Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 59

Morgunblaðið - 18.10.2018, Side 59
MINNINGAR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018 ✝ Jón Þórarinnfæddist í Vík í Mýrdal 10. maí 1930. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 2. októ- ber 2018. Foreldrar hans voru Bárður Jóns- son, f. í Kárhólm- um í Mýrdal 28. mars 1895, hvarf í lok árs 1963, og Þórey Sverrisdóttir, f. í Hraunbæ í Álftaveri 4. desem- ber 1903, d. 15. júní 2003. Systkini Jóns eru Sigrún Sesselja, f. 3. mars 1928, Oddný Jóna, f. 6. október 1931, og Ágúst, f. 12. apríl 1934, d, 24. apríl 1934. Systkinin fæddust á Háeyri í Vík nema Ágúst sem fæddist í sama dag. Bárður, f. 11. nóvember 1970. Jón stundaði búskap á Höfðabrekkuhálsi með for- eldrum sínum ásamt annarri launavinnu. Aðalstarf Jóns um tíma var á Lóranstöðinni á Reynisfjalli eða til ársins 1950. Í kringum 1960 flutti Jón ásamt foreldrum sínum að Traðarholti í Stokkseyrar- hreppi. Eftir að Jón og for- eldrar hans brugðu búi fluttu þau í Kópavog. Aðalstarf Jóns næstu árin var í Álverinu í Straumsvík og bjó fjölskyldan í Garðabæ. Eftir að þau Jón og Sigurleif skildu 1990 flutti Jón í Engi- hjalla í Kópavogi og starfaði næstu árin við húsvörslu í Þjóðleikhúsinu eða til 67 ára aldurs Síðustu árin átti Jón góða vinkonu, Önnu Júlíusdóttur, f. 26. júlí 1930, og deildu þau saman áhuga á ferðalögum. Útför Jóns Þórarins fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 18. október 2018, klukkan 13. Hjörleifshöfða og dó þar 12 daga gamall. Jón Þórarinn gekk að eiga Sigurleifu Jónu Sigurjónsdóttur, f. á Lýtingsstöðum í Holtum 15. desem- ber 1930, d. 2. jan- úar 2018, 7. febr- úar 1970. Foreldrar hennar voru Arndís Eiríksdóttir, ljós- móðir og húsfreyja á Foss- hólum, f. 28. febrúar 1906, d. 22. ágúst 1993, og Sigurjón Jónsson, bóndi á Fosshólum, f. 14. ágúst 1899, d. 9. október 1960. Börn Jóns Þórarins og Sigurleifar Jónu: Óskírður son- ur, f. 18. júní 1969, hann lést Jæja, elsku pabbi minn, nú ertu fallinn frá 88 ára að aldri. Fram að síðustu áramótum varstu við góða heilsu, sást alveg sjálfur um heimili þitt, fórst dag- lega út, keyrðir þínar leiðir og fórst tvisvar í viku í sund. Rétt eftir áramótin fékkstu lungnabólgu og eftir það hrakaði þér stöðugt og þú lést á Land- spítalanum 2. október síðast- liðinn. Ég er þakklátur fyrir að þeg- ar þú skildir við þá sat ég hjá þér og hélt í höndina á þér. Fyrir mér varstu að sjálf- sögðu besti pabbinn í heiminum. Ég var framan af bernsku minni mjög fjörugur krakki. Pabbi allt- af svona barngóður og yndisleg- ur og til í að gera gott úr öllu þrátt fyrir öll uppátækin. Mamma blessunin, sem lést 2. janúar á þessu ári, var meira í því, kannski sem betur fer, að halda uppi aga og reglum sem þarf að sjálfsögðu líka. Ég held að ykkur hafi tekist vel að blanda þessu saman, aga og dekri. Fyrsta barn mömmu og pabba var drengur fæddur 18. júní 1969. Hann dó sama dag. Þegar ég fæddist bjuggu þau í starfs- mannabústöðum Vífilsstaða- spítala. Mamma starfaði þar, var hjúkrunarfræðingur. Nokkrum árum síðar festu þau kaup á fok- heldu einbýlishúsi í Efstalundi 4, Garðabæ. Næstu árin var gríðar- leg vinna hjá foreldrum mínum að koma húsinu í stand og gera garðinn fallegan, og á sama tíma voru þau bæði í erfiðum störfum. Ég átti marga vini þarna í hverfinu sem barn og við vorum í heimsóknum hvert hjá öðru næstum því daglega. Ágætis samfélag Lundirnir í Garðabæ. Pabbi starfaði margt um æv- ina en ég held að á sinni