Morgunblaðið - 20.10.2018, Blaðsíða 20
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristinsson
Grundarfirði
Rökkurdagar nefnist árleg menn-
ingardagskrá sem nú stendur yfir
og lýkur á sunnudag. Dagskráin
hefur verið óvenju margbreytileg og
margt góðra viðburða. Síðastliðinn
sunnudag heimsóttu okkur heiðurs-
hjónin Ásta Kristrún Ragnarsdóttir
og Valgeir Guðjónsson ásamt dóttur
sinni, Vigdísi Völu.
Í Sögumiðstöðinni kynnti Ásta
bók sína „Það sem dvelur í þögn-
inni“ og rakti fyrir viðstöddum
hvernig ættarþræðir hennar lágu
víða um landið, svo ekki sé minnst á
alla leyniþræðina. Valgeir var svo
mættur í Grundarfjarðarkirkju um
kvöldið til að frumflytja og afhenda
Grundfirðingum lagið sitt, „Í góðu
veðri á Grundarfirði“, sem hann
samdi fyrir allmörgum árum í sum-
arhúsi í nágrenni bæjarins. Með
Valgeiri við flutninginn var dóttir
þeirra hjóna og kvennaraddir úr
Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju.
Var gerður góður rómur að þessu
lagi sem án efa á eftir að hljóma á
hinum ýmsu hátíðum bæjarins í
framtíðinni, þá væri jafnvel hægt að
hnika til texta og syngja t.d. Á góðri
stund í Grundarfirði.
Það má segja að Rökkurdag-
arnir hafi byrjað með góðri sviða-
veislu Félags eldri borgara sl.
laugardagskvöld, því enginn nýtur
menningar með tóman maga. Inn-
reið bílaaldar í Eyrarsveit voru svo
gerð góð skil í fyrirlestri Inga Hans
Jónssonar, grúskara og sagnaþular,
sem bar yfirskriftina „Með kaskeiti
við stýrið“. Að sögn Inga kom fyrsti
bílinn í Eyrarsveit um 1938 og var í
eigu Kristlaugs Bjarnasonar sem
kenndur var við bæinn Grund í
Eyrarsveit. Þetta var nokkurskonar
fólksflutningavörubíll sem fljótt
fékk viðurnafnið Skruggu-Blesi.
Það má undrum sæta hversu menn
voru þrautseigir að komast um á
þessum fararskjótum nútímans á
þeim vegleysum sem fyrir hendi
voru í upphafi bílaaldar.
Ungur brottfluttur myndlist-
armaður, Ísak Snorri Marvinsson,
veitti Grundfirðingum „Innsýn“ í
verk sín á sinni fyrstu einkasýningu
og má sjá myndir hins unga lista-
manns á veggjum Samkomuhússins
út Rökkurdaga.
Kvenfélagið Gleym mér ei lét
ekki sitt eftir liggja og setti í Sam-
komuhúsinu á fót haustmarkað þar
sem boðið var upp á súpu og brauð
ásamt því að selja handverk og ým-
islegt góðgæti. Auk þess sem að
framan er talið hefur ýmislegt ann-
að verið á dagskrá þessa Rökk-
urdaga, s.s. örnefnagönguferð, bíó-
sýningar, tónleikar o.fl. o.fl.
Frumkvöðlar finnast í Grundar-
firði og þar má nefna Signýju Gunn-
arsdóttur sem stundar nú silki-
ormarækt í bílskúr. Til skamms
tíma hefði slík ræktun verið talin
ómöguleg á Íslandi en Signý hefur
náð að ala nokkrar kynslóðir silki-
orma og fá nokkur hundruð metra
af silkiþræði. Mest spennandi við
þessa ræktun er hvort Signýju tekst
að ala ormana á afurðum sjávar-
plantna.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Rökkurdagar Valgeir Guðjónsson segir frá tilurð lags síns og texta sem hann afhenti Grundfirðingum.
Afhenti Grundfirðingum lag
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Hagstofa Íslands áætlar að íbúar
landsins verði 436 þúsund árið 2067,
samkvæmt miðspá Hagstofunnar
um þróun mannfjöldans.
