Morgunblaðið - 10.10.2018, Side 27
kjörtímabil og var oddviti og sýslu-
nefndarmaður, auk annarra trún-
aðarstarfa þar. Hann var aðstoðar-
landlæknir í ein 17 ár með hléum
vegna náms- og fræðastarfa og
tveggja ára sérfræðistarfa við lýð-
heilsudeild Evrópuráðsins í Lúxem-
borg, var landlæknir í ein þrjú ár og
starfaði síðan á geðsviði, fyrst sem
námslæknir en síðan sérfræðingur.
Matthías sat í stjórn læknanema-
félagsins, var í stúdentapólitík á
námsárum og hefur setið í fjölmörg-
um nefndum heilbrigðisyfirvalda.
Hann hefur ritað fjölda fræði-
greina í vísindarit, einkum um sam-
band heilbrigðis barna eftir þjóð-
félagsstöðu foreldra og greinar um
lyfjamál, ekki síst tengt ofvirkni og
athyglisbresti.
Matthías er nú hættur störfum að
mestu: „Nú fæ ég notið ríkjandi
eiginleika í fari mínu; annars vegar
meðfæddrar leti og hins vegar þess
að ég er fáskiptinn að eðlisfari. Ég
býst við að þessir eiginleikar hafi
valdið því að ég fór í læknisfræði á
sínum tíma og varð svolítið ofvirkur í
félagsmálum og tókst með því að
bæla niður þessa eiginleika. Reyndar
segir mér kollega minn, Óttar Guð-
mundsson, sem nýlega var kosinn
formaður geðlæknafélagsins, að leti
sé mjög vanmetinn eiginleiki. Ég kýs
að trúa því. Ég er lestrarhestur og er
oft í láréttri stöðu með bók í hendi. Á
eftir að ljúka mörgum bókum og sé
ekki fram á verkefnaskort næstu
árin. Ég hef fína aðstöðu hjá dóttur
minni og tengdasyni í Stykkishólmi,
en barnabörnin þar eru meðal þeirra
fáu sem hlæja enn að bröndurunum
mínum.
Svo er stórfjölskylda konunnar
minnar að endurnýja hús í Frakk-
landi sem var að hruni komið. Það er
ekki síður gaman að dveljast í sumar-
bústaðnum okkar á Brúarhlöðum.
Við ferðumst líka í öðrum löndum, en
á afmælisdaginn verðum við í Víet-
nam.“
Fjölskylda
Eiginkona Matthíasar er Theódóra
Gísladóttir, f. 1.7. 1950, lífeindafræð-
ingur á sýkla- og veirufræðideild
Landspítala. Foreldrar hennar voru
Theodóra Thoroddsen, f. 27.10. 1927,
d. 10.2. 2015, bankaútibússtjóri, og
Gísli Halldórsson, f. 2.2. 1927, d. 27.7.
1998, leikari og leikstjóri.
Dóttir Matthíasar og Theódóru er
Theódóra, f. 21.8. 1979, BS í jarðfræði
og ferðamálafræði, búsett í Stykkis-
hólmi og starfar m.a. hjá Breiða-
fjarðarnefnd. Maður hennar er Atli
Rúnar Sigurþórsson, vélfræðingur og
framkvæmdastjóri Dekk og smur í
Stykkishólmi, og börn þeirra Arney
Lilja, fimm ára, og Matthías Ari,
tveggja ára.
Systkini Matthíasar eru: Þórunn, f.
22.4. 1947, hjúkrunarfræðingur í
Garðabæ, gift Ólafi Z. Ólafssyni svæf-
ingalækni; Haraldur, f. 30.3. 1950,
doktor í lífefnafræði við Landspítala,
kvæntur Maríu Vigdísi Kristjáns-
dóttur þýðingafræðingi, og Ari, f.
19.1. 1957, heimspekingur og fram-
haldsskólakennari og kennari í inn-
hverfri íhugun, kvæntur Kristveigu
Halldórsdóttur, myndlistarkonu og
framhaldsskólakennara.
Foreldrar Matthíasar voru Halldór
Matthíasson, f. í Grímsey 7.10. 1915,
d. 23.8. 1975, skrifstofustjóri á Vita-
og hafnamálastofnun, búsettur í
Reykjavík, og Lilja Þórarinsdóttir, f.
4.8. 1915, d. 14.9. 2013, ritari og hús-
móðir.
