Morgunblaðið - 18.10.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Veður víða um heim 17.10., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -3 léttskýjað
Þórshöfn 8 léttskýjað
Ósló 13 þoka
Kaupmannahöfn 14 þoka
Stokkhólmur 13 heiðskírt
Helsinki 10 þoka
Lúxemborg 20 heiðskírt
Brussel 18 léttskýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 11 skýjað
London 12 súld
París 19 heiðskírt
Amsterdam 16 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 18 heiðskírt
Vín 17 heiðskírt
Moskva 18 heiðskírt
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 21 léttskýjað
Barcelona 21 rigning
Mallorca 22 léttskýjað
Róm 22 heiðskírt
Aþena 20 léttskýjað
Winnipeg -1 léttskýjað
Montreal 8 skúrir
New York 14 léttskýjað
Chicago 7 alskýjað
Orlando 30 léttskýjað
18. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:28 17:59
ÍSAFJÖRÐUR 8:40 17:57
SIGLUFJÖRÐUR 8:23 17:39
DJÚPIVOGUR 7:59 17:27
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Suðvestan 8-15 m/s og skúrir, en bjart-
viðri norðaustan- og austanlands. Hiti 3 til 8 stig. .
Á laugardag Suðvestan hvassviðri eða stormur
með rigningu, þurrt að kalla um landið norðaustan.
Sunnan 8-15 eftir hádegi og áfram vætusamt, talsverð rigning sunnan- og síðar suðaustanlands.
Hlýnandi veður, hiti víða 5 til 10 stig.
Útlit er fyrir það að öll vötn falli til
Dýrafjarðar í apríl ef gangagröft-
urinn gengur jafn vel og til þessa.
Eru um það bil 25 vikur þangað til
gangamenn slá í gegn, þangað sem
vinnu lauk Arnarfjarðarmegin.
Byrjað var að sprengja Dýra-
fjarðarmegin í gær. Er seinlegt að
byrja, samkvæmt upplýsingum
Karls St. Garðarssonar, staðar-
stjóra Suðurverks, vegna lausra
jarðlaga. Því voru fyrstu færurnar
stuttar. Vonast hann til að góður
gangur verði í verkinu á næstunni
eða þangað til komið verður í veikt
setlag sem talið er að sé í fjallinu
eftir um það bil 400 metra.
Göngin verða um 5,6 km á lengd,
þar af um 5,3 km í bergi. Þegar
vinnu lauk Arnarfjarðarmegin var
komið 3.657,6 metra inn í fjallið
sem er 69% af heildarlengdinni.
Vantaði þó 27,5 metra upp á há-
bunguna. Lögð er áhersla á að
grafa upp í móti til að ekki þurfi að
dæla borvatninu út. Eftir voru þá
1.643 metrar og söxuðust fyrstu
metrarnir af í gær. „Við getum ekki
annað en unað vel við ganginn,“
segir Karl. helgi@mbl.is Ljósmynd/Karl St. Garðarsson
Stuttar
færur í
upphafi
Gangamenn í Dýrafjarðargöngum byrjaðir að sprengja úr Dýrafjarðarstafni
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Hvorki stéttarfélögin í Starfsgreina-
sambandi Íslands og VR né Samtök
atvinnulífsins hafa enn birt mat á
kostnaði við kjarakröfur félaganna
vegna endurnýjunar kjarasamninga.
Samtök atvinnulífsins hafa kallað eft-
ir því að SGS og VR leggi mat á
kostnaðinn við nýbirtar kröfugerðir
og styðji þá fullyrðingu forsvars-
manna stéttarfélaganna að atvinnu-
lífið geti staðið undir þeim.
Halldór Benjamín Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri SA, segir að það
sé ómögulegt fyrir SGS og VR að
fullyrða að rými sé í atvinnulífinu til
að standa undir þessum kröfugerð-
um, þar sem þau hafi hvorki metið
hvert rýmið sé né kostnað við eigin
kröfugerð.
,,Við erum ekkert að ergja okkur á
einhverju kostnaðarmati,“ segir
Björn Snæbjörnsson, formaður SGS,
þegar borin er undir hann sú krafa
SA að félögin birti mat á kostnaði við
kröfurnar. ,,Við setjum fram tölur
um hvað við teljum að okkar fólk
þurfi að fá í launahækkanir og við er-
um ekkert að munda reiknivélina um
hvað þetta kostar,“ segir Björn og
bendir á að SGS-félögin telji kröfurn-
ar vera sanngjarnar og að þær end-
urspegli hvað félagsmenn þurfi að
hafa til að geta framfleytt sér af dag-
vinnulaununum.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
hafa stéttarfélögin ekki óskað eftir
því að hagfræðingar Alþýðusam-
bandsins legðu mat á kostnaðaráhrif
krafnanna.
Kröfugerðir SGS-aðildarfélag-
anna 19 og VR gagnvart atvinnurek-
endum og stjórnvöldum eru svipaðar
um margt. Í báðum er sérstök
áhersla lögð á hækkun lægstu launa,
samið verði um krónutöluhækkanir
og gert ráð fyrir að lágmarkslaun
verði komin í 425 þúsund á mánuði
fyrir fullt starf í lok samningstímans
1. janúar árið 2021.
Sama hækkun yfir línuna hjá
VR en launaþrep hjá SGS
SGS vill stefna að 32 stunda vinnu-
viku án launaskerðingar en í kröfu-
gerð VR er markið sett á að vinnu-
vikan verði 35 stundir. Töluverður
munur er aftur á móti á því hvaða að-
ferðir félögin vilja nota til að ná fram
launabreytingum í kjarasamningum.
