Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS?
Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með
3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél,
580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að
framan og aftan, regn- og birtuskynjara,
Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum.
Volkswagen Amarok
verð frá 7.890.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 5.610.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá2.590.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fulkomin
stöðugleikastýring, spólvörn og
sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá4.180.000 kr.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Konurnar í verkum Picasso,listmálarans fræga, erukomnar til Reykjavíkur.Þær birtast nú nánast
ljóslifandi í myndum Sigurðar Sæv-
ars Magnússonar myndlistarmanns
sem í kvöld kl. 20 opnar sína 20.
einkasýningu í listhúsinu Smiðjunni
við Ármúla í Reykjavík. Á sýning-
unni eru einnig myndir af dýrum,
það er hausum þeirra sem skeytt er
við mannslíkama. Á mállýsku kúnst-
arinnar teljast þetta verka fígúratíf
verk, enda unnin með innblæstri
listamannsins sem lætur hugann
bera sig að minnsta kosti hálfa leið.
Sköpun í blóðinu
„Ég hef alltaf verið skapandi,
það er bókstaflega í blóðinu,“ segir
Sigurður Sævar sem er 21 ára að
aldri. Hann fékk málningu, pensla
og striga í 10 ára afmælisgjöf og
þar með var teningnum kastað.
Áhuginn á myndlist var þá þegar
vaknaður. „Ég fór sjö ára á sýn-
inguna Frostvirkni sem Ólafur Elí-
asson hélt í Hafnarhúsinu og heill-
aðist. Myndlistin er óskaplega
spennandi; að sjá eitthvað áhuga-
vert í umhverfinu sem skapar hug-
mynd sem síðan verður að fullgerðu
listaverki. Mér hefur til dæmis
fundist mjög gaman að vinna mynd-
ir af húsum og útfæra arkitektúr
þeirra,“ segir Sigurður.
Sýndi fyrst þrettán ára
Árið 2011, aðeins þrettán ára
að aldri, hélt Sigurður sína fyrstu
myndlistarsýningu á menningarnótt
í glersal Höfðatorgs í samstarfi við
stofnendur Hamborgarafabrikk-
unnar. Hann hefur síðan þá staðið
fyrir og tekið þátt í fjölda sýninga
hér á landi og var árið 2015 fenginn
til að mála þrettán olíumálverk fyrir
Oddsson hostel sem er við Hring-
braut í Reykjavík. Hann fagnaði 10
árum í kúnstinni með mynd- og tón-
listarveislu í Norðurljósasal Hörpu
fyrir rúmu ári. Um þessar mundir
helgar Sigurður sig listinni nær al-
farið, en stefnir á frekara nám á því
sviði á næsta ári og setur stefnuna á
Evrópu.
„Ég er duglegur að mæta á
sýningar og heimsækja aðra lista-
menn á vinnustofur sínar,“ segir
Sigurður Sævar. „Síðasta vetur fór
ég til Frakklands og heimsótti Erró
á vinnustofu hans í París. Verkin
hans eru stórbrotin; þessi einstaki
hugmyndaheimur og útfærslur á því
hvernig hann sér veröldina. Allir
listamenn sem sýna mikla vinnu-
semi og hafa ástríðu fyrir því sem
þeir eru að gera eru góðar fyrir-
myndir.“
Ástríða og mikil vinnusemi
Sigurður Sævar Magn-
úsarson er ungur mynd-
listamaður. Í kvöld opnar
hann sína 20. einkasýn-
ingu; og sýnir þar fígúra-
tíf verk af ýmsum toga.
Myndlistamaður Sjá eitthvað áhugavert í umhverfinu sem skapar hugmynd sem síðan verður að fullgerðu lista-
verki, Sigurður Sævar Magnúsarson sem er 21 árs að aldri en hefur þegar skapað sér nafn í kúnstinni.
Myndir Frá vinstri: Hundur, Við Tjörnina og Í Alþingisgarðinum. Nokkrar myndir sem eru á sýningu Sigurðar.
„Biblían kemur víða við sögu og
flestir eiga sér einhverja persónu-
lega minningu um hana. Persónur
eða viðburðir Biblíunnar eiga sér
afleggjara í bókmenntum, listum
og sögu heimsins. Áhrifasaga Bibl-
íunnar er mikilfengleg,“ segir Sig-
urður Árni Þórðarson, sóknar-
prestur við Hallgrímskirkju. En
hvað í Biblíunni skiptir nútímafólk
máli og hvað hefur hlutverki að
gegna í menningu samtíðar? Á
miðvikudögum nú október og nóv-
ember, kl. 12 í hádeginu, er á dag-
skrá í Hallgrímskirkju: Biblía –
minning og menning. Fyrirlesarar
segja frá eftirminnilegum Biblíu-
viðburðum í lífi sínu og tala um
hvað í Biblíunni skipti máli í menn-
ingunni eða eigin lífi.
Biblían í nútímanum
Prestur Sigurður Árni Þórðarson
er hér með bók bókanna.
Mikilfengleg
áhrifasaga
Á sýningunni, hvar eru 32 myndir frá
öllum heimshornum, er einnig hægt
að fræðast um baráttu UNICEF fyrir
réttindum barna. Þar er að finna
myndir frá fjallabugðum Bangladess,
flóttamannabúðum í Bekaa-dalnum í
Líbanon og heilsugæslustöð í Norð-
austur-Nígeríu svo nokkuð sé nefnt.
Sýningin verður opin til 29. októ-
ber og er fyrir framan Te & kaffi á
neðri hæð Smáralindar. – Samhliða
afmælissýningunni fara UNICEF og
Te & kaffi í 10 daga söfnunarátak þar
sem þemað er að bregðast við hungri
í heiminum.
Sýrland Barn hér borið í ferðatösku.
Öll heimshorn
Myndir í Smáralind