Morgunblaðið - 10.10.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 10.10.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 ✝ Hansína Magn-úsdóttir fædd- ist á Suðureyri í Súgandafirði 10. júlí 1926. Hún lést á Landspítalanum 27. september 2018. Hún var næst- yngst 10 barna Magnúsar Árna- sonar, f. 1885, d. 1957, og Guð- mundínu Sigríðar Sigurðar- dóttur, f. 1889, d. 1967. Systkini Hansínu eru Magn- ús Vilhjálmur Magnússon, f. 1910, d. 1977, Sóley Sesselja Magnúsdóttir, f. 1911, d. 1998, Kristján Bjarni Magnússon, f. 1913, d. 1978, Rannveig Magnúsdóttir, f. 1915, d. 2009, 12. júlí 1952, börn hans Anna Kristín, móðir hennar Anna Friðbjörnsdóttir, látin, og Egg- ert Bjarni, móðir Salóme Egg- ertsdóttir. 3) Guðmundur, f. 12. júlí 1952, maki Helga Lára Árnadóttir, börn þeirra Magn- ús Gunnar, Sandra Valdís og Árni Emil. 4) Örn, f. 7. ágúst 1954, maki Bergljót Bragadótt- ir, börn þeirra Róbert og Gunnar Örn. 5) Gunnar Þór, f. 26. september 1963, sambýlis- kona Halla Sigurgeirsdóttir, börn hans og Margrétar Bjarnadóttur eru Bjarni Garð- ar og Hansína Rut. Hansína flutti til Reykjavík- ur þegar hún var 18 ára gömul og hitti fljótlega Magnús Gunnar. Hansína var lengi vel húsmóðir en í seinni tíð starf- aði hún hjá lögreglunni, Búnaðarbankanum og Rauða krossinum. Útför Hansínu fer fram frá Háteigskirkju í dag, 10. októ- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Halldór Georg Magnússon, f. 1918, d. 1941, Árni Magnús Magnús- son, f. 1921, d. 1921, Drengur Magnússon, f. 1923, d. 1923, Guð- mundur Jón Magnússon, f. 1924, d. 1989, Lilja Magnúsdóttir, f. 1928. Maður Hansínu var Magnús Gunnar Guðmundsson, f. í Koti í Vatnsdal 12. nóvember 1917, d. 18. júlí 2008. Börn þeirra eru: 1) Halldór Georg, f. 30. desember 1947, d. 14. október 2016, maki Karítas Ísaksdóttir, börn þeirra Ísak, Hanna Dóra og Sigríður Ólöf. 2) Magnús, f. Elsku amma. Síðast þegar við frænkurnar settumst niður til að skrifa um ömmu okkar þá var það við skemmtilegra tilefni eða þegar hún varð 90 ára 2016. Þá lék hún á als oddi og var hress og kát eins og alltaf. Amma varð 92 ára gömul en leit sko ekki út fyrir það og henni leið ekki þannig. Minningarnar um hana eru endalausar og hægt væri að skrifa heila bók um þessa glæsi- legu konu sem elskaði lífið og lifði því til fullnustu alla tíð. Í Unufellinu þar sem hún og Gunnar afi bjuggu okkar barn- æsku voru bakaðar pönnukökur og vöfflur, spáð í bolla og haldin skemmtilegustu jólaboðin með tilheyrandi fjöri og látum. Amma sagði okkur endalaust af sögum bæði sem hún spann á staðnum og ekki þreyttist hún á að segja okkur sögur af sonunum fimm þegar þeir voru litlir og öll- um þeirra mörgu strákapörum, einnig fannst henni gaman að rifja upp sögur af okkur barna- börnunum og segja okkur hversu stolt hún var af okkur öllum. Hún átti einnig mjög gott samband við tengdadætur sínar og var þeim vel til vina. Til ömmu var hægt að leita með allt og ræða við hana eins og sína bestu vinkonu og það gerð- um við frænkurnar oft. Amma elskaði að dansa og fara á böll, glæsilegri og flottari konu var vart hægt að finna, allt- af vel tilhöfð. Við frænkurnar heyrðum oft: vá, amma þín er á háum hælum og í leggings! Er hún ekki á tí- ræðisaldri? En aldurinn stoppaði hana ekki í að hafa gaman af líf- inu. Árið 