Morgunblaðið - 23.10.2018, Blaðsíða 27
gang. Ég hef sinnt listútsaumi,
postulíns- og keramikmálun, hef
prjónað og heklað, stundað blóma-
rækt og jafnvel smíði og smávið-
gerðir á heimilinu.
Nú orðið læt ég hins vegar garð-
yrkjumenn um garðinn. Þeir búa yf-
ir sérþekkingunni og úthaldinu.“
Fjölskylda
Eiginmaður Elísabetar var Her-
bert Hriberschek Ágústsson, f. 8.8.
1926, d. 20.6. 2017, sem kom hingað
til lands frá Austurríki til þess að
taka við stöðu fyrsta hornleikara í
Sinfóníuhljómsveit Íslands, hljóm-
listarmaður, waldhornleikari, tón-
skáld, tónlistarkennari, skólastjóri
og kórstjóri.
Foreldrar hans voru August Hrib-
erschek, f. 13.8. 1900, d. 22.3. 1968,
vélstjóri og járnbrautarlestarstjóri,
og k.h., Hildegard Hriberschek, f.
27.1. 1909, d. 1.8. 2005, húsfreyja,
lengst af í Graz í Austurríki.
Börn Elísabetar og Herberts: 1)
Sverrir, f. 12.6. 1957, tónlistarkenn-
ari og bókagerðarmaður, en eigin-
kona hans er Helga Björg Braga-
dóttir og þau eiga og reka nú Gisti-
og veitingahúsið á Flúðum en fyrri
eiginkona Sverris er Rósa Kristín
Benediktsdóttir og eru börn þeirra
Sunna Hrund, f. 1995, nemi, og
Hilmar Benedikt, nemi, f. 1998; 2)
Hildur María, f. 22.2. 1961, BA í
þýsku, en eiginmaður hennar var
Birgir Friðriksson verslunarmaður
en þau slitu samvistum og eru börn
þeirra María Rut, f 1983, Anna
María, f. 1989, Katrín Björk, f. 1992,
og Karen Ósk, f. 1992; 3) Ágúst, f.
7.11. 1964, og 4) Hilmar, f. 7.11. 1964,
d. 17. og 18.11. 1964. Barnabarna-
börn eru nú fjögur að tölu á aldr-
inum eins til 12 ára.
Systkini Elísabetar: Stefán Þórð-
ur, f. 29.11. 1926, d. 24.9. 1969, lög-
fræðingur lengst af hjá Sakadóm-
aranum í Reykjavík og umboðs-
maður Pan American-flugfélagsins á
Keflavíkurflugvelli; Sigríður G., f.
28.8. 1928, húsfreyja í Reykjavík;
Kristín, f. 28.3. 1930, d. 19.5. 1990,
skrifstofustjóri og fulltrúi í Reykja-
vík, og Aðalsteinn, f. 23.12. 1931, raf-
magnsverkfræðingur og fv. raf-
magnsstjóri í Reykjavík.
Foreldrar Elísabetar voru Einar
Oddur Guðjohnsen, f. 18.12. 1895, d.
30.9. 1954, kaupmaður á Húsavík,
síðar umboðsmaður Eimskipafélags-
ins í Reykjavík, og k.h., Guðrún
Snjólaug Aðalsteinsdóttir Guðjohn-
sen, f. 29.3. 1905, d. 30.11. 1982, hús-
freyja.
Elísabet
Guðjohnsen
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Stóru-Reykjum
Eyjólfur Brandsson
b. á Stóru-Reykjum í Reykjahverfi
Sigríður Guðrún Eyjólfsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Snjólaug Aðalsteinsdóttir Guðjohnsen
húsfreyja á Húsavík og síðar í Rvík
Aðalsteinn Jóhannesson
trésmíðameistari á Húsavík
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Efri-Dálksstöðum
Jóhannes Sigurðsson
b. á Efri-Dálksstöðum á
Svalbarðsströnd
Aðalheiður Jóhannesdóttir
húsfreyja á Húsavík
Auður Aðalsteinsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Aðalheiður
Friðþjófsdóttir
bókasafnsfr. í Rvík
Eiður
Guð-
ohnsen
múrara-
meistari
í Rvík
j
Arnór
Guð-
john-
sen
knatt-
pyrnu-
maður
s
Eiður
Smári
Guð-
johnsen
knatt-
spyrnu-
maður
Þórður
Svein-
björns-
son
Guð-
johnsen
kaupm.
