Morgunblaðið - 20.10.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Talsverð umsvif hafa síðustu áratugi
fylgt smíði bobbinga fyrir togaraflot-
ann. Þar hefur Stáldeildin á Akur-
eyri verið í fararbroddi og ein um hit-
una síðustu ár, en nú er komið að
leiðarlokum. „Við erum bara á síð-
ustu metrunum og ég sé ekki annað
en að tæki og tól fari í brotajárn, sem
er bara hreinasta hörmung,“ segir
Þórarinn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Handtökin við framleiðsluna eru
að hluta þau sömu og verið hafa í
tæplega 60 ár, en á sínum tíma fram-
leiddi ODDI á Akureyri bobbinga
fyrir togarana. Þessi framleiðsla
færðist síðan yfir til Gúmmívinnsl-
unnar og síðan Stáldeildarinnar.
Enginn raunverulegur áhugi
Þegar mest var umleikis hjá fyrir-
tækinu voru bobbingar smíðaðir í
húsnæði fyrirtækisins á Laufásgöt-
unni á hafnarsvæðinu úr rúmlega 200
tonnum af stáli á ári, en í fyrra fóru
um 50 tonn í framleiðsluna. Ekki eru
mörg ár síðan fimm starfsmenn unnu
að jafnaði við bobbingana, en nú eru
þeir tveir auk Þórarins.
„Hér er allt fyrir hendi; tækin,
tæknin og kunnáttan og ekki vantar
markaðinn,“ segir Þórarinn. „Ég er
búinn að bjóða fjölda verkstæða að
kaupa tækin, en hér er að hluta sér-
hannaður, heimasmíðaður búnaður.
Reksturinn hefur verið til sölu í tvö
ár, en enginn hefur sýnt raunveru-
legan áhuga á að taka við þessari
bobbingaframleiðslu. Það er því lítið
annað að gera en að loka þessu.
Svo er orðið erfitt að fá starfsfólk
því mörgum finnst starfið við járn-
smíðina helst til óþrifalegt og hávað-
inn of mikill. Margir vilja heldur
vinna við tölvur eða í verslun, en ég
er ekki viss um að þeim líði betur.
Mér finnst það bara sóun að svona
skuli fara.“
Þórarinn segir að með lokun Stál-
deilarinnar ljúki smíði bobbinga hér-
lendis, sem nú séu fluttir inn og mest
komi frá Póllandi. Ekki sé nýtt að
menn hafi þurft að keppa við inn-
flutning og hann hafi aldrei haft
neitt á móti eðlilegri samkeppni. Á
sínum tíma flutti fyrirtækið einnig
út bobbinga til Kanada, Grænlands,
Noregs og Færeyja og talsvert hef-
ur farið til Færeyja fram undir
þennan dag.
Hef viljað vinna og byggja upp
Þórarinn rak Gúmmívinnsluna frá
1983 og var viðloðandi reksturinn til
2012, en fyrirtækið er nú í eigu N1.
Árið 1991 var Stáldeildin sett á
laggirnar og hefur Þórarinn rekið
hana til þessa dags. Hann er á
áttræðisaldri og segir að það væri
eftir öðru að hann lenti sjálfur á
Minjasafninu!
Auk Stáldeildarinnar var ýmis
önnur starfsemi undir hatti Gúmmí-
vinnslunnar á Akureyri á síðustu
áratugum, nefna má hjólbarðaþjón-
ustu, innflutning á Bridgestone-
dekkjum, framleiðslu á mottum fyrir
barnaleikvelli og víðar og millibobb-
inga fyrir sjávarútveginn. Í þessa
framleiðslu var notað úrgangs-
gúmmí að stórum hluta.
„Alla mína tíð hef ég haft gaman
af því að vinna og viljað byggja at-
vinnulífið upp hér á Akureyri og
gera eitthvað vitrænt. Þess vegna
finnst manni snúið að ekki finnist
framhald og ekkert sé í stöðunni
annað en að skella í lás,“ segir Þór-
arinn.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lok og læs Þórarinn Kristjánsson og Ingimar Víglundsson í smíðasal Stáldeildarinnar á Laufásgötu á Akureyri. Smíði bobbinga verður hætt á næstunni.
Smíða síðustu bobbingana
Umsvifum Stáldeildarinnar á Akureyri að ljúka Hörmung ef tækin enda sem brotajárn
Þjóna útgerðinni Bragi Nikulásson vinnur við frágang á stálbobbingum,
sem fara um borð í togaraflotann. Þeir fá blágrænan lit fyrir afhendingu.
Kristján Þórður
Snæbjarnarson,
formaður Rafiðn-
aðarsambands Ís-
lands, gefur kost
á sér í embætti 2.
varaforseta Al-
þýðusambands
Íslands á þingi
sambandsins í
næstu viku. Hann
hefur verið for-
maður Rafiðnaðarsambandsins í sjö
ár og setið í miðstjórn Alþýðu-
sambandsins í sex ár, en aldrei verið
þar í æðstu forystusætum.
Að sögn Kristjáns á forsetahóp-
urinn að endurspegla fjölbreytni og
breidd á vinnumarkaði og í Alþýðu-
sambandinu sjálfu. Af þessum
ástæðum hefur hann meðal annars
ákveðið að gefa kost á sér til emb-
ættisins.
Vill verða
2. varafor-
seti ASÍ
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Síðasta skemmti-
ferðaskip sum-
arsins er væntan-
legt til hafnar í
Reykjavík á
mánudaginn.
Skipið heitir
Ocean Dream og
er 35.265 brúttó-
tonn. Samkvæmt
áætlun á það að
leggjast að Skarfabakka í Sunda-
höfn á fimmta tímanum um morg-
uninn. Það mun svo láta úr höfn
sama dag klukkan 18. Skipið tekur
1.022 farþega og í áhöfn eru rúmlega
500 manns.
Þar með lýkur vertíð skemmti-
ferðaskipanna á þessu ári. Alls hafa
komið 72 skip. Mörg hafa komið oft-
ar en einu sinni og eru skipakomur
alls 166. Farþegafjöldi með skip-
unum er tæplega 150 þúsund.
sisi@mbl.is
Síðasta skip
sumarsins
væntanlegt
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum