Morgunblaðið - 20.10.2018, Qupperneq 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
ekki svífa yfir vötnum á sýningunni.
Elsta verkið, „Mót“, er frá út-
skriftarári Haraldar í Myndlista- og
handíðaskólanum 1987 áður en hann
hóf nám í Listaakademíunni í
Düsseldorf þaðan sem hann útskrif-
aðist með meistaragráðu 1990.
„Mér hefur alltaf þótt „Mót“ gefa
tóninn fyrir það sem síðar kom, en
verkið er skúlptúr úr samsettum
furuborðum og haldið saman með
járnteini. Með því að taka teininn úr
leysast formin upp og skúlptúrinn
breytist.“
Brot úr stefnuljósum
Aðspurður segir Haraldur að
áhugi sinn á myndlist hafi kviknað
þegar hann var smástrákur. „Ég ólst
upp í mjög örvandi og skapandi um-
hverfi og lærði að lesa, skrifa og
reikna hjá afa mínum, Haraldi
Björnssyni, sem var bæði leikari og
kennari. Fyrir vikið hljóp ég yfir
bekk og hafði sú ráðstöfun mjög af-
gerandi áhrif á líf mitt og skynjun.
Þegar ég var sjö eða átta ára varð ég
vitni að árekstri tveggja bíla í hverf-
inu mínu. Ég kom að þar sem lög-
regluþjónn var að safna saman brot-
um úr stefnuljósum; sópa saman
fegurðinni, að mér fannst. Á því
augnabliki gerðist eitthvað í hug-
skoti mínu og líkama. Ég heillaðist
gjörsamlega af þessu rými sem
myndaðist þarna milli þess sem er
dramatískt og hafði gerst, en var um
leið rosalega fallegt,“ rifjar Haraldur
upp.
Rétt eftir aldamótin safnaði hann
saman brotum úr stefnuljósum,
gerði úr þeim dágóða hrúgu, setti
hvítan dúk yfir og bjó þannig til inn-
setningu sem var afhjúpuð á opnun
sýningar og byggðist á þessari minn-
ingu og gestir geta nú skoðað á Rófi.
Samskipti fólksins
Við upphaf listferils Haraldar voru
hvorki snjallsímar né samfélags-
miðlar og samskipti fólks því að
mörgu leyti með öðrum hætti en nú
tíðkast. Hann segir að „Róf“, eitt
meginverk sýningarinnar, brúi
ágætlega tvenna tíma. „Strimla-
gardínurnar eru hvort tveggja vísun
í gamla tíma en um leið persónuleg
flettiskilti, svona líkt og auglýs-
ingaflettiskilti, eða skermar, sem
fólk snýr eftir hentugleikum.
Nokkurs konar heimabíó eða mjög
hæg kvikmynd. Mér finnst svona
gluggar mjög áhrifamiklir, þessi
mæri á milli einkalífs og opinbera
rýmisins sem við lifum og hrærumst
í á þessum miklu skermatímum,“
segir Haraldur og á við þann sam-
skiptamáta sem felst í að fólk er sí-
fellt með augun á alls konar skjám.
Haraldur kveðst alltaf hafa notað
ólíka miðla í listsköpun sinni og
tengja gjarnan eldri og nýrri gjörn-
inga í virkjun skúlptúrs, eins og
verði raunin með verkið „Af-
steypur“ tiltekna daga á Rófi. Lista-
verkin spila saman, eldri verk við
ný. Mörg þeirra segist hann gera
með það í huga að skynsvið áhorf-
enda skarist.
„Eitt verkanna, sem tekur á móti
gestum á opnunardaginn, „Blóð-
nám“, sýndi ég upphaflega á sýning-
unni Flögð og fögur skinn í Ný-
listasafninu 1998. Þemað var
líkaminn og þá, eins og nú, dró
hjúkrunarfræðingur blóð úr fólki,
setti í hylki og afhenti viðkomandi
sem minjagrip um verkið og sjálfan
sig. Mig langaði til þess að í stað
þess að áhorfandinn virti fyrir sér
fjarvíddina í verkinu, eins og til
dæmis þegar hann horfir á sum mál-
verk, þá færi verkið inn í áhorfand-
ann í bókstaflegum skilningi. Í sjálfu
sér sáraeinfalt, en margbrotið,“
segir Haraldur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tríó Reykjavíkur býður til tónleika
á morgun, sunnudaginn 21. októ-
ber, kl. 16 á Kjarvalsstöðum til að
minnast þess að í ár eru 30 ár liðin
frá stofnun tríósins. „Þar verða
leikin tvö öndvegisverk tríó-
tónbókmenntanna, tríó eftir J.