Hagstofa Íslands framreiknaði
mannfjöldann fyrir tímabilið 2018-
2067 á grundvelli tölfræðilíkana fyr-
ir búferlaflutninga, frjósemi og dán-
artíðni. Gerð voru þrjú afbrigði af
framreikningnum; miðspá, háspá og
lágspá. Spáafbrigðin byggjast á mis-
munandi forsendum um hagvöxt til
næstu fimm ára, frjósemishlutfall og
búferlaflutninga. Samkvæmt mið-
spánni verða dánir fleiri en fæddir á
hverju ári frá og með árinu 2061 en
frá og með árinu 2041 samkvæmt
lágspánni. Hins vegar fæðast fleiri
en deyja á hverju ári spátímabilsins
samkvæmt háspánni.
Meðalævi beggja kynja lengist
Meðalævi bæði karla og kvenna
við fæðingu mun halda áfram að
lengjast. Nýfæddar stúlkur árið
2018 geta vænst þess að verða 83,9
ára gamlar en nýfæddir drengir 79,8
ára. Stúlkur sem fæðast árið 2067
geta vænst þess að verða 88,7 ára en
drengir 84,4 ára. Fjöldi aðfluttra
verður meiri en fjöldi brottfluttra ár
hvert samkvæmt öllum spáafbrigð-
um, fyrst og fremst vegna erlendra
innflytjenda. Íslenskir ríkisborgarar
sem flytja frá landinu verða áfram
fleiri en þeir sem flytja til landsins.
Gangi miðspáin eftir verða yfir 20%
af heildarmannfjölda eldri en 65 ára
árið 2039 og yfir 25% árið 2057 og
frá árinu 2046 verða þeir sem eru
eldri en 65 ára í fyrsta sinn fjöl-
mennari en þeir sem eru yngri en
tvítugir.
Áætla að íbúar
verði 436 þúsund
Hagstofan framreiknar íbúa Íslands
Morgunblaðið/Golli
Mannfjöldi Íslendingum mun fjölga
áfram á næstu árum.
Björn Björnsson
Sauðárkróki
Á einum fallegasta haustdeginum,
síðastliðinn þriðjudag, afhenti Þórð-
ur Eyjólfsson, fráfarandi formaður
Búhölda, félags um byggingu húsa
fyrir eldri borgara, síðustu íbúðina
sem hann setti sér að byggja í nafni
félagsins.
Fyrsta íbúðin var afhent árið
2000, en þá setti Þórður sér það tak-
mark að reisa 50 slíkar. Það tak-
mark náðist, nú 18 árum síðar. Öll
húsin eru í stórum dráttum byggð
eftir sömu teikningu og því að mestu
eins, utan það að tvö þau fyrstu voru
ekki með bílgeymslu. Alls eru þetta
25 parhús, byggð úr forsteyptum
einingum, fullfrágengin úti sem inni,
með hita í gólfum og öllum lögnum
frágengnum.
Tæplega hafa margir leyst slík
stórvirki af höndum sem Þórður,
sem réðst í framkvæmdirnar með
Búhöldum löngu eftir að hann átti
samkvæmt öllum lögmálum að vera
sestur í hinn margfræga „helga
stein“ en Þórður er nú kominn í aldri
nokkuð á tíunda áratuginn.
Og þar sem takmarkinu er nú náð,
og ætlunarverkinu lokið, lét Þórður
formennskuna í hendur Gunnars
Sigurjóns Steingrímssonar, um leið
og hann afhenti hjónunum Huldu
Gísladóttur og Halldóri Hjálmars-
syni fimmtugustu íbúðina, bjarta og
glæsilega.
Aðspurður sagðist Gunnar taka
við góðu búi og sjálfsagt yrði haldið
eitthvað sömu stefnu en nú þegar
væru að minnsta kosti fjórir á bið-
lista eftir íbúð hjá Búhöldum.
Takmarkið náðist
með 50. íbúðinni
Búhöldar hafa reist 25 parhús á Sauð-
árkróki Þórður hættir á tíræðisaldri
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Tímamót Þórður Eyjólfsson, fyrir miðju, afhendir hjónunum Halldóri
Hjálmarssyni og Huldu Gísladóttur lyklana að 50. íbúð Búhölda.
Fögnuður Hulda og Halldór smella í
einn koss og nýr formaður Búhölda,
Gunnar Steingrímsson, brosir blítt.