Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 35

Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 vinur vina þinna og elskaðir eyj- una þína. Þú hafðir engan skilning á að börnin þín bjuggu ekki öll í Eyjum. Eins og þú sagðir, hér er gott að vera, og næg atvinna fyrir alla sem nenna að vinna. Hvað vill fólk meira? Þú kenndir mér að vera sjálf- stæð, standa á eigin fótum, berj- ast fyrir því sem ég hef trú á. Koma jafnt fram við alla og bera virðingu fyrir fólki. Þetta eru mannkostir sem ég hef reynt að lifa eftir og bera áfram til barna minna. En elsku pabbi! Þú sagðir oft að þú þyldir ekki þegar fólk væri lof- að í hástert aðeins vegna þess að það var komið yfir móðuna miklu. Því verð ég að segja satt og rétt frá. Þú varst ansi litríkur karakter og ekki allra. Þú sagðir hlutina umbúðalaust, sama hvort þeir væru jákvæðir eða neikvæðir. Þú varst harðstjóri, en sanngjarn, gerðir miklar kröfur til fólksins í kringum þig og afskaplega óþolin- móður. Ekkert gerðist nógu hratt! En með ákveðni, trú og úrræða- semi gast þú framkvæmt ótrúleg- ustu hluti. Elsku pabbi! Góða ferð! Þú kyssir mömmu frá mér og treysti ég því sem þú lofaðir að þú munir vaka yfir okkur um ókomna fram- tíð. Þín Ingibjörg R. Bjarnadóttir. „Ég get sagt þér það, Halldór minn, ef ég væri yngri, þá myndi ég …“ Þannig hófust margar sam- ræður okkar á seinni árum. Bjarni, athafnamaður af guðs náð, alltaf með hugmyndir, skoðanir og ósk um að framkvæma. Bjarni var „original“, kom til dyranna eins og hann var klædd- ur. Hann talaði hreina og bein- skeytta íslensku þar sem enginn var í vafa um hvað hann meinti, en það var aðdáunarvert að hann tal- aði með sama hætti til allra hárra sem lágra. Hann var í eðli sínu skipstjóri, stjórnandi sem vildi stýra og gefa fyrirmæli. Persóna sem gat verið hrjúf á yfirborðinu en var í raun góðhjartað ljúf- menni. Karakterum eins og Bjarna fer fækkandi og ég þakka fyrir að hafa verið svo lánsamur að hafa kynnst honum. Vestmannaeyjar hafa þróast og dafnað m.a. fyrir tilstuðlan manna eins og Bjarna. Hann var gall- harður Eyjamaður, sem barðist fyrir hag Eyjanna alla tíð, bæði sem einn af meiri athafnamönn- unum á sínum tíma, og fyrir hag sjúkrahússins á seinni árum. Bjarni var mikill fjölskyldu- maður og var svo lánsamur að giftast Dóru sinni og eignast með henni stóran hóp afkomenda. Samband Bjarna og Ingibjargar, konu minnar, var sérstakt og í þau 20 ár sem við höfum búið saman hefur varla liðið sá dagur sem þau hafa ekki verið í símasambandi, þrátt fyrir að við höfum meira og minna búið í Danmörku undanfar- in 16 ár. Bjarni var frábær afi og börnin okkar sáu ekki sólina fyrir „afa Bjarna“ og hann sá ekki sól- ina fyrir þeim. Það var alltaf til- hlökkun og ævintýraljómi að koma til Eyja, til afa og ömmu. Fara í Þorlaugargerði og taka þátt í frístundabúskapnum, hey- skapnum, gefa rollunum og hest- unum, keyra bryggjurúnt o.s.frv. Enda svo í veislu á Heiðarvegin- um meðan Dóru naut við. Alltaf blíða í Eyjum og það er lens, var hans staðlaða mat á veðrinu fyrir Herjólf. Bjarni var tíður gestur hjá okk- ur í Danmörku og það var alltaf jafn frábært að hafa hann inn á okkar heimili. Ingibjörg og strák- arnir stjönuðu við hann í hvert sinn og hann kunni ákaflega vel við sig hjá okkur. Bjarni kom til okkar í síðasta sinn í maí sl. til að taka þátt í fermingu Hákons Inga. Þá var Bjarni orðinn heilsulaus og átti erfitt með gang. Hann ætlaði sér hins vegar ekki að missa af þessu og það var lýsandi dæmi um viljann og baráttuna að honum tókst að láta þann draum rætast, þrátt fyrir aðstæður væru honum ekki í hag. Ég kveð með söknuði Bjarna tengdaföður minn. Bjarni minn takk fyrir allt og allt! Ég bið góðan guð að taka vel á móti þér í himna- ríki þar sem ég vona að þú samein- ist Dóru þinni á ný. Halldór Arnarson. Ungur var ég þegar leiðir okk- ar Bjarna lágu saman eftir gos á eyjunni sem Bjarni unni. Bjarni