Morgunblaðið - 18.10.2018, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
HLÍFÐARHÚÐ Á RÚÐUR
u Kemur í veg fyrir að óhreinindi safnist
á rúðuna / sólaselluna
u Eykur öryggi og útsýni allt að
tvöfalt í bleytu og rigningu
u Kemur í veg fyrir að flugur, drulla,
snjór og ísing safnist á rúðuna
u Heldur regnvatni frá rúðunni
u Býr til brynju á rúðunni fyrir
leysiefnum og vökvum
u Þolir háþrýstiþvott
u Virkar við -30°C til + 30°C
u Endingartími er 6 – 12 mánuðir
Frábært á bílrúður – gluggarúður – sólasellur
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Að minnsta kosti fjórir af fimmtán Sádum,
sem hafa verið bendlaðir við hvarf sádi-
arabíska blaðamannsins Jamals Khashoggis,
eru taldir tengjast krónprins Sádi-Arabíu, að
sögn dagblaðsins The New York Times.
Einn Sádanna hefur oft verið í föruneyti
krónprinsins, m.a. í nýlegum ferðum hans til
Bandaríkjanna, Frakklands og Spánar. Þrír
aðrir Sádanna tengjast öryggisveit krónprins-
ins og sá fimmti er sérfræðingur í réttar-
læknisfræði og háttsettur embættismaður í
innanríkisráðuneyti Sádi-Arabíu, að sögn The
New York Times. Blaðið segir að vitað sé um
nöfn a.m.k. níu af Sádunum fimmtán sem
tyrknesk yfirvöld segja að hafi farið með
tveimur flugvélum frá Sádi-Arabíu til Istanbúl
og sést fara inn í ræðisskrifstofu landsins dag-
inn sem Khashoggi hvarf. Tyrkneskir
embættismenn segja að talið sé að Khashoggi
hafi verið pyntaður og myrtur í byggingunni.
Saklausir uns sekt er sönnuð
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í
sjónvarpsviðtali um helgina að hann yrði
„mjög reiður“ og hótaði Sádi-Arabíu „harðri
refsingu“ ef í ljós kæmi að ráðamenn landsins
hefðu látið myrða Khashoggi. Trump og emb-
ættismenn hans hafa þó mildað yfirlýsingar
sínar um málið síðustu daga, að því er virðist
til að koma í veg fyrir að það skaði hagsmuni
Bandaríkjanna í öryggis- og efnahagsmálum.
Forsetinn hefur sagt að hann sé andvígur
efnahagslegum refsiaðgerðum gegn Sádi-
Arabíu þar sem þær gætu stefnt störfum í
Bandaríkjunum í hættu. Trump sagði á mánu-
dag að ef til vill hefðu sádiarabísk öfl myrt
Khashoggi án vitundar eða fyrirmæla frá
stjórnvöldum í Sádi-Arabíu. Hann áréttaði
þetta í sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld og lagði
áherslu á að líta bæri svo á að Sádar væru
saklausir uns sekt væri sönnuð og að kon-
ungur og krónprins landsins hefðu neitað því
að þeir vissu hvað varð um Khashoggi. Hann
sagði í viðtali við Fox News að Sádar væru
mikilvægir samstarfsmenn Bandaríkjamanna
í barátttunni við klerkastjórnina í Íran og
benti á að ef hætt yrði að selja þeim bandarísk
vopn gætu þeir keypt vopn af Kínverjum eða
Rússum. „Við værum ekki að skaða þá, heldur
okkur sjálf,“ sagði Trump.
Rætt um að stöðva sölu
vopna til Sádi-Arabíu
Þingmenn úr röðum repúblikana og demó-
krata vestra hafa rætt þann möguleika að
stöðva sölu vopna til Sádi-Arabíu og grípa til
efnahagslegra refsiaðgerða gegn landinu
vegna málsins, að sögn The Wall Street
Journal. Þeirra á meðal er Lindsey Graham,
repúblikani í öldungadeildinni, sem er mjög
atkvæðamikill í utanríkismálum og hefur verið
hlynntur samstarfi við stjórnvöld í Sádi-
Arabíu í öryggismálum. Hann hvatti til refsi-
aðgerða gegn landinu í viðtali við Fox News
og kvaðst ekki trúa því að Khashoggi hefði
verið myrtur án vitundar krónprinsins Mo-
hammeds bin Salmans sem er valdamesti
maður landsins. „Ekkert slíkt gerist í Sádi-
Arabíu án vitneskju MBS,“ sagði Graham og
skírskotaði til fangamarks krónprinsins. „Í
mínum huga er þessi MBS-maður eitraður.