Brahms í C-dúr Op. 87 og hið
fræga tríó nr. 2 í e-moll eftir D.
Sjostakovitsj,“ segir í tilkynningu.
Aðgangur er ókeypis og allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleik-
ari, Halldór Haraldsson píanóleik-
ari og Gunnar Kvaran sellóleikari
stofnuðu tríóið á sínum tíma. Hall-
dór starfaði með tríóinu í sjö ár, en
þá tók Peter Máté við og sl. þrjú
ár hefur Richard Simm setið við
píanóið. Tríóið hefur á ferli sínum
leikið víða, bæði innanlands og ut-
an, hélt reglulega tónleika í sam-
vinnu við Hafnarborg í 22 ár, stóð
fyrir tónlistarhátíðinni Bjartar
sumarnætur í Hveragerði um 10
ára skeið og hefur í áratug staðið
fyrir hádegistónleikaröð á Kjarvals-
stöðum í samvinnu við Listasafn
Reykjavíkur.
Öndvegisverk á afmælistónleikum
Tríó Richard Simm, Guðný Guðmundsdóttir og Gunnar Kvaran.
Sinfóníuhljómsveit Menntaskóla í
tónlist heldur tónleika í Neskirkju í
dag kl. 17 og er aðgangur ókeypis.
Á efnisskránni eru fiðlukonsert í
A-dúr eftir W.A. Mozart og sinfónía
nr. 8 eftir Antonín Dvorák. Stjórn-
andi er Sigurgeir Agnarsson.
„Einleikari með hljómsveitinni
að þessu sinni er Ragnheiður Ing-
unn Jóhannsdóttir, sautján ára
fiðlunemi við MÍT. Hún stundar
einnig nám við Menntaskólann í
Reykjavík og lýkur þaðan stúdents-
prófi í vor. Hún hefur sótt fjölda
námskeiða og masterklassa hér-
lendis og erlendis og sótt einkatíma
hjá ýmsum kennurum,“ segir í til-
kynningu. Þar kemur fram að hún
stundi söngnám hjá Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur í MÍT og ljúki framhalds-
prófi í söng í nóvember. „Hún fór
með sigur af hólmi í Söngkeppni
MR í febrúar og keppti í kjölfarið í
Söngkeppni framhaldsskólanna.
Hún lék Kamillu í Kardemommu-
bænum í Þjóðleikhúsinu sjö ára
gömul, hefur tekið þátt í ýmsum
uppfærslum Herranætur og var í
sigurliði MR í ræðukeppni fram-
haldsskólanna, MORFÍs, árið 2016.
Ragnheiður stefnir að burtfarar-
prófi í fiðluleik frá MÍT í vor.“
Ljósmynd/Þórunn Guðmundsdóttir
Skapandi Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir og Sigurgeir Agnarsson.
Verk eftir Mozart
og Dvorák í Neskirkju
Danska ljóð-
skáldið Yahya
Hassan hefur
verið dæmt til
meðferðar á geð-
deild um óákveð-
inn tíma. Þetta er
niðurstaða dóm-
stóls í Árósum, en
mál Hassans var
tekið fyrir í vik-
unni. Politiken greinir frá málinu.
Hassan játaði sök í öllum 42
ákæruliðum, sem tók 25 mínútur að
lesa upp, en hann var m.a. ákærður
fyrir ofbeldisbrot, hótanir, skemmd-
arverk og blygðunarsemisbrot á ár-
unum 2015-2018. Bæði verjandi og
ákæruvaldið fóru fram á að Hassan
yrði dæmdur til meðferðar á geð-
deild, en það var mat dómkvaddra
lækna að Hassan hefði verið „sturl-
aður“ á tímabilinu sem hann framdi
afbrot sín. Frá því Hassan hlaut síð-
ast dóm fyrir tveimur árum hefur
hann níu sinnum lagst inn á geðdeild
vegna ranghugmynda, kvíða og
sjálfsvígshugsuna. Hann hefur setið
í gæsluvarðhaldi vistaður á geðdeild
frá 16. júlí, en samkvæmt dómnum
munu læknar ákveða hvaða meðferð
hann fær, hvenær og hversu lengi.
