Morgunblaðið - 22.10.2018, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 22.10.2018, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Kveðja, Gímur kokkur. www.grimurkokkur.is ÁN MSG Plokkfiskur - o ur os ur nn 5. mín. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef þig vantar afsökun til þess að spreða muntu finna hana. Spyrðu spurn- inga ef þú vilt fá svör, fólk les ekki hugs- anir. 20. apríl - 20. maí  Naut Hverju geturðu breytt til að gera líf þitt afslappaðra, skemmtilegra og ham- ingjuríkara? Leggstu í rannsóknarvinnu. Þú færð heimboð sem kætir þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Reiðin þjónar engum tilgangi öðr- um en að láta fólki líða illa. Segðu sem minnst, bara það sem þú nauðsynlega þarft. Allt fer vel að lokum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ímyndunaraflið er af hinu góða ef menn kunna að hafa á því hemil og gera greinarmun á draumi og veruleika. Þú færð boð í brúðkaup. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það sem þú segir við fjölskyldu þína eða gerir á heimilinu í dag getur haft mikil áhrif á framvindu mála. Haltu þínu striki og láttu engan segja þér hvað sé best að gera í hinum og þessum málum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Mismunandi áhrif, menning, um- hverfi og fólk ýtir undir sköpunargleði þína. Þú verður fyrir vonbrigðum með vissa manneskju en það jafnar sig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er ekkert að óttast þótt eitthvert slen sé í þér. Opnaðu augun því þá fyrst fara hjólin að snúast þér í hag og þú átt það skilið. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Deilur rísa um eignarrétt og þú verður að hafa þig allan við til þess að standa á rétti þínum. Einhver fer í baklás þegar þú ert nærri. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Finndu út hvar þú best getur komið skoðunum þínum á framfæri því þú vilt að hlustað sé á þig. Seinni partinn ger- ist eitthvað skrýtið og skemmtilegt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Nú er rétti tíminn til að kynnast fólki og komast í samband við rétta aðila. Að tala hreint út er það besta þegar ágreiningur rís á milli fólks. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stundum getur smá dirfska borgað sig en samt er sígandi lukka best. Þú leikur á als oddi næstu vikurnar. Hertu sultarólina. 19. feb. - 20. mars Fiskar Gættu þess að endurbætur sem þú vilt gera séu raunsæjar og mögulegar. Reynsla þín í samningagerð kemur þér vel þegar semja þarf við iðnaðarmenn. Helgi R. Einarsson orti eftir aðhafa fylgst með þættinum Kveik: Nú skal réttlætið ríkja, rustar og fúlmenni víkja. Á landinu hér óþarfi er að ljúga, svindla og svíkja. Og síðan orti hann limruna „Að hrökkva upp af standinum, eður ei“: Í fyrstu gladdist fjandinn er flaug úr Stínu andinn. Hvað haldið þið! Hann hætti við og hélt sér fast við standinn. Á Boðnarmiði segir Páll Frið- riksson frá því að það segði sér kona: Hjá Sigurði, Pétri og Sveini ég svaf hjá þeim öllum í leyni. Með Rúnari rekki en Ragnari ekki því hann er alltaf sá seini. Davíð Hjálmar Haraldsson orti á Leir á þriðjudag um Vegagerð ríkisins: Af grjótbílum, ýtum og gröfum á nóg, hún grundar og reiknar og metur. Um blómalaut, lindá og laufgrænan skóg leggur svo veg ef hún getur. Þetta var kveikjan að vísu Skírnis Garðarssonar um „Framtíðarsýn Teigsskógar“: Um mig fer hrollur, ég engist og styn, mér uggur að válegur læðist, í fjarlægð ég heyri nú ferlegan hvin, ég ferlíkin trukkanna hræðist. Síðan