Morgunblaðið - 20.10.2018, Síða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2018
Einu sinni verður allt fyrst.Það átti svo sannarlegavið um leiksýningunaFyrsta skiptið því þótt
skömm sé frá því að segja var þetta
fyrsta ungmennaleiksýningin sem
rýnir sér hjá Gaflaraleikhúsinu. List-
rænir stjórnendur hússins hafa á síð-
ustu árum sinnt menningu ung-
menna af miklum metnaði og fengið
ungt fólk til að skrifa og leika í nýjum
verkum. Má í því samhengi nefna
Stefán rís eftir Arnór Björnsson og
Óla Gunnar Gunnarsson sem Björk
Jakobsdóttir leikstýrði 2016 og Ung-
linginn eftir sömu höfunda í leik-
stjórn Bjarkar, en sýningin var til-
nefnd til Grímunnar 2014 sem
barnasýning ársins auk þess sem höf-
undarnir voru tilnefndir í flokknum
Sproti ársins.
Í Fyrsta skiptinu hafa Arnór og Óli
fengið Berglindi Öldu Ástþórsdóttur,
Ingu Steinunni Henningsdóttur og
Mikael Emil Kaaber til liðs við sig til
að skoða hin mörgu fyrstu skipti ung-
lingsáranna, hvort heldur það er
fyrsta skotið, stefnumótið, sleikurinn,
sambandið, samfarirnar eða sam-
bandsslitin. Inn í þetta fléttast um-
ræða um blæðingar, óraunhæfar út-
litskröfur, skömm, of þrönga forhúð,
sektarkennd yfir klámnotkun, píku-
prump, typpastærð, minnimáttar-
kennd, greddu og sjálfsfróun. Höf-
undarnir byggja verkið að stórum
hluta á eigin reynslu og sýna aðdáun-
arvert þor og einlægni í umfjöllun
sinni um málefni sem mörgum finnst
vandræðalegt og jafnvel óhugsandi
að ræða.
Höfundahópurinn er gagnrýninn
þegar kemur að kynfræðslu grunn-
skólans sem takmarkast við það eitt
að fá já og nota smokkinn, sem er að
þeirra mati jafn fáránlegt og ef
stærðfræðikennari kenndi aðeins frá-
drátt og ætlaðist síðan til þess að
nemendur lærðu sjálfir um allt hitt á
netinu eða hjá vinum sínum. Goð-
sögnin um að fyrsta skiptið sé ávallt
vont og því best að ljúka því af sem
fyrst er sem betur fer vefengd.
Ánægjulegt er að sjá að sýningin ein-
skorðast ekki aðeins við reynsluheim
gagnkynhneigðra. Iðulega er unnið
gegn dæmigerðum steríótýpum
kynjanna, en útfærsla hópsins á
blæðingum einkenndist því miður af
gamaldags mýtum um tilfinninga-
legan óstöðugleika kvenna. Hér hefði
farið betur á því að ræða hormóna-
sveiflur beggja kynja á kynþroska-
skeiðinu, þessu vandasama skeiði þar
sem einstaklingurinn er hvorki barn
né fullorðinn og samt hvort tveggja í
senn og því erfitt að fóta sig í tilver-
unni. Í ljósi þess að rætt er um nauð-
syn þess að eiga góð tjáskipti áður en
fólk fer að stunda kynlíf hefði einnig
mátt minnast á kynferðisofbeldi í
ljósi þess að fjórðungur unglinga hef-
ur orðið fyrir slíku ofbeldi fyrir 18 ára
aldur.
Handritsstjórn og leikstjórn er í
höndum Bjarkar Jakobsdóttur, sem
tekst að laða fram það besta í þessum
hæfileikakrökkum, sem ekki aðeins
skrifa heldur leika öll hlutverk sýn-
ingarinnar. Augljóst er að áralöng
uppistandsreynsla leikstjórans nýtist
leikhópnum vel þar sem húmorinn er
nýttur til hins ýtrasta, en óhætt er að
segja að Fyrsta skiptið er fyndnasta
sýningin á höfuðborgarsvæðinu um
þessar mundir. Hún hentar ekki að-
eins unglingum dagsins í dag heldur
talar til allra sem gengið hafa í gegn-
um kynþroskaskeiðið. Verkið saman-
stendur af mörgum stuttum senum,
þar sem ein hugmynd leiðir yfirleitt
af annarri og flæðið því gott. Sýn-
ingin er oft á tíðum fróðleg án þess
nokkurn tímann að verða predikandi
eða bera keim af fræðsluleikriti.