1999 fluttu hún og afi í Hátún og leið ömmu mjög vel að vera svona nálægt miðbænum. Gunnar afi átti dóttur af fyrra sambandi, hana Emily, sem býr í Ameríku, og fór amma að heim- sækja hana og þær áttu frábært samband sem einkenndist af gagnkvæmri virðingu og vináttu. Gunnar afi lést árið 2008 sem var mjög erfitt fyrir ömmu og okkar fjölskyldu, En amma eignaðist yndisleg- an vin, hann Garðar Jóhannes- son, sem átti eftir að vera henni ómetanlegur félagsskapur næstu árin, þau fóru saman til Spánar, í bústað, út að dansa og margt fleira. Hún sagði oft við okkur að hún væri svo þakklát fyrir hann Garðar sinn og hversu góður hann væri við hana. Alger herra- maður og kæmi fram við hana eins og drottningu. Fyrir það verður fjölskyldan endalaust þakklát. Árið október 2016 féll elsti sonur ömmu, Halldór Georg, frá óvænt og tókum við vel eftir hversu amma átti erfitt og sagði hún svo eftirminnilega að það skiptir engu máli hversu gamalt barnið manns er þegar það fellur frá, það er ólýsanlega erfitt fyrir foreldra að lifa barnið sitt. Amma gat engan veginn sætt sig við að hann væri farinn og bara trúði því ekki, mikill munur varð á heilsu hennar eftir það. Magnús, Guðmundur, Össi og Gussi synir hennar sem hún elskaði og dáði sitja nú eftir með söknuð í hjarta. Við frænkurnar söknum ömmu endalaust og tilhugsunin um að geta ekki hringt í hana eða heimsótt til að spjalla er þung- bær. Tilhugsunin um að hún sé ekki með þegar fjölskyldan hittist er óbærileg því amma kom alltaf í öll afmæli, veislur og brúðkaup. Við huggum okkur við að það er fullt af fólki sem tekur vel á móti henni, fremstir í flokki afi og Halldór. Amma, við elskum þig, takk fyrir allt. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hanna Dóra Halldórsdóttir, Anna Kristín Magnúsdóttir, Sandra Valdís Guðmunds- dóttir, Sigríður Ólöf Hall- dórsdóttir og fjölskyldur. Það er af mörgu að taka þegar reynt er að finna réttu orðin um hana Hansínu okkar. Hún var nýorðin 92 ára gömul, hafði ávallt verið heilsuhraust, var hörkudugleg, jákvæð og glæsileg kona. Það var okkur ástvinum hennar því mjög erfitt og sárt að horfa upp á hana veikjast alvar- lega fyrr á þessu ári. Hansína og Gunnar eignuðust fimm syni. Elsti sonurinn, Hall- dór (Dóri) lést fyrir tveimur ár- um og gekk sá missir mjög nærri henni. Hansína skilur eftir sig stóra og samheldna fjölskyldu, sem nú sér á eftir einstakri og góðri konu. Ekki má gleyma hennar kæra vini, sálufélaga og dansfélaga, honum Garðari sem ávallt vakti yfir hennar velferð. Hafðu þökk fyrir, elsku Garðar. Drottinn verndar dag og nótt á dularvegi nýjum. Aftur færðu aukinn þrótt í eilífð ofar skýjum. Þú alltaf verður einstök rós, elsku vinan góða. Í krafti trúar kveiki ljós og kveðju sendi hljóða. (Jóna Rúna Kvaran) Hvíl í friði, elsku Hansína, og hafðu þökk fyrir allt. Þinn Guðmundur, Helga Lára og fjölskylda. Hansína Magnúsdóttir HINSTA KVEÐJA Nú er amma mín farin og komin á góðan stað, trúi ég. Ég man alltaf eftir matar- boðunum á jóladag, öll fjöl- skyldan samankomin að borða góðan mat. Ég man sérstaklega eftir því hvað heimatilbúni ísinn hennar ömmu var góður. Mér fannst líka svo flott við hana ömmu hvað hún hugs- aði alltaf vel um sig. Guð veri með þér, elsku amma. Gunnar Örn. ✝ Anna GuðrúnGeorgsdóttir fæddist í Skjálg í Kolbeinsstaða- hreppi 21. mars 1929. Hún lést á heimili sínu í Borgarnesi 2. októ- ber 2018. Hún var dóttir hjónanna Stein- unnar Ingibjargar Pétursdóttur ljós- móður og Georgs Sigurðssonar bónda. Systkini hennar voru Ingibjörg, Pétur Björgvin og Ragnar Valdimar. Anna Guðrún var gift Ragnari Lúðvík Jónssyni, f. 20.12. 