Morgunblaðið - 22.10.2018, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 22.10.2018, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Aukinn ójöfnuður, skattbyrði lág- launahópa og tækifæri til úrbóta í skattkerfinu var á meðal þess sem var rætt á opnum fundi Eflingar og Öryrkjabandalags Íslands um helgina. Fundurinn bar yfirskrift- ina „Skattbyrði og skerðingar“ og var afkoma lágtekjufólks á Íslandi einkum til umræðu. Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá Eflingu, fjallaði um þróun skatt- byrði á lágtekjuhópa í framsögu sinni og sýndi meðal annars fram á tilfærslu á fjármagnstekjuskatti frá hálaunahópum og yfir á lágtekju- hópa. Hann sagði brýnt að lögð væri áhersla á kjarabætur sem nýt- ast mundu öllu lágtekjufólki. Eftir framsögu Stefáns voru pall- borðsumræður þar sem þátt tóku Þuríður Harpa Sigurðardóttir, for- maður Öryrkjabandalags Íslands, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Bergþór Heimir Þórðarson, öryrki og dyravörður. Þar sagðist Sólveg vera „sjokk- eruð“ á firringu yfirstéttarinnar gagnvart kröfugerðum undan- farinna vikna og að það gæfi henni ekki mikla von inn í kjarabaráttu vetrarins. Þá sagði hún að mikil tækifæri værutil þess að breyta skattkerfinu þannig að það væri réttlátt fyrir láglaunahópa. Þuríður tók undir með Sólveigu og benti á að öryrkjar næðu þá flestir ekki einu sinni 300.000 króna lágmarkslífeyri á mánuði, þar sem aðeins 29% öryrkja væru með framfærsluuppbót vegna eigin húsnæðis eða þinglýsts leigusamn- ings. Áhersla lögð á kjarabætur til lág- tekjufólks á fundi Eflingar og ÖBÍ Morgunblaðið/Hari Fundur Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í pallborði. Stjórn Auðhumlu skorar á Kristján Þór Júlíusson landbúnaðar- ráðherra að endurskoða ákvörðun um að hætta við ráðn- ingu skrifstofu- stjóra á skrif- stofu matvæla og landbúnaðar í at- vinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu. „Fyrir um áratug var land- búnaði og sjávarútvegi skeytt saman undir einu ráðuneyti og það fylgdi jafnframt sögunni að þessi breyting yrði til þess fallin að styrkja stjórnsýsluumhverfi land- búnaðarins. Raunin varð önnur og hefur sá mannauður sem hafði góða þekkingu á landbúnaði nánast þurrkast út í ráðuneytinu. Nú þarf að blása til sóknar því að verkefnin á sviði landbúnaðar eru mörg og mikilvæg og skipta máli fyrir fram- tíð landbúnaðar á Íslandi. Það verð- ur ekki gert með því að leggja þau inn í skrifstofu alþjóðamála,“ segir í áskorun Auðhumlu. Auðhumla skorar á ráðherra að endur- skoða ákvörðun sína Kristján Þór Júlíusson Mál Áslaugar Thelmu Einars- dóttur, sem var sagt upp störfum sem forstöðu- maður einstak- lingsmarkaðar Orku náttúrunn- ar, er enn til skoðunar hjá innri endur- skoðun Reykja- víkurborgar og hefur hún ekki fengið skýringar á því hvers vegna henni var sagt upp. Þetta skrifaði Einar Bárðarson, eiginmaður Ás- laugar Thelmu, á Facebook í gær. „Fyrir sex vikum var kona [Ás- laug Thelma] rekin úr starfi hjá OR/ON sem er stærsta fyrirtækið í eigu í Reykjavíkurborgar. Fram- haldið þekkja allir, konan steig fram og sagði frá kynbundnu áreiti og einelti sem hún hafði þurft að þola og lýsti 18 mánaða ítrekuðum tilraunum til að tilkynna það og fá réttlætanlega málsmeðferð hjá starfsmannastjóra og stjórnendum OR/ON,“ skrifaði Einar, sem vill að fólk hugsi til þessa á kvennafrídeg- inum. Ekki enn fengið skýringar á uppsögn Áslaug Thelma Einarsdóttir Bifreið var ekið inn í verslun í Breiðholti á laugardagskvöld. Engan sakaði en ökumaðurinn lét sig hverfa af vettvangi. Þegar lög- reglan hafði samband við eiganda bifreiðarinnar kom hann af fjöllum og hafði ekki áttað sig á því að bif- reiðin hafði verið tekin ófrjálsri hendi. Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hafði í nægu að snúast um helgina vegna ölvaðra ökumanna og ofbeldisfullra kráargesta. Ók inn í verslun á stolnum bíl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.