Úr frændgarði Matthíasar Halldórssonar
Matthías
Halldórsson
Lilja Þórarinsdóttir
húsfreyja og ritari í Rvík
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja í Villingaholtshreppi
Markús Björnsson
b. á Gafli í Villingaholtshreppi
Helga Markúsdóttir
vinnukona í Sölkutótt á Eyrarbakka og víðar
Björn Markússon b. á Gafli
Guðný Guðmundsdóttir
fv. konsertmeistari
Rannveig Guðmundsdóttir
félagsráðgjafi
Guðmundur Eggert
Matthíasson
organisti og
kennari við KHÍ
Hallgrímur Matthías-
son stöðvarstjóri
Loftskeyta-
stöðvarinnar í Rvík
Aðalsteinn Hallgrímsson
yfirverkfræðingur og
framkvæmdastjóri í Rvík
Emilía Matthías-
óttir saumakona
Grímsey, Hrísey
og í Rvík
d
í
Matthías Frímannsson
kennari, guðfræðingur og
leiðsögumaður í Kópavogi
Agnes
Matthíasdóttir
húsfreyja í
Rvík
Kristín Ásgeirs-
dóttir Johansen
húsfreyja í Rvík
Agnes
Johansen
kvikmynda-
fram-
leiðandi
Þuríður Oddsdóttir
húsfreyja í Vestmannaeyjum
Jón Árnason
sjávarb. í Vestmannaeyjum
Þórarinn Jónsson
verslunarmaður hjá Ziemsen í Rvík
Rósa Þórarinsdóttir
fósturamma afmælisbarnsins
Guðrún Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja á Svertingsstöðum
Guðmundur Guðmundsson
b. á Svertingsstöðum í
Öngulsstaðahreppi
Guðný Guðmundsdóttir
prestsfrú, yfirsetukona og 16 barna móðir í Grímsey
KristjanaAnna Eggertsdóttir húsfreyja í Laugarási
Sigurður Sigurmundsson
fræðimaður og b. í
Hvítárholti
Matthías Eggertsson
prestur í Grímsey
Guðbjörg Ólafsdóttir
húsfreyja á Ísafirði og í
Hnífsdal
Eggert Jochumsson
kennari og skólastjóri á Ísafirði og í Hnífsdal
Matthías Jochumsson
þjóðskáld
Halldór Matthíasson
skrifstofustjóri í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018
Kristjana Jóhanna Guðmunds-dóttir fæddist í Reykjavík10.10. 1891. Foreldrar henn-
ar voru Guðmundur Kristjánsson,
skipstjóri í Reykjavík, og k.h., Ingi-
björg Guðrúna Jónsdóttir húsfreyja.
Guðmundur var sonur Kristjáns
Guðmundssonar, útvegsbónda á
Borg í Arnarfirði, og Guðbjargar
Markúsdóttur húsfreyju, en Ingi-
björg Guðrún var dóttir Jóns Þórð-
arsonar, starfsmanns Eimskips hf. í
Reykjavík, og Sigurbjargar Guð-
mundsdóttur húsfreyju.
Kristjana stundaði einkanám í
tungumálum, nám við Verzlunar-
skóla Íslands og lauk hjúkrunar-
námi við Kommunehospitalet í
Kaupmannahöfn 1921.
Kristjana starfaði víða í Evrópu á
millistríðsárunum, m.a. við sjúkra-
hús í Deventer í Hollandi 1922-23,
var deildarhjúkrunarkona við Vífils-
staðaspítala 1923-26, yfirhjúkrunar-
kona við Sjúkrahus Vestmannaeyja
1926-27, hjúkrunarkona við Klínik
Rauða krossins í Brussel 1927-32,
deildarhjúkrunarkona við Klepps-
spítala 1932-33, aftur við Klínik
Rauða krossins í Brussel 1933-35,
sinnti heimilishjúkrun á vegum
Dansk Sygeplejeråds Bureau í París
1935-39 og var síðan heilsuverndar-
og skólahjúkrunarkona í Vest-
mannaeyjum 1940-53.
Kristjana var vel menntuð, hæfi-
leikarík og lipur tungumálakona
með mikla útþrá eins og svo margir
af gömlu aldamótakynslóðinni.
Í Morgunblaðinu 9.3. 1937 er frétt
um Kristjönu þar sem kemur fram
að hún hafi verið fengin til að hjúkra
Amalíu, þá fyrrverandi drottningu
Portúgals, sem hafði veikst skyndi-
lega, stödd í Versölum. Var Krist-
jana þá valin úr hópi hjúkrunar-
kvenna til að hjúkra hinni sjúku.
Amalía varð yfir sig hrifinn af
nærgætni og hæfileikum Kristjönu
og bauð henni með sér í þriggja
mánaða ferð til Sviss og Ítalíu. Þetta
þótti umtalsverður fréttamatur hér
á landi árið 1937.
Kristjana lést 2.12. 1953.
Merkir Íslendingar
Kristjana J.
Guðmunds-
dóttir
90 ára
Elín Jónsdóttir
María Erla Eðvaldsdóttir
Reynir Jónasson
85 ára
Guðrún E. Thorarensen
Högni Marsellíusson
80 ára
Rósa Jónsdóttir
75 ára
Árni Hrafn Árnason
Dís Guðbjörg Óskarsdóttir
Helga Þórisdóttir
Málfríður Eggertsdóttir
Sigríður Kr Þorsteinsdóttir
Sæmundur Pétursson
70 ára
Guðbrandur K. Haraldsson
Guðni Eiríksson
Guðrún Sigurðardóttir
Hilmar Grétar Sverrisson
Marín Henný Matthíasdóttir
Ragnheiður A. Narfadóttir
Sigríður A. Jóhannsdóttir
Sigrún Guðna
Gunnlaugsdóttir
Sigurður Ingi Jónsson
Unnur Hjaltadóttir
Þorbjörg Guðnadóttir
Þorgils Jónasson
60 ára
Arndís Pálsdóttir
Auðunn Pálsson
Áki Jóhannsson
Benedikt Björnsson
Bjarni Svanur Kristjánsson
Gréta Mjöll Bjarnadóttir
Guðjón Unnar Vilhjálmsson
Guðmundur Magnússon
Kristinn Hjartarson
Málfríður V. Magnúsdóttir
Sigurður I. Sigurgeirsson
Þórarinn G. Guðmundsson
50 ára
Guðbjörg Grímsdóttir
Gunnhildur Halldórsdóttir
Harpa Dís Harðardóttir
Hólmgeir Eyfjörð
Jón Örn Kristinsson
Krista Maria Glan
Þorsteinn M. Kristinsson
40 ára
Aina Björk Másdóttir
Brynjar Bergþórsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Guðlaug D. Þórhallsdóttir
Guðlaugur Sigurgeirsson
Hildur Ágústsdóttir
Hrönn Eiríksdóttir
Huseina Abdulhusein
Jóhannes Ingi Sigurðsson
Jökull Viðar Harðarson
Lárus Jóhannesson
Malcolm James Paul Todd
Milica Jansdóttir
Sigríður H. Guðbjörnsdóttir
Svanur Aron Svansson
Sævar Örn Arason
Þóra Ágústsdóttir
Þuríður B. Kristjánsdóttir
30 ára
Anja Eichler
Einar Guðnason
Erla Rún Ingólfsdóttir
Ester Ósk Árnadóttir
Guðmundur H. Sigurðsson
Gunnar Eiríksson
Gunnhildur Harðardóttir
Ingunn Róbertsdóttir
Izabela Marta Witwicka
Neimantas Bilevicius
Rachid Khayali
Sigurður Stefánsson
Valgerður Anna Jónsdóttir
Ögri Kristinsson
Til hamingju með daginn
30 ára Sindri lauk prófi í
húsasmíði og stundar
húsasmíðar.
Maki: Sandra Lind
Brynjarsdóttir, f. 1987,
nemi og starfar hjá
Kópavogsbæ.
Börn: Bríanna Lind, f.
2011, og Baltasar Björn, f.
2013.
Foreldrar: Björn Grétar
Sigurðsson, f. 1962, og
Nína Hrönn Guðmunds-
dóttir, f. 1968. Fósturfaðir:
Tjörvi Dýrfjörð, f. 1967.
Sindri Björn
Björnsson
30 ára Sigurður ólst upp
í Hafnarfirði, býr þar, lauk
prófum í vélvirkjun og
starfar hjá Löðri ehf.
Systir: Birna Rut Björns-
dóttir, f. 1981, starfs-
maður Hafnarfjarðar-
bæjar.
Foreldrar: Ingibjörg
Gunnarsdóttir, f. 1961, fv.
bankastarfsmaður, búsett
í Hafnarfirði, og Björn
Bragi Sigurðsson, f. 1962,
d. 2011, vélstjóri á bátum
frá Hafnarfirði.
Sigurður Freyr
Björnsson
30 ára Katrín býr í
Reykjavík, lauk MSc-prófi
í stjórnun og stefnumót-
un frá HÍ og er verkefna-
stjóri hjá Íslandspósti.
Maki: Kjartan Andri Bald-
vinsson, f. 1988, rafvirki.
Dóttir: Helena Dís Kjart-
ansdóttir, f. 2012.
Foreldrar: Kristín Sigur-
þórsdóttir, f. 1953, mann-
auðsstjóri, og Pétur Ein-
arsson, f. 1952, forstöðu-
maður hjá Íslandspósti.
Katrín
Pétursdóttir
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Ný námskeið að hefjast
Innritun stendur yfir!
STELPUR
KONUR
STAÐURINN
RÆKTIN
Tíminn
er núna!