Morgunblaðið - 23.10.2018, Side 10

Morgunblaðið - 23.10.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018 Búnaður í Jaguar E-Pace D150 er m.a.: 10" Touch Pro skjár, símkerfi, 125w Jaguar hljómkerfi, LED- aðaljós með einkennandi dagljósum, 17" álfelgur, íslenskt leiðsögukerfi, rafdrifnir upphitaðir speglar með sjálfvirkri deyfingu og aðkomuljósum, varadekk, neyðarhemlunarbúnaður, bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar að framan og aftan. jaguarisland.is B ún að ur b íls á m yn d er fr áb ru g ð in n au g lý st u ve rð i VERÐ FRÁ: 6.290.000 KR. Jaguar E-Pace D150, fjórhjóladrifinn, sjálfskiptur. E N N E M M / S ÍA / N M 9 0 4 5 4 VERIÐ VELKOMIN Í REYNSLUAKSTUR JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 NÝR FJÓRHJÓLADRIFINN E-PACE JAGUAR E-PACE Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Evrópu (Eurostat) bjuggu 113 millj- ónir manna innan landa Evrópusam- bandsins (ESB), 22,5% allra íbúa, við hættu á því að lenda í fátækt eða félagslegri út- skúfun á síðasta ári. Til að falla í þennan hóp urðu menn að uppfylla eitt þriggja skil- yrða: eiga á hættu að lenda undir skilgreind- um fátækarmörk- um, að búa við mjög bágborinn fjár- hag eða eiga heimili þar sem atvinnuþátttaka er lítil. Eftir fjölgun í áhættuhópnum á árunum eftir fjármálakreppuna, frá 2008 til 2012, þegar hlutfallið varð 25%, hefur þróunin lítillega snúist við með hverju árinu og fækkun orð- ið innan sambandsins í heild. Er staðan nú betri en fyrir kreppuna þegar 23,7% íbúa ESB-landa voru í áhættuhópnum. Mismunandi eftir löndum Fækkun fólks í hættu á að lenda í fátækt eða útskúfun er eitt af helstu markmiðum „Europe 2020“-áætlun- ar ESB. Tölurnar fyrir einstök lönd innan ESB eru mjög mismunandi, í sumum löndum hefur orðið aukning en í öðr- um fækkun. Mest munar um batn- andi ástand í löndum Austur-Evr- ópu, þar sem áhættuhópurinn hefur verið og er enn fjölmennastur. Búlg- aría trónar enn á toppnum með 38,9% en hlutfallið var þó enn verra 2008, 44,8%. Rúmenía er í öðru sæti en þar telur áhætturhópurinn 35,7% íbúa. Mesta aukningin á tímabilinu varð í Grikklandi, úr 28,1% árið 2008 í 34,8% í fyrra. Aukning hefur einnig orðið í fleiri ríkjum Suður-Evrópu, Ítalíu, Spáni og Kýpur. Aukning á Íslandi Hagstofa Evrópu birtir einnig sambærilegar tölur fyrir þrjú Evr- ópulönd utan ESB, Ísland, Sviss og Noreg. Athygli vekur að þvert á þró- unina í ESB-löndunum í heild hefur fjölgað lítillega í áhættuhópnum á Ís- landi. Hækkar hlutfallið úr 11,8% ár- ið 2008 í 12,2% árið 2016 (reyndar er um bráðabirgðatölur að ræða fyrir það ár en tölur fyrir síðasta ár voru ekki fyrir hendi). Sama er að segja um Noreg þar sem 15% tilheyrðu áhættuhópnum árið 2008 en 16,1% í fyrra. Ísland er þó ásamt Tékklandi það land í Evrópu þar sem fæstir íbúar eiga á hættu að lenda í fátækt eða fé- lagslegri útskúfun. Fjöldinn hér á landi er samt nokkur; samtals eiga um 40 þúsund Íslendingar á hættu að lenda í þessum aðstæðum sam- kvæmt tölum Hagstofu Evrópu. Morgunblaðið leitaði álits velferð- arráðuneytisins á þessum tölum Eurostat. „Jú, Velferðarvaktin fylgist með tölum um lífskjör og stöðu fólks, m.a. þeim sem má finna í félagsvísum og Eurostat sýnir. Þegar litið er til pró- sentuhlutfalla má sjá að Ísland mælist almennt með lág hlutföll í samanburði við aðra. Hlutfall fólks sem býr við hættu á að lenda í fátækt eða félagslegri einangrun er nú 12,2%, eða um 40.000 manns, sem er 0,4% hækkun frá 2008. Þrátt fyrir þessa hækkun eru Ísland og Tékk- land með minnstu áhættuna og minni en á Norðurlöndunum. Helst viljum við að enginn búi við fátækt, hvorki hér á landi né annars staðar,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, formaður Velferðarvaktarinnar. Siv sagði að Velferðarvaktin hefði lagt fram tillögur m.a. til að bæta stöðu barnafjölskyldna, þeirra sem byggju við sárafátækt og væru ut- angarðs. Stjórnvöld hefðu lýst í sátt- mála sínum að gerð yrði úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna í ís- lensku samfélagi og sérstaklega þyrfti að huga að stöðu barna sem byggju við fátækt því sá hópur væri einna viðkvæmastur í samfélaginu. Ísland mælist með lægstu hlutföllin  Dregur úr hættu á fátækt og útskúf- un í Evrópu í heild frá kreppunni 2008 Fólk í hættu á fátækt eða útskúfun í Evrópu Hlutfall af íbúafjölda árin 2008 og 2017 2008 2017 Búlgaría 44,8% 408592= 38,9% 349651= Rúmenía 44,2% 402598= 35,7% 317683= Grikkland 28,1% 241759= 34,8% 308692= Litháen 28,3% 243757= 29,6% 256744= Ítalía 25,5% 215785= 28,9% 249751= Lettland 34,2% 302698= 28,2% 242758= Króatía – 27,9% 239761= Spánn 23,8% 198802= 26,6% 226774= Ungverjaland 28,2% 242758= 25,6% 216784= Kýpur 23,3% 193807= 25,2% 212788= Írland 23,7% 197803= 24,2% 202798= Eistland 21,8% 178822= 23,4% 194806= Portúgal 26,0% 220780= 23,3% 193807= ESB alls 23,7% 197803= 22,5% 185815= Bretland 23,2% 192808= 22,2% 182818= Lúxemborg 15,5% 115885= 21,5% 175825= Belgía 20,8% 168832= 20,3% 163837= Pólland 30,5% 265735= 19,5% 155845= Malta 20,1% 161839= 19,2% 152848= Þýskaland 20,1% 161839= 19,0% 150850= Austurríki 20,6% 166834= 18,1% 141859= Sviss 18,1% 141859= 17,8% 138862= Svíþjóð 16,7% 127873= 17,7% 137863= Danmörk 16,3% 123877= 17,2% 132868= Slóvenía 18,5% 145855= 17,1% 131869= Frakkland 18,5% 145855= 17,1% 131869= Holland 14,9% 109891= 17,0% 130870= Slóvakía 20,6% 166834= 16,3% 123877= Noregur 15,0% 110890= 16,1% 121879= Finnland 17,4% 134866= 15,7% 117883= Tékkland 15,3% 113887= 12,2% 82918= Ísland 11,8% 78922= 12,2% 82918= Siv Friðleifsdóttir Morgunblaðið/Ómar Kjör Unnið er að úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna á Íslandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.