Morgunblaðið - 20.10.2018, Page 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
✝ HaukurTryggvason
fæddist á Lauga-
bóli í Reykjadal 20.
ágúst 1941. Hann
lést á lyflækninga-
deild Sjúkrahússins
á Akureyri 14.
október 2018.
Foreldrar hans
voru Tryggvi Sig-
tryggsson frá Hall-
bjarnarstöðum í
Reykjadal, f. 1894, d. 1986,
bóndi á Laugabóli í Reykjadal,
og eiginkona hans Unnur Sigur-
jónsdóttir frá Sandi í Aðaldal, f.
1896, d. 1993.
Systkini Hauks: Ingi, f. 1921,
d. 2018, Haukur, f. 1922, d.
1940, Eysteinn, f. 1924, Ásgrím-
ur, f. 1926, Kristín, f. 1928, d.
2017, Helga, f. 1930, d. 2013,
Hjörtur, f. 1932, d. 2013, Ing-
unn, f. 1933, d. 2009, Dagur, f.
1937, d. 2009, og Sveinn, f. 1939,
d. 2003.
Haukur kvæntist 17. júní
1971 eftirlifandi eiginkonu sinni
Hjördísi Stefánsdóttur frá
Húsavík, f. 30. mars 1948, hús-
stjórnarkennara, skólastjóra og
hótelstjóra á Laugum í Reykja-
Pálmi Gauti Hjörleifsson, skip-
stjóri hjá Samherja, f. 1979. Þau
eiga þrjá syni, Hilmar Gauta, f.
2011, Hákon Gauta, f. 2013, og
Hjörvar Gauta, f. 2017.
Haukur lauk gagnfræðaprófi
frá Héraðsskólanum á Laugum
1959. Næstu árin starfaði hann
víða meðfram því að aðstoða
foreldra sína við bústörfin
heima á Laugabóli. Hann var
háseti á bát og á vertíð í Vest-
mannaeyjum 1961 og í Ólafsvík
1963 og 1964. Einnig starfaði
Haukur hjá Sparisjóði Reykdæl-
inga um tíma sem og við bústörf
hjá Inga bróður sínum á Kárhóli
og frændum sínum á Brún í
Reykjadal. Haukur vann við
Laxárvirkjun veturinn 1970-
1971 en sumarið 1971 keyptu
Haukur og Hjördís Laugaból af
foreldrum hans og tóku við búi.
Þau byggðu sér einbýlishúsið
Laugaból II og fluttu þar inn í
desember 1974 ásamt tveimur
elstu börnum sínum og bjuggu
þar æ síðan. Haukur hélt kýr og
kindur auk þess að feta í fótspor
föður síns og halda áfram skóg-
rækt í landi Laugabóls. Hann
var einnig mikill áhugamaður
um matjurtarækt og sinnti því
áhugamáli alla tíð. Haukur
hætti mjólkurbúskap 2008 en
hélt kindur allt til dauðadags.
Útför Hauks verður gerð frá
Einarsstaðakirkju í dag, 20.
október 2018, og hefst athöfnin
klukkan 14.
dal og síðar
brautarstjóra
matvælagreina við
Verkmennta-
skólann á Akur-
eyri. Foreldrar
hennar voru Stefán
P. Sigurjónsson bif-
reiðastjóri, f. 1918,
d. 1999, og Krist-
björg Héðinsdóttir,
f. 1922, d. 2012.
Haukur og Hjör-
dís eignuðust fjögur börn, þau
eru: 1) Heiðrún flugfreyja,
Kópavogi, f. 1971. Börn hennar
eru Almar Jónsson, f. 2003, og
Eygló María Jónsdóttir, f. 2006.
Fyrrverandi maki Jón Egill
Bragason, f. 1968, þau skildu. 2)
Hilmar, tölvunarfræðingur,
Reykjavík, f. 1972, maki Kristín
I. Hannesdóttir PhD í taugasál-
fræði, f. 1976. Sonur þeirra er
Hannes Tryggvi, f. 2012. 3)
Unnur Björk, kennari og flug-
freyja, Reykjavik, f. 1978, maki
Sigurður Helgi Pálmason, safn-
vörður Seðlabanka Íslands, f.
1974. Þau eiga tvo syni, Hauk
Helga, f. 2011, og Friðrik
Bjarka, f. 2013. 4) Hugrún lækn-
ir, Akureyri, f. 1979, maki
Elsku Haukur.
Þó að fölni fögur rós og ferskur
þagni blær,
þó að slökkni lífsins ljós
leiftrar ætíð skær,
heilög minning helguð þér
á harðri lífsins braut,
geymd í huga og hjarta mér
um horfinn förunaut.
