Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 10% afsláttur af öllum trúlofunar- og giftingarhringapörum Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is | acredo.is skæra tilviljun. Væri það svo var það okkur mótmælendum í hag.“ Mótmælin í máli Ramses fóru fram við innanríkisráðuneytið í Skugga- sundi fimmtudaginn 3. júlí 2008. Leitaði ráða hjá Birgittu „Skyndilega voru mótmælin yfir- staðin og fólk að tínast burtu. Þetta fannst mér fremur snautlegur endir. Ég gekk til Birgittu Jónsdóttur sem hafði haldið ræðu og spurði hvort framhald yrði á mótmælunum. Hún sagði að svo yrði ekki. Ég spurði hana hvort þau hefðu eitthvað á móti því að ég héldi þeim áfram. Hún leit undr- andi á mig og svaraði einfaldlega: nei (26),“ skrifar Hörður. Með því var tónninn gefinn fyrir framhaldið. Hörður stóð fyrir mótmælum en lagði þau niður þegar Ramses fékk að koma aftur til landsins. Áleit Hörður það vera mikinn sigur. Þegar bankakerfið hrundi fann Hörður sig aftur knúinn til aðgerða. Hann mætti til mótmæla á Austur- velli 10. október sem Hrafnkell Orri Egilsson skipulagði eftir ábendingu sem sett var fram „á netinu af vin- konu hans í París“. „Reiði manna beindist eingöngu að Davíð Oddssyni seðlabankastjóra. Mér fannst fulllangt gengið að sækja aðeins að einum manni. Ég vildi líka kalla Alþingi, forseta, alla ráðherra og ekki síst forystufólk stjórnmála- flokka og alþingismenn til ábyrgðar (36),“ skrifar Hörður en þess má geta að Davíð er nú ritstjóri Morgunblaðs- ins. Raddir fólksins verða til Hörður greip tækifærið og boðaði til fundar daginn eftir, laugardaginn 11. október. Sendi síðan netskeyti til fjölda fólks og kallaði eftir því að ráðamenn stigju til hliðar og stjórn Seðlabankans færi frá. Var það upp- haf samtakanna Raddir fólksins sem Hörður var í forsvari fyrir (þau voru formlega stofnuð 18.11). Daginn eftir, mánudaginn 12. október, gekk Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráð- herra, framhjá Herði og öðrum mót- mælendum á Austurvelli. „Það sem okkur þótti mjög svo athugunarvert þarna var að sjá forsætisráðherra með lífvörð. Það benti til þess að Geir væri ekki öruggur með sig. Ég styrktist með hverri mínútu í þeirri vissu minni að ég yrði að koma á fót stórum útifundi og stefndi að næsta laugardegi (45),“ skrifar Hörður. Valdabarátta mótmælenda Lýsingar Harðar á valdabaráttu hans og samtakanna Nýrra tíma vekja athygli. „Ég fann strax að þeim þótti ég óæskilegur og mér kæmi ekkert við hvað þau væru að gera (48),“ skrifar Hörður sem taldi þenn- an hóp beina um of spjótum sínum að Davíð Oddssyni. Skoða þyrfti málin í stærra samhengi. Laugardaginn 25. október fylktu mótmælendur á vegum Nýrra tíma liði að Ráðherrabústaðnum en sama dag mótmælti Hörður við þingið. Næstu daga taldi Hörður Nýja tíma „undirbúa aðra aðför að Austur- vallarfundunum“ (61). Leitaði hann þá ráða um fjáröflun hjá Ögmundi Jónassyni, þingmanni VG, á heimili þess síðarnefnda, að liðsmönnum VG viðstöddum (62). Laugardaginn 1. nóvember var síð- asta skiptið sem Nýjum tímum og Herði og félögum lenti saman. Dag- inn eftir mættu Hörður og Kolfinna Baldvinsdóttir, forsvarsmaður Nýrra tíma, í sjónvarpsþátt. Eftir þáttinn lognuðust Nýir tímar út af. Hörður taldi Ástþór Magnússon þá hafa reynt að blanda sér í málefni Nýrra tíma með dagblaðaauglýsingu í að- draganda Hlemmgöngu. Taldi síma sinn hleraðan Hörður upplýsir jafnframt að hug- myndin að því að „æra þingheim“ hafi orðið til 13. desember þegar hann heyrði þingvörð lýsa því hvað hljóð- einangrunin í alþingishúsinu væri lé- leg. Pottar og pönnur skyldu sótt. Þá um haustið hafði Hörður grun- semdir um að