víkur Skírnir að því, að Sigurður Pálsson segi frá því í bók sinni „Bernskubók“ að faðir sinn, sr. Páll Þorleifsson, hafi eitt sinn hlaupið út til að stöðva vinnuvélar sem hann sá vera að rústa falleg- ustu brekkunni í Skinnastaðalandi, en veg átti að leggja þar. Aldrei sá hann föðurinn jafn reiðan, en klerkur var ljúfmenni að eðlisfari og dagfarsprúður alla jafna. Að lokum rifjar Skírnir upp atómljóð sem hann orti fyrir 15 árum: Fjallkonan er í minningunni ung, og fögur. En, árin hafa farið um okkur, óblíðum krumlum. Senn stynur hin aldna móðir, á sínum dánarbeði. Jón Ólafsson gaf út lítið kver, „Braga“, árið 1903 með úrvals- ljóðum Jónasar Hallgrímssonar. Þar er vísan „Málsvörn“ eftir Jónas: Feikna þvaður fram hann bar – fallega þó hann vefur! Lagamaður víst hann var, varði tófu refur. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af misjöfnu fólki „FINNST ÞÉR ÍTALSKUR GÓÐUR? ÉG VEIT UM FRÁBÆRAN LÍTINN STAÐ BAK VIÐ FRÁBÆRAN LÍTINN STAÐ.“ „EKKI SEGJA NEINUM FRÁ EN ÉG ER BÚINN AÐ EYÐA FIMMHUNDRUÐKALLINUM SEM ÞÚ GAFST MÉR Í JÓLAGJÖF.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að keyra hana í Kringluna og bíða … og bíða … Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ‘EG ER HENNI ÞAKKLÁTUR ELÍN ER REIÐ ÚT Í MIG … EN VILL EKKI SEGJA MÉR HVERS VEGNA HRÓLFUR! ÞAÐ ER TRÖLL INNI Á KAMRINUM! HVÍLÍK ÓSVINNA! HVERS VEGNA NOTARÐU EKKI ÞINN EIGIN TRÖLLA- KAMAR?! Með upplestri í miðborg Reykja-víkur í síðastliðinni viku vöktu félagsráðgjafar athygli á bágum að- stæðum fátæks fólks á Íslandi. Framtakið var gott og víst þurfa ríki og sveitarfélög að gera enn betur fyrir fólk sem er í vanda statt. Skeytingarleysi gagnvart fólki sem stendur höllum fæti ætti aldrei að vera í boði. Þó verðum við samt að hafa í hug að altæk kerfisvæðing á félagslegum stuðningi er varhuga- verð. Við þurfum að láta okkur hag og kjör annarra nokkru varða og styðja viðkomandi eftir atvikum, sé þess þörf. Getur það bæði verið efnaleg hjálp og bara að vera til staðar sem manneskja. Og bros get- ur dimmu í dagsljós breytt! Opinber velferðarþjónusta er nauðsynleg en hún gerir okkur samt ekki stikkfrí gagnvart fólki sem þarf hjálp; hvort sem það eru fátækir, aldraðir, ör- yrkjar eða aðrir. Ef sú er raunin er útkoman hið illræmda skeytingar- leysi. Svona getur nú hvað bitið í skottið á öðru og góðviljinn orðið sín eigin bráð, séu mál ekki hugsuð til enda. x x x Umræðuhefð Íslendinga er kominá undarlegan stað og svokallaðir minnihlutahópar gera sig gildandi. Í masi um málefni líðandi stundar hendir oft að þau sem telja sig hafa heilagan málstað að verja rjúka af stað; krefjast þess að hin og þessu ummæli séu dregin til baka og beðist afsökunar og jafnvel fyrirgefningar á þeim. Á stundum getur slíkt vissu- lega átt við. Miklu oftar eru kröfur um að sett sé í bakkgír og auðmýkt sýnd þó tilraun til þöggunar þar sem rökræðan er drepin. x x x Svo virðist sem fjöldi fólks hafiflust búferlum úr raunveruleik- anum í netheima og á þeim slóðum er margt skýtið í kýrhausnum, að mati Víkverja. Sumt raunar algjör steypa, eins og krakkarnir segja. „Netið endurspeglar ekki alltaf veruleikann, bækur gera það oft og síðast en ekki síst minningar sam- ferðarfólks,“ sagði Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður á Facebook í gær og mælist þar viturlega. vikverji@mbl.is Víkverji Vegur Guðs er lýtalaus, orð Drottins er hreint, skjöldur er hann öllum sem leita hælis hjá honum. (Sálm: 18.31)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.