Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. RAFVÖRUR ehf Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Hita- kútar rafvorur.is Amerísk gæðaframleiðsla Baldur Arnarson baldura@mbl.is Árni Páll Árnason, varaframkvæmda- stjóri uppbyggingarsjóðs EES í Brussel, segir að verkefni tengd kennslu í slóvakísku í íslenskum fram- haldsskólum gætu mögulega verið styrkhæf hjá sjóðnum. Tilefnið er samtal við Runólf Odds- son, ræðismann Slóvakíu, í Morgun- blaðinu í gær. Var þar haft eftir Run- ólfi að fulltrúar Comenius-háskóla, helsta háskóla Slóvakíu, hefðu áhuga á að styðja við nám í slóvakísku á Ís- landi. Tilefnið er ásókn íslenskra námsmanna í skóla ytra. Árni Páll segir hlutverk uppbygg- ingarsjóðs EES tvíþætt. Annars vegar að draga úr félagslegu og efnahags- legu misvægi í Evrópu. Hins vegar að styrkja tvíhliða tengsl framlagsríkj- anna þriggja við viðtökuríkið. Viðtöku- ríkin séu 15 tekjulægstu aðildarríki innan ESB. „Tilteknir fjármunir eru ætlaðir í samvinnuverkefni á vegum upp- byggingarsjóðsins, sem aftur er ætlað að styrkja tvíhliða tengsl framlagsríkj- anna, Íslands, Noregs eða Liechten- stein, við viðkomandi ríki. Ef þróa á þekkingarsamvinnu milli Íslands og Slóvakíu, eða kennslu í slóvakísku á Ís- landi, ætti að vera mögulegt að sækja stuðning í uppbyggingarsjóðinn. Dæmi er um að samstarfsverkefni milli norsks framhaldsskóla og Come- nius-háskólans hafi fengið styrk frá sjóðnum. Kennsla slóvakísku á Íslandi er örugglega mjög spennandi frá þess- um sjónarhóli séð,“ segir Árni Páll. Spurður hvort þekkingarstarf á vegum Íslands í Slóvakíu yrði styrk- hæft segir Árni Páll að til þess þurfi menn að sjá ávinning beggja vegna. „Það er vel hægt að sjá fyrir sér að ræðismenn búi til verkefni í viðtöku- ríkjunum þar sem reynir á íslenskan atbeina,“ segir Árni Páll. Mörg fyrirtæki og stofnanir á Ís- landi taki þátt í samstarfi uppbygging- arsjóðsins. T.d. séu Orkustofnun og Rannís að þróa rannsóknarverkefni og verkefni á sviði jarðhita. Þá hafi Mann- réttindaskrifstofan haft milligöngu um þátttöku íslenskra félagasamtaka í ýmsum verkefnum. Slóvakískunám mögulega styrkt  Áþekkt verkefni fékk fé úr EES-sjóði  Margir taka þátt Árni Páll Árnason Runólfur Oddsson Fara átti fram á gæsluvarðhald yfir manni sem lögreglan á höfuðborgar- svæðinu handtók í gærmorgun ásamt níu öðrum í tengslum við rannsókn á vegabréfafölsun. Níu er- lendir ríkisborgarar og einn Íslend- ingur voru handteknir samtímis í að- gerðum í Reykjavík og Kópavogi. Farið var á skrifstofu starfsmanna- þjónustunnar Manngildis í Kópavogi og íbúðarhúsnæði á hennar vegum í Reykjavík. Þar voru gerðar húsleitir og lagt hald á gögn hjá Manngildi. Eigandi og framkvæmdastjóri Manngildis var handtekinn en sleppt fljótlega eftir skýrslutöku hjá lög- reglunni. Hann neitaði sök og kvaðst aldrei myndu taka þátt í slíku athæfi. „Þeir eru að leita að fólki sem þeir telja að hafi komið ólöglega inn í landið,“ sagði Tryggvi Agnarsson, lögmaður eiganda Manngildis, um aðgerðir lögreglunnar í gær. „Þeir handtaka þar íbúa og handtaka framkvæmdastjóra félagsins og taka af honum skýrslu.