Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 44
44 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 Hin ástkæra tunga okkar er í stórhættu, eins og flestum okkar mun vera ljóst. Eflaust er allt of seint að reyna að klóra eitthvað í bakkann og koma með ábendingar um eitt- hvað sem við gætum varast eða reynt að leiðrétta. Ég á reyndar von á að ýmsum muni finnast sumt sem hér verður talið upp smámunasemi og jafnvel taut. Það verður þá að una því. Sögnin að elska er okkur flestum mjög kær, svo kær að við erum farin að nota hana í tíma og ótíma. Fjög- urra ára sonardóttir mín sat til borðs á heimili mínu með okkur eldri kyn- slóðinni einn daginn, eins og reyndar oft áður, og kvað þá skyndilega upp úr (vonandi af því að hún fann gott bragð): „Maður elskar ekki mat, manni finnst hann góður!“ Með mik- illi áherslu sagt. Við nánari eftir- grennslan komst ég að því að þennan fróðleik hafði hún að heiman. Og gladdist mjög, því að ég hef heyrt bæði börn og fullorðna kalla upp eða segja í hjartans ein- lægni: Ég elska ferða- lög, ég elska bækur, ég elska úlpuna mína, ég elska sundlaugina, ég elska … og í hvert sinn fæ ég óþægindahroll! Maður elskar ekki hvað sem er. Við elskum hvert annað (vonandi) en ekki dauða hluti eða hugmyndir, jafnvel ekki heldur sólarstrendur, þó að þar sé notalegt að vera. Okkur líkar við – finnst skemmtilegt – langar að nota – aðhyllumst – sækjum í – finnst þægi- legt að nota – lesum skemmtilegar og fróðlegar bækur. Nægilegt úrval af orðum til ennþá. Að elska er svo virðulegt orð, notum það sparlega. Jafnvel þótt enskumælandi fólk noti I love it í tíma og ótíma þurfum við ekki að apa það eftir. Og gætum þess að týna ekki öllum skemmtilegu hugtök- unum okkar í íslenskunni sem hefðu þau áhrif að einfalda málið okkar. Í klausu sem ég heyrði í umræðu nýlega var sagt: „Einungis lítið brot af fólki getur nýtt sér þjónustu fyrir fatl- aða.“ Það er auðvitað bagalegt, en hvernig brot „af fólki“ er þetta – part- ur – partar? Hluti af manneskjum? Þarna hefði verið betra að segja: „Ein- ungis fátt fólk“ – eða „fáir fatlaðir geta nýtt sér …“ Oft heyrist líka talað um að „mikið af fólki“ sé statt einhvers staðar eða taki þátt í einhverju. Eig- um við ekki heldur að tala um margt fólk? Ekki einhverja hluta af fólki. Einhvern veginn truflar mig líka þeg- ar talað er um mikið af ritverkum eða tónverkum sem einhver hefur skilað af sér. Mér finnst eðlilegra og fallegra að segja: Mörg ritverk, mörg tónverk eða fjölmörg eða ógrynni ef orðið mörg er ekki nógu sterkt. Orðið yfir er margsinnis notað ef talað er um rúman tíma: Einhver sagði frá því að hann hefði farið yfir 50 sinnum á þjóðhátíð. Og annar hafði haldið yfir 100 tónleika. Heyrið þið ekki hvað þetta er lélegt þegar þið lesið þetta upphátt? Yfir er skemmti- legur leikur sem mikið var iðkaður í minni bernsku og æsku. Yfir þýðir auðvitað fyrir ofan eitthvað, en þegar um tölur er að ræða er maður ekki yf- ir 60 ára eða yfir 90 ára og fer ekki á yfir einhvern fjölda leikja eða hátíðir. Einhver fer rúmlega 50 sinnum á þjóðhátíð. Og annar heldur rúmlega eða ríflega 100 tónleika. Karlinn er orðinn rúmlega sextugur eða konan vel sextug. Eða losar sextugt. Líka er hægt að námunda og segja um 50 sinnum eða um sextugt. Við eigum góð hugtök til að nota. Ef talað er við tvo í viðtali sjón- varps eða útvarps er iðulega sagt: Verið velkomin bæði tvö. Er það ekki bein þýðing úr dönskunni: begge to? Þetta er a.m.k. ekki íslenska. Nóg að segja: Verið bæði velkomin – eða bara: Velkomin – einkum ef það er í sjónvarpsviðtölum þar sem vel sést að þarna eru tveir viðmælendur. Þá orðasambandið í burtu: Maður sagði frá að hann hefði verið „mikið í burtu“ meðan hann var í námi erlend- is. Hljómar