Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 6

Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 HAUSTFÖGNUÐUR KR INGLAN 20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM BUXUM Baldur Arnarson baldura@mbl.is Félagið Íslensk fjárfesting hefur á næstu dögum sölu á fyrstu íbúð- unum í nýju íbúðarhverfi á Kársnesi. Félagið er meðal lóðarhafa á svæðinu. Það kynnir nú í tilefni af sölunni loftmynd af hverfinu eins og búist er við að það muni líta út. Salan sætir tíðindum í skipulags- sögu Kópavogs. Efnt var til hug- myndasamkeppni um Kársnesið og eru fyrstu íbúðirnar af alls um 700 að koma á markað. Miðast sá fjöldi við hverfið fullbyggt. Samhliða þessari uppbyggingu er verið að byggja fjölda íbúða í Naustavör, gegnt Nauthólsvík. Stutt í alla þjónustu Einar Steindórsson, fram- kvæmdastjóri fjárfestinga hjá Ís- lenskri fjárfestingu, heldur utan um verkefnið fyrir hönd lóðareigenda. Hann bendir á að Kársnesið sé gróið hverfi og stutt sé í alla þjón- ustu, auk þess sem stutt sé í nýjan Kársnesskóla og fjölgun leikskóla. Hann segir íbúðirnar af ýmsum stærðum. „Mikil áhersla er lögð á íbúðir sem eru vel skipulagðar, þ.e. góða nýt- ingu fermetra og fleiri herbergi. Þetta verður fallegt hverfi á góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæð- inu með nálægð við sjóinn og smá- bátahöfnina. Þá eru fjölbreyttir möguleikar til útivistar,“ segir Einar og bendir á hjóla-, göngu- og hlaupa- stíga á svæðinu. Frá nýja hverfinu á Kársnesi verður gerð brú yfir Foss- vog. Bæjarstjórn Kópavogs staðfesti fyrr í þessum mánuði afgreiðslu skipulagsráðs bæjarins á tillögu til auglýsingar að deiliskipulagi brúar- innar. Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almennings- samgöngur. Með nýju brúnni styttist ferðatím- inn til miðborgar Reykjavíkur veru- lega. Nauthólsvík verður í aðeins nokkurra mínútna göngufjarlægð. Einar segir Íslenska fjárfestingu munu í fyrstu lotu setja 24 íbúðir í sölu á Hafnarbraut 9. Þær muni kosta frá tæpum 40 milljónum og bílastæði í kjallara fylgja með þeim. Síðar komi fleiri hús í sölu. Unnið í samstarfi við íbúa Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir nýja hverfið vel staðsett. „Það er ánægjulegt að þessum áfanga skuli vera náð með því að fyrstu íbúðirnar fara í sölu eftir að aðalskipulaginu var breytt. Í mínum huga eru þetta glæsilegustu lóðir á öllu höfuðborgarsvæðinu. Álftanesið og Bessastaðir eru þar í augsýn. Norðanbirtan er hvergi fegurri,“ segir Ármann. Hann segir aðspurður að brúin sé samstarfsverkefni Kópavogs, Reykjavíkur og ríkisins. Hún sé liður í breyttum almenningssam- göngum. „Það verður hafist handa á þessu kjörtímabili,“ segir Ármann um verkefnið. Raunhæft sé að brúarsmíðinni verði lokið snemma á næsta áratug. Íbúðir á nýju Kársnesi í sölu  Hluti af nýju skipulagi sem unnið var í kjölfar hug- myndasamkeppni Tölvumynd/Onno Kárnesið í framtíðinni Fyrirhugað er að byggja allt að 700 íbúðir á svæðinu á næstu árum. Hönnun stendur yfir. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarráð Akureyrar hefur sam- þykkt að óska eftir því að At- vinnuþróunarfélag Eyjafjarðar afli gagna til að gera viðskipta- eða rekstraráætlun fyrir Akureyrarflug- völl og kanna áhrif fjölgunar farþega með auknu millilandaflugi og rekstr- argrundvöll vallarins. Gunnar Gísla- son, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, segir að áætlunin geti orðið grundvöllur samningaviðræðna við ríkið um að Akureyrabær taki yfir rekstur vallarins og annist nauðsyn- lega uppbyggingu gegn því að fjár- festingin fáist til baka með leigu- greiðslum. Í skýrslu sem verkfræðistofan Efla gerði fyrir Eyþing kemur fram að kostnaður við að byggja nýja flug- stöð og breyta þeirri gömlu gæti orð- ið tæpir 1,5 milljarðar kr., kostnaður við flughlöð 1,6 milljaðar og uppsetn- ing á ILS-aðflugsbúnaði 180 milljón- ir, samtals rúmlega 3,2 milljarðar kr. Efla telur að framkvæmdatími við flugstöð yrði að lágmarki 2 ár og við flughlöð 3 ár. Aðflugsbúnaðurinn verður settur upp á næsta ári en framkvæmdir við flughlöð og flugstöð eru á tillögu að samgönguáætlun eftir 5-15 ár, að vísu með ákveðnum fyrirvörum. Fjölgun ferðamanna er leiðin Málefni flugvallarins voru rædd í bæjarráði Akureyrar í fyrradag, að beiðni Gunnars