Morgunblaðið - 10.10.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
Vetur nálgast Vífilsfell er eitt þeirra fjalla sem umlykja höfuðborgina og er það stundum talið til Bláfjalla. Nú breiðir snjóþekja úr sér víða um land og er þetta svipmikla fjall nú alhvítt.
Kristinn Magnússon
Sindri Sigurgeirsson, for-
maður Bændasamtakanna, lýsir
áhyggjum sínum vegna áforma
ráðherra að loka einu skrifstofu
ráðuneytisins sem fór með mál-
efni landbúnaðar og matvæla.
Í forystugrein síðasta Bænda-
blaðs rekur Sindri stöðuga
hnignun ráðneytisins og stjórn-
sýslu þessa málaflokks síðan
sjálfstætt landbúnaðarráðuneyti
var lagt niður og látið renna inn í
svo kallað atvinnuvegaráðu-
neyti.
Metnaðarleysi og hringlandi
Formaður Bændasamtakanna hefur áhyggj-
ur af algjöru metnaðarleysi ráðherra og stjórn-
sýslulegum hringlanda innan ráðuneytisins
sem bitnar nú hart á atvinnugreininni.
Orðrétt segir Sindri Sigurgeirsson, formað-
ur Bændasamtakanna, í nýjasta Bændablaði:
„Lengi var það þannig að sér-
stakt ráðuneyti fór með landbún-
aðarmál. Því var svo slegið saman
í sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti og svo aftur í atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneyti, þó
að því sé nú stýrt af tveimur ráð-
herrum. Við þetta voru og eru
margir ósáttir í landbúnaðinum.
Það var þó þannig að einni skrif-
stofu í því ráðuneyti var ætlað að
sinna málefnum landbúnaðar og
matvæla.
Nú í lok september bárust
fregnir um að þessari einu skrif-
stofu ætti að slá saman við aðra. Þetta hafði
ekki verið kynnt með neinum hætti og kom
upp þegar ráðning nýs „öflugs fyrirliða á sviði
matvæla og landbúnaðar“ (eins og ráðuneytið
auglýsti sjálft) átti að vera að ljúka. Ráðherra
hefur ekki séð sér fært að kynna bændum rök
sín fyrir þessum breytingum. Honum þarf
ekki að koma á óvart að þeim þyki þetta lýsa
litlum áhuga á að efla íslenskan landbúnað
nema að hann sýni fram á annað með afgerandi
hætti.“
Ég tek heilshugar undir með formanni
Bændasamtakanna að hér er mikil hætta á
ferðum – en ég varaði við afleiðingunum að
leggja landbúnaðarráðuneytið niður og barðist
gegn því meðan ég var ráðherra. Ég sá fyrir að
við tæki metnaðarleysi og afturför í allri
stjórnsýslu matvælaframleiðslu og landbún-
aðar í landinu.
Ég kynntist því sem ráðherra hve sterk öfl
það eru í samfélaginu sem vilja veikja stöðu
þessara greina. Þessi öfl beita öllum brögðum
til að lama innlenda framleiðslu og fá tækifæri
til að maka krókinn á innflutningi matvæla sem
við getum sem best framleitt hér sjálf á hollan
og hagkvæman hátt.
Setja þarf spelkur á ráðherrann svo
hann bogni ekki
Mér finnst því dapurt að sjá hné ráðherrans
bogna fyrir þessum öflum sem vilja land-
búnaðinn feigan. Nýleg grein hans í Morgun-
blaðinu vísar til þess að hann ætli að leggjast
flatur fyrir kröfum Evrópusambandsins um
óheftan innflutning á hráu ófrosnu kjöti og
veikja þar með öryggi og hollustu innlendrar
framleiðslu. Landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðherra Kristján Þór Júlíusson er vel að
manni og getur verið staðfastur fái hann til
þess góðan stuðning.
Nú þarf að hlaupa til og setja á ráðherrann
spelkur og snúa undanhaldi í vörn og sókn fyr-
ir íslenskan landbúnað og matvælavinnslu í
landinu. Formaður Bændasamtakanna slær
tóninn í Bændablaðinu.
Eftir Jón Bjarnason »Nú þarf að hlaupa til og
setja á ráðherrann spelkur
og snúa undanhaldi í vörn og
sókn fyrir íslenskan landbúnað
og matvælavinnslu í landinu.
Jón Bjarnason
Höfundur er fyrrverandi landbúnaðar- og
sjávarútvegsráðherra.