rak útgerð og var virtur atvinnu- rekandi í Eyjum. Ég vann þá hjá Flugfélagi Íslands og kallaði hann mig oft til vinnu á kvöldin. Þá þurfti að vinna fisk fram eftir kvöldum og um helgar. Eyja- menn, rétt eins og Bjarni, eru dugnaðarfólk og vissu að margar hendur vinna létt verk. Tíminn leið en okkur Bjarna var ávallt vel til vina. Ég lærði mikið af honum og hann sá, rétt eins og ég, að atorkan er það sem máli skiptir þegar viðskipti eru annars vegar. Að hafa ungur unn- ið með manni eins og Bjarna, sem síðar varð tengdafaðir minn, var mikill skóli og þroskaðist ég og lærði tökin þegar kom að útgerð og fiskverkun. Þarna rak Bjarni í raun stoðir undir þá vegferð sem leiddi til að ég fór og sérhæfði mig í því námi sem hann lagði grunn að. Af þeim árum sem við fjöl- skyldan bjuggum og ég starfaði á Bretlandi var heimili Bjarna og Dóru skjöl barna okkar Sillu, þar fengu þau að reyna sig og kynnast Vestmannaeyjum, ömmu og afa sem og öðrum frændsystkinum. Það var ómetanlegt og minning sem lifir. Ekki má gleyma því að heimili þeirra hjóna var einnig skjól fyrir dóttur Sillu, hana Dóru Björk sem átti hjá þeim sitt annað heimili og skjól. Hlýja og um- hyggja þeirra hjóna gagnvart okkur öllum umlukti okkur þótt fjarlægðin væri oft mikil. Heimili þeirra var okkar heimili í Heima- ey. Bjarni var ávallt tengdur út- gerð eins og margir í Eyjum. Hann var einnig tómstundabóndi og hafði afskaplega mikla ánægju af að umgangast hesta, ær og ann- an búfénað. Fékk hann mann oft til að smala og þindarlaus hljóp maður tindahlaup í Eyjum löngu fyrir tíð þeirra hlaupagarpa sem það stunda í dag. Það hefur svo sannarlega hjálpað til að maður hefur meiri orku í dag en annars væri. Á síðustu æviárum sínum bjó hann hjá okkur Sillu í Kópavogi þegar hann leitaði m.a. eftir heil- brigðisþjónustu á höfuðborgar- svæðinu. Sá tími nýttist okkur öll- um vel til að eiga þessar síðustu stundir saman og efla andann með umræðum um heimsins gagn og nauðsynjar. Við Bjarni náðum vel saman og óhætt er að segja að hann hafi verið orðinn saddur líf- daga og af hógværð tjáði mér það að nú væri hann sáttur, sæll og glaður til að yfirgefa þennan heim fyrir annan betri hjá henni Dóru sinni. Börn okkar Sillu, Dóra Björk, Sara, Arna Sif og Sighvatur, sakna þeirra beggja. Svona er gangur lífsins og þau þroskast með þeirri reynslu sem felst í því að kveðja. Óhætt er að segja að þau njóti minninganna sem veita þeim hlýju alla tíð. Nú kveðjum við þennan mæta mann og söknuður okkar er mikill. Hann var góðmenni, vinur vina sinna og þeirra sem eru minni máttar. Blessuð sé minning þín Bjarni. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Páll Sveinsson. Bjarni var litríkur og skemmti- legur karakter. Stór, mikill og ákveðinn maður sem á yfirborðinu virtist harðari en raun bar vitni. Undir niðri var hann þessi mjúki maður sem mátti ekkert aumt sjá og var stöðugt tilbúinn að rétta hjálparhönd og passaði vel upp á sína. Þegar ég kom í fyrsta skiptið á heimili hans og Dóru í Eyjum var fyrsta spurning mín hver hefði átt stórafmæli. Ástæðan var sú að um allt hús voru blómavasar með rauðum rósum. Hinni útskýrði þá fyrir mér að það væri árlegt uppá- tæki pabba síns að færa Dóru rós fyrir hvern mánuð sem liðinn var frá því að hann „valdi rétt“. Þarna voru liðin níu ár frá því að hann hafði hætt að drekka og rósirnar því orðnar 108 talsins sem hann færði henni þetta árið. Mjög lýsandi fyrir það hversu stórtækur hann var og hjá honum var alltaf lifað eftir mottóinu „að hika er sama og tapa“. Það var mikill erill á heimilinu á Vinnslustöðvarárunum og naut hann sín vel um helgar í Þorló úti að stússast í hestunum og rollun- um og fékk þá útrás fyrir bóndann í sér. Fyrir barnabörnin var draumur að fá að vera með afa úti á túni, fara á hestbak og fara svo inn til ömmu sem alltaf var klár með eitthvað nýbakað. Við náðum vel saman og hafði ég gaman af því hversu hreinn og beinn hann var og dugði ekkert annað en að svara honum í sömu mynt og því kunni hann vel. Ég var um tvítugt og við á leið á aðalfundarhóf SÍF og Bjarni kom til dyra á hótelherbergi þeirra hjóna, leit á mig og sagði: „Það hefur nú ekki kostað mikið efnið í þennan kjól.