Dæmdur
í meðferð
Yahya Hassan
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 15:00 Auka Sun 18/11 kl. 13:00 20. s Lau 29/12 kl. 16:00 Auka
Lau 20/10 kl. 18:30 Auka Sun 18/11 kl. 16:00 21. s Sun 30/12 kl. 13:00 26. s
Sun 21/10 kl. 13:00 12. s Lau 24/11 kl. 17:00 Auka Sun 30/12 kl. 16:00 27. s
Sun 21/10 kl. 16:00 13. s Sun 25/11 kl. 14:00 Auka Sun 6/1 kl. 13:00 28.sýn
Sun 28/10 kl. 13:00 14. s Sun 25/11 kl. 17:00 22. s Sun 6/1 kl. 16:00 29.sýn
Sun 28/10 kl. 16:00 15. s Lau 1/12 kl. 14:00 Auka Sun 13/1 kl. 13:00 30.sýn
Sun 4/11 kl. 13:00 16. s Lau 1/12 kl. 17:00 23. s Sun 13/1 kl. 16:00 31.sýn
Sun 4/11 kl. 16:00 17. s Sun 2/12 kl. 14:00 Auka Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn
Sun 11/11 kl. 13:00 18. s Sun 2/12 kl. 17:00 24. s Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn
Sun 11/11 kl. 16:00 19. s Sun 9/12 kl. 14:00 Auka Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn
Lau 17/11 kl. 14:00 Auka Sun 9/12 kl. 17:00 25. s Sun 27/1 kl. 16:00 34.sýn
Lau 17/11 kl. 17:00 Auka Lau 29/12 kl. 13:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 20/10 kl. 19:30 8. s Fim 1/11 kl. 19:30 13.s Fös 16/11 kl. 19:30 17.s
Sun 21/10 kl. 20:00 9. s Fös 2/11 kl. 19:30 12. s Lau 17/11 kl. 19:30 18.s
Fös 26/10 kl. 19:30 10. s Sun 4/11 kl. 19:30 14. s Fim 22/11 kl. 19:30 19.sýn
Sun 28/10 kl. 19:30 11. s Sun 11/11 kl. 19:30 15. s Fös 23/11 kl. 19:30 20.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Ég heiti Guðrún (Kúlan)
Lau 20/10 kl. 17:00 Auka Mið 24/10 kl. 19:30 Auka Lau 27/10 kl. 20:00 12.s
Sun 21/10 kl. 14:00 Auka Fim 25/10 kl. 19:30 11.s Sun 28/10 kl. 14:00 Auka
Sun 21/10 kl. 17:00 9. s Fös 26/10 kl. 17:00 Auka Sun 28/10 kl. 17:00 13.sýn
Þri 23/10 kl. 19:30 10. s Lau 27/10 kl. 17:00 Auka
Barátta konu fyrir því að hafa stjórn á eigin lífi
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 3/11 kl. 19:30 LOKA
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Samþykki (Stóra sviðið)
Fös 26/10 kl. 19:30 Frums Fös 2/11 kl. 19:30 4. s Fös 23/11 kl. 19:30 7. s
Lau 27/10 kl. 19:30 2. s Fim 15/11 kl. 19:30 5.s Fim 29/11 kl. 19:30 8.s
Fim 1/11 kl. 19:30 3. s Fös 16/11 kl. 19:30 6.s Fös 30/11 kl. 19:30 9.s
Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleikhúsinu.
