Morgunblaðið - 10.10.2018, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 10.10.2018, Qupperneq 33
Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Heimildamyndin Bráðum kemur bylting segir sögu ’68-kynslóðar- innar á Íslandi og hverfist einkum um þann atburð þegar ellefu íslensk- ir námsmenn réðust inn í íslenska sendiráðið í Stokkhólmi 20. apríl 1970. Þar veifuðu þeir risastórum rauðum fána og lýstu því m.a. yfir að sósíalísk bylting væri lausnin fyrir Ísland. „Við sem að myndinni stöndum erum af þessari kynslóð og vorum öll þátttakendur í því pólitíska umróti sem kennt er við árið 1968,“ segir Hjálmtýr Heiðtal kvikmyndagerðar- maður, sem ásamt konu sinni Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Sigurði Skúlasyni leikara frumsýnir mynd- ina kl. 20 í kvöld í Bíó Paradís. Hjálmtýr tekur reyndar fram að hún hafi verið sýnd á Skjaldborgarhátíð- inni í maí, en núna í fyrsta skipti í Reykjavík og fari í almennar sýn- ingar á morgun. Enginn galgopaháttur „Við fjöllum um sendiráðstökuna, aðdraganda hennar, framkvæmd og eftirmál. Af þeim sem fóru inn í sendiráðið eru tveir látnir en við náðum tali af sjö. Þeir sjá ekki eftir neinu, einn kvaðst meira að segja myndu gera þetta aftur ef á þyrfti að halda. Sendiráðstakan var enginn galgopaháttur. Hafa verður í huga að það var kreppa á Íslandi. Síldar- ævintýrinu var lokið, á einu ári var gengið fellt í tvígang, samtals um 60%, og öll skilyrði fyrir Íslendinga til náms í útlöndum breyttust. Ann- ars staðar á Norðurlöndum fengu námsmenn styrki, en íslenskir náms- menn lán á sífellt verri kjörum. Á þessu voru sendiráðstökumennirnir aðallega að vekja athygli og mót- mæla, en líka mörgu öðru eins og Víetnamstríðinu sem mikið andóf var gegn hjá háskólanemum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Hags- munabarátta þeirra varð að baráttu á öðrum sviðum, gegn kúgun í heim- inum svo dæmi sé tekið. Menn voru farnir að efast um ríkjandi þjóð- félagsgerð og alþjóðamál urðu hluti af heimsmynd æskunnar.“ Hjálmtýr nefnir í þessu sambandi að Evrópuríki eins og Portúgal hafi átt nýlendur í Afríku, fasismi ríkt á Spáni og herforingjastórn við völd í Grikklandi. Hann rifjar upp að árið 1970 hafi líka verið mikil ólga og uppreisn í íslensku samfélagi. Frægt hafi orðið þegar bændur fyrir norð- an sprengdu stíflu í Laxá og þá hafi konur krafist jafnréttis á við karla, stofnað Rauðsokkahreyfinguna og látið meira að sér kveða á opinberum vettvangi en nokkru sinni fyrr. Og ekki síst unga fólkið; ’68-kynslóðin. Maóistahreyfingin Hjálmtýr, Anna Kristín og Sig- urður þekkjast frá fornu fari eða frá því þau voru félagar í Maóistahreyf- ingunni, sem stofnuð var 1972 en dó, að sögn Hjálmtýs, drottni sínum um áratug síðar. Hugmyndin að fjalla um sendiráðstökuna og tíðarandann á þeim tíma í heimildarkvikmynd kviknaði fyrir fimm árum. „Sigurður stakk upp á að við réð- umst í gerð myndarinnar á meðan hægt væri að ná í velflesta sem réð- ust inn í sendiráðið og aðra sem voru áberandi á þessum tíma fyrir hálfri öld. ’68-kynslóðin er komin um og yf- ir sjötugt. Okkur finnst vel við hæfi að sýna myndina þegar 50 ár eru frá stúdentauppreisninni í París.“ Hjálmtýr segir þau ekki hafa ver- ið hippa í þeim skilningi að reykja hass og búa í kommúnum. „Við klæddumst kannski útvíðum buxum og mynstruðum mussum, en töldum okkur fremur róttæklinga en hippa. Viðmælendur okkar eru hátt á þriðja tug manna sem voru virkir í póli- tísku andófi 1968 til 1970 sem og ungt fólk sem lýsir skoðunum sínum á pólitík þá og nú.