Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 1
Fann pabba Feðginin John David
Lambert og Kristín Jónsdóttir.
Eyrún Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
Kristín Jónsdóttir komst að því
þegar hún var þrítug að hún hafði
verið rangfeðruð. Þó hafði faðerni
hennar verið staðfest með blóð-
flokkarannsókn og skjalfest af
dómstólum á sínum tíma, árið 1971.
Eftir að hafa leitað í 18 ár að
réttum föður sínum, sem hún vissi
látin. Málið þarf að fara fyrir dóm
en Kristín hefur þó ekki heimild til
að sækja málið nema hún sé búsett
hér á landi, en hún býr í Kanada.
„Ég er íslenskur ríkisborgari og
hef alltaf verið stolt af því að vera
íslensk, þótt ég búi ekki á Íslandi.
Mín réttindi sem íslenskur rík-
isborgari ættu að vera í gildi hvar
sem ég bý,“ segir Kristín. Fjallað
er um málið í Sunnudagsblaðinu.
Þjóðskráin segir nei
Fann föður sinn eftir 18 ára leit Ófeðruð í Þjóðskrá
lítið um annað en að hann hefði
verið hermaður og barist í Víet-
nam, fann hún hann loks í febrúar
á þessu ári.
Þrátt fyrir að DNA-próf liggi
fyrir, sem staðfestir að hann er
sannarlega faðir hennar, og hann
vilji gjarnan fá það staðfest er ekki
hægt að skrá hann sem föður henn-
ar í þjóðskrá og á fæðingarvottorð
af þeirri ástæðu að móðir hennar er
L A U G A R D A G U R 2 0. O K T Ó B E R 2 0 1 8
Stofnað 1913 247. tölublað 106. árgangur
HLJÓÐHEIMUR
JÓHANNS FYRIR
HASARHRYLLI FYRSTA SKIPTIÐ
HÆFILEIKAR Í GAFLARALEIKHÚSINU 49ENDAPUNKTUR 46
Samtök atvinnulífsins, SA, leggja til
að þau og Starfsgreinasambandið,
SGS, feli óháðum aðila að leggja
mat á áhrif kröfugerðar sambands-
ins í kjaramálum á félagsmenn
SGS, fyrirtæki, atvinnulífið í heild
og opinber fjármál. Þetta kemur
fram í bréfi sem Samtökin sendu
Starfsgreinasambandinu í gær-
kvöldi.
Í bréfinu segir að SA sakni þess
að ekki liggi fyrir mat á heildar-
kostnaði efnahagslífsins ef kröfur
SGS nái fram að ganga. „Nái kröf-
urnar fram að ganga munu áhrif á
verðbólgu og vexti líklega verða
mikil og gætu haft neikvæð áhrif á
kaupmátt launa og húsnæðis-
kostnað,“ segir í bréfinu, auk þess
að SA telji að skýr mynd af áhrif-
um framgangs krafnanna sé for-
senda þess að unnt verði að hefja
árangursríkar samningaviðræður.
Þá segir að í hinu óháða mati
yrði meðal annars horft til árlegs
kostnaðar fyrir atvinnulífið og ríkis-
sjóð ef kröfurnar næðu fram að
ganga auk þess hvaða áhrif hækk-
un launagreiðslna vegna styttingar
vinnuvikunnar í 32 stundir með til-
heyrandi hækkun tímakaups myndi
hafa.
Samninganefndir SA og VR
funduðu í fyrsta sinn í gær og ríkti
bjartsýni á að samningar myndu
nást fyrir áramót. Á viðræðuáætlun
að vera klár eftir helgina.
sgs@mbl.is »2
Óháðir
leggi mat
á kröfur
Morgunblaðið/Eggert
Viðræður Samninganefndir SA og
VR funduðu í gær í húsi VR.
Samninganefndir
SA og VR funduðu
„Gömlu dagana gefðu mér, þá gat ég verið einn
með þér, nú tæknin geggjuð orðin er,“ söng Vil-
hjálmur Vilhjálmsson um árið. Svanhildur Dóra,
eitt fjölmargra grunnskólabarna í vetrarfríi,
hefði vel getað sungið þetta lag er hún brá sér í
gamla búninga í Árbæjarsafni í gær og tók sjálfu.
Morgunblaðið/Hari
Gömlu
dagana
gefðu mér
Félagið Íslensk
fjárfesting hefur
á næstu dögum
sölu á fyrstu
íbúðunum í nýju
íbúðarhverfi á
Kársnesi. Salan
markar tímamót
í skipulagssögu
Kópavogs. Kárs-
nesið hefur enda
verið eitt helsta
þróunarsvæði bæjarins. Við nýja
hverfið rís brú yfir Fossvog.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri í Kópavogi, segir fram-
kvæmdir við brúna munu hefjast á
kjörtímabilinu. »6
Kársnesið í sölu
Drög að nýrri íbúð-
arbyggð á Kársnesi.
Heimsókn Taros Konos, utanrík-
isráðherra Japans, til Íslands er lið-
ur í að efla tengsl ríkjanna.
Kono tók þátt í Hringborði norð-
urslóða í Hörpu. Var þetta í fyrsta
sinn sem japanskur utanríkis-
ráðherra kemur til Íslands.
Natsuko Sakata, talsmaður jap-
anska utanríkisráðherrans í þessari
heimsókn, segir aðspurð að lega Ís-
lands í Norður-Atlantshafinu sé
athyglisverð m.t.t. umskipunar-
hafnar. Japönsk stjórnvöld telji að
loftslagsbreytingar séu staðreynd
og stuðli að bráðnun íss á norður-
skautinu. Með þeirri þróun geti
siglingaleiðir opnast.
Hún sagði japönsk stjórnvöld
styðja hvalveiðar Íslendinga.
Stendur einmitt til að efla sam-
vinnu ríkjanna á því sviði er Ísland
verður formennskuríki í Norður-
skautsráðinu 2019-2021. »2 og 10
Japanar vilja stórefla tengslin við Ísland
Ljósmynd/Hringborg norðurslóða
Forystufólk Taro Kono og Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Færst hefur í vöxt að alþingis-
menn kalli inn varamenn þegar
þeir hverfa af þingi tímabundið. Ár-
ið í ár verður metár en það sem af
er ári hafa varamenn verið kallaðir
inn í 57 skipti.
Meðalkostnaður varaþingmanns í
eina viku árið 2018 hefur verið
402.000 krónur, samkvæmt upplýs-
ingum frá Alþingi, og er kostnaður-
inn því orðinn alls tæpar 23 millj-
ónir á árinu.
Fjöldi varaþingmanna hefur far-
ið vaxandi undanfarin ár, frá því að
vera 23 árið 2011 upp í 57 í ár. En
þess ber að geta að enn eru tæpir
tveir mánuðir eftir af þinghaldi
þessa árs og því gæti talan hækkað.
Morgunblaðið fékk uppgefinn
kostnað fyrir átta síðustu ár, frá
2011 til 2018, að báðum meðtöldum.
Reyndist hann vera 166 milljónir
króna samtals. »14
Varaþingmennirnir kosta tugi milljóna
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon