Morgunblaðið - 23.10.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.10.2018, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018 ✝ Hulda BjörkGuðmunds- dóttir fæddist 22. desember 1943 í Arnarholti, Staf- holtstungum í Mýrasýslu. Hún lést á Skjóli 14. október 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Auðunsson Guð- bjarnason bóndi, f. 20. maí 1896, d. 31. janúar 1951, og Anna Kristjánsdóttir, f. 29. október 1913, d. 26. des- ember 1990. Systkini Huldu Bjarkar: Sævar Blómkvist, f. 1938, d. 1995; Birgir, f. 1940; Elinborg Anna, f. 1946, d. 2013; Guðmundur, f. 1951, og fóstur- systir Kristný Björnsdóttir, f. 1951. Hulda Björk giftist 20. ágúst 1966 eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurði Óskari Jónas- sonur Jónasar er Ívar Helgi, f. 2001. 4) Jóhann Gunnar, f. 7. apríl 1974. Eiginkona hans er Elsa Ósk Alfreðsdóttir, f. 1982. Börn þeirra eru: Aron Goði, f. 2002, barnsmóðir Selja Dís Jónsdóttir, f. 1971. Stjúpbörn Jóhanns eru Sigurður Freyr, f. 2005, og Guðrún Katla, f. 2008. Hulda Björk ólst upp í Arn- arholti með foreldrum sínum og systkinum. Fjölskyldan varð fyrir þeim mikla harmi 31. jan- úar 1951 að Guðmundur fórst með flugvélinni Glitfaxa, sem var að koma frá Vestmanna- eyjum. Var það mikið áfall fyrir fjölskylduna. Þau hjón voru með stórt bú í uppbyggingu og Anna bar þeirra fimmta barn undir belti sem fæddist þá um vorið. Anna hélt þó búskapnum áfram og kom öllum börnum sínum til mennta. Eftir barnaskólanám fór Hulda Björk til náms á Héraðs- skólanum í Reykjanesi við Ísa- fjarðardjúp. Síðan fór hún í Húsmæðraskólann á Varma- landi. Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju í dag, 23. októ- ber 2018, klukkan 13. syni, f. 1946. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Guð- mundur Arnar, f. 8. júní 1965, eigin- kona hans er Hrafnhildur Harð- ardóttir, f. 1967. Börn þeirra eru: a) Arnór, f. 1988. Sambýliskona hans er Birgitta Þura Birgisdóttir, f. 1989. Barn þeirra er Hafdís María, f. 2008. b) Andri, f. 1990. Sambýliskona hans er Erla Sif Kristinsdóttir, f. 1989. Dætur þeirra eru Elísabet Ásta, f. 2013, og Vilborg Birta, f. 2016. c) Hulda Björk, f. 2001. 2) Anna Sigríður, f. 30. október 1968. 3) Jónas Viðar, f. 7. apríl 1974. Eiginkona hans er María Hend- rikka Ólafsdóttir, f. 1975. Börn þeirra eru: Helga Dögg, f. 2006, Logi Hrafn, f. 2009, og stjúp- Elsku mamma, tengda- mamma og amma okkar. Þegar ég hugsa til baka er margs að minnast. Það fyrsta sem kemur upp í hugann eru ófá ferðalögin sem við fórum í fjöl- skyldan. Þar varst þú alltaf með allt tipp topp eins og venjulega. Ég man hvað það var gott að vakna við kaffilyktina og skríða fram úr, því kræsingar biðu mín á útileguborðinu. Þú varst mikil jólastelpa og fjölmargir jólasveinarnir skreyttu húsið okkar. Þú lagðir mikið kapp á að halda okkur fullkomin jól, sem kristallaðist í hverri fullkomlega mótaðri smá- köku. Heima var alltaf tandur- hreint, servíettur voru lagðar á milli diska, kassar utan um borðbúnað og hvergi var ryk- korn að sjá. Þú elskaðir sólina og það var þér mikið kappsmál að verða brún. Það var grátbroslegt stundum því þú þurftir að hafa svo mikið fyrir því að ná lit, ólíkt pabba sem þurfti rétt að líta út, þá varð hann kolbrúnn á auga- bragði. Góðmennskan og hlýjan fylgdi þér alla tíð. Þú lifðir fyrir fjölskyldu þína og tókst barna- börnunum fagnandi. Aron okkar vildir þú alltaf hafa uppí hjá þér þegar hann gisti því hann svaf svo kyrr. Þegar ég kynnti síðan konuna mína og börnin hennar tvö inn í fjölskylduna tókstu þeim af mikilli hlýju og ást. Frá fyrsta degi áttir þú í einstöku sambandi við þau. Elsku mamma, takk fyrir allt. Þú færðir okkur fagran heim með hjartalagi þínu. Nú ertu laus úr viðjum hugans og lifir frjáls í hjörtum okkar. Þú elskaðir sól, þú elskaðir jól, þú elskaðir Elvis, rokk og ról. Þú elskaðir blóm, fugla og dýr, hunda, hesta, ketti, kýr. Þú elskaðir kaffi og bakkelsi með, þú elskaðir börnin, allt þetta ger. Þú elskaðir sund og spila á spil, en varst stundum tapsár en það vel ég skil. Þú elskaðir spjall og þinn gamla kall, sem