Morgunblaðið - 10.10.2018, Side 18

Morgunblaðið - 10.10.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrir fáeinumdögum ósk-aði prófess- or við Georgetown University í opin- beru bloggi sínu þeim sem varið hefðu skipun Brett Kavanaugh dómara „ömurlegs dauða“. Öldungadeild Bandaríkja- þings samþykkti með 50 at- kvæðum gegn 48 að staðfesta tilnefningu dómarans. Prófess- orinn lét ekki þar við sitja en bætti því við að „sjálfsupp- hafnir hvítir karlar hefðu rétt- lætt gjörðir fjöldanauðgara“. Og þegar að slíkir horfðu á móti sínum „ömurlega dauð- daga mundu feministar horfa hlæjandi á þá í dauðateygj- unum“. Prófessorinn lauk þess- ari óskamynd sinni með því að leggja til að „lík þeirra yrðu gelt og því næst yrði þessi af- gangur settur í svínafóður“. Háskólinn var spurður um þetta framtak „fræðimannsins“ og svaraði því hnarreistur til að blogg utan vébanda skólans væri algjörlega á ábyrgð pró- fessorsins og því engar ástæð- ur til aðgerða af háskólans hálfu. Þeir bera sig öðru vísi að handhafar rétttrúnaðarins uppi á Íslandi. Þegar Snorri Óskars- son kennari bloggaði sem ein- staklingur um það sem hann taldi sjónarmið Biblíunnar um samkynhneigð þá mættu tveir starfsmenn inn í skólatíma til hans og vísuðu honum úr kennslu fyrir framan börnin! Hann var því næst rekinn úr starfi. Innanríkisráðuneytið setti ofan í við skólayfirvöld á Akur- eyri fyrir þessa fráleitu fram- göngu og það gerðu Héraðs- dómur og Hæstiréttur Íslands jafnframt þegar skólayfir- völdin klöguðu í þá. En skóla- yfirvöldin hafa enn ekki sýnt að þau kunni að skammast sín. Háskólinn í Reykjavík var á sömu buxum og rak háskóla- kennara sam- stundis úr starfi fyrir að blogga á lokuðu bloggi þar sem sumt var sjálfsagt að mati einhverra mælt af nokkru kæruleysi og í gamaldags karl- rembustíl. Viðbrögð HR voru ekki í neinu samhengi við til- efnið. Og þá ekki síst þegar horft er til þess sem kennarar í helstu háskólum landsins segja iðulega opinberlega á bloggi sínu. Ekki kæmi á óvart þótt flokka mætti sumt af þeim sví- virðingum um einstaklinga og ósönnuðum ávirðingum og níði og jafnvel ásökunum um glæp- samlega hegðun sem þúsund- falt alvarlegra en blogg há- skólakennarans. En enginn verður var við nokkur viðbrögð háskólayfirvalda við þeim ósköpum öllum. Þá eru þeir sjálfsagt að verja málfrelsið eins og þeir í Georgetown- skóla. Það getur vissulega farið vel á því, sérstaklega þegar há- skólar eiga í hlut, einkum ef það væri meginregla en ekki litað af ósvífinni pólitískri rétt- hugsun. En því miður er svo komið í háskólaumhverfi margra ríkja að einungis þeir sem eru að fullu og öllu al- gjörlega sammála þeim sem fylgja skoðunum sínum eftir með hrópum og hótunum sem riddarar hins pólitíska rétt- lætis teljast verðugir til að njóta málfrelsis. Skætingur, níð og rangar sakargiftir gagnvart þeim sem lúta ekki skoðanastjórnun er sjálfkrafa og án minnstu athug- unar fært undir göfuga mál- frelsisvernd óskeikullar aka- demíu. Þetta er einkar dapur- leg þróun og dapurlegast alls hvað margir láta þetta yfir sig ganga. Háskóli fellur á prófi og hann er ekki einn á ferð} Rétttrúnaður ríður á slig Í sumar var um-ræða um að Ríkisútvarpið hefði brotið lög um þjóð- sönginn, en hann má ekki nota í aug- lýsingaskyni. Ríkisútvarpið neitaði þessu með ýmsum röksemdum, til dæmis þeirri að hann hefði ekki verið notaður í auglýsingu heldur í kynningu. Þeir sem utan stofnunarinnar standa áttu erfitt með að sjá muninn. Forsætisráðherra, sem al- mennt ætti að fjalla um málið, taldi sig tengjast því og að bet- ur færi á að fjármálaráðherra tæki afstöðu til meints brots. Síðan er langur tími liðinn, en eins og Morgunblaðið hefur greint frá hefur fjármála- ráðherra ekki enn getað tekið af- stöðu til þess. Ástæðan er sú að Ríkisútvarpið hefur ekki af- hent þau gögn sem nauðsynleg eru. Ríkisútvarpið sýnir reglu- lega að það telur sig standa utan og ofan við lög og rétt. Það kemur þess vegna ekkert á