Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Öllum er nauðsyn að eiga sér draum
og geta gefið sér tíma til þess að láta hann
rætast. Þú verður að ljúka við þau verkefni
sem þú hefur tekið að þér áður en þú gerir
þér dagamun.
20. apríl - 20. maí
Naut Segðu hefðbundnum viðhorfum stríð á
hendur, nú er þörf fyrir ferskar hugmyndir.
Taktu enga ákvörðun fyrr en þú hefur skoðað
allar hliðar málsins gaumgæfilega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Að samþykkja fólk eins og það er
bætir bæði framkomu þína og sambönd. Í
dag breytist allt í gull sem þú snertir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Taktu hliðarskref í vinnunni sem
gagnast þér betur til langtíma á framabraut-
inni. Vertu hvergi smeykur því þú hefur alla
burði til að vinna erfið verk.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur einstæðan hæfileika til að um-
gangast fólk og hjálpa því til að koma auga á
hæfileika sína. Gefðu öðrum tíma til þess að
melta það sem þú hefur fram að færa.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er góður dagur til að gera breyt-
ingar á nánasta umhverfi þínu. Kannski sérðu
nýjar lausnir. Notaðu krafta þína til þess að
laða nýjan vin að vinahópnum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það ætti ekki að vera valmöguleiki hvort
þú notar hæfileika þína eða ekki – það er
nauðsynlegt. Lykillinn að velgengni er að hafa
trú á henni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Sjálfsöryggi þitt hjálpar þér til að
vinna fólk á þitt band. Gættu þess bara að
það sem þú færð í staðinn fyrir það sem þú
leggur á þig sé fyrirhafnarinnar virði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn í dag er vænlegur í
samskiptum við foreldra og yfirmenn. Ekki
láta gylliboð og skyndigróða afvegaleiða þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það virðist eiga vel við þig að hafa
mörg járn í eldinum. Þú hefur gert allt sem
þú getur og nú er komið að því að taka
ákvörðun. Leggðu þitt af mörkum til að bæta
umhverfi þitt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Láttu ekki draga þig inn í deilur
manna á vinnustað þínum. Nýtt verkefni, ný
ábyrgð eða stefnumót við einhvern í fyrsta
sinn mun gefa þér mikla orku.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur unnið vel og skipulega og
hefur nú lokið verkefni þínu í tæka tíð. Þig
langar til að skemmta þér með fjölskyldu
þinni og vinum í dag.
Helgi Ingólfsson orti á sunnu-dagseftirmiðdegi á Boðnar-
miði:
Oft mér reynist gangan góð
er geng ég út með Rex;
matreiði við milda glóð,
því matarlystin vex;
yrki síðan lítið ljóð
og leita þá í sex-
u.
Helgi gaf þessa skýringu neðan-
máls: „Ef menn skyldu ekki vita, þá
er sexa bragarháttur, sem lýtur
eftirfarandi lögmálum: 6u-háttur
er sex ljóðlínur sem ríma á víxl og
eitt u í endann. Aðrir stafir eins og
a eða i koma ekki til greina.“
Dauðinn er klassískt yrkisefni.
Páll S. Elíasson yrkir:
Ég óttast þig ei lengur, þú föli gamli
gestur.
Þó gangir þú um dyrnar, ég kvíði ekki
neinu.
Því rétt utan við túngarðinn þar bíður
bleikur hestur.
Með beisli, hnakk, og járnaður til
ferðarinnar einu.
Og honum mun ég hljóður um grónar
götur ríða
mót geislum aftanroðans að hafsins
ystu strönd.
Þar „Karon“ situr rólegur, brottfarar að
bíða.
Svo beri mig hans ferja í óminnisins
lönd.
Dagbjartur Dagbjartsson rifjaði
upp vísu Höskuldar frá Vatnshorni:
„Ég býst til ferðar á bleikum hesti
og biksvart myrkrið hylur veg.
Mig vantar allt sem er veganesti
og veit að færðin er djöfulleg.“
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
sagði þetta er frábært hjá þér Palli
– „ég vissi ég vissi og vissi“:
Fyrir handan hafið er hörku góður
gestur,
sem gaman er að hitta og fylgja honum
stund.
