Morgunblaðið - 10.10.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
Sóknargjöld eru
eitt helsta hagsmuna-
mál þjóðkirkjunnar.
Þau voru skert eftir
hrun og samkvæmt
útreikningum þjóð-
kirkjunnar fengi hún
um milljarði meira á
ári ef engin skerðing
hefði orðið.
Meginstoðin í bar-
áttu þjóðkirkjunnar
fyrir þessum fjár-
munum er hugmyndin að sóknar-
gjöld séu félagsgjöld sem ríkið inn-
heimtir fyrir kirkjuna.
Ýmsir hafa bent á að þessi mál-
flutningur standist ekki, sóknar-
gjöld séu alls ekki félagsgjöld. Slíkt
er eflaust hægt að afskrifa sem
andkirkjulegan áróður. Að vísu
hafa fjármálaráðherra, ríkis-
lögmaður og umboðsmaður Alþing-
is líka haldið því fram að sóknar-
gjöld séu ekki innheimt félagsgjöld.
Þann málflutning má
afskrifa með því að þar
sé ríkisvaldið að verja
hagsmuni sína.
Það væri kannski
erfiðara að afskrifa
einstakling sem er
vígður prestur, kirkju-
þingsfulltrúi, prófessor
við guðfræðideild HÍ
og velunnari þjóðkirkj-
unnar. Hjalti Hugason
er einmitt svona ein-
staklingur og fyrir
rúmu ári birtist rit-
rýnda fræðigreinin
„Félagsgjöld eða ríkisframlag? Eðli
og þróun sóknargjalda“ eftir hann í
Ritröð guðfræðistofnunar Háskóla
Íslands.
Í greininni útskýrir Hjalti ítar-
lega og skýrlega að sóknargjöld
eru ekki félagsgjöld; gjaldskyldan
miðast ekki við aðild, ekki er um
beint persónulegt gjald að ræða og
gjaldtakinn ákveður ekki upphæð-
ina svo eitthvað sé upp talið.
Það er varla hægt að afskrifa
Hjalta Hugason sem óvin þjóð-
kirkjunnar eða talsmann ríkisvalds-
ins og í ljósi þess að milljarður á
ári er í húfi mætti halda að það
yrðu einhver viðbrögð við þessum
skrifum.
Í staðinn ríkir vandræðaleg
þögn. Þegar sannleikurinn kostar
þúsund milljónir á ári finnst sum-
um kannski óþarfi að vekja athygli
á því að andmælendur þjóðkirkj-
unnar og talsmenn stjórnvalda
höfðu einfaldlega rétt fyrir sér um
eðli sóknargjalda.
Þögnin um eðli sóknargjalda
Eftir Hjalta Rúnar
Ómarsson
Hjalti Rúnar Ómarsson
» Þjóðkirkjan vill
hærri sóknargjöld á
þeirri forsendu að þau
séu félagsgjöld. Í fyrra
var sú forsenda hrakin
af guðfræðiprófessor.
Nú ríkir bara þögn.
Höfundur er í stjórn Vantrúar.
Sighvatur Björg-
vinsson, fv. heil-
brigðisráðherra,
skrifaði grein í
Moggann 5. október
sl. Grein hans er
beint gegn mér fyrir
að hafa gagnrýnt
Birgi Jakobsson, fv.
forstjóra Karolinska
sjúkrahússins, fv.
landlækni og núver-
andi aðstoðarmann
heilbrigðisráðherra, fyrir nei-
kvæða afstöðu hans gagnvart
starfsemi sjálfstætt starfandi sér-
fræðilækna. Sighvati er svo mikið
niðri fyrir að hann getur ekki einu
sinni haft rétt eftir mér. Hann
segir mig hafa kallað Birgi „of-
stopafullan“ og í framhaldinu vís-
ar hann í ýmsa aðila, sem mér
þætti hugsanlega vera ofstopa-
fullir líka – einhvern McKinsey
ríkisendurskoðanda og einhvern
WH!