“ Mennirnir eru grunaðir um að hafa fengið skráningar á kennitölum í gegnum Þjóðskrá með sviksamleg- um hætti. Þeir fengu úthlutaða kerfiskennitölu á utangarðsskrá á þessu ári. Þegar þeir sóttu um ný- skráningu, eða fulla skráningu, vöknuðu grunsemdir um að vegabréf sem þeir lögðu fram væru bæði föls- uð og stolin. Aðspurður sagði Tryggvi að eig- andi og framkvæmdastjóri Mann- gildis hefði sagt lögreglunni að sér væri ekki kunnugt um neitt slíkt. Hann hefði enga hagsmuni af því og myndi ekki taka þátt í slíku. Þá sagði Tryggvi að skjólstæðingur hans hefði ekki verið upplýstur um hve- nær þetta ætti að hafa gerst. Þá kvaðst hann aðspurður ekki hafa fengið upplýsingar um það frá lög- reglunni hvaða starfsmenn það væru sem lögreglan handtók í gær- morgun. „Umbjóðandi minn er yfirheyrður og hann lýsir þessu, að hann viti ekki hvað menn eru að tala um og myndi aldrei taka þátt í neinu svona, enda hefði hann enga hagsmuni af því.“ Handtökur og húsleitir vegna gruns um vegabréfafölsun  Íslendingur og níu útlendingar handteknir  Krafist gæsluvarðhalds yfir einum Morgunblaðið/Ómar Vinnuafl Lögregluembætti rann- saka vinnumansal og skjalafals. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Frumvarp til laga um breytingu á lögum um fiskeldi (rekstrarleyfi til bráðabirgða) var samþykkt á Al- þingi undir miðnætti í gærkvöld með atkvæðum 45 þingmanna. Frum- varpið var lagt fram í gær og rætt langt fram á kvöld. Atvinnuvega- nefnd fundaði um málið í gærmorg- un og aftur klukkan 18.00 að lokinni 1. umræðu. Langt hlé var á þing- fundi í gærkvöld. Kristján Þór Júlíusson, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, lýsti ánægju sinni með skjóta af- greiðslu Alþingis á málinu. Ýmsir þingmenn úr stjórnarandstöðu lýstu yfir stuðningi við frumvarpið eða til- kynntu að þeir ætluðu að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Sumir þeirra gerðu athugasemdir við máls- meðferðina. Samkvæmt frumvarpinu verður gerð sú breyting að sé rekstrarleyfi fellt úr gildi geti ráðherra, að feng- inni umsögn Matvælastofnunar, enda mæli ríkar ástæður með því, gefið út rekstrarleyfi til bráðabirgða til allt að tíu mánaða, berist umsókn þess efnis frá handhafa hins niður- fellda leyfis innan þriggja vikna frá því að leyfið var fellt niður. Mat- vælastofnun skal ekki stöðva rekst- ur fiskeldisstöðvar fyrr en fyrir ligg- ur hvort sótt verði um rekstrarleyfi til bráðabirgða. Berist slík umsókn skal ekki stöðva reksturinn meðan umsóknin er til meðferðar hjá ráð- herra. Heimilt verður að endur- útgefa bráðabirgðaleyfi einu sinni. Lögin eiga að taka strax gildi og ná til rekstrarleyfa sem féllu úr gildi fyrir gildistöku þeirra. »18 45 sam- þykktu frumvarpið  Fiskeldisfrum- varpið orðið lög Morgunblaðið/Ómar Alþingi Brást hratt við og sam- þykkti breytt lög um fiskeldi. Ólafur Helgi Kjartansson, lög- reglustjóri á Suðurnesjum, staðfesti í samtali við Morgun- blaðið að þrír hefðu verið hnepptir í vikulangt gæslu- varðhald um síðustu helgi að kröfu lögreglunnar á Suður- nesjum. Hann sagði að rann- sókn væri á frumstigum og gat ekki tjáð sig nánar um málið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins snýr rannsóknin að grun um vinnumansal. Grunur um vinnumansal SUÐURNES Fjölmenni naut tónlistar bresku raftónlistarkon- unnar Imogen Heap í Háskólabíói í gærkvöld. Hún söng og spilaði á stafræna Mi.Mu tónlistar- hanska en sveiflaði líka slöngu. Imogen spjallaði við tónleikagesti á milli laga og þótti þetta hin besta skemmtun að sögn viðstaddra. Morgunblaðið/Eggert Með stafræna hanska og slöngubút Raftónlistarkonan Imogen Heap hélt tónleika í Háskólabíói í gærkvöld

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.