Morgunblaðið - 22.10.2018, Side 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018
Yfirlitssýningin Róf var opnuð á Kjarvalsst
Íhugun Verkin gáfu nægt tilefni til vangaveltna.
Fjöllistamenn Hallgrímur Helgason og Stephan Stephensen ræddu saman.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
árin voru félagarnir á þeytingi milli
tónleika og djasshátíða víða um
heim. Fyrsta plata þeirra varð gull-
plata og fylgdu þrjár aðrar stúd-
íóplötur í kjölfarið. Á þeim öllum
spilar bandið útfærslur á þjóðlögum,
aðallega íslenskum en einnig skand-
inavískum, færeyskum og græn-
lenskum á síðustu plötunni. Í Kan-
ada gaf tríóið lika út, í samvinnu við
Richard Gillis trompetleikara, plöt-
una Icelandic Folk sem í dag er ófá-
anleg. Gaman er að nefna að Rich-
ard mun koma fram á tónleikunum
á laugardag.
Auk Richards er von á Agli Ólafs-
syni sem hefur líka margoft áður
komið fram með tríóinu, bæði hér-
lendis og erlendis. Einnig leika með
þau Unnur Birna Björnsdóttir,
fiðluleikari og söngkona, og Sigfús
Örn Óttarsson slagverksleikari. Á
dagskrá verða þjóðlög og djass-
standardar sem fylgt hafa Guitar
Islancio undanfarna tvo áratugi og
kannski eitthvað af frumsömdu efni
slæðist með.
Vel heppnuð formúla
Hvern hefði annars grunað að
djössuð þjóðlög myndu hitta svona
rækilega í mark? Jón segir hug-
myndina reyndar ekki alveg ein-
staka og hafi djasstónlistarfólk hér
og þar um heiminn sótt í þjóðlaga-
arfinn: „Jan Johansson gaf t.d. út
plötuna Jass på svenska árið 1964
þar sem hann gerir einmitt þetta.
Síðast þegar ég vissi var hún ennþá
mest selda sænska djassplatan frá
upphafi.“
Bæði heimamenn og útlendingar
vildu ólmir kaupa geisladiska með
tónlist Guitar Islancio og þar sem
þeir tróðu upp mátti jafnan reikna
með húsfylli. „Það munaði ekki síst
um erlendu ferðamennina sem hafa
verið duglegir að kaupa diskana
okkar til minningar um heimsókn til
Íslands,“ segir Jón um líflega söl-
una.
Hann segir það hafa gerst á
ósköp náttúrulegan hátt að starf-
semi Guitar Islancio róaðist og
lengra varð á milli tónleika. „Eftir
tíu viðburðarík ár fórum við smám
saman að snúa okkur að öðrum
verkefnum; Gunni að semja óperuna
sína Ragnheiði, Bjössi á fullri ferð
með sinn sólóferil og ég önnum kaf-
inn við kennslu og ýmis önnur verk-
efni. Við höfum samt spilað endrum
og sinnum, þó það hafi ekki alltaf
verið gert opinbert.“
Hafa spilað af ákefð og asa í t
Liðin eru tuttugu ár frá fyrstu tónleikum Guitar Islancio og líta góðir gestir við á afmælis-
tónleikum um næstu helgi Von er á nýrri nótnabók með bestu þjóðlagaútsetningum tríósins
Morgunblaðið/Ásdís
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Eflaust halda margir lesendur að
nafn Guitar Islancio eigi að vísa til
Íslands. Tríóið er jú þekktast fyrir
að spila líflegar djassútgáfur af ís-
lenskum þjóðlögum, en Jón Rafns-
son segir Islancio merkja allt annað:
„Það var Toby, kona Gunnars, sem
fékk hugmyndina að nafninu. Við
höfðum lengi velt fyrir okkur hvaða
nafn ætti að velja og Gunnar og
Björn voru vissir á því að þeir vildu
að orðið „Guitar“ kæmi þar einhvers
staðar fyrir,“ segir Jón. „Orðið „isl-
ancio“ er ítalska og tónlistarhugtak
sem mætti þýða sem ákefð eða asa.
Lýsir það líka spilamennskunni okk-
ar nokkuð vel.“
Guitar Islancio fagnar 20 ára af-
mæli um þessar mundir en það var
þann 18. október 1998 að þeir Jón,
Gunnar Þórðarson og Björn Thor-
oddsen heldu sína fyrstu tóleika í
Keflavík. Þeir halda upp á afmælið
með veglegum tónleikum í Bæjar-
bíói í Hafnarfirði næstkomandi
laugardagskvöld, 27. október kl.
20.30.
Á þeytingi milli hátíða
Jón segir söguna af upphafi sam-
starfsins: „Þeir Gunnar og Björn
höfðu spilað dálítið saman, m.a. með
Ríó Tríó, og sú hugmynd hafði
kviknað hjá þeim að setja saman
tríó með tveimur gítörum og bassa.
Vildi svo heppilega til að um svipað
leyti var ég nýfluttur til Reykjavík-
ur en ég hafði snúið heim úr tónlist-
arnámi í Svíþjóð árið 1990 og búið á
Akureyri síðan þá. Ég var sjálfur á
þeim buxunum að stofna band, og
spurði Bjössa hvort hann væri til, en
hann sagði nei og bauð mér í staðinn
að prufa að vera með honum og
Gunnari.“
Er óhætt að segja að Guitar Isl-
ancio hafi slegið í gegn því næstu tíu
Hæfileikar Björn, Jón og Gunnar á góðri
stundu. Myndin var tekin á aðventu-
tónleikum 2003 þegar Guitar Islancio hafði
starfað í fimm ár. Plöturnar rokseldust og
ómótstæðilegar þjóðlagaútsetningar tríós-
ins eru allar löngu orðnar sígildar.