1920, d. 28.6. 2013. Börn þeirra eru: 1) Rúnar, maki Dóra Axelsdóttir, 3) Þóra, maki Gísli Kristófersson. Börn þeirra eru: a) Georg, maki Júlía Egilsdóttir og eiga þau þrjú börn, b) Ólína Jóhanna, maki Jó- hannes Ásbjörnsson og eiga þau þrjú börn, c) Rúrik. 4) Jón Georg, maki Maríanna Garðarsdóttir. Synir hans eru: a) Ragnar Lúð- vík, maki Edda Jónsdóttir, b) Arnar Helgi, maki Ásta Ólafs- dóttir. 5) Ragnheiður Elín, maki Björn Yngvi Sigurðsson. Synir þeirra eru: a) Björn Ólafur, b) Benedikt Árni, c) Ragnar Friðrik. Anna Guðrún átti heima í Skjálg þar til hún flutti í Borgar- nes árið 1950 og átti heima þar alla sína ævi. Hún fékk far- kennslu í æsku en gekk síðar í Húsmæðraskólann á Varmalandi árin 1948-1949. Hún starfaði sem húsmóðir, vann ýmis störf utan heimilis en lengst af í Íþróttahúsi Borgarness. Hún var félagi í Kvenfélagi Borgarness. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 10. októ- ber 2018, klukkan 14. þau eiga synina; a) Ragnar Lúðvík, maki Ólöf Jóna Sig- urjónsdóttir og eiga þau fjögur börn, b) Axel, maki Hulda Guðrún Karlsdóttir og eiga þau þrjú börn. 2) Steinar, börn hans eru: a) Bylgja Dögg, maki Finnbogi Jörgens- son, þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn, b) Þor- valdur Már, maki Ragnhildur Ingunn Jónsdóttir og eiga þau þrjú börn, c) Sigfús, maki Marga Genova, c) Elín Anna, maki Ró- bert Ödlund og eiga þau þrjú börn, d) Guðrún Selma, maki Örn Ómarsson og eiga þau tvö börn. Nú hefur amma Gunna mín fengið hvíldina sína, 89 ára gömul. Þegar ég var yngri þótti mér fátt meira spennandi en að fara í Borgarnes til ömmu og afa. Amma vann í Íþróttahúsi Borgarness í mörg ár og voru sundferðirnar mínar ófáar. Ég var alltaf svo stolt af því að amma ynni þar og reyndi þannig að aðrir heyrðu til að kalla hátt og skýrt „amma“ þannig að allir vissu að hún væri amma mín. Amma Gunna fylgdist vel með og hafði áhuga á nýjungum. Amma og afi voru með parket á gólfinu, áttu tjaldvagn, vídeótæki sem við barnabörnin nutum góðs af, áttu myndbandsupptökuvél og voru með Stöð 2 sem var alls ekki sjálfsagt á þessum tíma. Á meðan við horfðum steikti amma ástar- punga, bakaði pönnukökur eða hveitibrauðið góða. Amma vildi alltaf hafa fyrir öðr- um en maður mátti aldrei hafa fyrir henni. Það var allt óþarfi. En henni þótti gaman að vera fín og alltaf fannst mér amma vera smart. Hún ók um á Benz og hafði mikla bíladellu. Ég minnist þess þegar ég var yngri að þá spyr ég ömmu hvar hún myndi vilja að afkomendur hennar byggju, í þeirri von um að hún svaraði að við ættum öll heima í Borgarnesi hjá sér. Hún svaraði þá fljótt og vel, Egilsstöð- um, Seyðisfirði, Ísafirði o.s.frv. Þetta var ekki beint svarið sem ég óskaði mér en þegar við rifjuðum þetta upp í seinni tíð þá kom skýr- ingin. Amma elskaði að ferðast um landið sitt og með þessu hefði hún svo sannarlega getað það með því að heimsækja afkomendur sína. Ömmu þótti fátt skemmtilegra en að fara í berjamó og