Við tengdum okkar traustu bönd
með trú á sterkan þátt.
Þú gafst mér bæði hjarta og hönd
og hamingjunnar mátt.
Hin sæla minning sefar mig
er sorgin leitar að.
Nú bið ég guð að blessa þig
og búa nýjan stað.
(Hákon Aðalsteinsson)
Þín eiginkona,
Hjördís Stefánsdóttir.
Ég stend í miðjum stormi, mig stara
stjörnur á
og þó að stytti upp á stundum, er
það vart að sjá.
Ég á svo margt að þakka, svo margt
sem gafst þú mér
það geymi ég í demantsboxi, djúpt í
hjarta mér.
Ég sakna þess að fá ekki hringingu,
hlátur og hlýjan róminn.
Að ræða um veðrið og vorverkin,
skógræktina og blómin.
Heyra af litlum lömbum, sem fæðast
falleg og hlý
og spenntum afabörnum, sem mæta
í sveit á ný.
Heyra blístur og munnhörpuhljóma
í bakgrunni gufuna enduróma.
Stússa með þér úti og inni,
sæl og glöð með sól í sinni
Minningar um þig og mig
og alla mína æsku.
Mín gæfa var að eiga þig
og þína hjarta gæsku.
Elsku hjartans pabbi minn,
takk fyrir að vera besti pabbi
og afi sem hægt er að hugsa
sér. Takk fyrir allt.
Þín,
Unnur Björk.
Lífið getur breyst mikið á
stuttum tíma. Það fékk ég svo
sannarlega að reyna í sumar
þegar faðir minn greindist með
illvígt heilaæxli.
Það eru snögg umskipti frá
því að vera hraustur bóndi í
útiverkum alla daga yfir í að
þurfa að játa sig sigraðan í von-
lausri baráttu við ólæknandi
krabbamein tæpum þremur
mánuðum síðar. Þetta haust er
það kuldalegasta sem ég hef
upplifað.
Ég er yngst minna systkina
og alltaf verið mikil pabbas-
telpa. Ég var svo heppin að fá
að alast upp á sveitabæ og það
tel ég vera algjör forréttindi.
Ég varð líka þeirrar gæfu að-
njótandi að eiga einstakan föð-
ur sem var alltaf til í að hafa
mann með sér við hvað sem
hann sýslaði.
Eftir menntaskóla fluttist ég
suður og bjó þar meðan ég lauk
háskólanámi. Ég ákvað svo að
flytja aftur norður því ég gat
ekki hugsað mér að vera fleiri
ár að heiman þar sem rætur
mínar liggja.
Þá tóku við mjög dýrmæt ár
þar sem ég fékk aftur að búa í
nálægð við pabba minn og vera
í sveitinni í frístundum, fyrir
það verð ég ævinlega þakklát.
Ég á þrjá unga syni sem
náðu allir að kynnast afa sínum
og upplifa sveitalífið.
Það er hrikalega sárt og erf-
itt að missa föður sinn, líka
þótt maður teljist fullorðinn.
Maður er aldrei tilbúinn í slíkt
og ég sit eftir með mikið tóma-
rúm í hjartanu.
Ég er heppin að vera dóttir
pabba míns og fyrir allt sem
hann leyfði mér að upplifa.
Mannkostir föður míns finnst
mér aðdáunarverðir. Hann var
einstaklega jákvæður maður
með jafnaðargeð. Hann kvart-
aði aldrei né tuðaði og var
þakklátur fyrir það sem hann
hafði.
Hann tengdist jörðinni sinni
sterkum böndum. Alltaf var
hann reiðubúinn að rétta
hjálparhönd eða leiðbeina öðr-
um í kringum sig. Það sem
stendur mest upp úr er einstök
hlýja gagnvart barnabörnum
sínum. Í nútímaþjóðfélagi er
orðið svo sorglega algengt að
fólk gefi sér ekki tíma í sam-
verustundir með börnum.
Faðir minn lést 77 ára en
nánast fram á síðasta dag
sinnti hann börnum mínum eins
og þeirra annar faðir. Í heim-
sóknum var kubbað, lesið og
gantast auk þess sem munn-
harpan var ekki langt undan.
Í sveitinni urðu synir mínir
strax vinnumenn og fengu að
taka þátt í sveitalífinu. Þeir
fylgdu afa sínum að gefa kind-
um og hænum, fengu að ferðast
á sexhjólinu, raka hey af tún-
um, tína rifsber, skoða skógar-
þrastarunga, smakka góðgæti
úr matjurtagarðinum, láta
draga sig á leikfangatraktorum
og svo mætti lengi telja. Það
eru forréttindi að hafa átt föður
og afa sem sýndi jafn mikla ást
og umhyggju og pabbi minn
gerði. Fyrir það verð ég að ei-
lífu þakklát og full auðmýktar
því ég veit að slíkt er svo engan
veginn sjálfsagt að fá að upp-
lifa.
Góða ferð til himna og takk
fyrir allt elsku pabbi minn.
Þín
Hugrún.
Elsku afi minn. Ég veit að
það er erfitt að deyja en við er-
um bara svona. Maður deyr
alltaf en það góða við að deyja
er að guð og englarnir passa
þig. Þú ert besti afi í heimi og
ég mun aldrei gleyma þér. Þú
varst svo góður við mig afi
minn. Þinn
Hilmar Gauti.
Elsku afi minn ég elska þig.
Bless elsku afi minn, þú ert
besti afi í heimi. Þinn
Hákon Gauti.
Haukur bróðir mömmu er
farinn, stuttu en hörðu stríði er
lokið. Það var gott að það varð
ekki lengra úr því sem komið
var, hann hefði ekki kært sig
um það, en ein sterkasta til-
finningin sem eftir situr er sú
hvað þetta var ótímabært. Ég
hélt að hann ætti a.m.k. 20 ár
eftir, yrði háaldraður eins og
svo margir í hans nánustu fjöl-
skyldu. En enginn veit hvað
framtíðin ber í skauti sér og nú
er hann farinn, of snemma, og
eftir sitjum við hnípin.
Haukur var yngstur systk-
inanna á Laugabóli, og þar bjó
hann alla tíð. Hann bjó á hluta
jarðarinnar á móti Degi bróður
sínum en þeir bræður tóku við
búskapnum af foreldrum
sínum.
Kona Hauks er Hjördís Stef-
ánsdóttir frá Húsavík, en þau
byggðu sér fallegt hús á jörð-
inni þar sem þau bjuggu síðan
og ólu upp börnin sín fjögur.
Haukur bjó með kýr og kind-
ur en síðustu árin aðeins með
kindur. Hann var áhugamaður
um alla ræktun og eru þær ófá-
ar plönturnar sem ég hef fengið
úr garðinum þeirra í gegnum
tíðina.
Hann var barnelskur og öll
börn hændust að honum og
þótti honum afar vænt um
barnabörnin sín sem nutu þess
að koma í sveitina til afa og
ömmu. Þeirra missir er mikill.
Ég var mikið á Laugabóli hjá
afa og ömmu sem barn og er
Haukur órjúfanlega tengdur
þeim dýrmætu minningum sem
ég á þaðan. Mér finnst að í þá
daga hafi alltaf verið sól og
blíða.
Við krakkarnir með í hey-
skapnum, í fjósinu, á leið í
útibúið á flotta bílnum, alltaf
eitthvað skemmtilegt að gerast.
Einnig var mikið samband
okkar á milli eftir að við fjöl-
skyldan fluttum norður og þótt
Haukur væri heimakær hafði
hann gaman af að hitta fólk og
spjalla og leit oft inn í kaffi til
frænku sinnar.
Alltaf þótti mér gott að koma
til þeirra og þau eru ófá skiptin
sem ég hef sótt ráð og leiðbein-
ingar varðandi heimilishald til
Hjördísar.
Eftir að ég flutti úr Reykja-
dalnum hittumst við ekki eins
oft og áður en alltaf var eins og
við hefðum hist í gær. Það er
ótrúlegt að Haukur sé ekki á
Laugabóli lengur og ekkert
verður eins og áður, en ég er
þakklát fyrir allar góðu minn-
ingarnar.
Missir fjölskyldunnar er
mikill og ég sendi Hjördísi og
fjölskyldunni allri mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Unnur Harðardóttir.
Mér finnst að alltaf hafi ver-
ið sól og blíða í Reykjadal þeg-
ar ég var að alast þar upp.
Leikir glens og gaman. En
þannig var það auðvitað ekki.
Við frændsystkinin á Lauga-
bæjunum, í gamla túninu þeirra
afa Sigurjóns og ömmu Krist-
ínar, höfðum skyldum að gegna
allt eftir getu og aðstæðum, en
fengum samt svigrúm til að
hittast og leika okkur saman.
Þetta voru tveir hópar – stóru
krakkarnir og litlu krakkarnir.
Við Haukur vorum litlu krakk-
arnir, hann var yngstur.