á
Húsavík
Kolbrún
Bergþórs-
dóttir
blaðamaður
í Rvík
Jakob
Guð-
johnsen
afmagns-
stjóri í
Rvík
r
Dóra
Jakobsdóttir
Guðjohnsen
líffræðingur
í Rvík
Halldóra
Margrét
Guðjohnsen
húsfr. í Rvík
Sigurður Briem
verkfræðingur í Garðabæ
Stefán Briem
eðlisfræðingur í Rvík
Elísabet Ólafsdóttir
húsfreyja á Vopnafirði
Jakob Helgason
kaupm. á Vopnafirði, systursonur
sr. Jakobs í Steinnesi, langafa
Vigdísar Finnbogadóttur
Kristín Jakobsdóttir Guðjohnsen
húsfreyja á Húsavík
Stefán Guðjohnsen
kaupmaður á Húsavík
Halldóra Margrét Sveinbjörnsson
húsfreyja á Húsavík
Einar
Viðar
banka-
itari og
öngvari
í Rvík
r
s
Drífa Viðar Thoroddsen
ithöfundur og listmálari
Jórunn Viðar tónskáld
rEinar Thoroddsen háls-,nef- og eyrnalæknir
Katrín Fjeldsted læknir og
fv. borgarfulltrúi og alþm. Marta María
Guðjohnsen
húsfreyja í
Rvík
Halldór Pétursson
teiknari
Pétur
Halldórsson
borgarstjóri
Kristjana
Guðjohnsen
húsfreyja í
RvíkMarkús Möller
hagfræðingur
í Rvík
Baldur
Möller
ráðu-
neytis-
stjóri í
Rvík
Gunnar Jens Möller hrl.
og framkvæmdastj.
Sjúkrasamlags Rvíkur
Þóra Guðrún
Guðjohnsen
húsfr. í Rvík
Þórður Sveinbjörnsson Guðjohnsen
verslunarstj. á Húsavík síðar kaupm. í
Kaupmannahöfn
Úr frændgarði Elísabetar Guðjohnsen
Einar Oddur Guðjohnsen
kaupm. á Húsavík, síðar innkaupastjóri
Eimskipafélags Íslands í Rvík
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018
90 ára
Steinunn Júlía
Friðbjörnsdóttir
85 ára
Elísabet Guðjohnsen
Kristín Gunnlaugsdóttir
80 ára
Grétar K. Jónsson
Haukur Hannesson
75 ára
Enok Guðmundsson
Ingibjörg Oddsdóttir
Margrét Ratree
Thongsanthiah
Ósk Pétursdóttir
Pétur Steingrímsson
Sigurberg Bragi
Bergsteinsson
Þórður B. Benediktsson
70 ára
Björn Sigurður
Benediktsson
Kjartan Örn Sigurbjörnsson
Ólafur Óskarsson
Ólöf Margrét Magnúsdóttir
Valdimar Sveinsson
60 ára
Ásmundur Sigurðsson
Bragi Svavarsson
Gerður Hauksdóttir
Hörður Ingi Stefánsson
Leszek Adam Manturo
Ragnhildur Pála Tómasd.
Sigríður Jensdóttir
Smári Gunnarsson
Una Lilja Eiríksdóttir
Valdimar Ólafsson
50 ára
Ásgeir Þórður Halldórsson
Böðvar Þór Eggertsson
Dalla Gunnlaugsdóttir
Eiríkur Leifur Gautsson
Harpa Hlín Jónasdóttir
Heiðar Skúli Steinsson
Páll Gísli Ásgeirsson
Sandra Jónasdóttir
40 ára
Albert Snær Guðmundsson
Berglind Norðfjörð Gíslad.
Bergþóra Guðnadóttir
Christian Kwaku Boadi
Dýrley Dan Sigurðardóttir
Guðlaugur Tómasson
Hugo Norberto Moreira De
Sousa
Inga Guðrún Kristjánsdóttir
Jens Líndal Sigurðsson
Karl Dan Viðarsson
Katrín Auðunardóttir
Katrín Elíasdóttir
Kári Sveinbjörn Gunnarsson
Lilja Tryggvadóttir
Örvar Kristínar Jónsson
30 ára
Alexandra Diljá Bjargardóttir
Ari Guðjónsson
Dmitry Andreevich Torkin
Elísabet Ester Sævarsdóttir
Erla Björk Guðnýjardóttir
Gintare Kuklisina
Harpa Rún Elínardóttir
Jóhann Teitur Guðmundss.
Linda Benediktsdóttir
Maya Marinova Angelova
Rafn Júlíus Jóhannsson
Til hamingju með daginn
30 ára Linda býr í Mos-
fellsbæ, lauk BS-prófi í líf-
efnafræði frá HÍ og heldur
úti síðu um bygginga-
framkvæmdir, matseld og
híbýlastíl.
