Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Axel Helgason var einn í kjöri á 34. aðalfundi Landssambands smábátaeigenda á föstudag og var endurkjörinn formaður sambandsins. Ýmis hagsmunamál smábátaútgerðarinnar voru rædd á fundinum og í ályktun um veiðigjöld er forysta LS brýnd „til að berjast með kjafti og klóm fyrir stórfelldri lækkun veiðigjalda“. Þá taki þau mið af afkomu einstakra út- gerðarflokka en ekki með- altalsafkomu í sjávarútveg- inum. Í ljósi áherslu stjórnvalda á að vera fremst allra þjóða í loftslagsmálum skorar að- alfundur LS á þau að sýna þann vilja í verki með því að efla til muna smábátaútgerðina, þann hluta flotans sem skilji ekki aðeins eftir sig minnsta sótsporið við fiskveiðar, heldur valdi einnig minnstu raski í umhverfi hafsins. Þá var samþykkt ályktun þar sem form- dæmdar eru niðurstöður Starfshóps um fag- lega heildarendurskoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiði- og verndunarsvæða á Íslandsmiðum. Þar sé ráðist að útgerð smá- báta með því að heimila aflmiklum togskipum veiðar á grunnmiðum sem hefð sé fyrir að smá- bátar nýti. Í leiðinni sé viðkvæmu lífríki grunn- slóðarinnar fórnað með beitingu botndreginna togveiðarfæra á kostnað þess útgerðarforms sem litlum og engum umhverfisáhrifum valdi með kyrrstæðum veiðarfærum. Allt tal um ábyrgar fiskveiðar séu því orðin tóm. Berjist með kjafti og klóm fyrir lækkun veiðigjalda  Axel Helgason endurkjörinn formaður Landssambands smábátaeigenda Axel Helgason Til Landssambands smábátaeigenda leita ýmsir aðilar í leit að góðu hráefni, að því er Axel Helgason, formaður LS, greindi frá á aðalfundinum. „Nú í síðustu viku kom í heimsókn til okkar Fransmaður með ósk um að Lands- sambandið yrði honum innan handar við að útvega lifandi þorsk sem á að flytja til Parísar og bjóða þar nýríkum Asíubúum, sem eru stór hluti ferðamanna þar í borg. Hann sagði að sumir þeirra væru til í að borga háar fjárhæðir fyrir þessa lúxus- vöru sem Asíubúarnir virðast vilja sjá lif- andi áður en þeir setjast að snæðingi. Þetta hljómar galið með tilliti til um- hverfissjónarmiða, því að það að fljúga með þorskinn lifandi til Parísar með því sótspori sem því fylgir telst seint vænlegt til að auka virðingu fyrir okkar annars umhverfisvænu veiðum,“ sagði Axel meðal annars. Hann minnti á að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar væri í kafla um sjávar- útveg talað um að stuðla að kolefnis- jöfnun greinarinnar. „Veiðar smábáta verða alltaf umhverfisvænasta leiðin til að sækja fiskinn úr sjónum, hvort sem lit- ið er til beinna áhrifa með tilliti til rösk- unar á lífríkinu eða orkunotkun við veið- arnar. Gott fiskveiðikerfi á að hafa innbyggðan hvata fyrir fiskimenn að færa veiðar sem mest yfir á kyrrstæð veiðar- færi.“ Vildu fá lifandi þorsk til Parísar ÍSLENSKT FISKMETI EFTIRSÓTT HRÁEFNI Í ÚTLÖNDUM Morgunblaðið/RAX Eftirsóttur Þorskurinn er víða talinn herra- mannsmatur og lúxusvara, einkum í Asíu. Opið virka daga 10.00 - 18.15 laugardaga 11.00 - 14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | sími: 588 8686 GLÆNÝJAR LÚÐUSNEIÐAR Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn SÍLDIN FRÁ DJÚPAVOGI ER KOMIN KLAUSTUR-BLEIKJA GLÆNÝ LÍNUÝSA mynda að gera betri rannsóknir á stórþara og burðarþoli þangs,“ segir Halldór en talið er að allt að 1,3 milljónir tonna af þangi sé að finna í Breiðafirði. Núgildandi vinnslukvóti á þangi í firðinum er 42 þúsund tonn en að sögn Hall- dórs er aðeins verið að nýta helminginn. Því séu fjölmörg tækifæri til frekari úrvinnslu. Allt sé vottað í bak og fyrir Íslenska kalkþörungafélagið er í eigu írsku fyrirtækjanna Celtic Sea Minerals og Marigot. Þau reka m.a. verksmiðju í Stornoway í Skot- landi þar sem fullvinnsla á þangi fer fram og mikil framþróun í nýtingu hráefnisins á sér stað. Stærsti hlutinn fer í safa sem unninn er úr þanginu og hann notaður sem nokkurs konar áburður eða áburðarjafnari á ávaxta- og græn- metisökrum. Að sögn Halldórs verða vinnslu- aðferðir svipaðar í Stykkishólmi og Stornoway. „Við þurfum að taka þetta í nokkrum skref- um og vanda til verka. Fyrirtækið hefur þá ein- örðu stefnu að öll starfsemi sé umhverfisvottuð í bak og fyrir og fari fram í góðu samráði við íbúana,“ segir Halldór. Ljósmynd/Íslenska kalkþörungafélagið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.