Morgunblaðið - 22.10.2018, Síða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018
„Stjórnmálin eru skemmtileg. Á þeim vettvangi hef ég fengið tæki-
færi til að sinna mismunandi hlutverkum, fyrst sem varaborgar-
fulltrúi, sem alþingismaður og nú sem aðstoðarmaður ráðherra. Í
þessum störfum hef ég átt þesss kost að kynnast mörgu og gaman að
fá tækifæri til að nálgast þennan vettvang frá svona mismunandi
vinklum,“ segir Hildur Sverrisdóttir sem er fertug í dag. Hún er ann-
ar tveggja aðstoðarmanna Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur
ráðherra iðnaðar-, ferða- og nýsköpunarmála – og þessa viku og þá
síðustu situr hún á Alþingi sem varaþingmaður.
„Það er frí á þinginu í dag þannig að ég verð í ráðuneytinu og ætli
það sé þá ekki rakið að koma með eitthvað gott með kaffinu fyrir
vinnufélagana. Svo finnst mér nauðsynlegt að hitta mömmu sína á af-
mælisdaginn og ég giska á að kærastinn minn gefi mér eitthvað mjög
gott að borða,“ segir Hildur, sem er lögfræðingur að mennt og skrif-
aði pistla í Fréttablaðið um árabil.
Þegar tómstundir ber á góma segir Hildur að spurningar um slíkt
vefjist gjarnan fyrir sér, enda séu verkefni sín í starfi og áhugamálin í
raun eitt og það sama. „Mér finnst annars best að komast sem oftast í
Vesturbæjarlaugina og ég trúi að hlaup á milli heitu og köldu pott-
anna sé allra meina bót. Svo finnst mér voða gott að rölta upp á
hólana hér í nágrenni borgarinnar, Úlfarsfellið er til dæmis alveg
mátulega hátt fyrir mig,“ segir afmælisbarnið að síðustu. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Lífið Verkefni í starfi og áhugamál þau sömu, segir Hildur Sverrisdóttir.
Röltir á hóla í ná-
grenni borgarinnar
Hildur Sverrisdóttir er fertug í dag
B
ragi V. Bergmann fædd-
ist í Reykjavík 22.10.
1958 en flutti þriggja
ára í Kópavoginn og
ólst þar upp. Hann
lauk landsprófi frá Víghólaskóla í
Kópavogi 1974, stúdentsprófi frá KÍ
1977, kennaraprófi frá KHÍ 1980,
lærði húsamálun 1981-85 og hefur
sótt fjölmörg námskeið á sviði fjöl-
miðlunar og almannatengsla.
Bragi var kennari við Víghóla-
skóla 1979-80, við Glerárskóla á
Akureyri 1980-85 og vann jafnframt
við húsamálun 1981-85. Hann varð
blaðamaður hjá Degi haustið 1985,
ritstjórnarfulltrúi þar 1986 og rit-
stjóri Dags 1987-94.
Bragi stofnaði fyrirtæki á sviði al-
mannatengsla, Fremri almanna-
tengsl, í árslok 1989, hóf starf-
rækslu þess af fullum krafti 1993 og
hefur starfað við það síðan.
Bragi hefur haldið fjölda nám-
skeiða sl. tuttugu ár, m.a. hjá Tölvu-
fræðslunni á Akureyri, Símennt-
unarmiðstöð Eyjafjarðar og
Starfsendurhæfingu Norðurlands.
Þá hefur hann kennt áfanga í fjöl-
miðlafræði við HA.
Bragi sat í stjórn Bridgefélags
Akureyrar 1987-89 og var formaður
þess 1988-89, sat í Æskulýðsráði
Akureyrar 1982-90, í Íþrótta- og
tómstundaráði Akureyrar 1990-95,
Bragi Bergmann, almannatengill og fv. FIFA-dómari – 60 ára
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskylda Talið frá vinstri: Bragi, Ingibjörg B., Snæbjörn, Vilhjálmur, Magnús, Alexander Rafn og Ingibjörg.
Blaðamaður, kennari
limrusmiður og dómari
Með bæði spjöld á lofti Bragi stendur í ströngu í leik KR og ÍBV árið 2001.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Elísabet Kristjánsdóttir er níræð í dag. Hún ólst upp
á Ísafirði, dóttir hjónanna Margrétar Finnbjörns-
dóttur og Kristjáns Tryggvasonar klæðskera. Hún
lauk kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík,
var undirleikari og píanókennari við Tónlistarskóla
Ísafjarðar og starfaði hjá Útvegsbankanum, síðar Ís-
landsbanka, fyrst á Ísafirði en lengst af í Reykjavík.
Elísabet er ekkja Björns Jónssonar, flugstjóra hjá
Landhelgisgæslunni, sem fórst með þyrlunni TF-
RAN í Jökulfjörðum í nóvember 1983.
Elísabet fagnar afmælinu með fjölskyldu og vinum í
dag milli kl. 17 og 19 á Skólabraut 3, Seltjarnarnesi.
Árnað heilla
90 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.