“ Mjög lýsandi fyrir Bjarna, sem lét allt flakka órit- skoðað. Hann lá ekki á skoðunum sínum og oft gustaði í kringum hann þegar hann lét í sér heyra um málefni sem honum þóttu mik- ilvæg og fékk hann oft orð í eyra frá konu sinni, sem var öllu var- færnari í máli. Alltaf bar hann hag Eyjanna fyrir brjósti, hvort sem það var að tryggja að kvótinn héldist í Eyjum þegar þau seldu hlut sinn í Vinnslustöðinni, að sjúkrahúsið væri sem best búið eða hvernig bæta mætti aðbúnað aldraðra þar. Bjarni bar mikla virðingu fyrir Dóru sinni og var honum virkilega erfitt að sjá á eftir henni í lok árs 2007. Þau voru vissulega mjög ólík hjón og eftir fráfall hennar varð fjölskyldunni betur ljóst að hún hafði átt fullt í fangi með að tempra framkvæmdagleði hans. Hann var framkvæmdamaður mikill og fékk endalausar hug- myndir og því gott að eiga maka sem fékk hann til að staldra örlítið við áður en farið var af stað. Hann var mikill fjölskyldumaður og var aldrei ánægðari en þegar öll fjöl- skyldan safnaðist saman í Eyjum. Börnunum okkar sýndi hann allt- af mikla væntumþykju og fékk ég ómetanlegan stuðning og hlýju frá honum fyrir ári þegar ég þurfti að gangast undir stóra aðgerð. Þó að heilsan hjá honum gæfi eftir síð- ustu ár var hugurinn fullur af eld- móði. Ferðin til Lemvig í ferm- ingu Hákonar í maí sl. sýndi það að hann lét ekkert stoppa sig þeg- ar hann hafði tekið ákvörðun. Heilsan tæp en þegar við ræddum hvort hann treysti sér í verkefnið þá var svarið: „Mér er alveg sama þótt ég drepist í Danmörku.“ Þetta gekk þó allt framar björt- ustu vonum og naut hann sín vel þar í faðmi fjölskyldunnar og við glöð að fá að njóta með honum þessarar ferðar sem við óttuðumst þó að væri hans síðasta. Ég er þakklát fyrir hann sem tengdapabba og megi hann nú hvíla í friði og minningarnar okkar lifa um ókomna tíð. Anna Jónína. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til afa Bjarna, hvort sem það var á Heiðarvegi hjá afa og ömmu Dóru, Þorlaugargerði, Baldurshaga eða jafnvel á elló. Það var alltaf nóg að gerast hjá afa og var það sjaldan sem manni leiddist að vera með honum. Þegar við vorum yngri var það hin fullkomna blanda að fara til Eyja til ömmu og afa, að dúllast með ömmu tímunum saman og síðan eltandi afa út um öll tún og alltaf voru búin að bætast við ný dýr sem hann þurfti að sinna. Við eigum fullt af skemmtileg- um minningum um afa og var í miklu uppáhaldi þegar við vorum yngri að rúnta um eyjuna á bláa bílnum hans, skemmtilegast var þegar við vorum allt upp í sex frændsystkinin og sátum í hrúgu saman aftan á pallinum og var ekkert mikið verið að huga að beltum. Afi bjó stundum til sínar eigin reglur sem voru aðeins hent- ugri en aðrar, enda ekkert mikið fyrir það að hlusta á aðra. Maður velti því stundum fyrir sér hvort afi þekkti bókstaflega alla í Vest- mannaeyjum þar sem hann heils- aði öllum sem urðu á vegi hans meðan á rúntinum stóð. Afa Bjarna verður sárt saknað og erum við þakklátar fyrir að hafa átt svona æðislegan afa sem hugsaði alltaf vel um mann. Björg Hulda, Birgitta Hrönn og Alexandra Sif. Elsku afi minn, ég er svakalega þakklát fyrir allar minningarnar sem ég á um þig. Það eru ekki margir viðburðir í mínu lífi sem við höfum ekki notið saman og sakna ég þess mikið að hafa þig ekki hjá mér áfram. Þú gekkst með mér inn kirkjugólfið þegar ég gifti mig, þú varst einn af þeim fyrstu til að sjá börnin mín eftir fæðingu og þú tókst þátt í öllum stóru dögunum í mínu lífi. Við vorum ekki alltaf sammála en gátum alltaf verið sammála um að vera ekki sammála. Þegar við tókum slagina og vorum farin að æsa okkur aðeins of mikið sagðir þú alltaf: „Jæja, Dóttla mín, ertu ekki hress?“ Þá vissi maður að nú myndum við taka upp léttara hjal. Þú lést mig alltaf vita ef þú varst óánægður með eitthvað sem ég gerði en þú varst líka óspar á hrósið þegar þér fannst ég standa mig vel. Þú varst krökkunum mínum mikill og góður afi sem fylgdist ótrúlega vel með þeim verkefnum sem þau voru í og þá sérstaklega íþróttunum. Þú lést peyjana heyra það þegar þér fannst árangurinn ekki nægilega mikill og sagðir þá: „Hvaða aumingjaskapur var þetta í ykkur að tapa þessum leik?“ Stóru strákarnir mínir voru oft með þér uppi í Þorlaugargerði að vesenast í lömbum, hænum, hey- skap eða girðingum þar sem regl- urnar hans afa voru þær einu sem voru í gildi. Ég fór yfir það með þér að ég vildi ekki að strákarnir væru uppi á pallinum á bílnum hjá þér og sagðir þú að þeir væru aldrei þar en næst þegar ég mætti ykkur sátu þeir brosandi á pall- inum og þú vissir að þú hefðir nú verið gripinn í landhelgi. Ég þekkti gleðina í strákunum varð- andi þessa samveru því ég fékk að vera mikið mér þér í sveitinni að brasa þegar ég var yngri. Uppátækin þín eru óendanlega mörg og mörg brosleg eins og þegar þú komst allur blár heim til mín eftir að hafa verið að reyna að merkja hænu sem var að leggja aðrar í stofninum í einelti eða þeg- ar þú tengdir bílasímann við flaut- una í bílnum þannig að það var ólíft í kringum bílinn fyrir hávaða því síminn var alltaf að hringja. Þú fékkst mikið af góðum hugmynd- um sem þú komst í verk og er óhætt að segja að þú hafir verið lausnamiðaður og horfðir yfirleitt á vandamál sem verkefni sem auð- velt væri að leysa. Við ræddum oft hugmyndir þínar með að fá hænur eða kött á Hraunbúðir sem gæti stytt heimilisfólkinu stundirnar og gátum við ekki verið sammála um að þessu myndu fylgja töluverð vandamál því þú varst með lausnir við öllum mínum áhyggjum. Þú passaðir alltaf mjög vel upp á mig og eru mikil forréttindi að hafa verið elsta barnabarnið þitt, þú brostir alltaf þegar ég sagði við SJÁ SÍÐU 36 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR HANNA SIGURÐARDÓTTIR, Njarðarvöllum 6, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fimmtudaginn 11. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 23. október klukkan 13. Árni Júlíusson Anna Birna Árnadóttir Arnar Ingólfsson Sigurður Einar Árnason Ásborg Guðmundsdóttir Ingvar Örn Árnason Sonya Árnason og barnabörn Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SKÚLI HEIÐAR ÓSKARSSON bifreiðarstjóri, lést á Landspítalanum 14. október. Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 23. október klukkan 15. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild A4 á Landspítala sem annaðist hann af alúð. Kristín Friðriksdóttir Sigrún Ragna Skúladóttir Jónas Þór Kristinsson Ragnhildur Skúladóttir Andrés J. Snorrason Anna María Skúladóttir Hálfdan Þorsteinsson Óskar Dan Skúlason Dísa Friðleifsdóttir Ólafur G. Skúlason Svanhvít Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF SIGFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR frá Þórshöfn á Langanesi, Gullsmára 5, Kópavogi, lést sunnudaginn 14. október á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 26. október klukkan 13. Sigurður G. Jónsson Hafþór Sigurðsson Sangduan Wangyairam Örn Sigurðsson Lilja Sigurðardóttir Þorsteinn Marinó Gunnarsson Aðalheiður Jóna Sigurðard. barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR SIGURÐSSON, fv. forseti Alþýðusambands Vestfjarða, andaðist sunnudaginn 14. október. Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. október klukkan 15. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 27. október klukkan 14. Þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess. Hjördís Hjartardóttir Sigurður Pétursson Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Edda Pétursdóttir Bergsteinn Baldursson og afabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.