voru blá- berjasulturnar hennar þær bestu. Ég er þakklát fyrir hvað við Jó- hannes og börnin mín fengum að njóta ömmu lengi. Hún fylgdist vel með afkomendum sínum og var með allt á hreinu til síðasta dags. Ég er þakklát ömmu fyrir allar góðu minningarnar. Hún kvaddi mig alltaf með því að segja Guð blessi þig og þannig kveð ég hana nú. Elsku amma, blessuð sé minn- ing þín. Þín Ólína Jóhanna Gísladóttir. Það var alltaf gott að koma til langömmu Gunnu. Hún tók vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn og okkur leið vel hjá henni. Hún gerði líka bestu pönnu- kökur í heimi. Hún var afar dugleg og sjálfstæð kona og mundi alltaf allt. Við gátum notið þess að skoða albúm eða lesið bækur í ró og næði. Okkur þótti mjög vænt um hana. Vonandi líður henni vel á nýjum stað og hjá langafa Ragga. Blessuð sé minning hennar. Kolfinna, Sóley, Gísli, Elín Þóra, María og Ásbjörn Gísli. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú gerðir og gafst af þér. Takk fyrir að vera lífvörðurinn sem þú varst. Ekki bara lífvörður í íþróttamiðstöðinni þar sem þú hafðir auga með öllum sem sóttu afþreyingu á hverjum degi, þú varst lífvörður minn í barnæsku. Alltaf öryggi að finna hjá þér og afa, hægt að koma til ykkar og fá skjól, fræðslu, afþreyingu eða hvað sem er. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur barnabörnin sem stunduðum íþróttir alla daga fram á kvöld. Þú passaðir að við værum ekki svöng og hefðum næga orku. Þú átt svo mikið í mörgum sem eiga þér mikið að þakka, ég er einn af þeim. Ég er virkilega þakklátur fyrir að hafa átt þig sem ömmu og mun búa að því alla ævi að þú hafir mót- að og undirbúið mig undir lífið. Það er ómetanlegt að búa að góð- um grunni, takk elsku amma. Mér verður oft hugsað til þeirra tíma sem ég, Georg og Ax- el áttum með ykkur afa, hvað sá tími mótaði mig í uppvextinum, ég vildi að ég gæti farið til baka og upplifað allt aftur. Öll ferða- lögin, vinnuna, hestana, matar- tímana, viskuna, ráðleggingarn- ar, kennsluna, gistingar heima hjá ykkur afa eða þegar við feng- um ástarpunga. Alveg sama hvort það var smátt eða mikið, auðvelt eða erfitt, það var alltaf gaman með ykkur og alltaf gafst þú okk- ur tíma. Þú gerðir allt að leik, hvattir okkur áfram í öllu og gafst okkur ofurtrú á að við gætum gert allt sem við vildum. Í oft svo barnslegri hegðun okkar frænda þá gast þú samt komið fram við okkur sem jafningja, útskýrðir fyrir okkur og kenndir hvernig hægt væri að gera betur þegar við fórum yfir strikið, án þess að dæma okkur fyrir fíflalæti og barnaskap sem við áttum það til að hafa. Þú hafðir alltaf skilning á öllu, ofar öllum. Íþróttir hafa verið stór partur af stórfjölskyldunni og þess vegna ættu flestir að geta tengt ykkur afa við framherjapar í knatt- spyrnu. Þið voruð það sem kallast; hið fullkomna framherjapar og spilandi þjálfarar. Öðru eins sam- spili tveggja aðila er leitun að í öll- um heiminum í allri mannkyns- sögunni. Skoruðuð mark í hverri snertingu og allir sóknar- og varn- arleikir leystir af einstakri prýði. Aldrei voru vandamál eða meiðsli sem stoppuðu ykkur. Þið gerðuð hvort annað og aðra að sterkari liðsmönnum og voruð í stöðugri sókn. Þú stýrðir leiknum með óþrjótandi dugnaði og af einstakri sanngirni, að lokum stóðstu uppi sem sannur sigurvegari