Arnór, Berglind, Inga, Mikael og Óli
stökkva leikandi létt á milli þess að
vera þau sjálf og leika hin ýmsu hlut-
verk sem þjóna framvindunni. Ör-
yggi þeirra á sviði birtist ekki síst í
því að þegar tæknin klikkaði örlítið á
frumsýningunni eða einhver mis-
mælti sig spunnu þau sig léttilega
framhjá hvers kyns vandræðagangi.
Ólíkt ungmennunum sem til umfjöll-
unar voru í verkinu virtist ekkert
geta sett flytjendurna úr jafnvægi,
þar sem mistök voru greinilega engin
ógn – sem er alltaf ótrúlega mikill
léttir.
Umgjörð öll er til fyrirmyndar,
hvort heldur það er einföld og þénug
leikmynd Bjarkar sem jafnframt er
höfundur stílhreinna búninga og
skemmtilegra sviðshreyfinga, glimr-
andi lýsing Freys Vilhjálmssonar,
framúrskarandi vídeóefni Vignis
Daða Valtýssonar, Arnórs, Óla Gunn-
ars og Bjarkar þar sem iðulega er
vísað í þekktar kvikmyndir, fín hljóð-
blöndun Kristins Gauta Einarssonar,
frábær tónlistarhönnun Halls
Ingólfssonar eða frumsamin tónlist
þeirra Halls, Mikaels og Teits Snæs
Tryggvasonar.
Tæknin er nýtt með skemmti-
legum og áhrifaríkum hætti þegar
Berglind og Mikael túlka vanda þess
að reyna við einhvern á samfélags-
miðlum á borð við Snapchat, Arnór,
Mikael og Óli fóru á kostum í senunni
þar sem sleikdansinn var stiginn í
dásamlegum bleikum heilgöllum sem
aftur nýttust þegar Inga ákvað að
kynnast píkunni sinni í skemmtilegu
samspili við Arnór. Berglind og
Mikael voru yndisleg í fyrrnefndri
Snapchat-senu en ekki síður í sam-
förunum sem útfærðar voru sem
tennisleikur. Óli og Inga voru frábær
í hlutverkum foreldra sem voru að
vandræðast með kynfræðsluna. Það
er ljóst að framtíðin er björt í
íslensku leikhúsi og gaman verður að
sjá hvað leikhópurinn tekur sér næst
fyrir hendur. Eitt er víst, að undir-
rituð ætlar ekki að missa af fleiri ung-
mennasýningum í Gaflaraleikhúsinu.
Einu sinni verður allt fyrst
Gaflaraleikhúsið
Fyrsta skiptið bbbbn
Höfundar og leikarar: Arnór Björnsson,
Berglind Alda Ástþórsdóttir, Inga Stein-
unn Henningsdóttir, Mikael Emil Kaaber
og Óli Gunnar Gunnarsson. Leikstjórn,
handritsstjórn og leikmynd: Björk Jak-
obsdóttir. Búningar og sviðshreyfingar:
Björk Jakobsdóttir og leikhópurinn.
Lýsing: Freyr Vilhjálmsson. Frumsamin
tónlist: Hallur Ingólfsson, Mikael Emil
Kaaber og Óli Gunnar Gunnarsson.
