Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Bandaríski listamaðurinnRichard Spiller lauk ný-verið við brúðuleikhús-sýningu með börnunum á leikskólanum Dvergasteini í Reykja- vík. Verkefnið er hugarfóstur hans og Jódísar Hlöðversdóttur, sem er textílhönnuður frá Listaháskóla Ís- lands og sér um listkennslu í leik- skólanum. Spiller hefur starfað sem listamaður um árabil og kennt ýmsar listir en hann endaði fyrir algjöra til- viljun á Íslandi. „Ég var að kenna í háskóla í Norður-Karólínu og byrjaði með skiptikennsluverkefni við lönd á Balkanskaganum. Ég ferðaðist þann- ig frá Bandaríkjunum til Helsinki, Tallinn, Riga, Vilnius, Leníngrad og fleiri borga reglulega. Ég fór að fljúga með Icelandair þegar ég fór til Helsinki og fyrir tilviljun kom það upp einu sinni að við þurftum að yfir- gefa vélina í millilendingu á Íslandi. Ég var tilneyddur að fara inn í bæ- inn og gista eina nótt á yndislegu hóteli og þannig varð fyrsta teng- ingin mín við Ísland,“ segir Spiller í samtali við Morgunblaðið. „Árið eftir kom ég aftur í þrjá daga, næsta ár kom ég í níu daga, svo fimm vikur og núna er ég hérna í mánuð.“ „Hlýtur að vera álfaskóli“ Spiller segist afar hrifinn af landi og þjóð. Spurður hvernig það kom til að hann endaði á íslenskum leikskóla segir hann að það hafi einngis verið fyrir tilviljun. „Þegar ég var hérna í byrjun nóvember í fyrra gisti ég í stúdíói þar sem efri hæðin sneri í áttina að leikskól- anum. Ég var um morguninn að taka upp úr töskunum mínum þegar ég heyrði öll þessi læti fyrir utan. Þegar ég leitt út um gluggann hugs- aði ég samstundis: „Guð minn góð- ur, þetta er álfaskóli. Þetta hlýtur að vera álfaskóli,““ segir Spiller og hlær við. Hann var þá hér á landi að vinna listaverkefni og eftir vikudvöl setti hann sig í samband við leik- skólastjórann á Dvergasteini, sem setti hann í samband við Jódísi. Unnu þau þá verkefni saman með börnunum um íslenska þorskinn í tengslum við listaverkefni sem Spill- er var að vinna á þeim tíma. „Við fengum þessa hugmynd, að færa þorskaverkefnið sem ég var að vinna í og gera það þannig að börnin gætu gert stórar þorskteikningar og þær komu virkilega vel út,“ segir Spiller. Brúður og persónuleikar Þau Jódís héldu síðan sambandi eftir þetta og um ári síðar fengu þau hugmynd um að vera með brúðuleik- hús fyrir börnin. „Ég kom með heilt brúðuleikhús með mér frá Bandaríkjunum, um það bil tuttugu brúður. Ég er skúlptúr- listamaður og var ekki viss um hvað ég væri að gera en ég hef unnið mik- ið með börnum og Jódís var lykil- maður í þessu.“ Brúðurnar sem Spiller kom með voru dýr af ýmsum toga, allt frá selum yfir í hrafna, litlar og stórar. Litlu brúðunum var dreift á borð og fengu börnin að velja þá brúðu sem þeim líkaði best og átti hún að endurspegla þeirra persónuleika. Fullorðna fólkið fékk síðan stóru brúðurnar og svo áttu þær að tala saman. „Besta útgáfan af þessu kom þegar ein fullorðin brúða leiddi þrjár litlar brúður áfram í samtölum og allir ræddu sín á milli. Stundum leyfðum við þeim að vera lengur í brúðuleikhúsinu og tala saman þang- að til allt leystist upp í glundroða,“ segir Spiller en sýning í tengslum við þetta verður í Hafnarstræti hinn 25. október. Samtölin og brúðu- leikritin voru tekin upp á myndavél og mun Spiller klippa leiksýningu barnanna niður og afhenda Jódísi, sem getur síðan deilt henni með börnunum og fjölskyldum þeirra. Leirverkefni næst á dagskrá Spiller starfar nú hjá Anderson Center at Tower Review í Minne- sotaríki, sem er 141 hektara lista- aðsetur. Listamenn frá öðrum heimshlutum geta komið í námsvist þangað frá maí til október og segist Spiller vera að hvetja Jódísi til að koma. Þar gætu þau unnið leirverk- efni fyrir börnin á Dvergasteini. Þetta virðist því ekki vera síðasta heimsókn Spillers til landsins en honum þykir afar vænt um Íslend- inga. „Mér þykir svo vænt um ykkur. Íslendingar eru svo meðtækilegir og opnir fyrir nýjum hugmyndum, ann- að en Bandaríkjamenn. Ameríka er í miklum vanda en það heyrast engin skothljóð hér,“ segir Spiller að lokum. Tilviljun leiddi til listar á leikskóla Listamaðurinn Richard Spiller lenti fyrir tilviljun í listastúdíói á móti íslenskum leikskóla. Hann hefur nú unnið tvö verkefni með krökk- unum og kennurum og kemur ítrekað í heim- sókn til landsins. Morgunblaðið/Eggert Listamaður Richard Spiller á sviðinu þar sem brúðuleiksýning barnanna fór fram. Hann stefnir að því að vinna leirverkefni með þeim næst. Ljósmynd/Aðsend Þorskur Fyrsta verkefni Richards Spillers með börnum á Íslandi var um íslenska þorskinn og má sjá afraksturinn hér að ofan. Morgunblaðið/Eggert Í leik og list Jódís Hlöðversdóttir og Richard Spiller stefna að því að vinna að fleiri listaverkefnum fyrir íslensk börn á næstunni. Samhliða afmælinu hófu UNICEF og Te & kaffi 10 daga söfnunarátak.Af hverjum seldum drykk til 29. október gefur Te & kaffi andvirði 300 millilítra Margt var um manninn í Smáralind í Kópavogi á laugardag UNICEF á Ís- landi og Te & kaffi efndu til hátíðar og fögnuðu tíu ára samstarfi sínu. Tveggja metra afmæliskaka kláraðist og fögnuður braust út þegar Páll Ósk- ar söngvari steig á svið, en hann hefur kynnt sér starf UNICEF í Síerra Leóne með eigin augum. Frá 2008 hefur Te & kaffi safnað yf- ir 40 milljónum kr. fyrir börn í neyð. „Ég hef notið þeirrar gæfu að fá að fylgjast með þessu samstarfi vaxa, sem hefur verið virkilega gefandi. Á þessum tíu árum höfum við náð að hjálpa börnum í neyð og við erum hvergi nærri hætt,“ segir Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri. Framlögin frá kaffihúsunum og í gegnum sölu á kaffi til fyrirtækja hafa nýst í að tryggja börnum í Kólumbíu menntun, bregðast við ebólufaraldri í Vestur-Afríku og hjálpa börnum í Suður-Súdan. af næringarmjólk fyrir barn sem þjáist af bráðavannæringu og viðskipta- vinum er boðið að gera það sama með því að bæta 66 kr. við bollann. Tíu ára samstarfi UNICEF og Te og kaffi fagnað Virkilega gefandi að hjálpa börnum í neyð Morgunblaðið/Hari Söngur Páll Óskar á afmælishátíð UNICEF í Smáralind um helgina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.