Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 45

Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is P22 Hönnun: Patrick Norguet Armstóll með eyrum Leður verð frá 569.000,- Skemill Leður verð frá187.000,- Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Dagurinn hentar vel til skemmtana og tilhugalífs. Allir ættu að eiga einn vin eins og þig. Þú kannt listina að gleðja og hrósa fólki. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú er full/ur samúðar í garð sam- starfsmanns og vilt gjarnan koma honum til hjálpar. Velgengni bíður þín handan horns- ins. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Með örlítilli fyrirhyggju ættir þú að geta sveigt atburðarásina þér í hag. Ekki hafa áhyggjur af því að þurfa að sanna þig. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þið ættuð ekki að hika við að beita gömlum ráðum gegn nýjum vandamálum. Búðu þig undir harða samkeppni í vin- sældakeppni heima fyrir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú vekur athygli annarra og finnst notalegt að láta hana leika um þig. Gefðu vinum tíma og ræktaðu sambandið við þá. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Einhverjar breytingar eru að verða á vinnustað þínum og þú munt nú hljóta ár- angur erfiðis þíns. Þér finnst eins og gamall vinur strá salti í sárin. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert á miklum þeytingi í dag og get- ur ekki treyst á skammtímaminnið að halda öllu til haga. Þeir sem halda að þú gleymir auðveldlega munu komast að hinu sanna fljótlega. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það getur komið sér vel að eiga trúnaðarvin sem getur deilt með þér bæði gleði og sorg. Þú hugsar þig ekki tvisvar um þegar þú færð tilboð um nýja vinnu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú færð allan þann stuðning og hjálp, sem þú þarft, ef þú vilt knýja fram breytingar í vinnunni í dag. Láttu það eftir þér að gleyma þér í áhugamálinu. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú ert í góðri aðstöðu til að taka ákvarðanir og fá fólk til fylgis við þig. Ekki láta leti annarra fara í skapið á þér heldur kláraðu verkið bara sjálf/ur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er óráðlegt að láta skapið hlaupa með sig í gönur þótt hlutirnir gangi ekki sem best. Þú ættir að hvíla þig betur næstu vikurnar en þú hefur gert und- anfarið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Af hverju eru þessi fiðrildi að kitla þig? Rómantíkin liggur í loftinu. Allir þurfa ást og allir eru færir um að gefa hana. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Þetta bil á bolla er. Báðum megin hefur fat. Víða sést á húsum hér. Haft er líka undir mat. Guðrún Bjarnadóttir svarar: Borð er á bolla og norð- urborð stórt á kökufati, í húsi með bandsöguð borð, á borði hjá matargati. Helgi R. Einarsson á þessa lausn: Lausnarinnar leita að, litlu földu orði, en hvert það er, ja, það er nú það, því ekki að borði. Helgi Seljan leysir gátuna þannig: Borð er oft á bolla hér, borð er yzt á fötum víst. Úr borðviði oft byggjum vér, á borðið hlaðið krásum líst. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Þetta borð á bolla er. Borð að sönnu hefur fat. Borð sjást víða á húsum hér. Haft svo borð er undir mat. Þá er limra: Björn skipstjóri frá er fallinn, er fór hann um borð í dallinn fyrir borð, ég á ekki orð álpaðist blessaður kallinn. Og að síðustu ný gáta eftir Guð- mund: Lít ég út um ljóra minn, ljósið góða flæðir inn skírast þankann fljótt ég finn, fangar gátu hugurinn: Hæð á landi líta má. Legstaður nú blasir við. Oft má finna fjósi hjá. Fjarska latt er mannkertið. Árni Björnsson sendi mér tölvu- póst og leiðrétti mig í Vísnahorni á fimmtudag: „Revían Haustrign- ingar var sýnd árið 1925 og varla hefurðu verið farinn að hlaupa um Laugaveginn á því méli.“ Ég þakka Árna og bið lesendur afsökunar. Síra Jón Brynjólfsson Háfshól orti um Metu-Gísla: Herra Gísli harðar píslir þoldi undir hríslu allsnakinn, Árnessýsluböðullinn. Þetta þóttu góð tíðindi: Er nú sagður andaður, - ævidaga fullsaddur – öldungurinn Andskoti, óðalsbóndi í Helvíti. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Vertu meiri á borði en í orði Í klípu „ÞÚ VARST FYRIR ÚTGANGINUM. SETTU SJÁLFAN ÞIG Í FÓTSPOR ÞEIRRA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KÆRA DAGBÓK, GAMLI NÍSKUPÚKINN GLEYMDI AÐ GEFA MÉR VASAPENINGA AFTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vita að það sé hann áður en þú svarar. ÞETTA ER Í LAGI, GRETTIR… ÉG SAUMAÐI INNVOLSIÐ AFTUR Í BANGSANN ÞINN MIKIÐ ERTU MEÐ FLOTT ÖR, PÚKI AFSAKAÐU, LÚTUR… EN KANNT ÞÚ EINHVER FERÐALÖG? Ó JÁ! SVO ÞÉR VÆRI SAMA ÞÓTT ÞÚ SPILAÐIR EINHVERS STAÐAR ANNARS STAÐAR? Ari Eldjárn er einn besti grínistilandsins. Í spjallþætti Loga Bergmanns Eiðssonar, Með Loga, fór Ari á kostum í einlægu viðtali. Ari er ófeiminn við að gefa innsýn í hvernig hann vinnur og afhjúpa hvernig hann fer að því að herma eft- ir fólki. Ugglaust eiga þeir sem hafa hug á að feta í fótspor Ara eftir að horfa á þennan þátt með mikilli at- hygli og jafnvel oftar en einu sinni. x x x Víkverji hefur oft velt því fyrir sérað það hljóti að vera erfitt að vera uppistandari á gervihnattaöld. Tilvist hinna ýmsu vefmiðla og sú staðreynd að hver einasti maður er með fullkomna upptökuvél í vas- anum, sem nota má til að taka upp og setja efni á netið á augabragði, gerir að verkum að ítrekað þarf að endur- nýja efni og brandarar verða nánast einnota. x x x Menn eiga misjafnlega auðveltmeð að herma eftir öðru fólki. Jóhannes Kristjánsson eftirherma er í sérflokki í þeim efnum. Hann nær Guðna Ágústssyni það vel að vart má á milli heyra hvor er orgin- allinn. Sú saga hefur verið sögð að Guðni Ágústsson hafi einhverju sinni hringt heim til Jóhannesar og verið sagt að hætta þessu gríni og drífa sig heim. x x x Það var athyglisvert að heyra Aralýsa því þegar hann ákvað að gera Bubba Morthens að viðfangs- efni. Hann sagði að það hefði verið auðvelt að fara þá leið sem margir hefðu gert að gera grín að lesblindu söngvarans, en honum hefði ekki hugnast það. Víkverji er ekki með orðalag Ara í kollinum, en inntakið í orðum hans var að Bubbi gæti ekki að því gert að hann væri lesblindur. Það væri fyrir neðan beltisstað að gera sér mat úr því og hann vildi ekki leggjast svo lágt. x x x Þetta er kannski ástæðan fyrir ár-angri og velgengni Ara. Hann hefur frábært auga fyrir hinu skop- lega og það er ekki vottur af illkvittni í gríninu hjá honum. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn er góður, athvarf á degi neyðarinnar, hann annast þá sem leita hælis hjá honum. (Nahúm 1.7)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.