Hann getur aldrei verið leiðtogi á alþjóðavett-
vangi … Hann verður að fara burt.“
Trump hefur tvisvar tekið fram að Khas-
hoggi var ekki bandarískur ríkisborgari en
þingmenn segja að það skipti ekki máli og
benda á að hann var með varanlegt dvalarleyfi
í Bandaríkjunum. „Það er stórmál þegar mað-
ur er ginntur í ræðisskrifstofu … þar sem
hann er myrtur og sundurlimaður,“ sagði
Marco Rubio, einn þingmanna repúblikana í
öldungadeildinni. Hann hvatti Trump til að
einblína ekki á viðskiptahagsmuni Bandaríkj-
anna í tengslum við sölu vopna til Sádi-
Arabíu. „Mér er sama hversu miklir peningar
eru í húfi. Það er ekki til nógu miklir fjár-
munir í heiminum til að kaupa aftur trúverð-
ugleika Bandaríkjanna í mannréttinda-
málum.“
Mikið í veði
Rubio skírskotaði til samnings frá síðasta
ári um að Sádar kaupi bandarísk vopn að and-
virði a.m.k. 110 milljarða dala (13.000 millj-
arða króna) á næstu tíu árum. Embættismenn
í Hvíta húsinu lýstu honum sem mesta vopna-
sölusamningi í sögu Bandaríkjanna.
Sádi-Arabía hefur einnig verið mikilvægur
útflutningsmarkaður fyrir bandarísk fyrir-
tæki. Á síðasta ári nam útflutningur þeirra til
landsins alls 46 milljörðum dala (5.400 millj-
örðum króna) og viðskiptaráðuneytið í Wash-
ington áætlaði fyrir þremur árum að við-
skiptin við Sádi-Arabíu héldu uppi 165.000
störfum í Bandaríkjunum.
Sádi-Arabía er mesti olíuútflytjandi heims
og landið hefur því mikla þýðingu fyrir efna-
hag heimsins. Ef Bandaríkin eða önnur lönd
grípa til efnahagslegra refsiaðgerða gegn
Sádi-Arabíu gæti stjórn landsins svarað með
því að minnka olíuframleiðsluna, sem gæti
leitt til hærra olíuverðs í heiminum.
Bandaríkin og fleiri vestræn lönd hafa litið
á Sáda sem mikilvæga samstarfsmenn í ör-
yggismálum og í baráttunni gegn hryðju-
verkastarfsemi íslamista í Mið-Austurlöndum.
Sádar hafa einnig haft náið samstarf við
bandarísk stjórnvöld í baráttunni gegn
klerkastjórninni í Íran og auknum áhrifum
hennar í Mið-Austurlöndum.
Varði Bræðralag múslíma
Khashoggi var á meðal þekktustu blaða-
manna Sádi-Arabíu og lengi í nánum tengslum
við nokkra af valdamestu prinsum landsins.
Lengst af voru viðhorf hans lítt frábrugðin
stefnu ráðandi afla í landinu. Hann hóf störf
sem blaðamaður árið 1985 og fór m.a. til Afg-
anistans þar sem hann tók nokkur viðtöl við
hryðjuverkaforingjann Osama bin Laden,
leiðtoga al-Qaeda. Hann var fréttaritari víða í
Mið-Austurlöndum á síðasta áratug aldar-
innar sem leið og kynnti sér hreyfingar ísl-
amista, m.a. Bræðralag múslíma. Honum var
þrisvar vikið frá sem ritstjóra dagblaðs fyrir
að ganga of langt í gagnrýni á ráðandi öfl í
landinu. Hann hélt þó tengslunum við valda-
mikla prinsa, en það tók að breytast árið 2016.
Khashoggi gagnrýndi Trump eftir að hann var
kjörinn forseti og það fór fyrir brjóstið á sádi-
arabísku ráðamönnunum sem var umhugað
um að tryggja góð samskipti við stjórn hans.
Khashoggi var því bannað að tala opinberlega
í Sádi-Arabíu, að því er The Wall Street
Journal hefur eftir honum.