fylgst væri með sér og síminn væri hleraður. Til hans hafði komið óttasleginn maður úr stjórn- sýslunni og varað hann við. Hörður kveðst ekki hafa viljað höfða skaðabótamál gegn þeim ein- staklingum sem höfðu uppi meiðandi ummæli um hans persónu. „Á slíku hef ég enga trú. Ég vil ekki þurfa að lifa í slíku samfélagi. Mönn- um getur hitnað í hamsi en menn geta líka séð að sér. Öllum verður ein- hvern tímann á (143),“ skrifar Hörður sem fyrirgaf slíkt. Hörður myndi ávarpa Alþingi Þá upplýsir Hörður að félagi hans, Hilmar Þór Hafsteinsson, hafi reynt að fá leyfi til þess að Hörður ávarpaði Alþingi en ekki fengið. Næstu vikur hitti Hörður ýmsa valdamenn og krafði þá afsagnar. Meðal annars hitti hann Geir H. Haarde 14. janúar 2009, tólf dögum áður en stjórnin féll. „Geir bar með sér það yfirlæti og fjarska sem einkennir margt fólk sem er vant að hafa völd og peninga í kringum sig og sendir því fólki sem það álítur sér lægra sett smáskilaboð í líkamsmáli með því að koma sér þægilega fyrir í stól og spjalla kæru- leysislega en vera sífellt að dusta af sér ímyndað ryk og laumast til að líta á úrið sitt í tíma og ótíma (122),“ skrif- ar Hörður en bætir við að undir niðri hafi glitt í „glaðværan strák“. Frásögnin nær á vissan hátt há- punkti þegar Hörður hittir Jóhönnu Sigurðardóttur, nýjan forsætisráð- herra, í stjórnarráðinu 13. febrúar. „Jóhanna fullvissaði okkur um að að- eins væri tímaspursmál hvenær stjórn Seðlabankans viki (151),“ skrif- ar Hörður en þau ræddu líka hug- myndir að nýrri stjórnarskrá. Leituðu Davíðs á sjúkrahúsi Með falli stjórnarinnar færðust mótmælin til Seðlabankans. „Einn morguninn sáum við Hilmar Þór hvar Davíð Oddsson stóð með kaffikrús sína fyrir utan inngöngu- dyrnar frá bílastæðinu. Við vorum ekki lengi að taka til fótanna og stefndum að Davíð sem sá okkur og skutlaði sér inn fyrir (150),“ skrifar Hörður sem gagnrýnir að mótmæl- endur skyldu hafa elt Davíð um borg- ina „þegar hann var að leita sér lækn- inga“ (148). Slíkt væri fyrir „neðan allar hellur“. Var Davíð þá í krabba- meinsmeðferð. Þá gagnrýnir Hörður mótmæli við heimili fólks. Davíð staðfestir aðspurður að mót- mælendur hafi komið á sjúkrahúsið. Beitt hafi verið ýmsum ráðum til að hann kæmist óséður frá sjúkrahús- inu. Meðal annars hafi Seðlabankinn notað aðra bíla en vanalega. Ýmsir pennar skrifa hugrenningar í bókina. Guðmundur Andri Thors- son, nú þingmaður Samfylkingar, segir „góða fólkið“ hafa mótmælt. Hallgrímur Helgason skáld kveðst hafa lent í því að berja bílrúðu Geirs H. Haarde. Sigurbjörg Sigurgeirs- dóttir skrifar í ritgerð að margt bendi til að „tími [Jóhönnu] sem leiðtogi meiri háttar breytinga hafi verið lið- inn vorið 2009“. Hörður Torfason og búsáhaldabyltingin 2008 3. júlí 2009 1. jan. 11. október 25. október 8. nóvember 22. nóvember 29. nóvember 11. desember 13. desember 18. desember18. nóv. Hörður Torfason (HT) mætir í mótmæli fyrir utan skrifstofu innanríkisráðuneytisins í Skuggasundi. Mótmælt er meðferð á Paul Ramses. Að loknum mótmælunum spyr HT Birgittu Jónsdóttur hvort hún hafi á móti því að hann haldi þeim áfram. Hún svarar nei og hann tekur yfir skipulagningu mótmælanna. HT hafnar því í viðtali við Stöð 2 að fordæma at- burðina við Hótel Borg, við upptöku á Kryddsíldar- þætti, þegar tækjabúnaður var skemmdur. 2. jan. HT og HÞ fara á fund Árna M. Mathiesen og fara fram á tafarlausa afsögn hans. 8. jan. Ástþór Magnús- son yfir- tekur fund í Iðnó með mótmæl- endum sem báru grímu. 10. jan. HÞ færir HT þau skilaboð að hann fái ekki leyfi til að ávarpa Alþingi úr ræðustól. 14. janúar HT segir á fundi með Geir H. Haarde að ekki sé víst að hann ráði við ástandið. Fólk væri mjög reitt. 