Ráðherrann með bogin hné
„Við sem höfum skipað okkur
undir gunnfána Sjálfstæðis-
flokksins, gengum ekki til liðs
við flokkinn vegna nafnsins eða
vegna þess að einhvern tíma í
sögu hans hafi þar verið magn-
aðir foringjar við völd. Nei. Við
erum frjálshyggjumenn, hægri
menn, efasemdamenn um mátt
ríkisvaldsins, staðfastir trúmenn
þess að hver sé sinnar gæfu
smiður, um leið og trú okkar
krefst þess að hjálpa samborg-
urum okkar. Við erum fólk sem talar um borg-
ara í stað þess að ræða um þegna. Við erum
sannfærð um að leiðin til hamingjunnar liggur
hvorki í gegnum ríkið né auðæfi. Við erum fólk
sem telur að mælikvarði á náungakærleika og
hjálpsemi verði aldrei mældur í því hvað við
greiðum í skatta, heldur hvernig og hvort við
komum nágranna okkar til hjálpar, án þess að
um það sé sérstaklega getið í fjölmiðlum. Sjálf-
stæðismenn eru því bara venjulegir Íslend-
ingar og þegar Sjálfstæðisflokkurinn byrjar að
tala og framkvæma eins og venjulegir Íslend-
ingar, mun flokkurinn – en fyrst og fremst
þjóðin – njóta góðs af.“
Þannig komst ég að orði í langri grein sem
birtist í Þjóðmálum sumarið 2011 undir yfir-
skriftinni: „Manifesto hægri manns“. Þar
reyndi ég að færa rök fyrir því að Sjálfstæðis-
flokkurinn gæti endurheimt stöðu sína sem
kjölfesta og leiðandi afl í íslenskum stjórn-
málum með því að endurnýja traust og trúnað
við launþega og atvinnurekendur. En forsenda
þess er að kjörnir fulltrúar flokksins viður-
kenni að þeir sofnuðu á verðinum og að ríkið –
báknið – hafi þanist út á vakt flokksins. Þeir
verði að horfast í augu við þá staðreynd að sem
stjórnmálaflokkur gleymdi Sjálfstæðisflokkur-
inn úr hvaða jarðvegi stefna hans og hugsjónir
eru sprottnar. Almennir flokksmenn hafi ekki
rifið upp ræturnar heldur hafi flokkurinn
gleymt að rækta fortíð sína og sögu. Þess
vegna taldi ég (og tel enn) að Sjálfstæðis-
flokkurinn yrði að leita aftur til
fortíðar um leið og sýn til fram-
tíðar væri mótuð. Fara aftur til
þess tíma þegar flokkurinn var
málsvari launamanna, varðmaður
millistéttarinnar og sérstakur
baráttumaður litlu og meðalstóru
fyrirtækjanna, sem skapa nýj-
ungar og atvinnu:
„Sjálfstæðisflokkurinn verður
að tryggja að enn á ný verði hann
brjóstvörn allra borgaralegra afla
landsins – regnhlíf allra þeirra
sem vilja takmarka völd ríkisins,
tryggja frelsi borgaranna en um
leið standa vörð um velferðarríkið, án þess að
ríkisvæða náungakærleikann. Sjálfstæðis-
flokkurinn á að lýsa því yfir að hann muni, í
gegnum þykkt og þunnt, vera gæslumaður
menningar og sögu landsins.
Sjálfstæðisflokkurinn á að lýsa því yfir að
hann sé flokkur atvinnurekenda, flokkur
launamanna, flokkur bænda, flokkur þeirra
sem þurfa á samhjálp að halda, flokkur unga
fólksins og þeirra sem eldri eru. En fyrst og
fremst á Sjálfstæðisflokkurinn að lýsa því yfir
að hann sé flokkur millistéttarinnar – hins
venjulega Íslendings.“
„Praktísk pólitík“ og teknókratar
Í Þjóðmálagreininni gagnrýndi ég að að-
gerðafræði teknókrata hefði náð að sýkja starf
okkar Sjálfstæðismanna. Í anda teknókratism-
ans var hugmyndafræði lögð til hliðar en þess í
stað litið svo á að öll viðfangsefni samfélagsins
ætti að leysa við skrifborðið, í töflureikni og
líkönum. Og þótt við höfum á síðustu árum náð
að spyrna við fótum gegn kerfishugsuninni
eigum við langt í land. Ein stærsta áskorun
Sjálfstæðisflokksins er því enn sú sama og fyr-
ir rúmum sjö árum: Að segja teknókratism-
anum stríð á hendur – segja hingað og ekki
lengra. Sú barátta er hluti þess að flokkurinn
hugi að rótunum.
Gagnrýni mín 2011 var ekki ný af nálinni.
