Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 48

Morgunblaðið - 20.10.2018, Side 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018 Listasafn Reykjavíkur hefur valið lista- mennina Emmu Heiðarsdóttur, Gunnar Jónsson, Ragnheiði Káradóttur og Steinunni Önnudóttur til að sýna í D-sal á næsta ári. Alls hafa 34 listamenn sýnt í salnum síðan safnið hóf að standa þar fyrir sýningum efnilegra listamanna ár- ið 2007. Markmið sýningaraðarinnar er að gefa þeim tækifæri til að vinna í fyrsta sinn að einkasýningu í opinberu listasafni og beina athygli gesta að nýj- um og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Í ár auglýsti Listasafn Reykjavíkur í fyrsta sinn eftir umsóknum um að sýna í D-sal á næsta ári. Ráðgerðar eru fjórar sýningar, en alls bárust yfir 130 umsóknir og því var úr vöndu að ráða fyrir dómnefndina. Með þátttöku í D-salar-röðinni gefst listamönnum tækifæri til að kynnast af eigin raun þeim innviðum sem opinbert listasafn styðst við í starfsemi sinni. Um leið opnast gestum safnsins innsýn í nýjar stefnur og strauma í samtímalist. Fjögur valin til að sýna í D-salnum Ein útvalinna Ragnheiður Káradóttir. Tónleikar þeirra Daníels Friðriks og Megasar í Iðnó kl. 21 á sunnu- dagskvöldið eru hluti af tónleika- röð Mengis; Mengis Series. Á efnisskránni eru ný og eldri lög sem ekki hafa áður heyrst opin- berlega. Lögin hafi einfaldlega ekki verið réttu lögin við hitt eða þetta tilefnið eða þótt henta tiltek- inni dagskrá. „… líkt og [lögin] hafi fallið milli skips og bryggju, orðið út undan án þess að hafa nokkuð til þess unnið,“ eins og það er orðað í fréttabréfi Mengis. Þar segir enn fremur að nýrri söngvar séu tækifærisafurðir, af- kvæmi augnabliks sem hafi frosið. Þeir félagar Daníel og Megas Tónlistarmenn Megas og Daníel Friðrik. Daníel Friðrik og Megas með réttu lögin munu einnig gefa sýnishorn af verkum í vinnslu. Salurinn í Iðnó verður opnaður kl. 20.30. Vort daglegt brauð, sýning Söru Vilbergsdóttur, verður opnuð kl. 16 á morgun, sunnudag, í Gallerí Göngum í Háteigskirkju. Elsta verkið er unnið 2006, það yngsta varla þornað. Öll fjalla verkin um tilvistina í henni veröld og endur- spegla nokkrar svipmyndir og vangaveltur úr ferðalagi Söru um lífið. Þau eru unnin með blandaðri tækni, í pappamassa, akríl og olíu svo eitthvað sé nefnt. Sara hefur starfað við myndlist, bæði að eigin myndsköpun og kennt börnum og fullorðnum í myndlistarskólum. Hún hefur haldið sýningar heima og erlendis og einnig unnið við dú- ettmálun með systur sinni, Svan- hildi Vilbergsdóttur, undanfarin átta ár. Tilvistin Sara Vilbergsdóttir fjallar um tilvistina í verkum sínum. Vort daglegt brauð í Gallerí Göngum Tölvurisinn Apple, sem er að hefja framleiðslu leikins sjón- varpsefnis fyrir Apple TV, hefur ráðið Heru Hilmarsdóttur í stórt hlutverk í þáttaröðinni See. Samkvæmt vefsíðunni denofgeek.com eru þættirnir átta talsins, vísindaskáld- skapur með dramatísku ívafi. Sagan gerist í framtíðinni þegar mannkynið hefur misst sjónina og neyðist til að finna nýjar aðferðir til að lifa af og eiga í samskiptum. Ástandið breytist þegar sjáandi tvíburar líta dagsins ljós. Leikstjóri er Francis Lawrence og Jason Momoa, sem þekktastur er fyrir leik sinn í Game of Thrones, fer með hlutverk Baba Voss, hermanns, leiðtoga og verndara sem hræðist ekki neitt. Hera mun leika staðfasta móður að nafni Maghra. Hera leikur í nýrri þáttaröð frá Apple Hera Hilmarsdóttir Þorsteinn Helgason opnar sýn- inguna Tilbrigði í Gallerí Fold kl. 14 í dag, laugardag. Eins og Fold lýsir verkunum eru þau eins og litasprengjur á striga sem raðast upp í ljóðrænt landslag. Þau hafi sterka hrynjandi og lita- flæði þar sem formin dansi á strig- anum, líkt og myndirnar geymi minningu um handtök málarans. Þá segir að kannski sé engin tilviljun að verk Þorsteins veki hugrenn- ingar um tónlist, enda sé hann mik- ill áhugamaður um djass og semji sjálfur djasstónlist. „Ég nota svipaða aðferð við að mála og að spila djass. Ég læt til- finninguna ráða, en