Morgunblaðið - 26.09.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 26.09.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira, en bara ódýrt Fötur/Balar/tunnur/ stampar, mikið úrval Vinnuvettlingar Pu-Flex frá 295 R Strákústar frá 695 frá 395 uslatínur Laufhrífur frá 1.495 Lauf/ruslastampur Laufsuga/blásari 8.985 skóflur frá 1.995 Ruslapokar 10/25/50 stk. Nokkrar stærðir Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Þau ríki sem enn standa að kjarn- orkusamkomulaginu við Íran: Bret- land, Kína, Frakkland, Þýskaland og Rússland, segjast ætla að setja upp nýtt greiðslukerfi til að komast hjá viðskiptaþvingunum Bandaríkjanna og geta átt viðskipti við Íran. Yfirmaður utanríkismálastefnu Evrópusambandsins, Federica Mog- herini, tilkynnti áform ríkjanna eftir fund þeirra hjá Sameinuðu þjóðun- um (SÞ), en breska ríkisútvarpið BBC greinir frá. Í yfirlýsingu ríkjanna fimm segir að þau séu staðráðin í að „vernda frelsi viðskiptafélaga sinna og sækj- ast eftir löglegum viðskiptum við Ír- an“. Til stendur að setja upp nýtt greiðslukerfi sem gerir m.a. olíu- fyrirtækjum kleift að halda áfram viðskiptum við Íran án þess að þurfa að treysta á bandaríska markaði eða bandaríkjadal. Hvernig þetta verður framkvæmt nákvæmlega hefur ekki komið í ljós en Mogherini segir að sérfræðingar muni sjá um tæknilega útfærslu. Að sögn BBC hafa greiningarfyr- irtæki nú þegar lýst efasemdum um þessa framkvæmd, þar sem Banda- ríkin geta lagað viðskiptaþvinganir sínar að hinu nýja greiðslukerfi. Fyrr á þessu ári tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, að landið myndi draga sig út úr kjarn- orkusamkomulaginu við Íran og setja viðskiptaþvinganir á landið að nýju. Trump hefur sagt kjanorku- samkomulagið við Íran einhliða, hræðilegt og það versta sem hann hafi séð. Treystir Trump á það að nýju viðskiptaþvinganirnar, sem tóku gildi í ágúst, muni þvinga Íran að samningsborðinu að nýju. Við- skiptaþvinganir BNA hafa nú þegar haft slæm áhrif á gengi íranska ríals- ins, gjaldmiðil landsins. Trump tilkynnti í gær að hann hefði engin áform um að hitta leið- toga Írans, Hassan Rouhani, á alls- herjarþingi SÞ í New York, sem stendur yfir. „Mögulega einhvern tímann í framtíðinni. Ég er viss um að hann er algjörlega yndislegur maður,“ tísti Trump nokkrum tímum áður en báðir leiðtogarnir héldu ræðu í SÞ í gær. Sniðganga Bandaríkin  Fimm ríki halda sig við kjarnorkusamkomulagið við Íran  Setja upp nýtt greiðslukerfi fyrir viðskipti við landið  Sérfræðingar efast um framkvæmdina AFP SÞ Hassan Rouhani, leiðtogi Írans, kom til New York á mánudaginn. Hann mun halda ræðu í dag á yfirstandandi friðarfundi SÞ til heiðurs Mandela. Sænska þingið samþykkti í gær van- trauststillögu á Stefan Löfven, for- sætisráðherra Svíþjóðar. Forseti sænska þingsins fær það hlutverk að tilefna næsta forsætisráðherra en það ferli getur tekið nokkrar vikur og verður Löfven starfandi forsætis- ráðherra á meðan. Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var á mánudaginn kosinn forseti sænska þingsins. Hægri og vinstri blokk- irnar í sænskri pólitík reyna nú að mynda starfhæfa ríkisstjórn eftir þingkosningar í byrjun september en hvorug blokkin hefur verið viljug til að vinna með Svíþjóðar- demókrötunum. Alls kusu 204 þingmenn með van- trauststillögunni á Löfven, þar á meðal Svíþjóðardemókratarnir, en hægribandalagið er ekki með meiri- hluta á sænska þinginu. Einungis 142 þingmenn kusu gegn tillögunni. „Svíþjóð þarf nýja ríkisstjórn sem hefur breiða pólitíska skírskotun til að takast á við umbætur,“ segir Ulf Kristersson sem fer fyrir fjögurra flokka hægrabandalaginu Alliansen, í samtali við AFP. AFP Vantraust Löfven, t. h., fylgdist með í þinginu meðan kosning fór fram. Vantraust á forsætis- ráðherra samþykkt  204 þingmenn kusu með tillögunni Kaþólska kirkjan í Þýskalandi bað í gær fórnarlömb kynferðislegs of- beldis af hálfu þjóna kirkjunnar opinberlega afsökunar. Þetta var gert í kjölfar skýrslu sem birt var í gær, þar sem m.a. kom fram að 3.677 ungmenni, aðallega drengir undir 13 ára aldri, urðu fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi af hendi 1.670 starfsmanna kirkjunnar á 68 ára tímabili á árunum 1946 til 2014. „Ég segi það mjög skýrt: kyn- ferðislegt ofbeldi er glæpur. Þeir sem hafa gerst sekir um slíkt verða að sæta refsingu,“ sagði Reinhard Marx, kardínáli í kaþólsku kirkj- unni í Þýskalandi, í gær. Hann sagðist fyllast skömm vegna þessa, ekki síst vegna þess hversu margir innan kirkjunnar hefðu kosið að horfa framhjá ofbeldinu. Höfundar skýrslunnar, sem unn- in var í samstarfi þriggja háskóla í Þýskalandi, segja að líklega sýni niðurstöður hennar einungis topp- inn af ísjakanum. Margt bendi til þess að brotin hafi verið töluvert umfangsmeiri en ekki sé hægt að færa sönnur á það, ekki síst vegna þess að nokkuð var um að prestar sem urðu uppvísir að því að beita börn ofbeldi voru fluttir í aðrar sóknir. Þá hafi verið talsvert um að skjölum og gögnum hafi verið eytt. Samtök fórnarlambanna gagn- rýndu skýrsluna og sögðu m.a. að þar væri einfaldlega ekki gengið nógu langt í að opinbera ofbeldis- mennina eða þá sem hylmdu yfir með þeim. „Það er ekki hægt að kortleggja þetta kerfi ofbeldis með því að skrifa skýrslu sem byggist eingöngu á þeim gögnum sem kirkjan kaus að veita aðgang að,“ segir m.a. í yfirlýsingu samtak- anna. AFP Kirkjan bað fórnar- lömbin afsökunar Bandaríski leikar- inn Bill Cosby var í gær dæmdur til þriggja til tíu ára fangelsisvistar fyrir að hafa beitt konu kynferðis- legu ofbeldi fyrir 14 árum. Cosby er fyrsti frægi ein- staklingurinn sem hlýtur dóm fyrir kynferðisbrot frá því að uppljóstr- anirnar um Harvey Weinstein ýttu úr vör #metoo-hreyfingunni. Í dómnum er tekið fram að Cosby, sem er 81 árs gamall, muni að minnsta kosti sitja þrjú ár í fangelsi fyrir brot sín. Lögfræðingar Cosbys reyndu að fá hann úrskurðaðan í stofufangelsi þar til áfrýjunarferli væri lokið í málinu þar sem Cosby væri of gamall til þess að þola fang- elsisveru, en þeirri umleitan var hafnað. Sagði dómarinn, Steven O’Neill, alvöru brotsins slíka að ekki yrði komist hjá því að Cosby sæti inni. Bill Cosby í fangelsi Bill Cosby

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.