Eftir að hann fór í útlegð til Bandaríkjanna
á síðasta ári gagnrýndi hann stjórnvöld í Sádi-
Arabíu í greinum sem birtar voru í The Wash-
ington Post. Í næstsíðustu greininni sagði
hann að ekki væri hægt að koma á lýðræði í
Mið-Austurlöndum án þátttöku Bræðralags
múslíma. „Það geta ekki orðið neinar pólítísk-
ar umbætur eða lýðræði í neinu arabalandi
nema fallist sé á að pólitískt íslam verði hluti
af því,“ skrifaði hann.
Svartahaf
Sæ
við
ar
su
nd
Marmara-
haf
ISTANBÚL
5 km
Ræðisskrifstofa
Sádi-Arabíu
Atatürk-
flugvöllur
Fyrri flugvélin af tveimur,
með alls 15 Sáda, lenti á
Atatürk-flugvelli
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fór á fund krónprins
Sádi-Arabíu í Riyadh til að ræða
hvarf Khashoggis
Stjórnvöld
í Sádi-Arabíu
sögðu að þörf
væri á
ýtarlegri
rannsókn
á málinu
Khashoggi sást ganga inn
í ræðisskrifstofuna
Bíl ekið frá ræðisskrifstofunni
að bústað ræðismanns
Sádi-Arabíu
Seinni vélin lenti
Ljósmyndir: Fréttastofan Demiroren/Bulent Kilic/Bandar Al-Jaloud /konungshöllin í Sádi-Arabíu
Unnusta Khashoggis sást
enn bíða eftir honum fyrir
utan skrifstofuna
Tyrkneskir embættismenn segja að
talið sé að Khashoggi hafi verið
myrtur í ræðisskrifstofunni
Skv. upplýsingum frá
tyrknesku lögreglunni
Blaðamaðurinn hefur ekki sést frá því að hann fór inn í skrifstofu ræðismanns Sádi-Arabíu í Istanbúl 2. október
Þriðjudaginn 2. október
Kl. 1.14 e.h.
Eftir kl. 3.00 e.h.
Kl. 5.33 e.h.
Kl. 03.30 f.h.
Kl. 03.30 f.h.
Hefur gagnrýnt stjórn Salmans
konungs og krónprinsins
Mohammeds bin Salmans
Hefur hvatt til lýðræðislegra
umbóta í Sádi-Arabíu
síðasta árið
Flúði frá Sádi-Arabíu 2017
Hefur gagnrýnt þátttöku
landsins í hernaði í Jemen
Jamal Khashoggi, 59 ára
sádiarabískur ríkisborgari
Hvað varð um Jamal Khashoggi?
6. október
15. og 16. október
16. október
Fjölmiðlar höfðu eftir heimildar-
mönnum í ríkisstjórn Tyrklands
að lögreglan teldi að Khashoggi
hefði verið myrtur í ræðisskrifstofunni
Rannsóknar-
menn
lögreglunnar
leituðu í
skrifstofu
ræðis-
mannsins
Taldir tengjast krónprinsinum
Áhrifamikill repúblikani á Bandaríkjaþingi hvetur til refsiaðgerða gegn Sádi-Arabíu vegna meints
morðs á blaðamanninum Jamal Khashoggi Donald Trump forseti andvígur refsiaðgerðum
Vill ekki snúa baki við Sádum
» Donald Trump Bandaríkjaforseti
kvaðst í gær vona að konungur og krón-
prins Sádi-Arabíu stæðu ekki á bak við
meint morð á Jamal Khashoggi.
» Hann kvaðst ekki vilja snúa baki við
Sádi-Arabíu í öryggismálum þar sem
Bandaríkin þyrftu á landinu að halda í
baráttunni gegn hryðjuverkum, auk þess
sem samstarfið hefði mikla þýðingu fyrir
efnahag Bandaríkjanna.
Að minnsta kosti
nítján manns
biðu bana og tug-
ir særðust í skot-
árás í tæknihá-
skóla í borginni
Kerch á Krím-
skaga í gær.
Átján ára nemi
við skólann hóf
skothríð á skóla-
félaga sína og
fyrirfór sér síðan, að sögn lögreglu-
manna sem rannsaka árásina.
Að minnsta kosti ein sprenging
varð og óstaðfestar fréttir hermdu
að árásarmaðurinn hefði sprengt
sprengju í matsal skólans áður en
hann hóf skothríðina. Hann hljóp
síðan á milli kennslustofa og skaut
á alla sem hann sá. Þjóðvarðliðar
voru sendir á staðinn, auk lögreglu-
manna.
KRÍMSKAGI
Varð nítján manns
að bana í skotárás
Hlúð að nemanda
sem særðist.