En nú vill svo til að ég kallaði
Birgi ekki ofstopafullan og ég
kannast lítið við hina aðilana og
get því ekki vitað hvort þeir fari
fram með ofstopa. Birgi kannast
ég vel við og þótt mér líki ekki of-
stækisfullar skoðanir hans í þess-
um málum, þá veit ég að hann er
ágætismaður. Eini hugsanlegi of-
stopamaðurinn væri kannski Sig-
hvatur sjálfur, sem afhjúpast þá
helst í skrifum hans og afstöðu
gagnvart okkur sérfræðilæknum.
Sú afstaða hans er ekki ný. Sem
heilbrigðisráðherra árið 1995 (sbr.
Morgunblaðið 5. apríl sama ár)
beitti hann sér ákaft fyrir því að
sett yrði upp tilvísanakerfi á sér-
fræðilækna. Hann ólmaðist og
hamaðist og sagði lækna hafa beitt
hótunum um að líf fólks lægi við ef
hann héldi baráttu sinni áfram.
Þessu var auðvitað ekki trúað og
hann beið mikinn pólitískan ósigur
þegar hann tapaði því máli. En
áfram skröltir hann þó …
Síðan þá hefur Sighvatur ekki
borið sitt barr og hefur hann ham-
ast gegn okkur læknunum hvenær
sem færi gefst. Hann sparkar og
sparkar til okkar, en lætur eins og
því sé öfugt farið með titli greinar
sinnar „… og svo kemur sparkið“.
Birgir Jakobsson er alveg mað-
ur til að svara greininni sjálfur og
þarf ekki á Sighvati að halda til
þess. En saman hafa þeir félagar
algerlega rangt fyrir sér í þessu
máli. Þjónusta okkar sérfræði-
lækna er bæði ódýr og vinsæl (sbr.
skoðanakannanir) og
heilbrigðiskerfið í
heild miklu betra og
ódýrara en í Svíþjóð,
sem þeir félagar vitna
svo mjög til.
Ég nenni ekki að
leiðrétta né að elta ól-
ar við gamlar og út-
jaskaðar tuggur Sig-
hvats úr fyrri grein
hans í Mogganum 29.
september sl. um
kostnað og gæði heil-
brigðisþjónustu á Ís-
landi samanborið við Svíþjóð og
læt það eftir forystumönnum
Læknafélagsins, sem um það hafa
ritað góðar greinar á undan-
förnum mánuðum; greinar sem
Sighvatur og Birgir virðast hvor-
ugur hafa lesið heldur eru þeir
báðir við sama gamla heygarðs-
hornið – með eða án ofstopa.
Við þetta má bæta að grein mín
í Moggann um daginn var skrifuð
með hagsmuni skjólstæðinga
minna og annarra sérfræðilækna
að leiðarljósi eins og titill greinar-
innar bar glöggt vitni um.
En kjarni málsins er þessi.
Helstu veitendur heilbrigðisþjón-
ustu á Íslandi eru þessir: Land-
spítalinn og aðrir spítalar, heilsu-
gæslan, þjónusta við aldraða og
þjónusta sjálfstæðra sérfræði-
lækna á stofum. Flestir vita af
vandræðum þriggja fyrst nefndu
aðilanna, sem fá ónógt fjármagn
eða mannafla (nema hvort tveggja
sé) og er mikið kvartað undan
starfsemi þeirra; – löngum bið-
listum og lítilli samfellu í læknis-
þjónustu. Sérfræðilæknaþjón-
ustan hefur ekki verið mikið
gagnrýnd af almenningi. Biðlistar
eru þar almennt frekar stuttir,
þjónustan persónuleg og sveigjan-
leg og fjárhagslega hagkvæm mið-
að við sambærilega þjónustu ann-
arra aðila. Ef það er einlæg ósk
þeirra að bæta heilbrigðiskerfi Ís-
lendinga, af hverju í ósköpunum
beina þau Svandís, Birgir og Sig-
hvatur þá ekki orku sinni og spjót-
um í að bæta þá þjónustu sem
sannarlega stendur höllum fæti, í
stað þess að andskotast út í starf-
semi sérfræðilækna, sem hefur
virkað vel og fer fram eins og sam-
ið hefur verið um milli aðila?