Rapplag: Teitur Snær Tryggvason, Mika-
el Emil Kaaber og Óli Gunnar Gunnars-
son. Tónlistarhönnun: Hallur Ingólfs-
son. Hljóðblöndun: Kristinn Gauti
Einarsson. Klipping og hönnun á vídeó-
efni: Vignir Daði Valtýsson, Arnór
Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson og
Björk Jakobsdóttir. Aðstoð við söng:
Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Aðstoð við
sleikdans: Unnur Elísabet Gunnars-
dóttir. Frumsýning í Gaflaraleikhúsinu
sunnudaginn 14. október 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Fyndin „Fyrsta skiptið er fyndnasta sýningin á höfuðborgarsvæðinu.“ Steinunn Ása
býður vinum,
ættingjum og
öðrum gestum í
söngstund og af-
mælisveislu í
dag, laugardag, í
Mengi. „Mig hef-
ur alltaf langað
til að halda tón-
leika með lögum
sem ég elska að
syngja,“ segir Steinunn Ása, sem
verður 35 ára 24. október. Á
laugardaginn tekur hún ásamt
meðleikurum sínum í hljómsveit-
inni nokkur vel valin lög til að
fagna afmælisdeginum. Húsið verð-
ur opnað kl. 14 og hljómsveitin spil-
ar kl. 15. Síðan verður veisla og
léttar veitingar í boði.
Söngstund og
afmælisveisla
Steinunn Ása
Þorvaldsdóttir
Myndlistarsýningin Tíu leiðbein-
ingar (fyrir hinsegin listafólk) er
kynning á verkum eftir 11 breskar
hinsegin listamanneskjur sem ætl-
að er að örva samræður og sam-
starf milli vaxandi hinsegin mynd-
listarsenu á Íslandi og hinsegin
listafólks á Bretlandi. Þetta er
fyrsta samstarfsverkefni Gallerís
78 og bresks listafólks og byggist á
hugmyndinni um leiðbeiningarlist.
Sýningin verður opnuð í dag kl. 16 í
Gallerí 78, Suðurgötu 3.
Leiðbeiningar fyrir
hinsegin listafólk
Sýningarstjóri Dr. Ynda Gestsson, einn
þriggja sýningarstjóra, við eitt verkanna.
Mikael Máni Ásmundsson heldur tónleikana
Textar gegnum tónlist í tónleikaröðinni Velkom-
in heim kl. 20 annað kvöld, sunnudag, í Björtu-
loftum í Hörpu. Mikael Máni, sem hefur nýlokið
námi við Conservatorium í Amsterdam, mun
flytja lög Bobs Dylans fyrir sólógítar. Hug-
myndin er að túlka texta Dylans í gegnum hljóð-
færið og er aðferðin sem hann notar við að spila
lögin blanda af skrifuðum útsetningnum og
spuna. Á tónleikunum verður dreift bæklingi
sem Lilja María Ásmundsdóttir hannaði með
textum af þeim 8 lögum sem Mikael Máni flytur á
tónleikunum. Þannig geta tónleikagestir stýrt
upplifun sinni og valið hvort þeir vilji bara hlusta
eða jafnframt lesa ljóð Dylans til að tengjast lög-
unum á annan hátt.
Textar Bobs Dylans í gegnum tónlist
Sólógítar Mikael Máni
túlkar texta Bobs Dylans
gegnum hljóðfærið.
ICQC 2018-20
Myndlistarmennirnir Sigtryggur
Berg og Valgarður Bragason opna
sýningu í sjónarspili haustsins í
Gallerí Porti á Laugavegi 23b kl. 16
í dag, laugardag. Yfirskrift sýning-
arinnar er Að sakna einhvers. Sig-
tryggur sýnir málverk og Val-
garður hvort tveggja málverk og
teikningar.
Sigtryggur málaði verkin undan-
farin misseri, búsettur í Þýska-
landi. Litrík og flæðandi verk sem
eru opin og háskaleg, segir í til-
kynningu. Valgarður hefur ekki
sýnt myndlist sína um alllangt
skeið, en sýnir nú annars vegar
málverk, sem hann málaði á þessu
ári og í fyrra, og hins vegar teikn-
ingar frá síðastliðnum sex árum. Að
sögn hans sjálfs eru verkin „rugl-
kennd“ og þykja á stundum erfið og
krefjandi fyrir áhorfandann.
Sýning þeirra félaga stendur til
1. nóvember. Opið er í Gallerí Porti
miðvikudaga til sunnudaga frá kl.
13 til 18.
Að sakna einhvers með Sigtryggi
Berg og Valgarði Bragasyni
Sigtryggur Berg Valgarður Bragason