20. janúar Garðar Sverrisson stingur upp á að fá mótmælendur til að mæta fyrir utan fund Samfylkingarinnar í Þjóðleikhúskjallaranum, þá muni Samfylkingin fara á taugum og því muni fylgja stjórnarslit. 26. jan. Geir H. Haarde forsætis- ráðherra biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. 30. janúar HT og HÞ funda með herra Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. Rætt er um hugmyndir um nýja stjórnskipan og utan- þingsstjórn og að skipaðir yrðu óháðir sérfræðingar í stöður viðskipta- og dómsmálaráðherra. 1. febrúar Minni- hlutastjórn Samfylk- ingar og VG tekur við með stuðningi Framsóknar- flokks. Byrjun feb. Að mati HT var aðeins ein krafa úti- standandi, afsögn stjórnar Seðla- bankans. 13. febrúar HT og HÞ funda með Jó- hönnu Sigurðardóttur og aðstoðarmanni hennar, Hrannari B. Arnarssyni. „Jóhanna fullvissaði okkur um að það væri aðeins tíma- spursmál hvenær stjórn Seðlabankans viki.“ 21. febrúar HT fundar með Rögnu Árnadóttur, dóms- og kirkju- málaráðherra. Tilefnið var að kynna kröfur frá Austurvelli, um frystingu eigna „útrásarvíkinganna“, fyrir ráðherra. Fyrstu laugardags- mótmælin á Austurvelli eftir efna- hagshrunið. HT afþakkar þátttöku í baráttu InDefence-hópsins, fær ráð frá Ög- mundi Jónassyni, þingmanni VG, um hvernig beri að safna fé á fundum. HT hefur mótað þann kröfulista að ríkisstjórnin, stjórn Seðla - bankans og stjórn Fjár- málaeftirlitsins víki. HT er beðinn að mæta til Fjölskylduhjálpar Íslands við Miklatorg. Hann snýst gegn þeirri aðferð að gefa mat, hún sé niðurlægj- andi. Mætir ekki aftur þangað. Hilmar Þór Hafsteinsson (HÞ) fær þá hugmynd að HT fái að ávarpa Alþingi úr ræðustól þess. HT og HÞ funda með Valtý Sigurðssyni og Sigríði J. Frið- jónsdóttur, hjá ríkissaksóknara, um þá kröfu að tafarlaus rannsókn verði gerð á falli Glitnis. HT fær þá hug- mynd að „æra þingheim“, eftir að honum var tjáð af þingverði aðAlþingishúsið væri illa hljóð- einangrað. HT og HÞ hitta Björgvin G. Sig- urðsson viðskipta- ráðherra með kröfu um tafarlausan brottrekstur æðstu stjórnenda nýju bankanna. HT stofnar ásamt öðrum Raddir fólks- ins. Íhuguðu af alvöru allsherjar byltingu  Hörður Torfason söngvaskáld segir mótmælendur hafa íhugað að gera allsherjarbyltingu á Íslandi  Gerir upp búsáhaldabyltinguna í nýrri bók  Mótmælendur leituðu Davíðs Oddssonar á sjúkrahúsi Morgunblaðið/RAX Mótmæli við Seðlabankann Hörður Torfason var í fylkingarbrjósti mót- mælenda sem tóku sér stöðu við útganga Seðlabankans 9. febrúar. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hörður Torfason, söngvaskáld og einn forsprakka búsáhaldabyltingar- innar, skrifar í nýrri bók sinni, Bylt- ing, að mótmælendur hafi íhugað að gera allsherjar byltingu á Íslandi eftir efnahagshrunið 2008. „Voru aðrir möguleikar í stöðunni? Jú, til dæmis að gera alvörubyltingu og taka yfir Bessastaði, útvarp, sjón- varp, stjórnarráð, lögreglustöðina og nokkra aðra veigamikla staði. Það yrði ekki stórmál miðað við allt sem ég hafði séð. Slík pæling var auðvitað bara hugarleikfimi en þó með alvar- legum undirtón (bls. 98),“ skrifar Hörður sem tekur fram að hann hafi sem lýðræðissinni talið slíkar aðgerð- ir óréttlætanlegar. Hörður færði hugrenningarnar til dagbókar í desember 2008. Margt kemur honum þá til hugar, meðal annars telur hann „athyglisvert að ráðamenn skoðuðu ekki aðferðir [hans] frá því fyrr um sumarið í Paul Ramses-málinu (97)“. „Hefðu ráða- menn verið vakandi þá hefðu þeir get- að dregið verulegan lærdóm af því. Kannski litu þeir á þá aðferð sem ein-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.