í upphafi byrja ég með hvítan striga og enga ákveðna hugmynd um hvað ég vil mála. Ég mála með tilfinningunum og gleymi mér í augnablikinu,“ sagði listamaðurinn, sem einnig er arkitekt. Mörg verka hans eru nafnlaus en bjóða áhorfandanum að móta og túlka sína eigin tilfinningu. Tilbrigði í ljóðrænu landslagi Form Málverk eftir Þorstein Helgason. Winter Brothers Metacritic 63/100 IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 20.00 Utøya 22. júlí Morgunblaðið bbbbn Metacritic 75/100 IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 22.10 Mæri Metacritic 78/100 IMDb 7,2/10 Bíó Paradís 17.50, 20.00 Mandy Metacritic 81/100 IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 22.10 Kler (Clergy) IMDb 6,8/10 Bíó Paradís 17.30 Lér Konungur - National Theatre Live Bíó Paradís 20.00 Bad Times at the El Royale 16 Metacritic 60/100 IMDb 7,5/10 Laugarásbíó 22.00 Smárabíó 19.30, 21.50, 22.40 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 21.30 Billionaire Boys Club 12 Metacritic 30/100 IMDb 5,6/10 Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 22.20 Undir halastjörnu 16 Morgunblaðið bbbmn Smárabíó 20.00, 22.20 Háskólabíó 18.30, 21.30 Borgarbíó Akureyri 17.30 Johnny English Strikes Again Metacritic 35/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 14.00, 16.00, 18.00, 20.00 Sambíóin Álfabakka 12.00, 14.00, 16.00, 18.00, 20.00, 22.10 Sambíóin Keflavík 15.00, 17.00, 19.00 Smárabíó 13.00, 14.00, 15.10, 17.30 Háskólabíó 15.40, 17.30, 19.30 Borgarbíó Akureyri 15.00, 19.30 Samson et Dalila Sambíóin Kringlunni 16.55 A Star Is Born 12 Metacritic 87/100 IMDb 8,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.30, 22.00 Sambíóin Egilshöll 15.10, 18.00, 20.00, 21.00 Sambíóin Kringlunni 16.45, 19.30, 21.00, 22.15 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.20 Sambíóin Keflavík 21.00 Night School 12 Metacritic 43/100 IMDb 5,5/10 Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.00, 22.20 Sambíóin Akureyri 17.15 The Nun 16 Metacritic 46/100 IMDb 5,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 The House with a Clock in Its Walls Metacritic 57/100 IMDb 5,9/10 Sambíóin Álfabakka 13.00, 15.20 Sambíóin Kringlunni 14.40 Sambíóin Akureyri 15.00 A Simple Favor 12 Háskólabíó 20.40 Smáfótur Metacritic 58/100 IMDb 6,2/10 Sambíóin Álfabakka 12.00, 13.00, 14.10, 15.20, 17.50 Sambíóin Egilshöll 13.00, 14.00, 15.30, 17.40 Sambíóin Kringlunni 14.20 Sambíóin Akureyri 15.00, 17.20 Sambíóin Keflavík 15.00 Grami göldrótti Laugarásbíó 14.00, 17.00 Smárabíó 12.45, 15.00, 17.15 Háskólabíó 15.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Metacritic 54/100 IMDb 6,4/10 Smárabíó 12.50, 15.10 Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 12.50, 15.20 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,2/10 Laugarásbíó 14.00, 19.50 Háskólabíó 15.30 Kona fer í stríð Morgunblaðið bbbbb Metacritic 81/100 IMDb 7,7/10 Háskólabíó 18.20 Morgunblaðið bbnnn Metacritic 35/100 IMDb 7,1/10 Laugarásbíó 19.50, 22.15 Sambíóin Álfabakka 12.30, 14.50, 17.10, 17.30, 19.30, 20.00, 21.50, 22.25 Sambíóin Egilshöll 13.00, 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.25 Smárabíó 14.00, 16.30, 17.30, 19.10, 19.50, 22.30 Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.50 Venom 12 First Man 12 Myndin er byggð á ævisögu James Hansen; First Man: A Life Of Neil A. Armstrong, og segir söguna af fyrstu ferðinni til tunglsins, með sérstakri áherslu á geimfarann Neil Armstrong. Metacritic 84/100 IMDb 6,6/10 Laugarásbíó 17.00, 22.15 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.30 Sambíóin Akureyri 19.30 Lof mér að falla 14 Þegar Magnea 15 ára kynnist Stellu 18 ára breytist allt. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkni- efna sem hefur alvarlegar af- leiðingar fyrir þær báðar. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,7/10 Smárabíó 16.40, 19.40, 22.40 Háskólabíó 15.40, 20.50 Bíó Paradís 17.20 Borgarbíó Akureyri 17.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.