Verslunarmenn setja fram kröfur
um að öll laun hækki um sömu upp-
hæð í þremur áföngum um alls 125
þúsund kr. á samningstímanum, sem
komi þeim best sem hafa lægstu
launin. SGS gerir aftur á móti kröfur
um að lægsti taxti hækki í 425 þús.
kr. í áföngum á þriggja ára samn-
ingstímanum og þar fyrir ofan verði
byggt upp taxtakerfi. Lágmarkslaun
fyrir fullt starf eru í dag 300 þús. kr.,
sem náðist með samkomulagi um
launauppbót í gildandi samningum.
Kauptaxtar SGS-félaganna sem í
gildi eru í dag fyrir dagvinnu eru hins
vegar frá 266.735 fyrir byrjunarlaun
og upp í mest um 318 þús. kr. á mán-
uði eftir fimm ára starf. Nái krafan
fram um hækkun lægstu launa í 425
þúsund blasir við að efstu launaflokk-
arnir í núverandi launakerfi hækki í
rúmlega 500 þúsund. Grunnlaun
launþega í efri launaflokkunum
myndu þá hækka um eða yfir 200
þúsund kr. á samningstímanum.
Í kröfugerð SGS segir það eitt um
launakerfið að launataflan verði end-
urskoðuð og einfölduð verulega og
skilgreint sé hundraðshlutfall á milli
flokka og þrepa. ,,Fjöldi þrepa verði
aukinn þannig að starfsaldursþrep
miðist við eins árs, 3ja ára, 7 ára og
10 ára þrep,“ segir þar.
Skv. heimildum Morgunblaðsins
hefur komið til umræðu á vettvangi
SGS að horfa til svipaðs launakerfis
og sveitarfélögin hafa samið um við
starfsmenn sína sem fyrirmynd hvað
varðar skiptingu í launaflokka og
starfsaldursþrep.
Formlegar viðræður í gang
Formlegar kjaraviðræður eru að
fara í gang þessa dagana. Viðræður-
nefndir SGS og SA komu saman til
fundar í fyrradag þar sem SGS fylgdi
sameiginlegri kröfugerð félaganna
úr hlaði og rætt var um undirbúning
og frágang viðræðuáætlunar. Reikn-
að er með að SA og VR fundi einnig í
vikunni.
Stefnt er á að viðræðuráætlanir
verði tilbúnar í byrjun næstu viku og
hafa viðsemjendur einsett sér að
reyna að ljúka endurnýjun kjara-
samninga fyrir áramót þegar samn-
ingar á almenna vinnumarkaðinum
renna út.
Ekkert bólar á kostnaðarmatinu
SA kalla eftir mati stéttarfélaga á kröfugerðum ,,Erum ekkert að munda reiknivélina um hvað
þetta kostar,“ segir formaður SGS Stefnt er að því að viðræðuáætlanir liggi fyrir upp úr næstu helgi
www.holabok.is — holar@holabok.is
Um þriðjungur vinnuafls leigir út rödd sína,
s.s. kennarar, leikarar, söngvarar, stjórnmála-
menn og stjórnendur hér og þar. En hugsar
fólk vel um rödd sína og framburð?
Í þessari mögnuðu bók Valdísar Ingibjargar
Jónsdóttur er margvíslegur fróðleikur um
rödd og framburð, ráð eru gefin og svo geta
lesendur tekið sjálfspróf til að skoða stöðu
sína.
TALANDINN - ER HANN Í LAGI?
er tvímælalaust bók fyrir alla þá sem
umhugað er um eigin
rödd og framburð.
- ER HANN Í LAGI?
TALANDINN
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar, áætlar að sala nýrra fólks-
bíla hafi dregist saman um 30% síð-
ustu 3-4 vikur. Samdrátturinn hafi
hafist eftir að
gengi krónu fór
að gefa eftir í
sumarlok.
Sala til bíla-
leiga er meðtalin
en hlutur hennar í
heildarsölunni
hefur farið
minnkandi.
Miðgengi evru
er nú 137 krónur,
borið saman við
123 krónur í byrjun ágúst. Innkaups-
verð á bíl sem kostar til dæmis 20
þúsund evrur hefur því hækkað um
280 þúsund í krónum.
Samdrátturinn verður meiri
Að sögn Egils var útlit fyrir 13%
samdrátt í bílasölu milli ára áður en
þessi samdráttur hófst. Árið 2017
var metár í bílasölu á Íslandi. Seld-
ust þá alls um 22 þúsund fólksbílar,
að bílaleigubílum meðtöldum.
Egill segir nú útlit fyrir að sam-
drátturinn milli ára verði umtalsvert
meiri en 13%. Árið 2018 líti nú ekki
nærri jafn vel út og spáð var. Þannig
sé nú útlit fyrir álíka mikla bílasölu
2018 og 2019. Það séu tíðindi því árið
2019 hafi samkvæmt spám átt að
vera mun lakara en þetta ár í sölu.
„Svona gengisbreytingar hafa
strax áhrif á verð nýrra bíla. Allir
bílar eru keyptir inn í erlendri mynt.
Það hefur því bein áhrif á verð bíla
að gengi krónu veikist. Innkaups-
verð er enda mjög hátt hlutfall af út-
söluverðinu,“ segir Egill.
Hann segir Brimborg þegar hafa
hækkað verð á hluta nýrra bíla. Verð
notaðra bíla muni einnig hækka.
Hrun í bílasölu eftir
að krónan gaf eftir
Um 30% samdráttur síðustu vikur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Innfluttir Nýir bílar við höfnina.
Egill
Jóhannsson