Sumarið 2008 skrifaði ég grein í Þjóðmál um
flokk í ólgusjó. Þar deildi ég á forystu
Sjálfstæðisflokksins fyrir að hafa ári áður
gengið til samstarfs við Samfylkinguna, sem
þá var í sárum eftir áfall í kosningum. Feigðin
ein fylgi slíku bandalagi. Í því kristallist hvern-
ig „praktísk pólitík“ taki yfir hugmyndafræði
og stefnufestu. Áhyggjur mínar reyndust rétt-
mætar eins og síðar kom í ljós.
Góður árangur en
Óhætt er að halda því fram að árangur okk-
ar Íslendinga eftir fall bankanna fyrir tíu árum
hafi verið ótrúlegur. Við höfum á örfáum árum
náð góðum efnahagslegum styrk.
Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn tók sæti í
ríkisstjórn árið 2013 hefur staða ríkissjóðs
gjörbreyst. Í lok komandi árs verða skuldir
ríkissjóðs 670 milljörðum lægri en þegar þær
voru hæstar árið 2012. Miðað við fjármála-
áætlun til 2023 verða skuldirnar 790 millj-
örðum lægri í lok áætlunar en þegar þær voru
hæstar. Þetta eru um níu milljónir króna á
hverja fjögurra manna fjölskyldu. Þrátt fyrir
hrakspá tókst að afnema fjármagnshöftin og
tryggja stöðugleikaframlög frá þrotabúum
föllnu bankanna.
Útgjöld til heilbrigðismála hafa verið stór-
aukin. Miðað við fjárlagafrumvarp verða heil-
brigðisútgjöld liðlega 91 milljarði hærri að
raunvirði á næsta ári en 2013. Framlög til mál-
efna eldri borgara og öryrkja verða 75 millj-
örðum hærri. Hækkun um 95% að raunvirði. Á
sama tíma hafa almenn vörugjöld verið felld
niður og tollar á þúsundum vöruflokka verið
aflagðir. Tryggingagjald lækkað og tekju-
skattur einstaklinga einfaldaður, þrepum
fækkað og lægsta skattþrepið lækkað.
Kaupmáttur hefur aldrei verið meiri, at-
vinnuleysi lítið og verðlag hefur verið stöðugt.
Lífskjör á Íslandi eru með þeim bestu sem
þekkjast í heiminum.
En þrátt fyrir að í flestu hafi gengið vel hef-
ur Sjálfstæðisflokknum ekki tekist að endur-
heimta fyrri styrk. Við sem skipum sveit kjör-
inna fulltrúa flokksins verðum að viðurkenna
að okkur hefur ekki tekist að endurnýja sam-
bandið við marga kjósendur. Fyrir því liggja
margvíslegar ástæður en í samtölum við gamla
samherja hef ég skynjað hversu vonsviknir
margir eru vegna þess hve seint gengur að
hrinda stefnumálum í framkvæmd. Ríkisút-
gjöldin halda áfram að hækka ár eftir ár. Í
hugum margra stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins hefur virðing fyrir opinberu fé farið
þverrandi. Eftirlitsstofnanirnar lifa góðu lífi
og enn er stór hluti efnahagslífsins án sam-
keppni. Ríkisfyrirtæki hafa í auknum mæli
lagt til atlögu við einkafyrirtæki. Einkarekstur
í heilbrigðisþjónustu er í vörn. Séreignar-
stefnan – einn hornsteinn hugsjóna Sjálf-
stæðisflokksins – er líkt og afgangsstærð í
dægurþrasi stjórnmálanna.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því ég
sá mig knúinn til að skrifa greinarnar tvær í
Þjóðmál. Þá taldi ég nauðsynlegt að huga að
rótum hugmyndafræðinnar en um leið yrðu
kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins að öðlast
sjálfstraust í málflutningi og baráttu. Almenn-
ingur verði að skynja að þeir tali frá hjartanu
með frelsi einstaklingsins að leiðarljósi. Að
ástríða og sannfæring sé að baki orðum og at-
höfnum.
Af samtölum síðustu misseri við fólk um allt
land – bændur, útgerðarmenn, iðnaðarmenn,
sjálfstæða atvinnurekendur, kennara og lækna
– finn ég að margir sakna þess að við sem höf-
um tekið að okkur að berjast fyrir hugsjónum
sjálfstæðisstefnunnar á þingi, skulum ekki tala
af meiri ástríðu fyrir því sem við teljum mikil-
vægast.
Eða eins og gamall sjómaður sagði við mig:
„Það er allt í lagi að kannast við að vera Sjálf-
stæðismaður.“
Eftir Óla Björn Kárason »Ég taldi nauðsynlegt að
huga að rótum hugmynda-
fræðinnar en um leið yrðu
kjörnir fulltrúar flokksins að
öðlast sjálfstraust í málflutn-
ingi og baráttu.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Að vera Sjálfstæðismaður