Morgunblaðið - 18.10.2018, Page 18
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Tvær vikur eru nú í að ný bók
spennusagnahöfundarins Arnaldar
Indriðasonar komi í verslanir og eft-
irvænting aðdáenda hans fer að lík-
indum vaxandi. Nýja bókin nefnist
Stúlkan hjá brúnni og í henni segir af
ungri konu í neyslu og fjölskylda
hennar sem biður lögreglumanninn
Konráð að leita að henni. Konráð er
hins vegar mest með hugann við
löngu liðna atburði og skyndilega
fangar lítil stúlka sem drukknaði í
Reykjavíkurtjörn athygli hans. Níst-
andi saga um brostnar vonir og börn
sem eiga sér hvergi skjól, eins og
bókinni er lýst í kynningu.
Vinsældir Arnaldar eru flestum
kunnar. Stúlkan hjá brúnni er 22.
bók hans á jafnmörgum árum en hin
síðari ár hefur hann nær óslitið setið
á toppi metsölulista fyrir jólin. Nú
ber svo við að fyrir þessi jól mun
hann rjúfa 500 þúsund eintaka múr-
inn í sölu hér á landi. Af því tilefni
mun útgefandi hans lauma gullmiða í
500 þúsundasta einstakið en sá sem
það kaupir fær í kaupauka vegleg
verðlaun.
En það er ekki bara hér á landi
sem Arnaldur nýtur vinsælda. Á
heimsvísu hafa selst um 14 milljón
eintök og enginn íslenskur rithöf-
undur hefur átt viðlíka velgengni að
fagna. Nýlega kom til dæmis Synir
duftsins, fyrsta bók Arnaldar, út í
fyrsta skipti í Frakklandi og skaust
hún rakleiðis á topp tíu listann yfir
mest seldu bækurnar þar í landi.
Horfir enn til fortíðar
En hvað segir Arnaldur sjálfur?
Morgunblaðið lagði fyrir hann
nokkrar spurningar í tilefni af útgáfu
nýju bókarinnar. Hann var fyrst
spurður hvort hann sæi fyrir sér að
halda áfram að gefa út nýja bók á
hverju ári eða hvort hann hafi íhugað
að skipta um takt eða hægja á.
„Ég sé nú ekki neitt stopp á því.
Ekki í bili að minnsta kosti. Ég er að
byrja þessa nýju bókaröð um lög-
reglumanninn fyrrverandi, Konráð,
hún gerist í Reykjavík eftirstríðs-
áranna og fram á okkar daga og ég
hef í hyggju að skrifa um hann
nokkrar bækur. Hvað svo tekur við
skal ósagt látið. Á meðan mér finnst
ég hafa eitthvað fram að færa sem
rithöfundur og fæ hugmyndir til þess
að vinna úr held ég áfram,“ segir
Arnaldur.
Væntanleg bók ber titilinn Stúlkan
hjá brúnni og miðað við kynningar-
texta leitarðu enn á ný aftur í fortíð-
ina. Finnst þér þú vera búinn að
finna þér stað með því að skrifa sög-
ur sem gerast fyrr á dögum?
„Ég hef alltaf haft gaman að því að
ferðast í tíma í verkum mínum bæði
fram og aftur og það verður ekkert
lát á því í bókunum um Konráð.
Hann kom fyrst fram í stríðsárabók-
inni Skuggasundi og síðan í Myrkrið
veit og núna er meiningin að rekja
sögu hans áfram í fortíð og nútíð. Ég
bý að menntun í sagnfræði og þar er
sjálfsagt að finna áhugann á því
liðna. Mér finnst ekki síst gaman að
skoða hver við erum á ólíkum tímum
og hvernig tíminn hefur áhrif á líf
okkar.“
Þóttu ekki vera bókmenntir
Arnaldur viðurkennir fúslega að
500 þúsund eintaka sala hér á landi
og 14 milljónir um heim allan hafi
ekki beint blasað við þegar hann hóf
feril sinn. Enda á brattann að sækja
fyrir glæpasöguna í upphafi.