starfs- ævi hafi honum líkað best vinnan í Þjóðleikhúsinu og var hann þar þangað til hann komst á lífeyris- aldur 1997. Við pabbi ferðuðumst um landið meðan hann hafði heilsu, fórum hringveginn og að sjálf- sögðu í Mýrdalinn en þaðan var pabbi, þá jafnvel í ágúst þegar fýllinn var farinn að fljúga úr hreiðrinu. Í tvö skipti tókum við Þóreyju ömmu með og komum við í Hjörleifshöfða. Þórey amma og Bárður afi voru síðustu ábú- endur í Hjörleifshöfða. Síðan verkuðu þau og elduðu fýlinn amma og pabbi. Við pabbi fórum tvisvar saman til Kanaríeyja, í fyrra skiptið einnig með mömmu, það var áður en þau skildu. Eftir að pabbi hætti að vinna 1997 hittumst við daglega heima hjá honum í Engihjallanum á kvöldin, horfðum saman á sjón- varpsfréttir og ræddum málin. Elsku pabbi, þú varst búinn að bræða allt starfsfólkið á deild B5 á Landspítalanum þar sem þú lést. Hef það eftir hjúkrunar- fræðingi þar að þú hafir aldrei kvartað þrátt fyrir að vera bæði slasaður og veikur og verið svo þakklátur. Mig langar að koma fram þökkum til alls starfsfólks deildar B5 og bráðamóttöku Landspítalans og hjartadeildar Landspítalans þar sem mamma lést. Það var hugsað svo vel um mömmu og pabba á Landspít- alanum og ég lá þar sem barn og unglingur í mörg skipti og á það- an góðar minningar. Ég þakka fyrir að ég skyldi eiga svona góða foreldra og hlakka til að fá að sjá ykkur aft- ur og kisuna okkar hana Pontu. Bárður Jónsson. Á fallegum og friðsælum haustdegi 2. október lést elsku- legi bróðir minn Jón Þórarinn Bárðarson. Ég trúi því að hann hafið farið inn í fallega sumar- landið og hitt þar allt fólkið sitt sem farið var á undan honum. Ég er þakklát fyrir að hafa átt Jonna sem bróður. Við systkinin fæddumst öll á heimili okkar í Vík í Mýrdal. Sig- rún kom fyrst, næst kom Jonni, ég var þriðja og svo eignuðumst við fallegan lítinn bróður sem lést nokkurra daga gamall. Við vorum foreldrum okkar þakklát fyrir að hafa haldið minningu Ágústs á lofti. Árið 1931 fluttum við í Hjör- leifshöfða, bjuggum þar í fimm ár en fluttum svo aftur til Víkur. Mér er minnisstætt þegar við fjölskyldan fluttum á sumrin frá Vík austur á Höfðabrekkuháls, sem nú er Höfðabrekka, þar sem við vorum öll saman við heyskap. Jonni var dugnaðarforkur og vinnusamur. Ég er þakklát fyrir þær minningar þegar við vorum unglingar og fórum austur á Mýrdalssand að taka fýl. Við reyttum fýlinn svo hægt væri að gæða sér á gómsætri máltíð með nýjum kartöflum sem mamma matreiddi af mikilli ánægju. Þegar Jonni vann á Lóran- stöðinni á Reynisfjalli gaf hann mér pening svo ég gæti borgað skólagjöldin þegar ég fór og var við nám á Laugarvatni. Hann var alltaf tilbúinn að aðstoða þegar á þurfti að halda. Á þrítugsaldri kom að því að hann ásamt foreldrum okkar flutti frá Vík í Traðarholt. Við Sigrún systir vorum þá farnar að búa hérna fyrir sunnan. En í Traðarholti sáu Jonni, pabbi og mamma um búskap. Við Sigrún komum alltaf á sumrin og unn- um við búskapinn. Eftir nokkurra ára búsetu í Traðarholti ákvað fjölskyldan að flytja í Kópavog. Sigrún systir og Einar voru svo hjálpsöm og tilbúin að bjóða foreldrum okkar að vera hjá sér og sinni fjöl- skyldu um nokkurt skeið áður en þau fluttu í blokkina á Ásbraut 9. Svo gerðist harmleikur í okkar fjölskyldu þegar pabbi hvarf 29. desember 1963 og fannst ekki aftur. Fjölskyldan stóð saman í gegnum erfiða tíma. Stuttu síðar kynntist Jonni Sillu og árið 1968 eignuðust þau dreng sem lést skömmu síðar. Það var mikil sorg. En um það bil