“ Því miður segir hann að kvikmynd sem tekin var á litla kvikmyndatöku- vél af uppreisninni í sendiráðinu í Stokkhólmi hafi eyðilagst fyrir all- mörgum árum þegar sjór gekk inn í kjallara í miðborginni þar sem hún var geymd. Til allrar hamingju hafi þó verið úr mörgum ljósmyndum að moða. „Við leituðum víða fanga, fór- um m.a. til Frakklands og Svíþjóðar og fengum mikið af myndefni frá sænska sjónvarpinu og töluvert frá RÚV og fleirum. Úr þessu steyptum við saman rúmlega 70 mínútna heim- ildarmynd, sem við teljum að fangi andrúmsloftið hér heima og í heim- inum öllum á miklum umrótatímum þegar ’68-kynslóðin var um tvítugt.“ Hjálmtýr og Sigurður leikstýra verkinu og unnu handritið ásamt Önnu Kristínu. Hálfri öld síðar Sigurður Skúlason, Anna Kristín Kristjánsdóttir og Hjálmtýr Heiðdal voru róttæklingar. Morgunblaðið/Eggert Í sænskri lögreglufylgd Sænska lögreglan leiðir Gunnar Ægisson, einn sendiráðstökumanninn, út úr sendiráðinu í Stokkhólmi veturinn 1970. ’68-kynslóðin og heimsmyndin  Miðpunktur heimildarmyndarinnar Bráðum verður bylting er sendiráðstaka íslenskra náms- manna í Stokkhólmi 20. apríl árið 1970  Andóf og uppreisn unga fólksins einkenndu tíðarandann MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 2018 ICQC 2018-20 Ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins Kosning og nánari upplýsingar á Facebook.com/bilafrettir Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara: • Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is • Frestur til að skila inn myndum í keppni október er til kl. 23:59 laugardaginn 6. okt. • Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn • Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu • Keppnin fer fram í fjórum lotum og verður sú síðasta haldin í nóvember. • Fyrir þrjár bestu myndir hvers mánaðar eru veittar gjafakörfur með Meguiar bón- og bílaþvottavörum frá Málningarvörum • Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði • Sérstök dómnefnd velur síðan bestu ljósmyndina í desember Fyrsti vinningur er ferð fyrir tvo á bílasýning- una í Genf í mars í boði Toyota á Íslandi. www.mbl.is/bill Unnur Valdís Kristjánsdóttir vöru- hönnuður rekur sögu flothettunnar frá því að hugmyndin kviknaði sem verkefni við Listaháskóla Íslands til dagsins í dag í hádegisfyrirlestri í Hönnunarsafni Íslands sem hefst kl. 12.10 í dag. „Hugmyndafræðin að baki hönn- uninni byggist á slökun, samveru og náttúruupplifun í vatni á áreynslulausan hátt. Frá því að flot- hetta kom á markað hérlendis árið 2012 hefur hún náð að auðga alda- gamla baðmenningu Íslendinga. Á þeim sex árum sem flothetta hefur verið á markaði hafa forsvarsmenn jafnframt þróað tengdar afurðir í formi þjónustu í kringum vöruna, s.s. kennaranám, viðburði og vatns- meðferðir,“ segir í tilkynningu. Fyrirlestur um flothettuna í dag Morgunblaðið/Árni Sæberg Vöruhönnuður Unnur Valdís Kristjáns- dóttir fer yfir sögu flothettunnar í dag. Fornleifafræðingurinn dr. Stein- unn Kristjánsdóttir fjallar um rann- sókn sína á klausturhaldi á Íslandi í fyrirlestri á Bókasafni Kópavogs í dag kl. 12.15. Fyrirlesturinn er hluti af dagskránni Menning á mið- vikudögum sem Menningarhúsin í Kópavogi standa fyrir. Steinunn hlaut í síðustu viku Menningarverðlaun DV í flokki fræðirita fyrir bók sína Leitin að klaustrunum, en áður hafði hún hlotið viðurkenningu Hagþenkis 2017 fyrir sömu bók. „Klaustur voru rekin í skemmri eða lengri tíma á fjórtán stöðum á landinu á árunum 1030-1554. Rannsóknin sýndi að klaustrin urðu í sinni tíð að mikilvægustu menningar- og þjón- ustustofnunum landsins. Við siða- skiptin hurfu byggingar þeirra og saga þeirra gleymdist,“ segir í til- kynningu. Aðgangur er ókeypis. Hádegisfyrirlestur um klausturhald Verðlaunuð Steinunn Kristjánsdóttir er hún tók við viðurkennningu Hagþenkis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.