óvart að það taki sér tíma og svari eftir hentugleikum er- indum frá ráðherra um meint lögbrot. Ríkisútvarpið telur sig geta gert það sem því sýnist – og kemst upp með það} Ríki í ríkinu Í gær kom saman í fyrsta sinn þver- pólitísk þingmannanefnd í málefnum barna. Er nefndinni ætlað það hlutverk að endurskoða þjónustu við börn á landsvísu. Er þetta fagnaðarefni enda börnin okkar nútíminn og framtíðin. Það hvern- ig við komum fram við þau í dag skiptir öllu máli varðandi hagsæld þjóðar til framtíðar. En er þetta þá bara leyst? Getur breyting á regluverki leyst alla þætti? Við getum talað okkur hás á þinginu, skipað nefndir, lagt fram frumvörp og þingsályktunar- tillögur að vild en ef stjórnvöld koma sér ekki saman um að fjármagna þær skyldur sem þau setja á stjórnsýsluna svo hún geti sinnt lög- bundnu hlutverki sínu þá er í raun betur heima setið en af stað farið. Uppgerðaröryggi er í raun verra en ekkert öryggi. Sem dæmi um stjórnvald sem ekki tekst að sinna skyld- um sínum gagnvart börnum eru sýslumannsembættin. Sifjadeildir sýslumannsembætta um landið eru flestar ef ekki allar svo vanfjármagnaðar að lögbundin skylda um málsmeðferðarhraða er þverbrotin. Sifjadeildir annast alla þætti er varðar fjölskyldumál svo sem hjónavígslur og skilnaðarmál, forsjármál, lögheimilismál og mál er varða umgengni barna við foreldra. Sifjadeildir annast einnig skipti á dánarbúum og ættleiðingar. Sem dæmi um álag á sifjadeild sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu þá hafði í byrjun mánaðar engu nýju máli vegna ágreinings foreldra um umgengni verið úthlutað til lögfræðinga sviðsins frá því í apríl sl. eða í fimm mánuði. Starfsmenn sviðs- ins eru allt of störfum hlaðnir til að geta komist yfir sínar lögbundnu skyldur, hvað þá að hlíta meginreglum stjórnsýslulaga um málshraða. Þetta bitnar harkalega á börnum landsins. Tökum dæmi af deilum foreldra vegna um- gengni hvar barnið býr hjá öðru foreldri og á umgengnisrétt hjá hinu. Foreldrar hafa ekki komið sér saman um hvernig sá réttur á að vera og því tekur annað foreldið ákvörðun um að fella umgengni alfarið niður á meðan beðið er úrskurðar. Leitað er til sýslumanns í von um niðurstöðu en þaðan berast engin viðbrögð mánuðum saman og missir barnið af dýr- mætum tíma með foreldri sínu. Eftir að málinu hefur loksins verið úthlutað er þrautagöngu alls ekki lokið því þá tekur við hin endalausa bið eftir sáttameðferð og lokaákvörðun fulltrúa. Mál, líkt þessu getur þannig tekið einhver ár í meðferð sýslumanns þegar svo ber undir. Það sjá það allir að grunn- tengslamyndun barns skaðast varanlega á þessum langa tíma og þar bera stjórnvöld ábyrgð. Lagasetning breytir engu ef fjármagn fylgir ekki skyld- um. Því miður ber lítið á viðleitni ríkisstjórnar til að lagfæra þetta og því veltir maður fyrir sér hverju þingmannanefnd á að áorka á meðan svo illa er staðið að þeim stofnunum sem framkvæma eiga regluverkið. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Til bjargar börnum? Höfundur er þingman Samfylkingarinnar STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen segir Sigurður og bætir því við að fyrirtækið muni áfram fylgjast með þróuninni. Þegar og ef eitthvað komi fram sem á verði byggjandi muni ekki standa á því að taka upp nýjar aðferðir. Sigurður segir að það sé brot á meðalhófsreglu þegar úrskurðar- nefnd á stjórnsýslustigi sviptir at- vinnurekanda starfsleyfi sem hann hafi fengið eftir að hafa farið í gegn- um þröngt nálarauga opinberra eftir- litsstofnana. Segist hann þakklátur ríkisstjórn, þingmönnum kjördæm- isins og öðrum sem gripu inn í at- burðarásina og geri fyrirtækinu kleift að starfa áfram. Bergþór Ólason, þingmaður Mið- flokksins og formaður umhverfis- og samgöngunefndar, telur að frumvarp sjávarútvegsráðherra sé ágætis björgun. Frumvarpið sé einfalt og erfitt fyrir menn að setja sig upp á móti því, hvort sem þeir séu almennt hlynntir fiskeldi eða ekki. Hann segir það fáránlega hugmynd að stjórnvöld geti ekki stigið inn í mál sem upp komi. Nefnir í því sambandi að þegar Hæstiréttur dæmdi það ólöglega leigu veiðifélaga á veiðihúsum utan veiðitímans hafi Landssamband veiðifélaga óskað eftir lagabreytingu. Við því hafi verið orðið, eins og eðli- legt hafi verið. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, bendir á að eigendur veiðiréttar séu almennt íbúar í dreifbýli. „Við höfum samkennd með fólki sem býr í dreifðum byggðum og viljum ekki valda því tjóni. En eldi á frjóum laxi getur valdið óafturkræfu tjóni á hlunninum sem allt að 1.700 lögbýli njóta. Við veltum því fyrir okkur að þegar úrskurður fellur umhverfinu í hag sé lögum bara breytt svo hin mengandi starfsemi geti haldið ótrufluð áfram,“ segir Jón Helgi. Hann telur að margt fólk til sveita velti því fyrir sér hver tali fyrir þeirra hagmunum. Hagsmir fyr- irtækjanna virðist alltaf hafa vinninginn yfir náttúrunni. Jón Helgi leggur áherslu á að úrskurður úrskurðarnefndarinnar snúist ekki aðeins um form heldur einnig efni málsins. Laxeldisfyrirtækin hafi aldrei dregið fram aðra kosti en eldi á laxi af norskum uppruna í opnum sjókvíum. Markmið þeirra sé að fá leyfi fyrir ódýrustu aðferðinni. Þeir sem standi vörð um umhverfið þurfi að skoða hvað sé besta aðferðin fyr- ir náttúruna. Veltir hann fyrir sér áhrifum af afskiptum stjórnmála- manna, hvort úrskurðarnefndin muni þora að taka á umdeildum málum í framtíðinni eða hvort leikreglunum verði alltaf breytt ef pressan er næg. Velja alltaf ódýrustu leiðina FORMAÐUR LANDSSAMBANDS VEIÐIFÉLAGA Enn óljóst hvernig búið er að mjólkurkúnni Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slátrun Laxeldi er orðið mikilvægasta atvinnugreinin á sunnanverðum Vestfjörðum. Starfsfólk var óöruggt þegar kippa átti leyfunum til baka. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Talsmenn laxeldisfyrirtækjaog sveitarfélaga á sunnan-verðum Vestfjörðum eruþokkalega ánægðir með fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnar- innar til að tryggja starfsemi laxeldis í Patreksfirði og Tálknafirði þrátt fyrir ógildingu úrskurðarnefndar á rekstrar- og starfsleyfum. Formaður Landssambands veiðifélaga er ekki hrifinn af því að lögum sé breytt til að draga úr áhrifum úrskurða en segist þó hafa meiri áhyggjur af því hvernig ramminn um fiskeldið verði til fram- tíðar litið. Hvort hagsmunir náttúr- unnar verði hafðir að leiðarljósi. „Okkur líst vel á þessar tillögur, ef verið er að tryggja að störfin okkar heima glatist ekki og ef þetta verður til þess að það myndast svigrúm til að bregðast við annmörkum á um- hverfismati,“ segir Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri Vestur- byggðar. Hún vonast til þess að tím- inn sem gefst verði nýttur vel til að laga það sem kann að vera að. Hún tekur það fram að aldrei sé gott að nota plástra til að laga vanda- mál í lögum og reglum. Í þessari stöðu hafi lagasetning þó verið skásta leiðin. Forystumenn sveitarfélaganna á sunnanverðum Vestfjörðum fóru á fund forystumanna ríkisstjórnar- flokkanna um helgina og hittu einnig marga þingmenn stjórnar og stjórn- arandstöðu. „Ég er ánægð með að formenn flokkanna voru tilbúnir að setjast niður með okkur og hlusta á hvað staðan var alvarleg fyrir byggð- irnar. Frumvarpið er ekki komið í gegn en við bindum vonir við að þetta gangi upp,“ segir Rebekka. Mikilvægt að geta haldið áfram „Staðan er óljós og við bíðum átekta. Það er ljóst að við þurfum mjólk en enn er óljóst hvernig ríkið vill búa að þessari mjólkurkú,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórnarformaður Arnarlax. Sigurður Pétursson, framkvæmda- stjóri hjá Arctic Fish, segir að það skipti fyrirtækið miklu máli að geta haldið áfram starfsemi. „Það dregur þó ekki úr því að við munum að sjálf- sögðu skoða okkar rétt og útskýra betur af hverju við kusum á þessum tíma að meta ekki aðra valkosti,“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.