Maki: Ragnar Einarsson,
f. 1988, framkvæmda-
stjóri Sales Cloud.
Sonur: Róbert Ragnars-
son, f. 2013.
Foreldrar: Sigrún Vikar, f.
1966, og Benedikt Sigur-
jónsson, f. 1966.
.
Linda
Benediktsdóttir
30 ára Ari ólst upp í
Garðabæ, er nú búsettur í
Reykjavík, lauk meist-
araprófi í lögfræði frá HÍ,
LLM-prófi frá Columbia
Law School og er yfirlög-
fræðingur hjá Icelandic
Group.
Systkini: Sigríður Dís, f.
1986, og Davíð, f. 1993.
Foreldrar: Guðjón Erling
Friðriksson, f. 1954, og
Fanney Óskarsdóttir, f.
1959. Þau er búsett í
Garðabæ.
Ari
Guðjónsson
40 ára Karl ólst upp í
Hafnarfirði, býr þar og
starfrækir fyrirtækið
Epoxy Verk.
Maki: Helena Ósk
Harðardóttir, f. 1977,
fyrrv. framreiðslukona.
Börn: Bjartur Evald, f.
2001; Birgitta Rún, f.
2008, og Ísabella Guðrún,
f. 2012.
Foreldrar: Guðrún Sæ-
mundsdóttir, f. 1953, og
Viðar Sigurðsson, f. 1951,
d. 1991.
Karl Dan
Viðarsson
Skafti Ingimarsson hefur varið
doktorsritgerð sína í sagnfræði við
Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
Íslenskir kommúnistar og sósíal-
istar: Flokksstarf, félagsgerð og
stjórnmálabarátta 1918-1968. And-
mælendur voru Rósa Magnúsdóttir,
dósent í sagnfræði við Árósaháskóla
og Sumarliði Ísleifsson, lektor við
Sagnfræði- og heimspekideild Há-
skóla Íslands.
Doktorsritgerðin var unnin undir
leiðsögn Vals Ingimundarsonar, pró-
fessors í sagnfræði. Aðrir í doktors-
nefnd voru Ragnheiður Kristjáns-
dóttir, dósent í sagnfræði, og Jón
Ólafsson, prófessor í heimspeki.
Doktorsrannsóknin fjallar um
upphaf og þróun kommúnistahreyf-
ingarinnar á Íslandi á tímabilinu
1918–1968. Saga hreyfingarinnar er
skoðuð í ljósi íslenskrar þjóð-
félagsþróunar og alþjóðlegra hug-
myndastrauma. Kannað er úr hvaða
jarðvegi hreyfingin var sprottin,
skoðað hverjir studdu hana og hvers
vegna og sýnt hvernig fámennum
hópi íslenskra kommúnista tókst að
gera flokk sinn
að fjöldahreyf-
ingu, ólíkt því
sem gerðist í
flestum ná-
grannalöndum.
Rannsóknin
beinist einkum að
skipulagi og dag-
legu starfi ís-
lenskra kommúnista og sósíalista,
ólíkt flestum fyrri rannsóknum, sem
leggja megináherslu á tengsl
kommúnista og sósíalista við Sovét-
ríkin á millistríðs- og kalda-
stríðsárunum.
Hér vegur þyngst viðamikil lýð-
fræðileg greining á rúmlega 2.900
skráðum félögum í Kommúnista-
flokki Íslands (1930-1938) og Sam-
einingarflokki alþýðu – Sósíalista-
flokknum (1938-1968). Greiningin er
hin fyrsta sinnar tegundar á félaga-
skrám íslenskra stjórnmálaflokka og
byggist á frumheimildum sem varpa
nýju ljósi á samfélagslega stöðu
flokksmanna og félagssamsetningu
flokkanna tveggja.
Skafti Ingimarsson
Skafti Ingimarsson lauk B.A.-prófi í sagnfræði við Háskóla Íslands árið 2004,
prófi í uppeldis- og kennslufræði við Háskólann á Akureyri árið 2004 og M.Litt-
prófi í sagnfræði við University of St Andrews árið 2007. Meðan á doktorsrann-
sókninni stóð hlaut hann styrk úr háskólasjóði Eimskipafélagsins og úr minning-
arsjóði Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi forsætisráðherra. Skafti undirbýr nú
ritun ævisögu Einars Olgeirssonar. Börn Skafta eru Árdís Eva Skaftadóttir og
Skírnir Már Skaftason og foreldrar Skafta eru Ingimar Friðfinnsson og Guðný
Skaftadóttir.
Doktor
Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af
slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is