tveimur árum seinna fæddist þeim yndislegur drengur, sem fékk að bera nafn afa síns, Bárð- ur Jónsson. Jonni vann á hinum ýmsu stöðum. Hann fékk starf sem átti vel við hann, í Þjóðleikhúsinu, sem hann sinnti til 67 ára aldurs. Við hjónin erum Jonna afar þakklát fyrir að hafa verið dug- legur að kíkja í heimsókn til okk- ar í Háabarðið. Helgu Lind, barnabarni okkar, er minnis- stætt þegar hún beið spennt úti í glugga eftir að Jonni frændi kæmi á flotta rauða pallbílnum sínum í heimsókn. Húsið fylltist af hlátri og gleði þegar hann kom. Hann sýndi alltaf áhuga á fjölskyldunni og spurði alltaf frétta af okkar nánasta fólki. Ég er þakklát fyrir hönd bróður míns að hann hafi ekki þurft að vera lengi kvalinn á sjúkrahúsi. Einnig er ég þakklát fyrir að hafa náð að heimsækja hann á sjúkrahúsið og kveðja vel í hinsta sinn. Takk fyrir allt, elsku bróðir og mágur. Jóna Bárðardóttir og Gísli Magnússon. Mig langar að skrifa nokkur minningarorð vegna fráfalls elsku Jonna. Jonni var glaðlyndur og góður maður. Hann var umhyggjusam- ur, óeigingjarn og hugsaði alltaf svo vel um ömmu Þóreyju, og setti það ekki fyrir sig að keyra suður í Hafnarfjörð til þess að heimsækja okkur systkinin og foreldra okkar. Fyrir það, og svo margt annað, er ég honum æv- inlega þakklát. Ég man hvað ég var alltaf spennt sem barn að fara í tónlist- arskólann í Garðabæ því eftir tónlistarskólann fór ég oft í heimsókn til Jonna frænda, Sillu og Bárðar í Efstalundi. Alltaf var tekið vel á móti mér, og stundum var ég svo heppin í vondum veðrum að ég fékk far aftur í strætó. Samband Jonna og Bárðar var einstakt. Mikill vinskapur og kærleikur var á milli þeirra feðga. Bárður hugsaði sérstak- lega vel um pabba sinn og voru þeir miklir félagar. Ég er glöð yfir því að hafa komið og heimsótt þig með mömmu skömmu áður en þú yfirgafst okkur hér í þessari ver- öld. Það var notalegt að fá að koma við og kveðja. Blessuð sé minning þín, kæri Jonni. Þórey Erla Gísladóttir. Elsku Jonni frændi. Ég á svo margar minningar um þig. Þú varst svo mikill vinur hennar mömmu og sambandið milli ykk- ar systkina var svo kærleiksríkt. Alltaf fannst mér það svo fallegt. Ég minnist þess með gleði og hlýju í hjarta þegar þú komst svo oft heim í Háabarðið, og hversu vel og innilega þú fagn- aðir mér þegar ég kom heim úr skólanum. Fallegi og innilegi hláturinn þinn varst svo hlýlegur, eins og þú, fallegur og hlýr bæði innan sem utan. Þú hafðir alltaf einstakan áhuga á því hvað ég væri gera og hvernig gengi hjá mér og mín- um. Alltaf fann ég gleði í hjarta mínu að sjá þig þar sem þú sýnd- ir mér og systkinum mínum svo mikinn áhuga. Þér versnaði mikið fljótlega eftir áramótin þegar þú fékkst lungnabólguna. Fram að þeim tíma sást þú alveg sjálfur um þig, keyrðir sjálfur, komst við á Háabarðinu, fórst í sund, þreifst íbúðina þína, verslaðir og eldaðir matinn. Ótrúlega fannst mér leitt að heyra að þú hefðir hrasað og slasast. Og enn vera þótti mér að heyra að þú kæmist ekki í endur- hæfinguna, eins og planað var. Ég var leið yfir því að þú varst ekki vel nærður, en alltaf varst þú þakklátur og kvartaðir aldrei, heldur brostir þú og sagðir að þér liði vel. Bárður sonur þinn kom á hverjum degi og stundum oft á dag. Hann strauk á þér hárið og andlitið og sagði „pabbi var ekta maður, átti gott líf og var góður maður“. Hann var svo stoltur af þér og ég veit að þú varst stoltur af honum. Ég sá gamla brosið þitt þegar Bárður kom til þín í heimsókn á LSH, þá sá ég ást- ríkið á milli ykkar. Ég kom oft til þín á bæklunar- deildina og sinnti þér sem fag- maður, frænka og vinur. Elsku frændi, far þú í friði, ég veit innst inni að þú varst tilbú- inn að hitta Sillu þína hjá engl- unum ykkar og Guði. Takk fyrir allt og hvíl í friði. Guðlaug Gísladóttir. Jón Þórarinn Bárðarson „Þegar lífið gef- ur þér hundrað ástæður til að gráta, sýndu þá líf- inu að þú hefur þúsund ástæður til að brosa.