Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 13

Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 13
Umbreyting lífshátta Sunnudagur 21. október Norrænir biskupar prédika á sunnudaginn kemur um ábyrgð okkar á lífríki jarðar í kirkjum fimm sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Viðmessu næstkomandi sunnudag, 21. október kl. 11:00, prédika norrænir lúterskir biskupar í Hallgrímskirkju, Kópavogskirkju, Vídalínskirkju í Garðabæ, Hafnarfjarðarkirkju og Seltjarnarneskirkju. AgnesM. Sigurðardóttir biskup Íslands hefur kvatt norrænu biskupana saman í Reykjavík til þess að ræða viðbrögð við loftslagsvá og röskun lífríkis á Norðurslóðum. Biskuparnir taka einnig þátt íHringborðiNorðurslóða íHörpu. Þar ræða biskuparnir síðdegis á sunnudag ákallið um breytingu lífshátta og samfélags og hlutverk trúfélaga í því sambandi. Stjórnandi pallborðsins verður Ögmundur Jónasson, fyrrverandi ráðherra. Vídalínskirkja, Garðabæ, kl. 11 Prédikun: Biskup presisHelgaHauglandByfuglien, höfuðbiskup norsku kirkjunnar. Kópavogskirkja kl. 11 Prédikun:Dr. Tapio Luoma, erkibiskup Turku og Finnlands. Hafnarfjarðarkirkja kl. 11 Prédikun: Séra JógvanFriðriksson Færeyjabiskup. Seltjarnarneskirkja kl. 11 Prédikun: SéraKristjánBjörnsson, vígslubiskup í Skálholti. Hallgrímskirkja kl. 11 Prédikun:Dr. Antje Jackelén, erkibiskup í Uppsölum í Svíþjóð.AgnesM. Sigurðardóttir, biskup Íslands, þjónar fyrir altari. „Hver á að veramálsvarimóður jarðar?“ Hallgrímskirkja kl. 09:30 Dr. AndrésArnalds, verkefnisstjóri og fyrrverandi fagmálastjóri Landgræðslunnar, flytur fyrirlestur sem ber heitið: „Hver á að veramálsvari móður jarðar? Lífsgildi, ábyrgð og umhverfisvernd.“Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, flytur ávarp.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.