og meist- ari. Þvílík forréttindi að hafa verið í þínu liði, með þig sem fyrirliða. Þú sagðir oft: „Eftir höfðinu dansa limirnir“ og þú varst höfuð- ið í fjölskyldunni. Ég mun halda áfram að dansa eftir því sem þú kenndir, elsku amma, eins og ég best get. Ég gæti skrifað endalaust en það væri ekki til nægur pappír í heiminum til þess að prenta það á. Það sem upp á vantar mun lifa sem minning um fallega mann- eskju sem gerði heiminn að betri stað. Ég segi stoltur frá því hversu góð amma þú varst. Þá er ég alveg viss um að hann afa hafi verið farið að lengja eftir þér á góðum stað. Þið munuð um ókomna tíð gera þann góða stað enn betri. Við sjáumst seinna, hvíldu í friði, elsku amma. Ég kveð þig með söknuði. Sigfús. Elsku amma Gunna er dáin. Það var svo gott að koma til henn- ar og hún tók alltaf vel á móti okk- ur og var okkur góð. Hún átti alltaf eitthvað að borða, t.d. nýbakaðar pönnsur og ástarpunga. Hún átti líka alltaf ís eða frostpinna. Við skemmtum okkur vel með henni og hún leyfði okkur allt. Ömmu fannst gaman að ferðast um landið og vissi margt. Við fór- um með henni í bíltúra, t.d. fórum við í bíltúr um Snæfellsnes og eins og alltaf sagði amma okkur allt um landið og hvað fjöll og bæir hétu. Við stoppuðum á Arnarstapa og borðuðum fisk og franskar úti – amma lét ekkert stoppa sig. Við munum eftir mörgum ferð- um í berjamó með ömmu og alltaf var hún með gott nesti handa okkur. Hvíl í friði, elsku amma okkar – við elskum þig. Þínir ömmustrákar, Björn Ólafur, Benedikt Árni og Ragnar Friðrik. Það var alltaf gott að koma til langömmu Gunnu. Hún tók vel á móti okkur þegar við komum í heimsókn og okkur leið vel hjá henni. Hún gerði líka bestu pönnu- kökur í heimi. Hún var afar dugleg og sjálfstæð kona og mundi alltaf allt. Við gátum notið þess að skoða albúm eða lesið bækur í ró og næði. Okkur þótti mjög vænt um hana. Vonandi líður henni vel á nýjum stað og hjá langafa Ragga. Blessuð sé minning hennar. Kolfinna, Sóley, Gísli, Elín Þóra, María og Ásbjörn Gísli. Tilhlökkun verður aldrei jafn- sterk á lífsleiðinni eins og sú sem maður upplifir í bernsku. Tilfinn- ingin er svo ótrúlega sterk og sönn. Eitt af því sem ég hlakkaði til mest af öllu sem barn voru heim- sóknirnar í Borgarnes þar sem Gunna í Borgarnesi, föðursystir mín, bjó með fjölskyldu sinni. Fyrst í „gula húsinu“ með hesthús- inu í bakgarðinum sem er sveipað miklum ævintýraljóma í minning- unni og síðar við Böðvarsgötuna. Þessar heimsóknir allt frá frumbernsku eru allar litaðar góð- um minningum sem alltaf munu verma. Gunna tók á móti okkur með sinni vingjarnlegu reisn og gestrisni sem lýsti sér m.a. í heimsins besta meðlæti, allt bakað á staðnum að sjálfsögðu. Stundirn- ar við eldhúsborðið að spila og njóta samverunnar eru dýrmætar. Gunna var einstaklega hlý og hafði Anna Guðrún Georgsdóttir Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og bróður, KRISTINS HALLDÓRS JÓHANNSSONAR, Víðimýri 11, Akureyri. Einstakar þakkir færum við starfsmönnum Heimahlynningar á Akureyri og á almennri lyfjadeild SAk. Margrét Alfreðsdóttir Alfa Björk Kristinsdóttir Magnús Björnsson Signý Þöll Kristinsdóttir Viktor Pálsson Jóhanna Kristinsdóttir Hulda Þórhallsdóttir barnabörn og systkini Kidda Dóra Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.