Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 18.10.2018, Blaðsíða 63
DÆGRADVÖL 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Til þín verður leitað í sambandi við lausn á viðkvæmu vandamáli. Vertu því viðbúinn að aðrir komi þér á óvart og reyndu eftir bestu getu að halda þér fyrir utan deilur. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú vilt að aðrir geri hlutina eftir þínu höfði þarftu að sannfæra þá um ágæti þess. Þú getur ekki stjórnað því hvað öðrum finnst um þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Að halda sambandi sterku þarfnast ofurkrafta. Notaðu þetta tækifæri til að bæta sambandið við þá sem þér eru kærir og mundu að ganga ekki á bak orða þinna. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er allt í lagi að gefa sig dag- draumum á vald þegar aðstæður eru til. Frí- tímann áttu einn og þá þarftu ekki að gera annað en það sem þú vilt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú er ekki rétti tíminn til þess að kasta sínum segulmagnaða persónuleika á glæ. Mundu að gleyma ekki þínu eigin frelsi og þinni eigin velferð í amstri dagsins. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þótt þér takist ekki að breyta skoð- unum annarra er alveg öruggt að málflutn- ingur þinn fellur í góðan jarðveg. Líttu á björtu hliðarnar og þá sérðu að margt er í góðu lagi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert í góðu formi og nýtur þess að vera til. Samskipti þín við stofnanir og hópa fólks ættu að ganga vel í dag. Rök þín eru góð og gild og aðrir eiga erfitt með að andmæla þér. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Vinir þínir hafa mikil áhrif á þig þar sem þeir hafa áhrif á hugsun þína og þar með ákvarðanir. Einhvern misskilning þarf að leiðrétta strax svo ekki hljótist af skaði. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú hefur lagt hart að þér en munt nú uppskera árangur erfiðis þíns. Dagurinn í dag er góður til þess að sannfæra vini um hvaðeina sem þér er mikilvægt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Láttu engan hafa svo mikil áhrif á þig að þú gerir eitthvað sem stangast á við réttlætiskennd þína. Það getur reynst erfitt þegar einhver hengir sig svo á mann að það fæst hvergi friður. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hugmyndir þurfa tíma til þess að gerjast og skjóta því upp kolli þegar minnst varir. Duldir kraftar leysast úr læðingi og koma þér og ástvinum þínum til góða. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er að færast meiri hraði í lífið hjá þér. Varðandi framann ættirðu að vinna með vini sem hefur náð langt til að starta verkefni. Þegar ég var strákur á Lauga-veginum var sýnd revían „Haustrigningar“ með þeim Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. og Soffíu Karlsdóttur ef ég man rétt, svo að haustrigningarnar núna ættu ekki að koma okkur í opna skjöldu. – Ingólfur Ómar Ármannsson sendi mér þessa hringhendu sem hann kallar haustlægð: Stikar létt um strönd og lá stormur glettu meður. upp við klettinn aldan grá yggld og grettin kveður. Guðmundur Halldórsson yrkir á Boðnarmiði: Sönn er úti sumarblíða sýnist engu þurfa að kvíða þennan dýrðardag En langt í vestri lægðir bíða sem landi uppað vísast skríða og vekja upp veðrajag Pétur Stefánsson bætti við: Ekki er veðráttan okkur um megn ört þó að fölni gróður. Örlítill vindur og úrhellisregn, annars er dagurinn góður. Gunnar J. Straumland yrkir á annarri bylgjulengd: Þeir sem blíða bullið tjá busla mest en vaða grynnst. Við ættum helst að hlusta á þá hógværu sem gaspra minnst. Jónas Frímannsson segir fúa og fúkkalykt fylgifisk herbragganna, – og yrkir um „braggann“: Þjóðarólán yrði það, ef að myglar braggi. verðum því að vona, að verði lítill saggi. Agnar Ólason fékk botn að láni (sunnan úr Borgarfirði?): Síst ég vil úr söðli falla, sumt ég myndi niður þagga. Þótt ég yrki ævi alla aldrei skal ég nefna BOGASKEMMU. Og heldur síðan áfram af sama tilefni: Óspar á almannafé, úfinn sem forlagabytta. Dag núna segja menn sé sannlega tekið að stytta. „Speki“ er yfirskrift þessarar stöku Hallmundar Guðmundssonar: Torfært er og tyrfið mjög að temja hjartagullið. Þar duga ílla djúpúðg lög ef dæmalaust er bullið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Haustrigningar og bogaskemma Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... framtíð með þér. „ÞAÐ ERU FLEIRI EN ÁTTA KORNFLEX HÉR INNI, SKO!“ Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG ER AÐ REYNA AÐ GERA HEIMINN AÐ BETRI STAÐ BÚÐU ÞÁ TIL SAM- LOKU FYRIR MIG! HEFURÐU EKKI ÁTT EKKI KÆRASTA? JÚ, EINU SINNI… EN HANN REYNDIST VERA ALGJÖR ÞORSKHAUS! HEF ENGAR ÁHYGGJUR VINSAMLEGA HJÁLPIÐ MÉR Víkverji er fróðleiksfús og sífelltað læra eitthvað nýtt. Það nýj- asta sem Víkverji lærði er að ef draumar rætast ekki í veruleikanum þá rætast þeir í draumi. x x x Á laugardagsmorgni vaknaði Vík-verji við hlátur. Það þótti hon- um einkennilegt þar sem einungis hann og maki voru í svefnherberg- inu. Hláturinn kom frá maka Vík- verja sem hafði vaknað við sinn eig- in hlátur. Hvernig má það nú vera hugsa eflaust einhverjir lesendur. x x x Þannig er mál með vexti að Vík-verji telur að makinn eigi sér leyndan draum sem hann hefur ekki látið rætast: Að gerast uppistand- ari. Þegar makinn vaknaði hlæjandi var hann staddur í sínu eigin uppi- standi. Það sem kitlaði hláturtaugar hans var saga sem hann sagði um ömmu sína. Sú saga á sér enga stoð í raun- veruleikanum, enda um sómakonu að ræða. x x x Eitthvað í þessa áttina var uppi-standið: „Amma mín fór til læknis af því að það hafði hrokkið ofan í hana brauð. Amma, sem var aðeins farin að kalka, fór út í búð að læknis- heimsókninni lokinni. Hún mundi ekki alveg hvað læknirinn hafði ráð- lagt henni að gera en fannst eins og hann hefði sagt henni að kaupa hrökkbrauð í stað venjulegs brauðs þar sem brauðið hrökk ofan í hana. Þegar ég kom í heimsókn til ömmu að nokkrum tíma liðnum var helmingurinn af íbúðinni fullur af húsgögnum en hinn af hrökkbrauði. Ég hrökk í kút þegar ég sá þetta en áfallið varð enn meira þegar amma sagði mér grafalvarleg að ellilífeyr- irinn hrykki ekki fyrir hrökkbrauð- inu.“ x x x Það gladdi Víkverja að hafahrokkið í kút þegar hann vakn- aði við hlátur makans að sínu eigin uppistandi. Draumur makans hafði ræst, að minnsta kosti í draumi. vikverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína. (Sálm: 66.20) Weleda hreinar náttúrulegar olíur Njóttu þess, að dekra við húðina ! Meiri ánægja, meiri næring, meiri vörn. Weleda olíurnar hafa áhrif á líkama og sál. Weleda olíurnar mýkja húðina með virkum náttúruefnum. Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir Netverslun: heimkaup.is, heilsuhusid.is, lyfja.is, mstore.is Weleda.is HREIN OLÍA, HREIN ÁNÆGJA, HREIN UMHYGGJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.