“ Sá þessa frábæru setningu og ég hugsaði um þig, elsku frændi minn, brosa og hlæja. Maður sem hefur misst alla líkamlega getu, þar á meðal tjáningu með raddböndum sínum. Samt sem áður brostir þú alltaf og hlóst þínum fallega hljóm í hverri heimsókn. Þú ert án efa vilja- sterkasti maður sem ég hef fengið þannheiður að kynnast og ég hef lært mikið af því einu að sjá þig brosa. Hvíl í friði og njóttu frels- isins, þinn frændi, Ástþór Arnar. Kristján, þín verður sárt saknað. Ekki bara náðir þú hinu ómögulega; að gleðja aðra í kringum þig án orða og án faðmlaga, heldur líka sýndir þú Kristján Ketilsson ✝ Kristján Ketils-son fæddist 7. september 1961. Hann lést 3. októ- ber 2018. Útför Kristjáns fór fram 15. október 2018. þínum nánustu og þínum vinum að það er hægt að njóta lífsins á marga vegu og að oft er það mikil- vægasta sem við gerum og höfum að vera saman, njóta nærveru hvert ann- ars og lifa lífinu einn dag í einu. Þú varst eitt sinn stjörnuryk af einstökum uppruna og nú orkan sem um- lykur allt og alla – loksins frjáls ferða þinna. Við erum hluti af þessum alheimi, við erum í þessum alheimi, það sem er enn mikilvægara, er að alheimurinn er í okkur. (N.D. Tyson) Tinna Líf Gunnarsdóttir. Minningar um Kristján frænda minn eru tvíþættar. Annars vegar um ungan fjör- mikinn strák og ungling og hins vegar um ungan mann sem fékk þungbært hlutskipti í lífinu. Strákurinn kom ýmist í heim- sókn í sveitina með foreldrum sínum og systrum eða dvaldi um skeið á Arnkötlustöðum hjá for- eldrum mínum. Það var alltaf eitthvað um að vera í kringum Kristján. Hann var sá sem hleypti Litla-Brún á stökk og sá sem stökk sjálfur yfir bæjarlækinn. Hann var líka sá sem dreif ekki yfir lækinn í miðri kartöfluupptekt, við litla hrifningu þeirra sem voru við tínsluna. Þá þurfti að fara heim á bæ, skipta um föt og koma sér aftur niður í garð. Þessi litlu minningabrot voru oft rifjuð upp síðar og kölluðu fram bros. Á okkar unglingsárum fór hópur ættingja inn í Land- mannahelli um verslunarmanna- helgi tvö ár í röð. Kristján fékk lánaðan bíl foreldra sinna og það var farið af stað. Strax við Helliskvíslina byrjuðu vandræð- in á þessum fólksbíl sem dreif svo illa yfir ána. Við þurftum að- stoð til baka. Þegar í Hellinn var komið geystumst við upp Sátuna á methraða en vorum varla búin að snúa okkur við þegar yngri frændsystkini gægðust upp fyrir brúnina. Frekar mikil vonbrigði. En eng- inn gat tekið það frá okkur að sofa í þriggja hæða kojunum í skálanum. Við vorum aðal í þessum ferðum. Svo breyttist allt og pásk- unum fylgja minningar um slys- ið þennan morgun, þessa stund. Kristján fékk annað hlutskipti sem kenndi okkur hinum svo margt en var samt svo sárt. Nú var minna fjör. Eftir dvöl á nokkrum heilbrigðisstofnunum varð Hlein hans heimili, þar sem hugsað um hann af ein- stakri alúð og umhyggju. Það var alltaf stutt í brosið og glettnina þótt ekki væri alltaf gott að vita hvað lægi að baki. Hversdagslegu sögurnar voru sagðar. Gleðin var til staðar. Ég votta fjölskyldunni mína innilegustu samúð og kveð Kristján frænda minn með þakklæti og virðingu. Steinunn H. Hannesdóttir. Elsku Kristján frændi minn. Það er svo sárt að kveðja þig en gott að hugsa til þess að þú sért kominn á betri stað og getir notið þess að hlaupa um í draumalandi. Ég á margar góðar minning- ar frá því að ég var lítil hjá þér á Hlein. Ein stendur verulega upp úr í minningunni um þig, þegar ég var þriggja ára og sagði við þig: „Kristján, af hverju ertu að hrjóta á meðan ég er í heimsókn hjá þér?