Morgunblaðið - 18.10.2018, Qupperneq 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2018
Mannamyndirnar höfðu bjargað
miklu, enda var hann gríðarlega
eftirsóttur portrettlistamaður.“
Viðfangsefnið var miklu um-
fangsmeira en Birgittu hafði órað
fyrir. Í ofanálag barðist hún fyrir
tilvist safnsins í staðfræðilegu til-
liti, því strandlengjan norðan-
megin í borginni átti að verða iðn-
aðarsvæði og til stóð að leggja veg
þvert gegnum Laugarnestúnið –
„setja trukka á tangann“, eins og
Þjóðviljinn sló upp. Fjaran var
friðlýst og ekki aðeins hefðu að-
gengi og umgjörð safnsins raskast
heldur hugsanlega einnig forn-
minjar. Fyrirætlunin mætti mikilli
mótspyrnu og voru Birgitta og
hennar fólk þar fremst í flokki. Og
höfðu betur. Deiliskipulagið leit þó
ekki dagsins ljós fyrr en árið 2000.
Árið 1985 var örlagaríkt fyrir
framtíð safnsins. Birgitta efndi til
þriggja vikna Sigurjónsvöku til
stofnunar styrktarsjóðs Listasafns
Sigurjóns Ólafssonar, sem hófst
með opnun sýningar í Listasafni
ASÍ á síðustu verkum listamanns-
ins. Einnig héldu hún og andstæð-
ingar „trukkavegarins“ Jóns-
messuhátíð í Laugarnesfjörunni
þar sem safnað var undirskriftum
gegn framkvæmdinni. „Margir
sem komu á sýninguna lögðu mál-
efninu lið og á aðeins tíu dögum
söfnuðust um þrettán hundruð
undirskriftir með tilmælum til
borgarráðs að bíða átekta þar til
búið væri að gera úttekt á svæð-
inu. Ég skynjaði að stór hópur
fólks var tilbúinn að leggja sitt af
mörkum og lét sér ekki á sama
standa um menningarverðmæti og
menninguna í landinu.“
Í tengslum við sýninguna, sem
fékk góða aðsókn og umfjöllun,
gaf Birgitta út bók um Sigurjón á
íslensku, dönsku og ensku með
ljósmyndum, blaðaúrklippum og
listaverkaskrá, sem hún tók sjálf
saman. Bókin er í raun fyrirrenn-
arri tveggja binda verks um ævi
og list Sigurjóns sem Listasafn
Sigurjóns Ólafssonar gaf út 1998
og 1999 og tilnefnt var til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna, en í því
er tæmandi skrá yfir öll hans
verk, sem nú er orðin aðgengileg á
vefsíðu safnsins.
Heppin að eiga góða að
Birgitta viðurkennir að hafa á
stundum þurft að vera býsna hug-
myndarík og fylgin sér til þess að
ná markmiði sínu, en hún sé svo
heppin að eiga góða að og hafa
notið vináttu og velvildar margra.
„Þótt öll börnin mín væru í námi
erlendis studdu þau ákvarðanir
mínar. Menn eins og Thor Vil-
hjálmsson, Ingi R. Helgason og
margir fleiri voru sterkir bak-
hjarlar, sem ég fæ aldrei nógsam-
lega þakkað, og Geirfinnur Jóns-
son, tengdasonur minn og eigin-
maður Hlífar, hefur verið mér stoð
og stytta alveg frá því safnið var
opnað – hann er maðurinn sem
reddar öllu.“
Fjáröflunarstúss, byggingar-
framkvæmdir og vinna við skrán-
ingu listaverkanna einkenndu líf
Birgittu þar til Listasafn Sigur-
jóns Ólafssonar var opnað við há-
tíðlega athöfn með tónleikum og
upplestrum 21. október 1988.
„Meðal góðra gesta voru margir
vinir okkar frá Danmörku auk
þess sem þaðan komu líka blaða-
menn frá helstu dagblöðum lands-
ins. Sigurjón komst aftur á kortið
sem listamaður í Danmörku þar
sem hann lærði og starfaði í mörg
ár áður en hann fluttist til Ís-
lands.“
Þótt Birgitta hafi staðið vaktina
í safninu í þrjátíu ár er engan bil-
bug á henni að finna. Hún hefur
m.a. sett upp hátt á sjöunda tug
sýninga, þar af fjórar stórar far-
andsýningar, sem sýndar voru
sem heild í erlendum söfnum, og
staðið fyrir og skipulagt alls lags
menningarviðburði í húsinu.
Breytingar á rekstrarforminu
Breytingar urðu á rekstrar-
fyrirkomulaginu árið 1989 þegar
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
var breytt í samnefnda sjálfs-
eignarstofnun með stofngjöf Birg-
ittu og fjölskyldu. Í stofnunina
runnu fjöldi listaverka, íbúðar-
húsið og safnhúsið með innan-
stokksmunum og kaffistofu.
„Breytingin fól meðal annars í sér
að skipað var tólf manna sjálf-
stætt fulltrúaráð og var hlutverk
þess að skipa tvo fulltrúa í stjórn
safnsins á móti þremur sem ég
skipaði sem formaður stjórnar.
Fulltrúaráðið varð einnig bakhjarl
og ráðgjafi stjórnarinnar. Um mitt
árið 2012 urðu aftur breytingar,
en hrunið hafði þau áhrif að borg-
in skar á fjárveitingar. Sjálfseign-
arstofnunin var lögð niður og
skuldlaust safnið afhent Listasafni
Íslands þar sem það er nú rekið
sem deild innan þess,“ segir Birg-
itta og tekur fram að það sé því
Listasafn Íslands sem bjóði til
sýningaropnunarinnar um helgina.