Gíslasonar. Sam- þykkt var að óska eftir söfnun gagna sem hann lagði til, í þeim tilgangi að undirbyggja hugsanlega samninga um yfirtöku bæjarins á flugvellinum og uppbyggingu þar. Gunnar vekur athygli á fréttum um að hótelrekstur á landsbyggðinni beri sig ekki og að nú stefni í það að Akureyri verði ósjálfbært sveitarfé- lag vegna skorts á fólki á vinnufær- um aldri. Eina leiðin til að bregðast við þessu sé að fjölga ferðafólki og efla ferðaþjónustuna. Það muni einn- ig fjölga störfum. Þess vegna þurfi að koma flugvellinum í það horf að aðstaða verði til að taka við reglu- legu áætlunarflugi til viðbótar við það leiguflug sem hafið er. „Þetta er lykilatriði í því að styrkja Akureyri, Eyjafjörð og Norðurland allt. Ég hef bent á það að ef ríkið er ekki tilbúið til að koma að þessu með beinum hætti séu aðr- ar leiðir hugsanlegar. Akureyrarbær fjármagni framkvæmdirnar og semji um að leiga standi undir fjárfesting- unni. Þetta hefur að vísu áhrif á skuldastöðu bæjarins en við getum ekki setið með hendur í skauti,“ segir Gunnar. Reksturinn verði sjálfbær Hann segir að sú athugun sem bæjarráð ákvað að óska eftir feli í sér, meðal annars, að kanna áhrif aukins ferðamannafjölda og aukinn- ar ferðaþjónustu á svæðið og þjóðfé- lagið allt og hvað þurfi til þess að Akureyrarflugvöllur verði sjálfbær rekstrareining. Markmiðið sé að undirbyggja slíka samninga. Sjálfur telur Gunnar að ekki þurfi mikið að koma til. Nú fari rúmlega 200 þús- und farþegar um völlinn á ári en far- þegarnir þurfi að vera á bilinu 300 til 500 þúsund til þess að völlurinn verði sjálfbær. Opna á samninga um yfirtöku vallarins  Uppbygging Akureyrarflugvallar kostar 3,2 milljarða Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyrarflugvöllur Reglubundið leiguflug hófst frá Bretlandi í fyrravetur og nú í vetur er áætlað að yfir 5.000 ferðamenn komi þaðan. Þorbjörn hf. í Grindavík hefur undirritað samninga um kaup á frystitogaranum Sisimiut sem er í eigu Royal Greenlan. Skipið var smíðað í Noregi 1992 fyrir Skags- trending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1, en var selt til Græn- lands 1996. Sisimiut er 67 metra langur og 14 metra breiður. Skipið verður af- hent Þorbirni hf. næsta vor eða snemmsumars. Það verður gert út á sama hátt og frystitogarar fyrir- tækisins sem fyrir eru; Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og Gnúpur GK 11. Einnig gerir fyrirtækið út línubátana Sturlu, Hrafn og Valdi- mar. „Það er spennandi að fá þetta skip í flotann okkar,“ segir Eiríkur Óli Dagbjartsson, útgerðarstjóri hjá Þorbirninum. Hann segir skipið vera í sérstaklega góðu standi og nánast eins og nýtt. „Það er greini- legt að þegar Skagstrendingarnir létu hanna og smíða skipið á sínum tíma hefur verið vandað til verka og margt gott hefur bæst við síð- an,“ segir Eiríkur Óli. sbs@mbl.is Gamli Arnar frá Græn- landi til Grindavíkur Ljósmynd/Eiríkur Óli Til Íslands Sisimut við bryggju í Nuuk, en skipið kemur með vorinu. Landsréttur staðfesti í gær sex ára dóm yfir Sveini Gesti Tryggvasyni í tengslum við andlát Arnars Jóns- sonar Aspar, sem lést eftir líkams- árás sem hann varð fyrir í Mos- fellsdal í júní sl. Þá gerði Lands- réttur einnig breytingu á skaðabót- um til sumra þeirra í fjölskyldu Arnars sem höfðu verið dæmdar skaðabætur. Sveinn Gestur sagði við dóms- uppkvaðningu í gær að hann myndi taka sér frest til að ákveða um áfrýjun til Hæstaréttar. Þá var Sveini gert að greiða allan áfrýj- unarkostnað, fjórar milljónir, og kostnað verjanda síns og réttar- gæslumanna fjölskyldu Arnars. Morgunblaðið/Hari Dæmdur Sveinn Gestur Tryggvason hefur verið dæmdur í sex ára fangelsi. Sex ára dómur yfir Sveini staðfestur Landsréttur staðfesti í gær þriggja og hálfs árs dóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot hans gegn dótt- ur sinni. Er hann fundinn sekur um að hafa látið dóttur sína snerta kyn- færi sín auk þess að hafa snert kyn- færi hennar og fróað sér í návist hennar. Barnaverndaryfirvöld lögðu fram kæru vegna málsins árið 2016. Þarf maðurinn að greiða stúlk- unni 1,7 milljónir í bætur. Þá er manninum gert samkvæmt dómi Landsréttar að greiða 945 þúsund krónur í áfrýjunarkostnað. Braut á dóttur sinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.