Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 46

Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Nokkru áður en sýningargestirnir drepa niður fæti á Listasafni Reykja- víkur – Kjarvalsstöðum eru þeir komnir á Róf, yfirlitssýningu á verk- um myndlistarmannsins Haraldar Jónssonar. Sýningin, sem verður opnuð kl. 16 í dag, laugardag, teygir sig nefnilega á milli húsa við Flókagötuna og með hljóðinnsetningu út á leikvelli í grenndinni. Og víðar. Titilverkið, „Róf“, blasir við í gluggum nágrann- anna; rauðar, gular og appelsínu- rauðar strimlagardínur. „Ég gekk hér um eina kvöldstund í haust, bankaði upp á hjá fólki, spurði hvort það vildi taka þátt í mynd- listarverki og sýndi því litaprufur. Valið stóð á milli þriggja lita. Hug- myndin er svolítið eins og þekkist þegar byggingar eru lýstar upp í ein- hverjum lit í þágu góðs málstaðar. „Þó það nú væri“, svöruðu íbúarnir erindinu eins og ekkert væri sjálf- sagðara,“ segir Haraldur og bætir við að vitaskuld lesi fólk út úr listaverk- um eins og því sýnist. Myndlistin sé af sama meiði og ljóð að því leytinu. Sýningin spannar tæplega 30 ára feril Haraldar í myndlist og er henni ætlað að draga fram sérstöðu hans í íslensku listalífi. Sýningin er jafn- framt hluti af því markmiði Lista- safns Reykjavíkur að rannsaka og kynna feril mikilsverðra starfandi listamanna. Í tengslum við Róf hefur safnið gefið út veglega sýningarskrá og fylgir sýningunni eftir með viða- mikilli dagskrá. Að skynja og greina umhverfið „Leiðarstefið á sýningunni er að virkja sem flest skynsvið, safnbygg- inguna sjálfa og þar um kring og ekki síst arkitektúr hugans; hvernig við skynjum og greinum umhverfið, vinnum úr upplifunum í hversdags- leikanum og hvernig við tjáum okkur og eigum samskipti hvert við annað. Í rauninni hef ég verið að vinna að sýningunni í þrjá áratugi, en þó með- vitað bara í eitt ár. Þegar við Markús Þór Andrésson sýningarstjóri fórum að skoða verkin varð mér ljóst að ég vildi enga „vörutalningu“ þar sem öllu ægði saman, heldur langaði mig að eima niður þá þætti sem verk mín eru samsett úr. Tengsl manns og rýmis, vitundar og umhverfis eru lykilþættir, rétt eins og segir í kynn- ingartexta með sýningunni.“ „Eimingin“, eða kjarninn með öðr- um orðum, speglast í ólíkum verkum listamannsins, gjörningum, innsetn- ingum og verkum sem krefjast þátt- töku sýningargesta. „Ég er með marga bolta á lofti, vinn alltaf í mörgum lögum,“ segir listamaðurinn og lofar að lognmollan muni alltént Arkitektúr hugans á Rófi  Yfirlitssýning á verkum myndlistar- mannsins Haraldar Jónssonar verður opnuð kl. 16 í dag í Listasafni Reykja- víkur – Kjarvalsstöðum  Tengsl manns og rýmis, vitundar og umhverfis Listamaðurinn Haraldur Jónsson notar marga miðla í list sinni en rauði þráðurinn er að eima tilveruna. Eitt titrandi tár Öfganna á milli Tónlistin við Mandy ber sterk höfundareinkenni Jóhanns. Rotten Tomatoes. Jóhann sníður sér stakk eftir vexti en leitar þó fanga giska víða tónrænt séð. Upphafs- stefið er kaldranalegt og óttalegt, eitthvað hræðilegt gefið í skyn og maður spennist upp – ekki ósvipað því hvernig hann leiddi mann inn í Sicario. En svo kemur ástartema myndarinnar, sem er sígildur mel- ankólískur og melódískur Jóhann; hlaðið þessari ægifegurð sem hann hefur sýnt okkur í svo mörgum verka sinna. Tónlist sem stingur, maður heyrir strax að þetta er Jói, og bara þetta stef er sönnun á ein- stæðum hæfileikum þessa drengs. Tár myndast á hvarmi er maður rit- ar þetta. Skúli Sverrisson á stórleik hér en einnig koma þeir Úlfur Eld- járn og Kjartan Hólm við sögu á plötunni. Er líður á verkið beitir Jóhann