eins og hann hafi verið úti í buskanum. Fallega íslenska orðið er fjarverandi – lengi fjarverandi hefði hér átt vel við eða einfaldlega var lengi að heiman. Og líklega enn ein dönskuslettan, eða hvað? Eitthvað smellpassar – eða smekkpassar. Ég hef heyrt hvort tveggja. Líkar hvorugt. Eitthvað fell- ur vel að, passar við (varla íslenska heldur), fer vel við. Vöndum okkur. Samhliða þessu síðastnefnda mætti nefna nýlegt undarlegt orðalag: Það tikkar í öll boxin – ég hef líka heyrt pikkar í mörg box! Hvaða box? Við eigum eitthvað íslenskara til að nota: Til staðfestingar – öll atriði falla sam- an – á við umrætt efni – styður við málstaðinn – undirstrikar málið – klingir öllum bjöllum (ef endilega þarf að vera hljóð með). Skoðum þetta. Líklega ætti ég ekki að hætta mér út í íþróttamálið. Verð þó að nefna skrítið orðalag eins og að tapa stórt – og að tapa flatt! Hins vegar fannst mér fyndið orðalag sem notað var þeg- ar íslenska liðið svínlá fyrir Belgum! Hin litla klausa Morgunblaðsins Málið er mjög góð og skemmtileg, og ástæða til að hvetja alla til að lesa hana gaumgæfilega daglega. Gamall kennari um mælt mál Eftir Rúnu Gísladóttur Rúna Gísladóttir » Sögnin að elska er okkur flestum mjög kær, svo kær að við er- um farin að nota hana í tíma og ótíma. Höfundur er myndlistarmaður og fyrrverandi kennari. Árið 2011 lagði ÖBÍ mál sem varðar sérstakar húsaleigubætur fyrir borgarráð. Á þessum sjö árum hefur dómur gengið í vil leigjendum sem eiga rétt á bótum en borgin tregðast við að greiða. Á meðan eyða þeir fé í fáránleg verkefni, s.s. hamfarir við Hofs- vallagötu þar sem sett voru upp blómaker með nílarsefi og fuglahúsum í nóvember. Vissi enginn hjá borginni að jurtin er frá Egypta- landi og þurfti heitt og rakt loftslag? Enda dóu vesalings plönturnar í nöprum gjóstinum frá Skerjafirði. Veit enginn í ráðinu að fuglar verpa ekki í nóvember á Íslandi? Kostnaður að því er okkur er tjáð – við borgum brúsann – að núvirði um 70 milljónir! Hverf- isgatan máluð; ein akrein fyrir hjólreið- ar – hreinsað eftir að bent var á hræði- lega slysahættu þar sem hjólabrautin endaði á fjölförnum gatnamótum Hverfisgötu og Snorrabrautar. Kostn- aður 30 milljónir. Nýlegt dæmi er bragginn í Naut- hólsvík sem kostaði guð veit hvað en er kaffihús, eitt af því fáa sem skortir í Reykjavík. Fyrrverandi yfirmaður velferðar- ráðs skrapp í helgarferð með liðið, kostnaður 18 milljónir. Nefni einungis örfá dæmi af mýmörgum! Af hverju er alltaf til nóg fé þegar bruðl og óráðsía borg- arráðs fer með him- inskautum? Af hverju sýna kjörnir fulltrúar borgarinnar, tæplega fimm hundruð manns, það skeytingarleysi að hlíta ekki dómi? Vita þeir ekki að vinastjórn, hags- munagæsla og sporslu- stjórnun gengur ekki lengur? Við horfðum agndofa á fréttaþátt um meðferð Ís- lendinga á útlendingum. Maður skammast sín fyrir að tilheyra þjóð sem níðist á fólki vegna ókunnugleika. Er að breyttu breytanda stigs- munur en ekki eðlis á því sem borgin gerir öryrkjum? Útlendingarnir geta ekki varið sig vegna kunnuáttuleysis og mitt fólk getur ekki borið hönd fyr- ir höfuð sér vegna langvinnra sjúk- dóma. Rekið slyðruorðið af ykkur, kæru borgarfulltrúar: hlítið dóminum um sérstakar húsleigubætur strax. Þið vor- uð eldsnögg að hækka launin hjá ykk- ur, verið jafnsnögg að vinda ofan af aumum fáránleikanum. Fjárfestið í dýrmæta fólkinu okkar en ekki fífla- legum framkvæmdum. Röng forgangsröðun Eftir Ernu Arngrímsdóttur Erna Arngrímsdóttir » Borgin er með ranga forgangsröðun varð- andi fé almennings. Höfundur er sagnfræðingur. W W W. S I G N . I S Fo r n u b ú ð u m 1 2 · H a f n a r f i r ð i · s i g n @ s i g n . i s · S : 5 5 5 0 8 0 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.