Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
Orlofssjóður BHM (OBHM) óskar eftir að taka á leigu sumarhús eða íbúðir
um land allt og annars staðar í Evrópu til að framleigja til sjóðfélaga sumarið
2019. Húsnæðið þarf að vera í mjög góðu ástandi, fullbúið húsgögnum og
öðrum viðeigandi húsbúnaði. Þar þarf jafnframt að vera pláss fyrir a.m.k. 6
til 8 manns í gistingu.
Áhugasamir húseigendur sendi tölvupóst með myndum af eigninni á
obhm@bhm.is
Gott væri að fram kæmu upplýsingar um staðsetningu, byggingarár,
ástand, stærð, fjölda svefnplássa og hugmyndir um leiguverð.
ÁTT ÞÚ ORLOFSHÚS SEM
ÞÚ VILT LEIGJA?
Samstarfshópur evrópskra fjölmiðla
hefur birt gögn sem benda til þess að
nokkrir af stærstu bönkum heims
séu viðriðnir umfangsmikil skatta-
undanskot eða jafnvel skattsvik.
Gögnin benda til þess að um 55 millj-
örðum evra, jafnvirði rúmra 7.400
milljarða króna, hafi verið skotið
undan skatti í ellefu Evrópulöndum.
Gögnin eru samtals 180.000 blað-
síður og afrakstur samstarfs 18 evr-
ópskra fjölmiðla, m.a. danska ríkis-
útvarpsins, Politiken, Le Monde, Die
Zeit og þýska ríkissjónvarpsins.
Þýska rannsóknarfréttastofan Corr-
ectiv stjórnaði samsstarfsverkefn-
inu.
Meðal bankanna sem tengjast
málinu eru Morgan Stanley, Bar-
clays, Bank of America, Deutsche
Bank, J.P. Morgan og Credit Suisse.
Bankarnir og viðskiptavinir þeirra
nýttu sér ýmsar gloppur í skattalög-
um og í lögum um arðgreiðslur
hlutafélaga. T.a.m. beittu þeir þeirri
aðferð að erlendir fjárfestar seldu
banka í viðkomandi landi hlutabréf
sín skömmu áður en arður var
greiddur út með það fyrir augum að
koma sér hjá því að greiða skatta
sem lagðir eru á arðgreiðslur til er-
lendra hluthafa. Þeir keyptu síðan
hlutabréfin aftur skömmu síðar og
fengu arðgreiðslurnar.
Elstu gögnin eru frá árinu 2001 en
þau nýjustu frá 2016.
Brögðum beitt til að losna við skatta
Frakkl.
17
4,5
7,2
0,2
1,7
24,6
Noregur
Danmörk
Holland
Belgía Þýskaland
Tap vegna:
Lönd sem
misstu skatttekjur
Fjárhæð
Austurríki
Finnland
Spánn
Sviss
Skattsvika
Undanskota
Ítalía
(í milljörðum evra)
Evrópulönd eru sögð hafa tapað a.m.k
55 milljörðum evra í skatttekjur
Heimild: cumex-files.com
Stórfelld undan-
skot afhjúpuð
Hondúrar fara yfir landamæraána Goascor til að
reyna að komast til El Salvador. Nokkur þúsund
Hondúra hafa farið með bílalest um Mið-
Ameríku til Mexíkó á síðustu dögum í von um að
komast til Bandaríkjanna. Donald Trump
Bandaríkjaforseti hefur krafist þess að yfirvöld í
Mexíkó stöðvi fólkið og hótaði í tístum á Twitter
í fyrradag að kalla út hersveitir til að loka landa-
mærum ríkjanna yrði það ekki gert. Hann sagði
að meðal farandmannanna væru margir glæpa-
menn og kvaðst vera staðráðinn í því að stöðva
ólöglegan innflutning fólks til Bandaríkjanna.
AFP
Reyna að komast frá Hondúras til Bandaríkjanna
London. AFP. | Julian Assange, stofn-
andi WikiLeaks, hefur höfðað mál
gegn stjórnvöldum í Ekvador fyrir
„að brjóta gegn grundvallarrétt-
indum“ hans með því að takmarka
aðgang hans að umheiminum í sendi-
ráði landsins í London.
Assange fékk hæli í sendiráðinu í
júní 2012 eftir að breskur dómstóll
samþykkti beiðni um að hann yrði
framseldur til Svíþjóðar þar sem
hann hefur verið ákærður fyrir kyn-
ferðisofbeldi. Assange óttast að hann
verði framseldur til Bandaríkjanna
og saksóttur fyrir að birta bandarísk
leyniskjöl á uppljóstrunarvefnum.
Missir hann verndina?
WikiLeaks sagði í gær að lögmað-
ur vefjarins hefði farið til Ekvadors í
því skyni að höfða mál gegn stjórn
landsins. „Þetta er gert næstum sjö
mánuðum eftir að stjórn Ekvadors
hótaði að svipta hann verndinni og
meina honum aðgang að umheim-
inum, m.a. með því að neita að leyfa
blaðamönnum og fulltrúum mann-
réttindasamtaka að ræða við hann.“
Stjórn Ekvadors hefur staðfest að
hún hafi meinað Assange aðgang að
netinu og farsíma. Fjölmiðlar hafa
verið með vangaveltur um að stjórn-
in sé að búa sig undir að binda enda á
verndina sem hann hefur notið í
sendiráðinu.
Höfðar
mál gegn
Ekvador
Sögð brjóta á
rétti Assange