Morgunblaðið - 22.10.2018, Page 23
þar af formaður um tveggja ára
skeið; var varaformaður Knatt-
spyrnudómarafélags Eyjafjarðar
1984-92 og einn af stofnendum
Knattspyrnudómarafélags Norður-
lands 1997. Hann var knatt-
spyrnudómari frá árinu 1973, úr-
valsdeildardómari 1985-2005 og
FIFA-dómari 1991-2003. Hann
dæmdi um 1.500 leiki á ferlinum,
hefur verið eftirlitsmaður dómara
frá árinu 2006 og setið í dómara-
nefnd KSÍ frá árinu 2010. Bragi hef-
ur ritað fjölmargar greinar í blöð og
tímarit um ýmis málefni. Hann hef-
ur ritað æviminningaþætti nokkurra
einstaklinga, gefið út bókina Golf-
aragrín, gamansögur af kylfingum
(1994), limrubókina Limrur fyrir
landann (2009) og hinn 1. mars
næstkomandi, á fæðingardegi föður
Braga, kemur út næsta bók í þeirri
bókaröð, Limrur fyrir land og þjóð.
Bragi hefur veitt fyrirtækjum og
félagasamtökum málfarsráðgjöf og
lesið prófarkir að ríflega 160 bókum
fyrir ýmsa útgefendur.
Ertu nokkuð að láta aldurinn fara
í taugarnar á þér, Bragi?
„Nei, nei. Ég er alltaf sami grall-
arinn. Mér finnst samt þessi ís-
lenska málvenja alveg óþörf, að tala
um að menn séu komnir á sjötugs-
aldurinn þótt þeir verði sextugir.
Hverjum datt þessi ósiður í hug?“
Fjölskylda
Fyrrverandi sambýliskona Braga
er Sólveig Dóra Hartmannsdóttir, f.
26.8. 1962.
Börn Dóru og Braga eru Vil-
hjálmur Bergmann, f. 21.6. 1988,
leikrita- og Vandræðaskáld; Snæ-
björn Bergmann, f. 14.10. 1989,
framreiðslumaður og mótahönnuður
en sambýliskona hans er Hrefna
Rut Níelsdóttir, BA í mannfræði og
spænsku, og Ingibjörg Bergmann, f.
18.1. 1993, fjölmiðlafræðingur og
meistaranemi í framreiðslu en sam-
býlismaður hennar er Hlynur Hall-
dórsson húsasmiður.
Árið 1999 kvæntist Bragi Ingi-
björgu S. Ingimundardóttur, f.
16.11. 1961, hjúkrunarfræðingi.
Synir Ingibjargar og fóstursynir
Braga eru Magnús Blöndal Jó-
hannsson, f. 23.4. 1985, tölvunar-
fræðingur og Alexander Rafn Gísla-
son, f. 17.5. 1988, flugumferðar-
stjóri.
Alsystkini Braga eru Sverrir
Bergmann, f. 20.6. 1954, kaupmaður
í Herrahúsinu í Reykjavík; Heimir
Bergmann, f. 15.6. 1957, verktaki í
Reykjavík; Guðrún Bergmann, f.
14.9. 1962, skrifstofustjóri SÍBS;
Pálmi Bergmann, f. 17.4. 1966,
framkvæmdastjóri Úðafoss í
Reykjavík, og Bjarni Bergmann, f.
18.4. 1967, leigubílstjóri.
Hálfsystkini Braga, samfeðra, eru
Vilhelmína Sigríður, f. 21.6. 1948, d.
12.11. 2017, verslunarmaður í
Hafnarfirði; Vilhjálmur Hafsteinn
Waage, f. 22.8. 1948, fv. atvinnurek-
andi í Ástralíu, og Geir Waage, f.
10.12. 1950, sóknarprestur í Reyk-
holti.
Foreldrar Braga eru Vilhjálmur
S.V. Sigurjónsson, f. 1.3. 1918, d.
1.9. 2004, ökukennari, bifreiðastjóri
og prentari í Reykjavík, og k.h.,
Erla Bergmann Danelíusdóttir, f.
16.10. 1935, fyrrv. starfsmaður
öldrunarþjónustu í Reykjavík.
Bragi og Ingibjörg eru stödd í
Marokkó á afmælisdaginn.
Bragi
Bergmann
Sigurbjörg Jakobína Vigfúsdóttir
húsfr. á Ytri-Lónsbæ við Rif
Hans Ólafsson
b. og sjóm. í Ytri-
Lónsbæ við Rif
Sveindís Ingigerður Hansdóttir
húsfr. á Hellissandi
Erla Bergmann Danelíusdóttir
fv. starfsm. öldrunarþjónustu í Rvík
Danelíus Sigurðsson
skipstj. og hafnsögum. á Hellissandi
Halldóra Guðrún Cýrusdóttir
ljósm. í Nýjabæ og í Hafnarfirði,
bróðurdóttir Ögmundar, föður
Karvels útgerðarmanns í
Njarðvíkum
Sigurður Gilsson
sjóm. í Nýjabæ við Hellissand og b. á Öndverðarnesi
Guðrún
Halldóra
Cýrus-
dóttur
húsfr. á
Hellis-
sandi
Sigríður
Gunnars-
dóttir
banka-
starfs-
maður á
Hellis-
sandi
Alda
Dís
Arnar-
dóttir
söng-
kona
Cýrus
Danelíus-
son fv.
starfsm.
lóran-
stöðvar-
innar á
Hellissandi
Ragnar Hermannsson
sjúkra- og handbolta-
þjáfari og briddsari í
Garðabæ
Sjöfn Bergmann
starfaði við öldrunar-
þjónustu í Rvík
Hreimur Örn
Heimisson
söngvari og
lagasmiður
Heimir
Bergmann
verktaki í
Rvík
Helgi Bergmann listmálari
Ásta Bjarnadóttir
húsfr. í Rvík
Ármann Örn Ármannsson,
fv. forstj.Ármannsfells
Böðvar Stephensen
Bjarnason húsasmíðam.
í Rvík
Jón Böðvarsson
skólameistari og ritstj.
Iðnsögu Íslendinga
Sigmundur Böðvarsson
lögfr. í Rvík
Ólafur Jónsson Hvanndal fyrsti
prentmyndasmiður landsins
Sigríður Jónsdóttir,
systurdóttir Bjarna
Þórðarsonar á
Reykhólum, afa Jóns Leifs
og langafa Ragga Bjarna
Vilhjálmur Björnsson
skipstjóri á Ísafirði
Vilhelmína Sigríður Vilhjálmsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurjón Jónsson
sjóm. í Rvík
Sigríður Ólafsdóttir
húsfr. í Vík
Jón Sigurðsson
b. á Staðarhöfða og
í Vík í Borgarfirði
Úr frændgarði Braga Bergmann
GeirWaage
sóknarprestur
í Reykholti
Vilhjálmur S.V.
Sigurjónsson
ökukennari, bifreiðarstj.
og prentari í Rvík
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Hermann Jónasson fæddist íVíðikeri í Bárðardal 22.10.1858. Foreldrar hans voru
Jónas Hallgrímsson, bóndi í Víðikeri,
og k.h., Sigríður Jónsdóttir húsfreyja.
Hermann kvæntist 1888 Guðrúnu
Jónsdóttur húsfreyju sem lést í
Vesturheimi, dóttir Jóns Sigurðs-
sonar og k.h. Hólmfríðar Jónsdóttur.
Börn Hermanns og Guðrúnar voru
Sigríður Hermannsdóttir og Hall-
grímur Hermannsson.
Hermann var vinnumaður og
lausamaður á sveitabæjum til 1882.
Hann lauk búfræðiprófi frá Hólum
1884, var síðan í Danmörku um skeið
og stundaði nám við Landbúnaðarhá-
skólann þar í sex mánuði.
Hermann var skólastjóri Alþýðu-
skólans í Hléskógum í Höfðahverfi
1887-88, skólastjóri Búnaðarskólans
á Hólum 1888-96, bóndi á Þingeyrum
1896-1905, ráðsmaður Laugarnes-
spítala 1905-1910 og lagði síðan stund
á ritstörf. Hann var búsettur til skipt-
is í Ólafsvík og í Reykjavík 1910-17,
flutti síðan til Vesturheims og dvaldi
þar 1917-22 en síðan í Reykjavík til
æviloka.
Hermann dvaldi erlendis veturinn
1903-1904, sendur af Búnaðarfélagi
Íslands til þess að kynna sér meðferð
á saltkjöti og leita því markaðar.
Hann var stofnandi Búnaðarritsins
1887 og ritstjóri þess 1987-99 og var
yfirskoðunarmaður landsreikning-
anna 1906 og 1907.