Hvatvís
ofstopamaður
Eftir Árna Tómas
Ragnarsson
Árni Tómas
Ragnarsson
» Af hverju beina þau
Svandís, Birgir og
Sighvatur ekki orku
sinni og spjótum í að
bæta þá þjónustu sem
sannarlega stendur höll-
um fæti, í stað þess að
andskotast út í starf-
semi sérfræðilækna?
Höfundur er læknir.
Á næstu dögum
munu Crohn’s og Col-
itis Ulcerosasamtökin
(CCU), sem eru samtök
fólks með bólgu-
sjúkdóma í meltingar-
vegi, kynna kort sem
ætti að gera þeim sem
það hafa undir höndum
kleift að fá aðgang að
salernum hvar og hve-
nær sem er.
Ástæðan fyrir því að
þessi kort eru nauðsynleg þessum
hópi er sú að sjúkdómar sem þessir
eru í meltingarvegi, þeir eru lang-
vinnir og oft mjög erfiðir viðureignar.
Um er að ræða sáraristilbólgur og
svæðisgarnabólgur en á meðal ein-
kenna eru tíðar og óvæntar salern-
isferðir. En þá er oft spurning um
sekúndur en ekki mínútur, sem er
ekki mikill tími til þess
að finna salerni eða út-
skýra hversvegna það
er svo nauðsynlegt.
Það er engin lækning
til við þessum sjúkdóm-
um en oft er hægt að
halda þeim niðri með
góðri meðhöndlun
lækna, hjúkrunarfólks
og lyfja. Ekki er heldur
til nein ein lyfjameðferð
sem virkar á alla og
verður því að með-
höndla hvern ein-
stakling fyrir sig.
Lífsgæði fólks sem er með þessa
sjúkdóma minnka og erfitt er oft á
tíðum að ferðast eða vera innan um
fólk án þess að vera alveg örugg(ur)
um að komast á salerni. Því vill það
oft verða til þess að fólk heldur sig
frekar heima en að fara út og ein-
angrast þar af leiðandi. Sem betur fer
er aðgengi að salernum yfirleitt
Takk
Eftir Þuríði Rúrí
Valgeirsdóttur » Á meðal einkenna
eru tíðar og óvæntar
salernisferðir. En þá er
oft spurning um sek-
úndur en ekki mínútur,
sem er ekki mikill tími
til þess að finna salerni.
Þuríður Rúrí
Valgeirsdóttir
Höfundur er leikskólakennari.
nokkuð gott hér á landi en það er þó
ekki algilt og því miður getur oft ver-
ið nokkuð langt í næsta salerni eða
það ekki opið almenningi, til að
mynda starfsmannasalerni í versl-
unum. Nýlegt dæmi er frá 14. júní
síðastliðnum þegar einstaklingur með
sáraristilbólgur fékk ekki að nota sal-
ernið í verslun hér á landi og kúkaði á
sig, eins og hann sagði sjálfur frá í
Fréttablaðinu þann dag.
Kortið er útbúið að erlendri fyrir-
mynd með það í huga að fólk með
þessa sjúkdóma hafi tól til þess að út-
skýra þörf sína fyrir salerni án þess
að fara út í langar útskýringar. Að
það geti komist á salerni eins fljótt og
auðið er. En til þess að það geti þjón-
að tilgangi sínu er nauðsynlegt að all-
ir og þá kannski sérstaklega starfs-
fólk í verslun og þjónustu þekki þessi
kort.
Fyrir hönd CCU-samtakanna vona
ég að þeim verði vel tekið.
Fasteignir
– fyrir dýrin þín
Ást og umhyggja fyrir dýrin þín
Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn
Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna.
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
15 kg
8.990 kr.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?