Insomnia (Kassinn)
Fös 9/11 kl. 19:30 Lau 24/11 kl. 19:00 Fös 30/11 kl. 19:30
Mið 14/11 kl. 19:30 Sun 25/11 kl. 19:30
Fim 15/11 kl. 19:30 Fim 29/11 kl. 19:30
Brandarinn sem aldrei deyr
Klókur ertu Einar Áskell (Brúðuloftið)
Lau 20/10 kl. 11:00 Lau 27/10 kl. 13:00 Lau 10/11 kl. 11:00
Lau 20/10 kl. 13:00 Lau 3/11 kl. 11:00 Lau 10/11 kl. 13:00
Lau 27/10 kl. 11:00 Lau 3/11 kl. 13:00
Nokkrar gamlar spýtur og góð verkfæri geta leitt mann inn í nýjan heim
Leitin að jólunum (Leikhúsloft)
Lau 17/11 kl. 11:00 313.s Lau 1/12 kl. 12:30 321.s Fös 14/12 kl. 17:30 329.s
Lau 17/11 kl. 12:30 314.s Sun 2/12 kl. 11:00 322.s Lau 15/12 kl. 11:00 330.s
Lau 24/11 kl. 11:00 315.s Sun 2/12 kl. 12:30 323.s Lau 15/12 kl. 13:00 331.s
Lau 24/11 kl. 13:00 316.s Lau 8/12 kl. 11:00 324.s Lau 15/12 kl. 14:30 332.s
Lau 24/11 kl. 14:30 317.s Lau 8/12 kl. 13:00 325.s Sun 16/12 kl. 11:00 333.s
Sun 25/11 kl. 11:00 318.s Lau 8/12 kl. 14:30 326.s Sun 16/12 kl. 13:00 334.s
Sun 25/11 kl. 12:30 319.s Sun 9/12 kl. 11:00 327.s Sun 16/12 kl. 14:30 335.s
Lau 1/12 kl. 11:00 320.s Sun 9/12 kl. 12:30 328.s
Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 24/10 kl. 20:00 Mið 7/11 kl. 20:00 Mið 21/11 kl. 20:00
Mið 31/10 kl. 20:00 Mið 14/11 kl. 20:00 Mið 28/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Elly (Stóra sviðið)
Sun 21/10 kl. 20:00 159. s Fim 1/11 kl. 20:00 aukas. Fös 9/11 kl. 20:00 164. s
Fim 25/10 kl. 20:00 160. s Lau 3/11 kl. 20:00 163. s Sun 11/11 kl. 20:00 aukas.
Fös 26/10 kl. 20:00 161. s Sun 4/11 kl. 20:00 aukas. Fim 15/11 kl. 20:00 aukas.
Sun 28/10 kl. 20:00 162. Fim 8/11 kl. 20:00 aukas. Lau 17/11 kl. 20:00 165. s
Stjarna er fædd.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:00 13. s Fös 26/10 kl. 20:00 15. s Lau 10/11 kl. 20:00 19. s
Sun 21/10 kl. 20:00 14. s Lau 27/10 kl. 20:00 16. s
Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Fös 2/11 kl. 20:00 17. s
Gleðileikur um depurð.
Dúkkuheimili, annar hluti (Nýja sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:00 16. s Fös 26/10 kl. 20:00 17. s
Fim 25/10 kl. 20:00 aukas. Lau 27/10 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fim 22/11 kl. 20:00 1. s Fös 30/11 kl. 20:00 5. s Fim 13/12 kl. 20:00 9. s
Fös 23/11 kl. 20:00 2. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s Fös 14/12 kl. 20:00 10. s
Lau 24/11 kl. 20:00 3. s Fös 7/12 kl. 20:00 7. s Sun 16/12 kl. 20:00 11. s
Sun 25/11 kl. 20:00 4. s Lau 8/12 kl. 20:00 8. s Fös 28/12 kl. 20:00 12. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Tví-skinnungur (Litla sviðið)
Fös 9/11 kl. 20:00 Frums. Sun 18/11 kl. 20:00 3. s Sun 25/11 kl. 20:00 5. s
Fim 15/11 kl. 20:00 2. s Fim 22/11 kl. 20:00 4. s Lau 1/12 kl. 20:00 6. s
Ást er einvígi.
Jólaflækja (Litla sviðið)
Lau 24/11 kl. 13:00 1. s Lau 1/12 kl. 13:00 3. s Lau 8/12 kl. 13:00 5. s
Sun 25/11 kl. 13:00 2. s Sun 2/12 kl. 13:00 4. s Sun 9/12 kl. 13:00 6. s
Litrík jólasýning fyrir þau yngstu.
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Lau 20/10 kl. 20:00 63. s Fös 2/11 kl. 20:00 65. s Fös 16/11 kl. 20:00 67. s
Lau 27/10 kl. 20:00
Sing-a-long
Lau 10/11 kl. 20:00 66. s
Sýningum lýkur í nóvember.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is