Meirihluti verka annarra lista-
manna en Sigurjóns sé líka þaðan
en nokkur fengin að láni hjá
einkasöfnum.
Hin hagsýna húsmóðir
– En hvernig leið henni, rúm-
lega fimmtugri myndlistar-
menntaðri ekkjunni, aðfluttri frá
Fjóni, að vera svo að segja nauð-
ugur einn kostur að bjarga lista-
verkum eiginmanns síns og koma
þeim í var á Íslandi?
„Veistu það – mér hefur oft orð-
ið hugsað til ömmu og allra for-
mæðra minna, sem bjuggu yfir svo
mikilli reynslu og stundum var tal-
að um sem hinar hagsýnu hús-
mæður. Í mínum aðstæðum þýddi
ekkert annað en að vera hagsýn.
Ætli ég sé ekki bara með hagsýn-
ina í genunum eins og þessar for-
mæður mínar!“ svarar Birgitta
brosandi.
Sigurjón Ólafsson var meðal braut-
ryðjenda abstraktlistar á Íslandi og
talinn einn helsti portrett-
listamaður sinnar samtíðar. Hann
gerði fjölda opinberra verka og eru
á annan tug útilistaverka og vegg-
skreytinga eftir hann í Reykjavík.
Stærstar eru lágmyndirnar á stöðv-
arhúsi Búrfellsvirkjunar, en líklega
eru Öndvegissúlurnar við Höfða,
styttan af séra Friðriki við Lækjar-
götu og Íslandsmerki á Hagatorgi
hans þekktustu verk. Auk hefð-
bundinna verkefna vann hann frjáls
verk þar sem hugmyndaflug og til-
raunir með efni og form fengu að
ráða.
Sigurjón hlaut sína fyrstu tilsögn
í myndlist hjá Ásgrími Jónssyni list-
málara og síðar Einari Jónssyni
myndhöggvara. Samhliða lauk hann
sveinsprófi í húsamálun frá Iðn-
skólanum í Reykjavík 1927 og hóf
ári síðar nám hjá Utzon-Frank, pró-
fessor í Konunglegu akademíunni.
Haustið 1930 hlaut hann gull-
verðlaun akademíunnar fyrir styttu
af verkamanni, sem nú er í Lista-
safni Íslands. Hann hlaut skjótan
frama erlendis og eftir námsdvöl í
Róm og síðan lokapróf frá akademí-
unni 1935 var hann talinn meðal
efnilegustu myndhöggvara sinnar
kynslóðar í Danmörku. Sigurjón
sneri heim að loknu stríði og vann
að list sinni þar til hann lést árið
1982.
Upplýsingar af vefsíðu lso.is.
Meðal brautryðjenda abstraktlistar á Íslandi
SIGURJÓN ÓLAFSSON (1908-1982)
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Listamaðurinn Sigurjón Ólafsson í vinnustofu sinni árið 1982.
Samspil myndlistar og tónlistar Á afmælisdaginn stendur Hlíf Sigurjóns-
dóttir fiðluleikari fyrir frumflutningi á tónsmíðum sem þrjú tónskáld sömdu
við jafnmargar höggmyndir Sigurjóns; Grímu, Fótboltamennina og Snót.
Önnur afmælissýningin, Tengingar, vísar bæði í tengsl Sigurjóns við
Laugarnesið og nokkra samferðamenn hans í íslensku listalífi. Auk
höggmynda hans verða á sýningunni höggmyndir eftir Erling Jónsson,
Gerði Helgadóttur, Gest Þorgrímsson, Guðmund Benediktsson, Guð-
mund Elíasson, Hallstein Sigurðsson, Helga Gíslason, Jón Benedikts-
son, Kristínu Jónsdóttur frá Munkaþverá, Svövu Björnsdóttur, Sverri
Haraldsson, Tove Ólafsson, Örn Þorsteinsson og Pál Guðmundsson frá
Húsafelli.
Fjórtán boðsgestir
SAMTAL Í LISTALÍFINU
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn
Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn
Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn
Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 16:00 34.sýn
Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Fim 18/10 kl. 19:30 7. s Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Þri 13/11 kl. 19:30 16.s
Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Fös 19/10 kl. 19:30 Auka Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Lau 20/10 kl. 14:00 Auka Mið 24/10 kl. 19:30 Auka Sun 28/10 kl. 14:00 Auka
Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Sun 21/10 kl. 14:00 Auka Fös 26/10 kl. 17:00 Auka
Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 19/10 kl. 19:30 42. s Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 11:00
Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 13:00
Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Fjallkonan fríð (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 3/11 kl. 20:00 Frum Lau 10/11 kl. 20:00 3.sýn
Sun 4/11 kl. 20:00 2.sýn Sun 11/11 kl. 17:00 4.sýn
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fös 19/10 kl. 22:00
Daður og dónó
Reykjavík Kabarett (Þjóðleikhúskjallarinn)
Elly (Stóra sviðið)
Fim 18/10 kl. 20:00 157. s Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 19/10 kl. 20:00 158. s Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fim 8/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Fim 18/10 kl. 20:00 14. s Lau 20/10 kl. 20:00 16. s Fös 26/10 kl. 20:00 17. s
Fös 19/10 kl. 20:00 15. s Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Lau 27/10 kl. 20:00 18. s
Síðustu sýningar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s
Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Sýningum lýkur í nóvember.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is