Sveitin var góð fóstra. Þar
voru endalaus tækifæri fyrir
krakka að sinna hugðarefnum
sínum. Við kepptum í íþróttum,
fórum í litlu sundlaugina í Al-
þýðuskólanum, óðum ána, fór-
um í kríuvarpið í Torfdalnum
að safna eggjum, í Hólamóana
að tína ber og stofnuðum hin og
þessi félög sem lifðu yfirleitt
ekki lengi.
Einhverju sinni var stofnað
skátafélag, það lognaðist út af
um leið og það var stofnað,
enda vissi enginn út á hvað
skátastarf gekk. Haukur var
góður félagi, skemmtilegur, óá-
reitinn og glaðlyndur. Það
leiddist engum þegar hann var
með í hópnum.
Við börnin á bæjunum lærð-
um að bera virðingu fyrir nátt-
úrunni. Virðing fyrir gögnum
hennar og gæðum og áhugi for-
eldra okkar á allri ræktun hef-
ur gengið í arf. Þar hefur
Haukur ekki legið á liði sínu og
farið í spor foreldra sinna,
Unnar og Tryggva, og haldið
áfram ræktunarstarfi heima á
Laugabóli af elju og myndar-
skap studdur af Hjördísi og
börnum þeirra.
Hauki var margt vel gefið og
naut sín sem bóndi. Hann var
áhugamaður um fólk og fræði,
fróðleiksfús eins og fólkið hans.
Hann var afar barngóður og
börn löðuðust að honum. Börn-
in mín hlökkuðu alltaf til að
fara í Laugaból á sumrin og
þeim var sannarlega vel tekið.
Óttar sonur minn átti því láni
að fagna að Haukur réð hann í
kaupavinnu aðeins 13 ára
gamlan, sumrin urðu þrjú.
Nú hefur frændi minn kvatt,
ég er þakklát fyrir að hann var
hér.
Hjördísi, börnum þeirra
Hauks og fjölskyldum þeirra
votta ég samúð mína.
Svana.
Haukur
Tryggvason
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA KOLBRÚN
JÓHANNESDÓTTIR,
Breiðavík 27,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 15. október.
Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jón Edward Wellings
Jóhannes Jónsson Guðrún Á. Guðjónsdóttir
Ragnheiður K. Jónsdóttir Einar G. Skúlason
Helena Dröfn Jónsdóttir Árni Bragason
Petrína G. Jónsdóttir Vigfús Vigfússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KRISTÍN BJARNADÓTTIR,
Suðurgötu 16, Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 9. október.
Minningarathöfn fer fram frá Dómkirkjunni
24. október klukkan 15.
Ragnhildur Thorlacius
Steinunn Thorlacius Guðjón Ingi Eggertsson
Gunnlaug Thorlacius Sigurjón Halldórsson
Eggert Thorlacius Stefanía Guðmundsdóttir
Halla Thorlacius Sveinbjörn Þórkelsson
Móðir okkar,
ÁSTRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Meistaravöllum 15,
Reykjavík,
er látin.
Guðrún Ingibjörg Gunnarsdóttir
Helga Gunnarsdóttir
Ásta Kristín Gunnarsdóttir
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma, langamma og langalangamma,
MARGRÉT INGIBJÖRG
SIGURJÓNSDÓTTIR,
Fróðengi 5, 112 Reykjavík,
lést á Landspítalanum 30. september
síðastliðinn.
Útförin fór fram frá Fossvogskapellu í kyrrþey að ósk hinnar
látnu miðvikudaginn 10. október. Okkar innilegustu þakkir til
allra sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug.
Guðfinna María Björnsdóttir Björn Grétar Sveinsson
Þóra Guðbjörg Björnsdóttir
Birna Björnsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu
okkur kærleik og hlýhug við andlát og útför
elsku móður okkar, tengdamóður, ömmu,
dóttur, systur og mágkonu,
INGIBJARGAR ÆVARSDÓTTUR.
Guð blessi ykkur.
Ólafur Haukur Arnarson Sunna Valdimarsdóttir
Heiðbjört Arnardóttir Grímur R. Lárusson
Telma Rós Ingibjargard. Hafþór A. Sigrúnarson
Hallgrímur Ævar Kristjánsson
Heiðbjört Hallgrímsdóttir Ævar Kristinsson
Hallgrímur Ævarsson Hrönn A. Björnsdóttir
ömmubörn og frændsystkini
Ástkær faðir minn, bróðir og frændi,
ÞORSTEINN SIGURÐUR JAFETSSON
sjómaður,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
14. október. Hann verður jarðsunginn frá
Garðakirkju þriðjudaginn 30. október
klukkan 13.
Jafet Örn Þorsteinsson
Ingibjörg Guðrún jafetsdóttir
Ingunn Ragna Sævarsdóttir