Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Í s l e n s k i r o s t a d a g a r
15.–31. okt.
Í Ostóber fögnum við gæðum og fjölbreytileika
íslenskra osta. Af því tilefni hafa veitingastaðir
um allt land brugðið á leik og galdrað
fram fjölbreytt tilbrigði við ost.
Fagnaðumeð okkur og smakkaðu bragðgóða
íslenska osta í ýmsum útfærslum hjá listakokkum landsins.
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Eins og mislitar perlur á bandi rann
kindahópurinn eftir túninu við
Brekknafjall og stefndi heim að fjár-
húsum. Ærnar voru ekki allar jafn-
fúsar að halda heim í stilltu og
björtu haustveðrinu en bóndinn gaf
ekki eftir enda lægðir og leiðinda-
veður í kortunum næstu daga.
Þarna var á ferðinni fé Syðri-
Brekkna 2 en feðgarnir Úlfar og
Þórður Úlfarsson voru þar að ljúka
haustverkunum.
Aðspurðir segja þeir heimtur vera
góðar af fjalli og smölun gekk al-
mennt vel í haust. Féð er þó ívið létt-
ara en í fyrrahaust og á Syðri-
Brekkum 2 er meðalþyngdin um
einu kílói minni en í fyrra, líkt og
annars staðar á svæðinu.
„Veðráttan á þar stærsta þáttinn,
fyrri hluti sumars var mjög þurr og
hlýr og þá nýtist beitin illa en við
slíkar aðstæður sækir féð í að liggja
meira fyrir, gjarnan í skjóli við börð
en er ekki á beit. Síðsumars og í
haust gekk svo á með mikilli bleytu-
tíð þannig að lítið varð úr beit í rign-
ingarsvaðinu,“ sögðu þeir Úlfar og
Þórður.
Axla ábyrgð og stuðla að
minnkun kjötfjallsins í landinu
Slátrun er nú lokið og sagði Þórð-
ur bóndi að um 500 hausar hefðu far-
ið frá þeim í sláturhús Fjallalambs.
„Við tókum meðvitaða ákvörðun um
að fækka fénu um 10% í haust í ljósi
aðstæðna í landbúnaði almennt og
leggja okkar af mörkum í að minnka
kjötbirgðir í landinu. Ef fleiri hugs-
uðu þannig væru líklega minni vand-
ræði í þessari atvinnugrein,“ sagði
Þórður Úlfarsson sem verður með
rúmlega 300 fjár á húsi í vetur.
„Ég söðla svo um að loknum
haustverkum og fer aftur í siglingar,
bæði til að nota skipstjórnarréttind-
in mín og fá um leið auknar tekjur,
ég hef undanfarin ár aðallega verið
að sigla hjá Eimskip en einnig hjá
Landhelgisgæslunni,“ sagði Þórður
Úlfarsson bóndi og stýrimaður, jafn-
vígur bæði á landi og sjó.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Svartur Innan um laglegar og lagðprúðar ærnar leynist svartur sauður.
Meðalþyngd
fjár af fjalli
minni en í fyrra
Fé á Brekkum 2 fækkað um 10%
Bændur Kristín Kristjánsdóttir, Úlfar Þórðarson og Þórður Úlfarsson.
Samningur var undirritaður í vikunni
á milli Samtaka fjármálafyrirtækja
og Landspítala um að vátrygginga-
félögin Sjóvá, TM, VÍS og Vörður
styrki hjartadeild spítalans um 18
milljónir króna á næstu þremur ár-
um. Styrknum verður varið til að
stórefla fræðslu og forvarnastarf á
vegum hjartadeildar. Í tilkynningu
segir að verkefnið sé ærið þar sem
hjarta- og æðasjúkdómar séu helsta
dánarorsök Íslendinga.
Í fyrstu verður megináherslan á að
styrkja svokallaðar annars stigs for-
varnir, þ.e. forvarnir hjá þeim sem
hafa þegar greinst með kransæða-
sjúkdóm. Það felur meðal annars í sér
reykleysismeðferð, meðferð við há-
þrýstingi, sykursýki og hækkuðu kól-
esteróli.
Samningurinn felur einnig í sér
þróun vefsíðu með gagnvirku
fræðsluefni um kransæðasjúkdóma.
Þá verður styrkurinn m.a. nýttur til
umbóta á aðstöðu sjúklinga og að-
standenda þeirra sem liggja á hjarta-
deild. Sömuleiðis á að efla starfsþró-
un hjá starfsfólki deildarinnar.
Styrkja hjartadeild
um 18 milljónir
Forvarnir Davíð O. Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala, Katrín
Júlíusdóttir, framkæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, og Bylgja Kær-
nested, deildarstjóri á hjartadeild, skrifa undir samstarfssamninginn. Að
baki þeim eru fulltrúar frá tryggingarfélögunum Sjóvá, VÍS, TM og Verði.
Spænsk-íslenska viðskiptaráðið
stendur fyrir hádegisfyrirlestri nk.
mánudag. Þar mun Juan Lama
Arenales hagfræðingur flytja
erindi um spænska fasteignamark-
aðinn, en þar hafa fjölmargir Ís-
lendingar fjárfest að undanförnu.
Mun Arenales fjalla um það sem
gæti gerst á þessum markaði á
Spáni á næstu árum.
Að fyrirlestri loknum mun hann
kynna styrk sem Háskólinn í Sala-
manca hefur ákveðið að veita
tveimur Íslendingum til MBA-náms
í skólanum. Fyrirlesturinn er öllum
opinn og haldinn á Eiðistorgi, í sal
Innovation House. Gengið er upp
andspænis bókasafninu.
Rætt um spænska
fasteignamarkaðinn