„Fyrsta bókin, Synir duftsins, held
ég að hafi farið í minna en 700 eintök-
um svo maður átti ekki von á neinu
góðu í sölu. Enda voru fyrstu bæk-
urnar mínar skrifaðar í allt öðru and-
rúmslofti en nú er og við sem riðum á
vaðið með glæpasögur hér á landi
urðum að brjóta ófáa múra. Það var
ekki litið á slík skrif af neinni alvöru
og alls ekki sem bókmenntir og er
varla enn í sumum kimum. Sem bet-
ur fer hefur það lagast á öllum þess-
um árum sem liðin eru síðan og leiðin
legið upp á við. Í dag er þetta
blómstrandi bókmenntagrein og allt
gamaldags andóf gegn henni að
mestu horfið. Ég hef alltaf verið
mjög þakklátur lesendum mínum
fyrir þann áhuga sem þeir hafa sýnt
bókunum í gegnum árin og hann hef-
ur styrkt mig í trúnni á möguleikana
sem þetta form bókmennta býður
upp á – og ekki síst hvatt mig til þess
að halda áfram.“
Þú hefur valið að halda þig til hlés
að mestu. Þú gefur ekki mörg færi á
viðtölum og sinnir lítið upplestrum, í
það minnsta hér á landi. Af hverju er
það?
„Hvorki hér né erlendis nú orðið.
Það er þreyta mest, trúi ég. Ég hef
dregið mikið úr bókaferðalögum
undanfarin ár og finnst of mikið að
fara í viðtöl í hvert sinn sem kemur
út bók eftir mig. Mér leiðist að tala
um sjálfan mig. Ég tók reyndar full-
an þátt í slagnum um athyglina á sín-
um tíma en mér þótti það ekki spenn-
andi og svo kemur að því að maður
fær nóg og þá er gott að geta dregið
sig í hlé.“
Spilar golf og fótbolta
Manni virðist sem þú sért með
fastmótað vinnulag við skrif þín.
Hvað gerirðu utan vinnunnar? Áttu
einhver áhugamál? Eitthvað sem þú
hefur tekið upp á síðustu árum?
„Ég spila fótbolta og hef gert frá
því að ég man eftir mér, fylgist með
Arsenal í enska boltanum og spila
golf vestur á Nesi sem er einhver fal-
legasti golfvöllur landsins og með
frábærum klúbbfélögum. Ég les á
hverjum degi og er í þessu að ljúka
bók um Miklahvell. Svo höfum við
alltaf ferðast mikið um landið sem er
eiginlega orðið ófært þessi misserin
út af túrismanum. Helst að maður
fari til Raufarhafnar og á Snæ-
fjallaströnd og slíka dásemdarstaði.“
Erlendur enn úti í kuldanum
Aðdáendur þínir hafa ekkert heyrt
af afdrifum lögreglumannsins Er-
lendar hin síðustu ár. Gefið var í skyn
að hann væri dáinn en það var þó
hæfilega óljóst. Mega lesendur eiga
von á því að hann snúi einhvern tím-
ann aftur í bókum þínum?
„Erlendur liggur í kuldanum aust-
ur á fjörðum og gerir enn um sinn.
Ég veit ekki hvort hann er dáinn.
Hæfilega óljóst, er líklega rétta lýs-
ingin á tilveru eða tilveruleysi hans.
Ég segi stundum í hótfyndni að það
taki tímann sinn að deyja úr kulda og
á meðan Erlendur er í því ástandi get
ég verið að dunda mér við annað.“
Finnst gott að geta dregið mig í hlé
Arnaldur Indriðason gefur út 22. bók sína Rýfur 500 þúsund eintaka múrinn í sölu á Íslandi
Segir glæpasagnahöfunda hafa þurft að brjóta niður múra í bókmenntaheiminum Á nóg inni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Metsöluhöfundur Arnaldur kveðst þakklátur lesendum sínum en er orðinn þreyttur á að kynna bækur sínar.
Nýjar bækur Stúlkan hjá brúnni og Synir duftsins á frönsku.
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
NESPRESSO
LATTISSIMOONE KAFFIVÉL
F111WHITE
SIEMENS
EQ 6 ESPRESSÓVÉL
TE605209RW
SAGE
BARISTA ESPRESSÓVÉL
BES875BSS
LOGIC
KAFFIVÉL
L12DCB15E
GRAND I – L I ND I R – SKE I FAN–E LKO . I S
29.995109.990
99.9952.995
4.995
34.995119.995
119.995
40%
14%8%
17%
hljóðlát
extra
dagar
kaffi
15. - 28. okt