmálið í kosningabaráttunni ís- lenska bankahrunið og fall „velsældarbog- ans“, og hélt Verkamannaflokkurinn kjör- dæminu. Fjórum árum síðar varð Darling helsti leiðtogi þeirra Skota, sem börðust fyr- ir áframhaldandi sambandi við England en í þeirri baráttu var ein helsta röksemd gegn sjálfstæði Skotlands að þá gæti farið eins fyrir landinu og Íslandi og Kýpur þar sem bankakerfi hefðu verið hlutfallslega stór eins og í Skotlandi. Vígstaða í Icesave-deilunni Fjórða tilgátan er að stjórn breska Verka- mannaflokksins hafi beitt hryðjuverkalög- unum til að bæta vígstöðu sína í fyrir- sjáanlegri deilu við Íslendinga um ábyrgð á Icesave-reikningum Landsbankans. Sú til- gáta styrkist af því að stjórnin afnam ekki tilskipunina frá 8. október 2008 fyrr en ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafði sumarið 2009 skrifað undir samning um ábyrgð íslenska ríkisins á Icesave-reikning- unum. Höfðu utanríkisráðherrar Norður- landa þó þegar í janúar 2009 sameiginlega skorað á Bretastjórn að afnema tilskipunina. Eftir að Icesave-samningar höfðu tvisvar verið felldir í þjóðaratkvæðagreiðslum var deilunni skotið til EFTA-dómstólsins, sem komst að þeirri niðurstöðu í janúar 2013 að íslenska ríkið bæri ekki ábyrgð á Icesave- reikningunum. Hafði sama niðurstaða verið rækilega rökstudd í skýrslu Rannsóknar- nefndar Alþingis um bankahrunið sem kom út vorið 2010. Bretar beittu hörku í Icesave-deilunni og notuðu ítök sín í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til að reyna að kúga Íslendinga til hlýðni. Þótti sumum lítið leggjast fyrir sjóðinn þeg- ar hann gerðist eins konar handrukkari fyrir bresku ríkisstjórnina. En eitt meginatriðið í máli Breta var rangt. Í neyðarlögunum, sem Alþingi setti 6. október 2008, var íslenskum og breskum innstæðueigendum ekki mis- munað. Samkvæmt lögunum urðu kröfur beggja forgangskröfur í bú Landsbankans. Með öðrum orðum voru breskir inn- stæðueigendur til dæmis settir framar þeim þýsku bönkum sem áttu skuldabréf á ís- lensku bankana. Reyndin varð sú að inn- stæðueigendur fengu allt sitt bætt en skuldabréfaeigendur ekki. Öllum breskum bönkum bjargað nema tveimur Eftir að bresk stjórnvöld kynntu hina viðamiklu björgunaráætlun sína fyrir breska banka miðvikudaginn 8. október 2008, sneru Eftir Hannes H. Gissurarson Hannes Hólmsteinn Gissurarson Ljósmynd/Leon Neal/Getty Images Mervyn King, barón af Lothbury, sem var seðlabankastjóri Bretlands, sagði í viðtali við skýrsluhöfund, að það hefði verið Bretum til minnkunar að beita hryðjuverkalögunum gegn fámennri grannþjóð. Beiting hryðjuverkalaganna var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.