Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Á dögunum sannaðist að það ermiklum mun erfiðara að neita sér um flugferð til Kaupmannahafnar er rútuferð til Þing- valla. Þingmaðurinn Halldóra Mogensen hafði í sumar ásamt öðrum pírötum neit- að að taka þátt í hátíðarfundi Alþing- is vegna fullveldis Ís- lands þar sem Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, yrði viðstödd og mundi flytja ræðu.    Daginn fyrir há-tíðarfundinn kom í ljós að pír- ataþingmönnum þótti gesturinn mikið hneyksli þó að þeir hefðu fram að því ekki gert athugasemdir.    En svo gerðist það á dögunum aðHalldóra Mogensen flaug sérstaklega til Danmerkur til að taka þátt í hátíð danska þingsins í til- efni af fullveldi Íslands. Danska þinginu stýrir enn Pia Kjærsgaard sem meðal annars flutti hátíðarræðu og fór fögrum orðum um Ísland og samband Íslands og Danmerkur.    En, eins og Halldóra benti á í sam-tali við Morgunblaðið, þá var ræða Kjærsgaard á dönsku, en það tungumál skilur Halldóra ekki. Þar með telst Halldóra víst í raun ekki hafa verið viðstödd ræðuhöldin og gott ef það telst ekki vafamál hvort hún var yfirleitt í Danmörku. En pír- atar héldu auðvitað að Kjærsgaard myndi flytja ræðu sína hér á landi á íslensku og þá hefði ekki mátt úti- loka að þeir hefðu skilið ræðuna, sem gat auðvitað ekki gengið því að þá hefðu þeir talist viðstaddir.    Það er þess vegna algert sam-ræmi í framgöngu pírata og þegar við bætist að í boði var flug- ferð er þetta allt meira en sjálfsagt. Halldóra Mogensen Hún var ekki þar þó að hún væri þar STAKSTEINAR Pia Kjærsgaard Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Miklar framkvæmdir standa yfir á lóð Landspítalans vegna byggingar nýs Landspítala. Nýlega hófust framkvæmdir vegna jarðvinnu við Barnaspítal- ann. Sprengingar og brottflutning- ur efnis er að hefjast þar ásamt lagnaframkvæmdum við gatnamót Laufásvegar og gömlu Hringbraut- ar. Umfang verksins mun ráða um hvort þrengja þarf um umferð um Laufásveg eða hvort lokun verði milli gömlu Hringbrautar og Bar- ónsstígs. Þetta kemur fram í fram- kvæmdafréttum Hringbrautarverk- efnisins. Þar er vakin athygli á því að þessi aðgerð er mjög umfangsmikil og lagnaskurður mjög djúpur. Verktaki mun girða svæðið vel af. Sprengivinna er að hefjast og leyfi- legt verður að sprengja þrisvar sinnum yfir daginn, kl. 11.00, 14.30 og 17.30. Vatnsmýrarvegur við Hringbraut hefur verið lokaður í þrjár vikur vegna lagnavinnu. Fyrirhuguð opn- un er um helgina, 20.-21. október. Framkvæmdir eru hafnar á suð- austursvæði lóðarinnar (austan Læknagarðs) og hefur malarstæð- um neðan gömlu Hringbrautar ver- ið lokað. Verktaki stefnir á að færa sig enn lengra til vesturs að Læknagarði og lokast þá fleiri stæði neðan gömlu Hringbrautar. sisi@mbl.is Sprengt verður þrisvar á dag  Jarðvinna er að hefjast við Barnaspít- alann  Vatnsmýrarvegur opnaður á ný Morgunblaðið/Kristinn Barnaspítalinn Umfangsmikil jarð- vinna verður þarna á næstunni. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Salan hefur gjörsamlega rokið upp og hefur aldrei verið svona mikil. Þetta hefur algjörlega sprungið. Við höfum því lítið annað gert en að framleiða Bragga því það fer mikil handavinna í þetta,“ segir Viktor Sigurjónsson, markaðsstjóri Kristj- ánsbakarís á Akureyri. Í kjölfar mikillar umfjöllunar um braggamálið í Nauthólsvík hefur áhugi á hinni sígildu súkkulaðiköku Bragga aukist til muna og í gær bættu Viktor og félagar hans um betur þegar „Uppgerður Braggi“ var settur í sölu. Sá er skreyttur með gluggum og stráum – rétt eins og sá umdeildi. Framleiðslukostn- aður var undir áætlun, að sögn Vikt- ors. „Það liggur svo vel við að gera grín að þessu,“ segir Viktor í samtali við Morgunblaðið. „Þessu hefur ver- ið vel tekið. Verslunarstjórar hafa líka verið að taka þátt í gríninu og setja upp skilti til að auglýsa bragg- ana og fjölmargir vinnustaðir pönt- uðu uppgerðan bragga til að hafa í kaffinu á föstudegi.“ Á auglýsingu kemur fram að hinn uppgerði Braggi sé skreyttur með sænskum stráum og segir Viktor að talsverð vinna liggi að baki skreyt- ingunum. „Við höfum samt passað að þetta færi ekki upp fyrir 20 þús- und vinnustundir.“ Vinsældir Braggi hefur verið seldur í Kristjánsbakaríi um áratugaskeið en nýtur mikilla vinsælda nú. Uppgerða útgáfan er með sænskum stráum. Uppgerður braggi undir kostnaðaráætlun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.