fyrir sig rokkstemmum, en þann jarðveg þekkir hann mætavel og eiginlega inn og út. Hann leikur sér með „industrial“-tónlist, potar í gotamenninguna og hyllir fagur- fræði svartþungarokksins (sem er undirstrikað með umslagi vínyl- útgáfunnar). Harðneskja rokksins leikur jafn vel í höndum hans og blíð stef ástartemans. Það var enginn au- kvisi sem hjálpaði Jóhanni að dýrka fram ólgandi ægilegt rokk, en Stephen O’Malley, sem leiðir drun- rokkssveitina ógurlegu Sunn O))), sá um gítarleik og upptökustjórnand- inn Randall Dunn lagði einnig gjörva hönd á plóg. Mandy var engan veginn bara næsta mynd; Jóhann hafði hrifist af fyrstu mynd leikstjórans Panos Cosmatos, Beyond The Black Rain- bow, og hvernig Cosmatos nýtti sér hljóðmyndina þar. Mandy er því á vissan hátt gæluverkefni, mynd sem æsti upp listamanninn í Jóhanni og að því leytinu til fínasti endapunktur á ævintýrum hans í kvikmyndalandi. Það er huggun harmi gegn, að ein- hverju leyti, að blessunarlega getum við gengið að tónlist Jóhanns áfram, þó að höfundurinn hafi kvatt okkur í þessari tilvist. Og ég vona svo inni- lega að mér muni gefast frekari tækifæri í framtíðinni til að stinga niður penna um þennan snilling. Þess má geta að lokum að eftir viku verða minningartónleikar í Iðnó helgaðir Jóhanni. Miða má nálgast í 12 tónum og rennur aðgangseyrir óskiptur í hinn nýstofnaða sjóð The Johann Johannsson Foundation. » Tónlist sem stingur,maður heyrir strax að þetta er Jói, og bara þetta stef er sönnun á einstæðum hæfileikum þessa drengs. Síðasta kvikmynda- tónlistin sem Jóhanni Jóhannssyni auðnaðist að ljúka fyrir ótímabært andlát sitt er við hasar- hryllinn Mandy. Hér er rýnt í verkið og um leið listfengi Jóhanns. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Mig langaði til að setja niðurnokkur orð um tónlistar-manninn Jóhann Jóhanns- son sem fór allt of fljótt frá okkur í febrúar á þessu ári. Meginefni þessa pistils er tónlist hans við kvikmynd- ina Mandy, sem er nýútkomin, síð- asta verk hans á því sviði. Ég hef verið að skrifa um Jóhann Jóhanns- son allan minn tónlistarblaðamanns- feril en á undanförnum árum snaraði ég upp nokkrum greinum sem fjöll- uðu um uppgrip hans á sviði kvik- myndatónlistarinnar, en það var á við sæmilega spennandi Hollywood- mynd að fylgjast með þeirri vegferð. Frami hans í þeim geiranum laut öruggri stígandi, hægri en mark- vissri, og óx aðdáunin á honum um heim allan stöðugt. Tvö verk hnykktu reglulega á hvað þetta varðaði; tónlist hans við myndirnar Sicario og Arrival, sem bera með sér hárnákvæma blöndu af listrænni sýn og því sem kalla mætti þjónustu við kvikmyndaformið. Jóhanni var að takast það sem fáir ef nokkrir leika eftir; að ná að samþætta eigið list- fengi þessu stundum heftandi formi. Alþjóðlegir kollegar í þessum bransa fylgdust með í forundran er Jóhann reyndi æ meira á þanþol þessarar listar og Guð einn veit hvaða stöðu hann hefði komist í hefði hann fengið meiri tíma til að þróa sig þarna. Mandy er blóðugur hasarhryllir með Nicolas Cage í burðarrullunni og hefur fengið lofsamlega dóma, stendur í 94% í dómasafnssíðunni Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Ókeypis aðgangur á greiningarsýningu í Myndasal Síðasta sýningarhelgi Prýðilegra reiðtygja í Bogasal Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Alfreð D. Jónsson – Hver er á myndinni? Greiningarsýning í Myndasal Hjálmar R. Bárðarson – Aldarminning á Vegg Prýðileg reiðtygi í Bogasal Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sunnudagur 21.10. Plastóperan - fyrir börn og fullorðna kl. 14 og kl. 16 Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.