Það er oft á kvöldin , sem bardaginn er
bestur
við bregðum þá upp stöku, sem bætir
okkar lund.
En úti á grænni grundu við höfum
margs að minnast
og máske verður hádegið okkar besta
stund.
Úti á miðjum akri er ósköp kært að
kynnast –
hvernig okkur vegnar við fyrsta gleði
fund.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sexa, Karon og
bleikur hestur
„EKKI GRÁTA, MAMMA. ÉG LÆT EKKI
KLIPPA ÞAÐ ALLT AF.“
„ÉG SÉ AÐ ÞÚ MUNT GEFA MÉR
FIMMÞÚSUNDKALL Í ÞJÓRFÉ!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að halda andlitinu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER AÐ SPÁ Í AÐ
FÆRA SJÓNVARPIÐ
HA?!
KANNSKI Í HINN
ENDA STOFUNNAR
SJÁUM
TIL...
ÞAÐ STYTTIR REYNDAR
FERÐINA ÚR ELDHÚSINU UM
FIMM SKREF. SAMÞYKKT!
VIÐ VILLTUMST
OG ÞURFUM
HJÁLP!
BURT,
VÍKINGAR,
EÐA BLÓÐI
YKKAR
VERÐUR
ÚTHELLT!
MUNIÐ AÐ NOTA ALLTAF KALT VATN,
EKKI HEITT, TIL AÐ NÁ BLÓÐBLETTUM
ÚR FÖTUM!
KONAN
HANS ER ÞÓ
HJÁLPLEG.
Frétt um aukningu reiðufjár í um-ferð hér á landi vakti athygli
Víkverja. Þótti honum á skjön við
sínar viðteknu hugmyndir að við-
skipti væru orðin meira og minna
rafræn og fyrir vikið væri farið að
draga verulega úr notkun reiðufjár.
Málið skýrðist þó þegar fram kom
að stóran hluta aukningarinnar
mætti rekja til ferðamanna, þótt Ís-
lendingar ættu einnig hlut að máli.
x x x
Við lestur þessarar fréttar rifj-aðist upp fyrir Víkverja að ein-
hvern tímann hefði hann lesið að
miklar dollarafúlgur lægju undir
koddum víða um heim. Ástæðan
væri sú að víða um heim væru
gjaldmiðlar ótraustir og fólk reyndi
því að komast yfir dollara því að
þeir væru fastari í hendi.
x x x
Víkverji telur ekki ástæðu til aðætla að krónan muni gegna
slíku hlutverki, en velti þó fyrir sér
að búast mætti við að þó nokkuð af
krónum dagaði uppi utan landstein-
anna. Að þessari vísindalegu nið-
urstöðu komst hann með því að
fylgjast með eigin hegðun. Hann
kaupir undantekningarlaust gjald-
eyri þegar hann fer til útlanda. Iðu-
lega tekst honum ekki að koma öll-
um þessum gjaldeyri í lóg. Fyrir
vikið er hann með peninga héðan
og þaðan í krukkum og skúffum.
x x x
Gert er ráð fyrir 2,2 milljónumferðamanna hér á landi á þessu
ári. Ef gert er ráð fyrir því að hver
þeirra sitji upp með 500 krónur í
reiðufé að meðaltali þýðir það að
1,1 millarður króna endar utan
landsteina og verður jafnvel aldrei
notaður aftur. Í fréttinni kom fram
að það kostaði þrjár krónur að slá
eina krónu. Ef þetta eru krónupen-
ingar er tapið því talsvert. Öðru
máli gegnir ef þetta eru seðlar. 21
krónu kostar að prenta 10.000
króna seðilinn. Hagnaðurinn af
hverjum óútleystum seðli yrði 9.979
krónur. Víkverji er ekki lengra
kominn með útreikninga sína, en
slík prentun hlýtur að vera nokkuð
ábatasamleg þótt ekki viti hann
mikið um hagfræði óútleysts fjár.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn hersveitanna, sæll er sá
maður sem treystir þér.
Sálmarnir 84.13