“ Þetta fannst þér alltaf jafn fyndið og í hvert skipti sem ég nefndi þessa sögu kom alltaf upp bros og hlátur hjá okkur báðum. Mér finnst þessi saga einkenna samband okkar í gegnum lífið. Einnig áttum við margar góðar stundir saman á Hlein í rúminu þínu að horfa saman á Mr. Bean. Hvíldu í friði elsku frændi, þín verður sárt saknað. Þín frænka, Ásdís María Grétarsdóttir. Vinur minn Kristján er sofn- aður. Mig langar að skrifa nokk- ur orð, sérstaklega vegna þess að ég sakna hans, hann var eins og „hljóðlátt vitni á himnum“, það er að segja eins og máninn, hljóðlátur, en sýnilegur. Alltaf gaman þegar til hans sást, stundum hress, stundum dapur. Hann varð dapur vegna fráfalls föður síns og eins þegar bróðir hans dó, þá grét Kristján. En hann hefur oftast verið glaður. Kristján var lamaður eins mikið og hægt er að vera held ég, en fékk ekki eitt einasta legusár öll þessi ár, enda í umönnun á heimsklassa hjá þeim uppi á Hlein. Hann var elskaður af þeim veit ég, ég varð nefnilega vitni að því eitt skiptið þegar ég var stödd hjá honum að umsjónardísin gaf honum rembingskoss á ennið! Kristján var jarðsunginn frá Guðríðarkirkju mánudaginn 15. október, en mikið held ég verði nú sungið af gleðisöngvum þann dag þegar Kristján kemur fram í upprisunni á efsta degi. Þá má nú búast við að lík- ingin með mánann falli úr gildi, enda maðurinn alheill! Þessa atburðar hlakka ég mikið til. Guðríður Loftsdóttir. Minn kæri vinur, mágur og jafnaldri, Kristján Ketilsson, er látinn. Ég hitti Kristján fyrst í fermingarveislu hjá Arnari stjúpsyni mínum vorið 2003. Það tók mig smátíma að læra inn á og umgangast hann og átta mig á hvað hann skynjaði og skildi. Ég þurfti eins og aðrir að vinna mig upp í virðingar- stiganum hjá honum. Hann stríddi nefnilega öllum sem komu nýir inn í líf hans. Árið 2007 ákváðum við Bára að hennar frumkvæði að bjóða Kristjáni í vikulegar heimsókn- ir. Upp frá því kom hann til okkar alla mánudaga og varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka á móti honum þar sem Bára vinnu sinnar vegna var ekki alltaf heima. Þeir voru ófá- ir göngutúrarnir sem farnir voru með hann um hverfið. Hann naut þess líka að vera úti í garði og horfa á trén og hlusta á fuglana. Mánudaginn 1. októ- ber síðastliðinn kom hann í sína síðustu heimsókn til okkar. Bára hafði orð á því hann væri eitthvað ólíkur sjálfum sér. Rúmum sólarhring síðar fær hann stórt hjartaáfall. Hann lést svo rétt fyrir hádegi miðviku- daginn 3. október. Hann var stór og sterkur og náði að lifa ótrúlega lengi með sinni fötlun. Það var vel hugsað um hann á sambýlinu Hlein þar sem hann átti heimili frá 1994. Starfsfólkið þar á miklar þakkir skildar fyrir frábæra umönnun og umhyggju og greinilegt að honum leið eins vel og kostur var á. Mánudagarnir verða tóm- legir hér eftir. Þín verður sárt saknað um ókomin ár. En ég trúi því að nú sértu laus úr þeim fjötrum sem þú varst í eftir bíl- slysið árið 1979. Hvíl í friði, kæri vinur. Örn Gunnarsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.