ennþá er brattur og þónokkuð snjall. Þú elskaðir hlátur, þú elskaðir humar, þú elskaðir haustliti og fallegt sumar. Þú elskaðir leikhús, listir og ljóð og allt þitt frábæra krakkastóð. Því segi ég mamma, hér fyrir rest, við elskum þig öll því þú varst lang- best. Jóhann Gunnar, Elsa og börn. Elsku mamma mín. Nú ert þú farin í ferðalagið langa sem bíð- ur okkar allra. Það er svo sárt að missa þig en þetta var samt besta leiðin til að fara, að leggja höfuðið á koddann, sofna og vakna ekki aftur. Þú varst nánast horfin okkur mamma mín þar sem Alzheim- er-sjúkdómurinn yfirtók alltaf meira og meira í þínu lífi. Sá sjúkdómur er harður hús- bóndi og óvæginn. Hann fór sér hægt til að byrja með en síðustu tvö árin gerðust breytingar mjög hratt. Mamma gerði sér þó minnst grein fyrir því sjálf, var ljúf og brosandi þótt hún ætti að sjálfsögðu til að fussa smá ein- staka sinnum. Þá var það yfir einhverju sem henni fannst al- gjör fjarstæða en engin rök fylgdu máli enda tilsvör orðin samhengislaus og hún byrjaði setningar en lauk þeim ekki. Þrátt fyrir þennan grimma sjúkdóm komu upp spaugileg atvik inn á milli. Þá var það bæði eitthvað sem mamma gerði eða sagði. Stundum skellihlógum við að þessu og mamma með okkur þótt hún skildi ekkert hvað var svona fyndið. Við mamma feng- um nokkur hlátursköstin sem erfitt var að stoppa og það var dásamlegt að tengjast svona vel með brosi og hlátri, sérstaklega þar sem hún var orðin svo af- tengd raunveruleikanum. Hægt er að segja að áhuga- mál mömmu hafi verið blóm. Hún elskaði blómin sín og hugs- aði vel um þau. Svo vel, að eftir því sem lengra leið á sjúkdóms- ferlið var alltaf verið að vökva, mörgum sinnum á dag. Í fyrstu þurfti að þurrka vatn úr glugga- kistunni og af borðum en þegar þurfti að fara að þurrka vatnið af gólfinu fækkaði blómunum hægt og rólega enda voru engin merki þess að hún skynjaði það. Mér þykir afskaplega vænt um að mamma héldi því nánast fram á síðasta dag að segja allt- af við mig „guð hvað þér er kalt“ þegar ég hitti hana og tók í hendur hennar. Enda voru hennar alltaf heitar og gott að leggja sínar í hennar. Já, það er skrýtið hvaða minningar koma upp og að svona nánast hversdagsleg at- hugasemd skuli vera mér svona dýrmæt minning. Það er gott að ylja sér við margar fallegar minningar, góða ferð elsku mamma, sjáumst seinna. Þín dóttir, Anna Sigríður (Anna Sigga). Ég vil minnast minnar kæru systur sem nú hefur fengið lausn frá sínum sjúkdómi sem hefur hrjáð hana í mörg ár. Alz- heimer-sjúkdómurinn þróast mishratt en að lokum tekur hann yfir líkamann, þrátt fyrir það var hún skapgóð og bros- andi. Borgarfjörðurinn var okkar sveit, þar ólumst við upp. Hulda Björk og við hinir krakkarnir hjálpuðum við búskapinn og gengum í öll verk sem þurfti að vinna í sveitinni. Eftir barnaskólagöngu fór hún að heiman í framhaldsskóla og síðan Húsmæðraskólann á Varmalandi. Það var voða gott að hafa hana þar þegar við þau yngri vorum í Barnaskólanum og gátum skotist til hennar þar. Hún flutti síðan til Reykja- víkur að vinna. Hún ákvað að prufa að fara á síldarvertíð á Austurlandi. Þar tóku örlögin völdin er hún hitti mannsefnið sitt, Sigurð Óskar Jónasson. Þau eignuðust sitt fyrsta barn um sama leyti og við Guðmund- ur bróðir fermdumst. Þá um vorið tóku Sævar og Sólveig við búinu í Arnarholti og við fluttum til Reykjavíkur og við ungling- arnir hófum skólagöngu þar. Hulda Björk, Sigurður og sonur bjuggu hjá okkur fjöl- skyldunni á Hofteignum á með- an íbúð þeirra í Árbænum var í byggingu. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap í Árbænum og eignuðust síðan dóttur og tvíburastráka. Afkomendahópurinn þeirra hef- ur stækkað, börn og barnabörn- in eru 16. Hulda Björk var útivinnandi samhliða húsmóðurstörfum sín- um og barnauppeldi, vann hún við ýmis störf, allt þar til veik- indin gerðu vart við sig og hún varð að hætta því. Sigurður hætti í sinni vinnu til að annast hana er sjúkdómurinn ágerðist Hulda Björk Guðmundsdóttir Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Kveðja, Bryndís Rut Stefánsdóttir. Kolbrún Gerður Sigurðardóttir ✝ Kolbrún Gerður Sigurðardóttirfæddist 28. desember 1936. Hún and- aðist 20. september 2018. Kolbrún Gerður var jarðsungin 27. september 2018. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Hjartans þakkir til allra sem auðsýndu okkur kærleik og hlýhug vegna andláts elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, EYJÓLFS ÞÓRS SÆMUNDSSONAR, forstjóra Vinnueftirlits ríkisins. Sérstakar þakkir eru færðar til líknardeildar í Kópavogi. Guð blessi ykkur öll. Gerður S. Sigurðardóttir Helga Eyjólfsdóttir Þorgeir Gestsson Baldur Þór Eyjólfsson Ástkær sonur minn og bróðir, ÁSGEIR EINAR STEINARSSON, Bugðulæk 2, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 24. október klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Steinar Freysson Jón Freyr Steinarsson Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BENEDIKTS HANS ALFONSSONAR, skólastjóra Siglingaskólans. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar V-4 á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Grund fyrir einstaka ummönnun sem honum var veitt af hlýju og virðingu. Katrín Jónsdóttir Guðleif Hlíf Benediktsdóttir Jan Lönnqvist Jón Atli Benediktsson Stefanía Óskarsdóttir Kristín Benediktsdóttir Jón Pétur Friðriksson Anna Þóra Benediktsdóttir Helgi Benediktsson María S. Norðdahl Kjartan Benediktsson Lísa Anne Libungan og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, VALGERÐUR HÖSKULDSDÓTTIR, fyrrv. bókavörður í MH, Eiríksgötu 8, Reykjavík, lést fimmtudaginn 27. september á Landspítalanum í Fossvogi. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Úlfar Helgason Sigrún Úlfarsdóttir Þórdís Úlfarsdóttir Ragnar Hafstað Bergþóra Úlfarsdóttir Christian Bourdel Örn Höskuldsson Margrét Guðmundsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JARÞRÚÐUR INGIBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR frá Ási, Dalabyggð, andaðist á dvalarheimilinu Silfurtúni fimmtudaginn 18. október. Útför hennar mun fara fram frá Staðarhólskirkju í Saurbæ laugardaginn 27. október klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á styrktarsjóð Silfurtúns, reikn.nr. 0312-13-700021, kt. 530586-2359, Lionsklúbbur Búðardals. Jóhann Sæmundsson Sæmundur G. Jóhannss. Jóhanna B. Jóhannsd. Guðbjörn Guðmundsson Margrét Jóhannsdóttir Finnbjörn Gíslason Kristján V. Jóhannsson Svanhildur Halldórsdóttir Ingibjörg Jóhannsdóttir Þórður Már Svavarsson Jarþrúður H. Jóhannsd. Freyr Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ekki átti ég von á þeim sorgarfrétt- um sem Bjarni son- ur minn færði mér þegar hann hringdi í mig rétt eftir miðnætti 27. sept. sl. og tilkynnti mér að Eygló amma væri látin. Ég á margar góðar minningar um Eygló fyrrverandi tengdamóður mína sem reyndist mér og mín- um alltaf vel. Við héldum ávallt okkar vináttu og sambandi. Eygló var mikil félagsvera og ávallt hrókur alls fagnaðar, enda fróð og vel að sér og hafði skoð- anir á dægurmálunum hverju sinni. Hún var vel lesin og las mikið meðan sjónin leyfði. Þá tóku hljóðbækurnar við sem henni fannst gaman að hlusta á. Hún hafði gaman af að ráða krossgátur og var mjög fær í því. Eygló Gísladóttir ✝ Eygló Gísla-dóttir fæddist 18. júlí 1940. Hún lést 21. september 2018. Eygló var jarð- sungin 9. október 2018. Einnig hafði hún gaman af að spila og var mikið spilað á jólum og þegar hún kom í heimsókn til okkar. Þórður sonur minn var einn vetur hjá henni á Súðavík þegar hún var kennari þar og á hann margar góð- ar minningar það- an. Ég og Björgvin heimsóttum Eygló ömmu hans á Reykhóla þegar hún bjó þar og vorum hjá henni í tvær nætur. Hún tók vel á móti okkur, var búin að elda og baka, svo var tekið í spil um kvöldið. Daginn eftir fór hún með okkur í berja- ferð og þar var nóg af berjum og mikið tínt og sultað þegar heim var komið. Ég gæti endalaust haldið áfram því minningarnar streyma fram. Ég þakka fyrir að hafa kynnst henni Eygló og hugsa til hennar með hlýhug og virðingu og bið góðan Guð að styrkja fjölskyldu hennar og votta þeim mína innilegustu samúð. Ragna Sveinbjörnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.