Hermann var alþm. Heima-
stjórnarflokksins á árunum 1900-
1908. Hann samdi m.a. rit um drauma
og dulrúnir og skrifaði fjölda greinar
um búnaðarmál. Eitt hugðarefna
Hermanns og baráttumál hans á
þingi snerist um almenna þegn-
skylduvinnu fyrir ungmenni á aldr-
inum 18-24 ára. Hugmyndir hans
voru þó nær skólaskyldu fyrir ung-
menni því hann vildi stofna vinnu-
skóla og gerði ráð fyrir einungis sjö
til átta vikna vinnu en fyrst og fremst
almennu verknámi og jafnvel iðn-
námi.
Hermann lést 6.12. 1923.
Merkir Íslendingar
Hermann
Jónasson
95 ára
Gestur Finnsson
90 ára
Elísabet Kristjánsdóttir
Guðmundur Ólafsson
Guðný Magnea Jónsdóttir
85 ára
Leifur Ragnar Magnússon
Magnús Andrés Jónsson
80 ára
Jón Ásgeirsson
Kolbrún Ingólfsdóttir
75 ára
Sigríður Gunnlaugsdóttir
Þórður Kristján Pálsson
70 ára
Bárður Bragason
Birgir Viðar Halldórsson
Bryndís Kristiansen
Gylfi Óskarsson
Hrafn Hauksson
Ingibjörg Jónsdóttir
Ólafur Jón Guðmundsson
Ólöf Lóa Jónsdóttir
Páll Björnsson
60 ára
Anna Þóra Böðvarsdóttir
Bragi V. Bergmann
Dagný Halldórsdóttir
Elísabet Árnadóttir
Guðjón Garðarsson
Guðni Guðbergsson
Guðný Lilliendahl
Karólína Gunnarsdóttir
Mark Allen Maghie
Páll Þormar
Rósa Þórunn Halldórsdóttir
Sigurður Ingvar Geirsson
Stella Aðalsteinsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Þorsteinn I. Sigvaldason
50 ára
Dariusz Andrzej Mach
Hanna Lára Magnúsdóttir
Hákon Valsson
José Pedro Azambuja
Caipiro
Kristbjörg Sigurðardóttir
Kristín Ingibjörg
Hákonardóttir
Rósberg Halldór Óttarsson
40 ára
Birta Karlsdóttir
Erla Rós Gylfadóttir
Hildur Sverrisdóttir
Nilsina Larsen Einarsdóttir
Sigurður Bergmann
Gunnarsson
Thelma Dögg
Valdimarsdóttir
30 ára
Daði Helgason
Friðgeir Gunnarsson
Friðrik Jónsson
Kristbjörn Ingibjörnsson
Kristjana Ósk Veigarsdóttir
Lukasz Jan Suwala
Radoslaw Krzysztof
Jasinski
Stipe Erceg
Sævar Orri Gunnlaugsson
Viðar Andrésson
Vilhelm Kristjánsson
Þórður Ingi Jónsson
Þórgunnur
Hartmannsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Kristjana ólst upp
á Álftanesi, býr þar og
sinnir heimili og börnum.
Maki: Hrannar Gestur
Hrafnsson, f. 1986, gröfu-
maður.
Börn: Benedikt Gylfi, f.
2006; Karitas Björt, f.
2009; Eyþór Hrafn, f.
2014, og Fanney Halla, f.
2017.
Foreldrar: Veigar Ósk-
arsson, f. 1948, og Halla
Kristjánsdóttir, f. 1957.
Þau búa í Hafnarfirði.
Kristjana Ósk
Veigarsdóttir
30 ára Friðgeir býr á
Raufarhöfn, lauk stúd-
entsprófi frá Laugum,
diplomaprófi í flugþjón-
ustu og vinnur í síld.
Systkini: Eva Guðrún, f.
1983, starfar á Hlíð á
Akureyri, og Þorgeir, f.
1992, starfsmaður hjá
GPG á Raufarhöfn.
Foreldrar: Gunnar Jón-
asson, f. 1956, verkstjóri,
og Þórhildur Þorgeirs-
dóttir, f. 1961, starfs-
maður hjá Póstinum.
Friðgeir
Gunnarsson
40 ára Thelma ólst upp í
Reykjavík, býr á Akureyri,
lauk stúdentsprófi og
sjúkraliðaprófi frá FB og er
sjúkraliði á Kristnesi.
Maki: Haukur Ægir Ragn-
arsson, f. 1976, svæðis-
stjóri Ölgerðarinnar.
Börn: Finnur Leó, f. 1998;
Dóróthea Hulda, f. 2003,
Hekla Ýr, f. 2009, og
Blædís Rún, f. 2011.
Foreldrar: Árný Elsa Tóm-
asdóttir, f. 1940, og Valdi-
mar Jónsson, f. 1942.
Thelma Dögg
Valdimarsdóttir
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is