Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 26.09.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2018 Kristrún Heimisdóttir stýrir fundinum ALDREI AFTUR! - FUNDARÖÐ SAMTAKA SPARIFJÁREIGENDA Svana Helen Björnsdóttir Framkvæmdastjóri Stika Lífeyrisfé eftir höft og áhættugreining Sigurður B. Stefánsson Hagfræðingur Lífeyrissjóðirnir á alþjóðlegum markaði 2018-2050 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Greindum tilfellum af vesturnílar- hitasótt hefur fjölgað talsvert í Evr- ópu að undanförnu. Samkvæmt til- kynningu frá Sóttvarnastofnun Evrópusam- bandsins höfðu greinst 150 tilfelli dagana 7.-13. september á svæðum þar sem vitað er að sóttin finnst. Meðal landa þar sem til- felli hafa greinst í ár eru Ítalía, Rúmenía, Grikkland, Ungverjaland, Austurríki og Búlg- aría. Þá hafa einnig komið upp til- felli í Serbíu og Ísrael. Vesturnílar- hitasótt greindist nú í nokkrum löndum þar sem hún hefur ekki kom- ið áður upp: Rúmeníu, Ungverja- landi og Serbíu. Alls hafa 1.318 til- felli komið upp í Evrópu á þessu ári. Haraldur Briem, starfandi sótt- varnalæknir, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að embætti land- læknis hefði ekki gefið út sérstaka tilkynningu vegna sóttarinnar. Ekki væri búist við því að hún breiddist út hér. „Smittíminn í Evrópu er alla jafna frá júní til nóvember. Almenn ráð eru að forðast moskítóbit. Sótt- varnastofnun ESB gerir blóðbönk- um viðvart um áhættusvæði,“ segir Haraldur en líða þarf ákveðinn tími til að fólk geti gefið blóð ef það hef- ur verið á svæðum þar sem vestur- nílarhitasótt geisar. Á Vísindavefnum kemur fram að vesturnílarveiran berst í fólk ef það er bitið af sýktum moskítóflugum. Moskítóflugurnar sýkjast þegar þær sjúga blóð úr sýktum fuglum. Með- göngutími sjúkdóms, það er sá tími sem líður frá því að maður fær veir- una í sig þar til sjúkdómseinkenni koma fram, eru 2-17 dagar. „Um 80% þeirra sem smitast af vestur- nílarveirunni fá engin einkenni sýk- ingar. Langflestir þeirra sem veikj- ast fá svokallaða vesturnílarhitasótt. Einkenni hennar eru hiti, höfuð- verkur, slen, beinverkir og í sumum tilfellum húðútbrot á búknum ásamt bólgnum eitlum. Hitasóttin getur varað allt frá fáeinum dögum til nokkurra vikna.“ Vesturnílarhitasótt sækir í sig veðrið AP Smitberi Moskítóflugur bera vesturnílarhitasótt frá fuglum yfir í menn.  Æ fleiri tilvik  Blóðgjafar vari sig Haraldur Briem Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Pöntunarkerfi eða póstverslun í einhverri mynd eru þeir kostir helstir sem verið er að skoða í Ár- neshreppi á Ströndum. Verið er að loka versluninni sem þar hefur verið lengi og er ólíklegt að versl- un verði rekin í Norðurfirði í vet- ur. Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti í Árneshreppi, segir að vonir standi til þess að hægt verði að finna ein- hvern næsta vor til að taka við búðinni og reka hana allt árið. Hún segist reikna með að 15-18 manns verði í Árneshreppi í vetur, en um 40 manns með lögheimili. „Það er hæpið að við fáum ein- hvern til að taka við þessu rétt fyr- ir vetur, en ég hef eigi að síður fengið eina fyrirspurn,“ segir Eva. Hún segir að óskað hafi verið eftir hugmyndum frá íbúum í hreppnum um hvernig best megi standa að þessari þjónustu í vetur. Þátttaka Vegagerðarinnar Hátt í 100 kílómetrar eru í versl- un á Hólmavík, en í Árneshreppi er ekki snjómokstur yfir hávet- urinn frá áramótum til 20. mars. Yfir veturinn flýgur Flugfélagið Ernir tvisvar í viku á flugvöllinn á Gjögri, en einu sinni yfir sumarið. „Mér heyrist allir vera að aug- lýsa núna að hægt sé að fá send- ingar fólki að kostnaðarlausu,“ segir Eva. „Það gæti hjálpað okk- ur að fá vöruna senda endurgjalds- laust út á flugvöll fyrir sunnan án þess að við reiknum með að fá sendingar hingað norður án kostn- aðar. Við ættum síðan að hafa möguleika á að fá lægri burðar- gjöld því Vegagerðin hefur tekið þátt í kostnaði við flutning á vörum í búðina í Norðurfjörð yfir hávet- urinn.“ Skóli er ekki starfræktur í Ár- neshreppi í vetur, en skólahald hófst á Finnbogastöðum 1929. Eina barnið á grunnskólaaldri sem búsett er í hreppnum sækir skóla á Drangsnesi. Talsverð fækkun í hreppnum Talsvert hefur fækkað í heppn- um á síðustu árum og í haust ákváðu þau Hávarður Benedikts- son og Sveindís Guðfinnsdóttir, bændur í Kjörvogi, að bregða búi. Þau hafa verið með afgreiðslu og flugumsjón á flugvellinum á Gjögri í tæp 20 ár og láta af þeim starfa í lok október. Eva segist reikna með að gengið verði frá ráðningu flugumsjónar- manns á næstunni. Pöntunarkerfi í stað verslunar  Ólíklegt að verslun verði rekin í Norðurfirði í vetur  Oddvitinn vonast til að úr rætist næsta vor Morgunblaðið/Golli Klukkan tifar Í versluninni í Norðurfirði hafa ýmsar nauðsynjar verið á boðstólum, en nú verður henni lokað. Verslun var sett á laggirnar í Norðurfirði árið 1903 sem deild frá Verslunarfélagi Steingríms- fjarðar. Nafninu var síðan breytt í Kaupfélag Stranda- manna, sem síðan sameinaðist Kaupfélagi Steingrímsfjarðar 1993. Kaupfélagið hætti rekstri í Norðurfirði á síðasta ári og tók Ólafur Valsson við rekstrinum 1. nóvember í fyrra. Hann ákvað nýlega að láta staðar numið. Upphafið árið 1903 KAUPFÉLAGSVERSLUN Morgunblaðið/Golli

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.